Morgunblaðið - 25.05.1956, Side 1
ISÍýja „alþýðufrelsið46:
GLÆPIJR að hSusfa á
erleudar úfvarpsstöðvar
Láflausar hresnsanlr
■fjRÁTT fyrir að öll leppríki Rússa hafi lýst því yfir, að
nú, eftir að Krúsjeff kvað upp úr um félaga Stalin og
hans „dáðir“ hafi verið tekin upp mildari stefna í innan-
ríkismálum — og kúgunin sé ekki eins mikil og áður, heldur
hreinsununum áfram(H) Meðal annars hefur íjölda manna,
jafnt lífs sem liðnum, verið gefnar upp upplognar sakir —
og hefur það átt að gefa til kynna hve frelsið þar eystra
er á háu stigi!! Að dæma eftir blöðum, sem borizt hafa að
austan undanfarna daga, hefur nýtt fjör samt færzt í dóms-
málin, og eru margir menn dæmdir fyrir landráð á degi
hverjum — rétt eins og í tíð Stalins. Auk þess eru hafnar
víðtækar hreinsanir — og gömlu „stalinistarnir" hverfa nú
óðum.
Einna mest hefur borið á|
liessu í Póliandi og Xékkósló-'
vakíu. Þar hafa verið sett ný
„frelsislög“, en samkvæmt
Japanir hoino beiðni Rússa
um upptöku stjórnmúlasambands
MOSKVA: — Það hefur nú
verið tilkynnt, að Rússar hafi
farið fram á það við Japani,
að stjórnmálasamband verði
tekið upp milli þjóðanna án
þess að gengið verði frá frið-
arsamningunum. Hafa Japan-
ir vísað tilmælum þessum al-
gerlega á bug. Setja Japanir
undirritun friðarsamninga sem
skilyrði fyrir stjórnmálasam-
bandi, vegna þess að þeir ætla
sér að ná á sitt vald eyjum
þeim, er Rússar tóku hernami
í styrjöldinni, en hafa ekki
viljað skila aftur.
Rússar hafa að undanförnu
haft mikil afskipti af japönsk-
um fiskibátum í Kyrrahafi,
og hafa þeir krafizt þess, að
Japanir sæktu um leyfi til
Rússa, til þess að stunda veið-
ar í vestanverðu Kyrrabafi.
Ichiro Kino, einn af meðlim-
um japönsku stjórnarinnar,
fór á dögunum til Moskvu,
til þess að reyna að koma
fram rétti Japana, og settu
Rússar þá upptöku stjórn-
málasambands sem skilyrði
fyrlr jöfnun fiskveiðideilunn-
ar. Oekk þá Kino af fundi
og hafnaði kvöldverðarboði,
sem félagarnir í Kreml ætl-
uðu að efna til í tilefni komu
hans.
þeim verða „stalinistarnir“ að
hverfa, og fer ekki hjá því, að
sumum finnist sækja í sama
horfið og áður.
Fyrir nokkru voru t. d. sex
fyrrverandi pólskir kommún-
istar dæmdir í sjö ára fang-
elsi fyrir landráð. í Tékkósló-
vakíu voru á dögunum fimm
menn dæmdir til fangelsisvist-
ar vegna þess að þeir voru
fundnir sckir um að hafa
hlustað á bandarískar útvarps-
stöðvar — og hafa staðið gegn
hinni „samvirku forystu“
flokksins. Ákærurnar gegn
gömlu „stalinistunum“ hljóma
yfirleitt þannig, að Vestur-
Evrópublöð hafa það eftir
fólki, sem kemur frá komm-
únistaríkjunum, að ástandið
sé þar sízt betra en áður. Þar
hafi aðeins verið skipt um
foringja, og efli þeir nú að-
stöðu sína með nýjum hreins-
unum, sem ekkert standa að
baki hreinsunum þeim, er
Stalin lét gera á sínum tíma.
Ekki af baki dottinn
AÞENA: — Þær fregnir fljúga
nú um Grikkland, að skipn-
kóngurinn Onassis sé í þann
veginn að taka að sér allt
innanlandsflug í Grikklandi.
MEÐ SÓLBLIK í HÁRINU
Þessi litla telpa var á gangi í gær með mömmu sinni í Vonar-
stræti. Sólin skein og fyllti hina björtu lokka litlu stúlkunnar.
Hún gengur öruggum skrefum mót framtíðinni við hlið mömmu
sinnar. „Viltu ekki, löngun, leiða litla barnið þér við hönd,“ sagði
Stefán frá Hvítadal í einu kvæði sínu.
— Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Kunnur. bandariskur kór væntanlegur
hingað ásamt 20 manna hljómsveit
Úrval úr einum þekktasta kór vestan
hafs — Stjórnandi er kunnur
tónlistarmaóur, Robert Shaw
N.K. ÞRIÐJUDAGSKVÓLD er
væntanlegur hingað til Iands 30
manna bandarískur, blandaður
kór ásamt 20 manna hljómsveit.
