Morgunblaðið - 21.03.1957, Page 11

Morgunblaðið - 21.03.1957, Page 11
Fimmtudagur 21. marz 1957 MORCVNBLAÐIÐ 11 Annar hver Akureyringur hefur dottið i „Lundsgöngunni“ Mikill óhugi þar ó göngunni LANDSGANGAN“ eða öðru nafnj „4 km gangan“ er víða á landinu eitt aðalumræðuefni fólks. Ekki á það sízt við um Akureyri, enda situr þar stjórn Skíðasambandsins, en það stendur fyrir göngunni, og eru stjórnarmenn ánægðir mjög, því þátttakan og árangurinn er meiri en þeir bjartsýnustu þeirra þorðu að vona. Á Akureyri þreyttu um s.l. helgi 700 manns gönguna og hafa þá um 3000 Akureyringar lokið henni. Margt hefur skemmtilegt skeð í sambandi við gönguna, og hér er kafli úr bréfi sem blaðamanni Mbl. barst frá Hermanni Stefánssyni form. Skíðasambandsins. ★ „Á Akureyri hefur verið mjög fagurt undanfarna daga. Sólskin, logn og nokkurt frost og fann- breiða yfir öllu. Margt manna var á skíðum um sl. helgi. 700 borgarar luku „Landsgöngunni" og auk þess nokkrir af nemend- um skólanna, en þeir eru nú í óða önn að ljúka göngunni. Barna- skóli Glerárþorps hafði keppni á laugardaginn. Var gengið frá skólanum norður fyrir Lónsbrú og til baka. Er ólíkt skemmti- legra fyrir unglingana að fara þannig yfir holt og hæðir, heldur en að ganga lítinn hring og oft á íþróttavelli. ★ alþm., rúmlega áttræður að aldri, notaði forláta broddstaf. Fór þetta trausta áhald Erlingi vel, enda mun hann hafa lært í æsku að nota það, á traustum ís og í viðsjálu hrauni Aðaldals. Tveimur hálfáttræðum létt- leikamönnum mætti ég hjá Hest- kletti, þeim Jónasi Stefánssyni, smið, sem iðkar sund á sumrin og skíðaíþróttir á vetrum, og Birni Árnasyni frá Pálsgerði, er æfði knattspyrnu í Magna í Höfðahverfi lengur en flestir aðrir. Jónasína Helgadóttir, 72 ára, gekk sl. sunnudag. Mun hún hafa Ólafur Búi Gunnlaugsson 3 ára yngsti göngumaður Akureyrar „landsmet" í kvennaflokki enn sem komið er“. Er hér lokið bréfi Hermanns Stefánssonar. Yngsta barnið á Akureyri sem þreytt hefur gönguna, er 3 ára. Er það Ólafur Búi Gunnlaugsson og gekk hann braut þá, sem ligg- ur til fjallsins meðfram Laugar- læk, yfir Stóra-skarð upphjá Lundi, þaðan til suðurs upp Krummalág og fram af Krumma- borg, en í þeirri brekku detta mjög margir. Kastaði ég tölu á „bælin“ í brekkunni á sunnu- dagsmorgun og reiknaðist svo til að þau væru á milli 500 og 1000. Gera má því ráð fyrir að annar hver keppandi detti í Krumma- borgarbrekkunni. Sum bælanna voru djúp og virðuleg, sennilega eftir einhvern bæjarfulltrúanna.- Þó er engin vissa fyrir því. Eng- an snjó gat að líta á Jóni Sólnes eða Jakobi Frímannssyni, heldur ekki á Steindóri Steindórssyni, Stefáni Reykjalín, Jóni Þorvalds- syni eða Guðrúnu Guðvarðar- dóttur, þegar þau komu í mark (en snjórinn gat hafa dottið af á leiðinni). Og Helga Pálsson sá ég skella sér fram af brekku- brúninni á sunnudaginn, án þess að detta, enda hlaut hann 1. verðlaun á fyrsta skíðamóti á Akureyri 1914. Páll Jónalansson 84 ára elzti göngumaður Akureyrar Páll Jónatansson, 84 ára gam- all maður, brá fyrir sig löngum staf að fornum sið og gerði hann það einnig í markinu, en þar er flughál lítil brekka. Páll er elzti maðurinn hér sem gengið hefur. Erlingur Friðjónsson, fyrrv. Handknattleikur: Línurnar teknar ab skýrast í ísl.mótinu ASUNNUDAGINN fóru fram að Hálogalandi 3 leikir fslands- mótsins í handknattleik. Var það 16. leikkvöld mótsins. Er mótið nú rúmlega hálfnað, en ráðgert er að því ljúki 28. apríl. Línurnar eru nú nokkuð farnar að skýrast. f meistaraflokki karla eru aðeins FH og KR með engan tapleik og baráttan kemur því fyrst og fremst til að standa þeirra á milli. f meistaraflo'kki kvenna er enn alls ekki hægt að segja um úrslit. Staðan í Mfl. karla er nú þannig: L U J T Mörk St. FH 5 5 0 0 134:86 10 KR 4 4 0 0 101:60 8 Fram 5 3 0 2 137:123 6 ÍR 3 2 0 1 74:58 4 Valur 3 2 0 1 69:57 4 Ármann 4 2 0 2 96:99 4 Aftureld. 5 1 0 4 103:128 2 Víkingur 6 1 0 5 91:176 2 Þróttur 4 0 0 4 59:87 0 í Meistarafl. nú þannig: kvenna er staðan L u J T Mörk St. Þróttur 2 1 1 0 24:10 3 Fram 2 1 1 0 12:10 3 KR 1 1 0 0 22:4 2 Ármann 2 1 0 1 18:11 2 FH 3 0 0 3 13:54 0 Tafla í öðrum flokkum verðúr að bíða um sinn. LEIKIRNIR Á SUNNUDAGINN Eins og fyrr segir fóru 3 leikir fram á sunnudagskvöldið Vakti það mesta athygli, að > meistara. flokki karla sigraði Afturelding ÍR með 23:20. Var leikurinn illa leikinn einkum af ÍR-ingum, sem sýnt hafa styrkleik á þessu móti, t.d. gegn Val. ÍR vantaði einn sinn bezta mann ,en það afsakar ekki, að hinir leiki illa og sigur Aftureldingar var verðskuldað- ur. Einkum léku þeir traustlega í vörn og átti þar mestan heiður Halldór Lárusson. Þá mættust í Mfl. karla KR og Víkingur. Víkingsliðið var eitt- hvað miður sín, í það vantaði menn og aðrir gengu ekki heilir til skógar, eins og t.d. Sigurður Jónsson, sem í hinum 6 leikum liðsins hefur borið af í leik, en skoraði nú aðeins 1 mark. — KR vann auðveldan sigur. Þetta var meiri æfing fyrir þá en keppni, enda skiptust þeir á að skora mörk og skoruðu allir leikmenn í liðinu, nema Guðjón í markinu. í 3. fl. vann FH Þrótt með 19 mörkum gegn 13 í tilþrifalitlum leik. ftlauðiingaruppboð sem auglýst var í 25., 27. og 29. tbl. Lögbirtingablaðsins 1956 á Digranesbletti 61 B (Digranesvegur 52) í Kópa- vogi, eign Ragnars Lþvdahl, fer fram eftir kröfu Árna Gunnlaugssonar hdl. o. fl. á eigninni sjálfri föstudaginn 22. marz 1957, klukkan 15. Bæjarfógetinn í K*ópavogi. Hotel Kongen af Danmark — Köbenhavn Frá 1. jan. til 1. maí: Herbergi með morgunkaffi frá d. kr. 12.00. HOLMENS KANAL 15 — C. 174. í miðborginni — rétt við höfnina. Uppboð á antíkhús- gögnum og postulíni í Listamannaskálanum í dag AMORGUN kl. 5 efnir Sigurður Benediktsson til uppboðs á antikhúsgögnum og listmunum í Listamannaskálanum. Eru munirnir til sýnis í skálanum í dag kl. 10—4. Þarna eru antíkhús- gögn frá mörgum löndum og dýrindis postulín. ANTÍKHÚSGÖGN Þetta er fyrsta uppboð Sigurð- ar þar sem hann hefir einungis húsgögn og listmuni en engar bækur til sölu. Af munum má þarna nefna borðbúnaðarskáp hinn bezta grip frá árinu 1648. Það er hin mesta smíði, gríðarstór og mikill og fögur listvinna. Þarna eru og tveggja sæta sófi og þrír stólar útskornir, franskir með góbelín- áklæði, í stíl Lúðvíks 15. Kínversk dagstofuhúsgögn eru þarna, sex hlutir, hin mesta lista smíði, lögð brúnum spæni. Aust- urlenzkar gólfábreiður eg for- láta þýzkur skápur í borðstofu með tilheyrandi postulíni. PÝRINDIS POSTULÍN Þá eru þarna allmargir postu- línsgripir en það er hið kunna þýzka Meissen-postulín, franskir fjóluvasar, dýrindis klukkur, Napóleonsbústa, englar og helgi- myndir. Sérstaklega er ein þeirra haglega gerð, 300 ára gömul aust- urrísk kristsmynd. Auk þess eru þarna allmörg fleiri antíkhúsgögn og listmuair alls 36 talsins. Alyndavélar til solu — með tækifærisverði — „Speed Graphic“ 6X9 með „Flash“-útbúnaði. „Rolleicord“ 6X6 (Linsa: Triotar 3,5 Carl Zeiss.'jena). EDVARD SIGURGEIRSSON ljósmyndari, Sími 1151, Akureyri. Skrifstofuslúlka ó s k a s t — Þarf að vera vön vélritun og bréfa- skriftum á ensku. Tilboð sem greini menntun, kaup- kröfur og aðrar upplýsingar, sendist í pósthólf 361 fyrir 25. þ. mán. Lngur maður, sem lokið hefur viðskiptanámi erlendis, óskar eftir að gerast meðeigandi í starfandi heildverzlun eða öðru fyrirtæki. Tilboð merkt: „Beggja hagur“—2370 sendist inn til afgreiðslu blaðsins fyrir fimmtudag 28. þ. mán. Fokhelt einbýlishús til sölu Fokhelt einbýlishús á mjög góðum stað í Kópavogi til sölu. STEINN JÓNSSON hdl. Lögfræðiskrifstofa — Fasteignasala. Kirkjuhvoli, Símar 4951 og 82090. Þeir sem ætla að fela okkur útvegun frystivéla og uppsetningu í vor og sumar, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu okkar við fyrstu hentugleika. BJÖRGVIN FREDERIKSEN h.f. Sími: 5522. Til sölu hús í Vogunum í húsinu er 3ja herbergja íbúð á hæð, 2 herbergi í risi og 2ja herb. íbúð í kjallara. Stór ræktuð og girt lóð. — Bílskúrsréttindi. EINAR SIGURÐSSON, Lögfræðiskrifstofa — Fasteignasala, Ingólfsstræti 4, Sími 6959.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.