Er liér um að ræða úrval úr ein-
um þekktasta blönduðum kór
vestan hafs, og stjórnandi hans
er hinn kunni, bandaríski tónlist-
armaður Robert Shaw. Kórinn
heldur hér aðeins eina opinbera
tónleika á vegum Tónlistarfélags
ins og Íslenzk-ameríska félagsins
og verða tónlcikarnir haldnir í
Austurbæjarbíó n.k. miðviku-
dagskvöld kl. 9,15.
★ KÓRINN ER SKIPAÐUR
ÚRVALS SÖNGVURUM
Koma þessara listamanna hing-
að til lands má teljast stórmerk-
ur viðburður í tónlistarlífi höfuð-
staðarins. Kór þessi er eins og
áður er sagt úrval úr stærri kór,
sem er mjög kunnur vestan hafs
og var stofnaður fyrir rúmlega
tíu árum af Robert Shaw, enda
hefir kórinn jafnan borið nafn
hans. Kórinn er eingöngu skipað-
ur völdum atvinnusöngvurum,
og hljómsveitin skipuð hljóðfæra
leikurum, sem allir eru einleik-
arar.
Efnisskrá tónleikanna er mjög
fjölbreytt. Hefst hún á nokkrum
sönglögum frá þvi um 1600, því
næst verður flutt Kantata nr. 4
eftir Bach fyrir kór, hljómsveit
og einsöngsraddir, og G-dúr
messa Schuberts. Kórinn syngur
því næst nokkra bandaríska
negrasöngva, en efnisskránni lýk
ur með verkum eftir tónskáld,
sem uppi voru á fyrra helmingi
þessarar aldar.
★ REYKJAVÍK — SÍÐASTI
VIÐKOMUSTAÐUR Á
LANGRI TÓNLISTARFERÐ
Tónlistarfólkið kemur hingað
frá Helsingfors, en Robert Shaw
hefir ásamt kórnum og hljóm-
sveitinni verið á tónleikaferð um
Mið-Austurlönd og Evrópu und-
anfarinn tvo og hálfan mánuð.
Hafa þeir heimsótt 38 borgir í
20 löndum, haldið 50—60 tónleika
og hlotið mjög góða dóma. Lista-
K4rinn ásamt hljómsveitarstjóranum
Kjósendœr Sjúlístæðisflokksins,
athngið hvort þið ernð ú kjörskrú
KJ Ö R S K R Á liggur frammi á kosningaskrifstofunni í
Vonarstræti 4 (húsi Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur) III. hæð. Skrifstofan er opin kl. 10—10 daglega. _
Símar 81860 og 7574.
UMDÆMAFULLTRÚAR eru hvattir til að fylgjast vel
með, að allir kjósendur flokksins séu á kjörskrá.
ATHUGIÐ, að kærufrestur er til 3. júní n.k.
mennirnir eru nú á heimleið, og
er Reykjavík síðasti viðkomu-
staður þeirra í þessari löngu ferð.
★ ★
Robert Shaw hefir getið sér
orðstír sem frábær stjórnandi.
Hefir hann mestmegnis fengizt
við þjálfun og stjórn fjölmennra,
blandaðra kóra, en er einnig
þekktur sem hljómsveitarstjóri
og kennari. Um tíu ára skeið
voru þeir Shaw og Arturo Tosc-
anini, hljómsveitarstjórinn heims
frægi, nánir samstarfsmenn, og
notaði Toscanini jafnan kór
Shaws og aðstoð, er hann flutti
hin stóru verk meistaranna fyrir
kór og hljómsveit, svo sem Missa
Solemnis og níundu sinfóníuna
eftir Beethoven, Te Deum eftir
Verdi og söngleiki hans Aida,
Falstaff og Grímudansleikinn,
Gesand Der Parzen eftir Brahms
og svo mætti lengi telja. Shaw er
ungur að aldri — 39 ára.
Ný tillaga
BELGRAD, 24. maí: — Þjóðernis
sinnar í Norður-Afríku hafa lagt
til, að Egyptum, Júgóslövum og
einhverjum þriðja aðilanum verði
falið að reyna að koma á sættum
milli Frakka og þjóðernissinna í
Alsír. E1 Abed Bouhofa, talsmað-
ur nefndar þeirrar, sem vinnur að
því að jafna deilumálin í Norður-
Afríku á vettv^ngi Sameinuðu
þjóðanna, kom þessum tilmælum
á framfæri við júgóslavneska «t-
anríkisráðuneytið í dag. Sam-
kvæmt tillögu þessari er ráðgert,
að þessi þriggja landa ncfnd reyni
að koma á vopnahléi og frjálsum
kosningum — „án þess að blanda
sér inn í hinar stjórnmálalegu
deilur", eins og segir í skeytinu.
*>