Morgunblaðið - 01.05.1957, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.05.1957, Blaðsíða 6
6 MORCV1VBLÁÐ1Ð Miðvikudagur 1. maí 1957 FálkSnaa gelur út hæggengar plöt- ur með beztu listamönnum oklcar FÁLKINN H.F. gefur út f jórar hæggengar plötur með söng og hljóðfæraleik okkar beztu lisíamanna. Davíð Stefánsson frá Fagra skógi les úrval Ijóða sinna inn á plötur. Sl. föstudag bauð Haraldur Ólafsson forstjóri Fálkans h.f. nokkrum gestum til viðtals og fagnaðar í Naustinu í tilefni af útgáfu Fálkans á fjórum hæg- gengum grammófónsplötum með söng og hljóðfæraleik íslenzkra tónlistarmanna, en þeir eru dr. Páll ísólfsson, Kögnvaldur Sig- urjónsson, Gísli Magnússon og Guðrún Á. Símonar. — Meðal gestanna voru menntamálaráð- herra, helztu tónlistarmenn okk- ar og blaðamenn auk nokkurra annarra gesta. f ræðu er Haraldur hélt við þetta tækifæri gerði hann stutta grein fyrir útgáfustarfsemi Fálk- ans á íslenzkum hljómplötum, er hófst með því einstæða framtaki árið 1930, Alþingishátíðarárið, að fyrirtækið fékk hingað tæknisér- fræðinga frá Columbia-félaginu til þess að hljóðrita hátíðahöld- in og tónlistina í sambandi við þau. Ekki reyndist kleift að hljóð rita á Þingvöllum, en í Bárunni voru þá hljóðritaðar um 50 ís- lenzkar plötur. Sungu inn á þær ýmsir af fremstu söngvurum okk- ar og kórar, þeirra á meðal karla- kór K.F.U.M. og Landskórinn. — Var hér um merkan sögulegan atburð að ræða, því að þetta var í fyrsta sinn að sungið var inn á plötur hér á landi. Þótti upp- takan hin prýðilegasta, enda voru tækin miklu fullkomnari en áð- ur þekktist. — Hefur Fálkinn, sem kunnugt er, haldið áfram þessari útgáfustarfsemi sinni af miklum dugnaði og stórhug og nú snúið sér að útgáfu hæg- gengra platna, enda taka þær mjög fram hinum hraðgengu plöt um um tóngæði auk þess sem þær taka mörgum sinnum meira ?n hinar hraðgengu. Hinar nýju plötur, sem hér ar um að ræða og forstjóri Fálk- ans kynnti gestunum með því að láta heyra kafla af þeim voru þessar: Bach-plata með orgelleik dr. Páls ísólfssonar. Eru á þessari plötu sömu verkin og dr. Páll hefur áður leikið á sex hrað- gengum plötum. Var sú upptaka ágæt, en þó koma hér glöggt fram yfirburðir hæggengu plöt- unnar. Dr. Pál þarf ekki að kynna íslendingum. Hann er, eins og við öll vitum, stórbrot- inn listamaður, enda af erlend- um tónlistargagnrýnendum tal- inn meðal fremstu orgelsnillinga, æm nú eru uppi. Þá hefur Rögnvaldur Sigur- jónsson leikið inn á hæggenga plötu sónötu eftir danska tón- skáldið Viggo Bentzon og verk eftir Schumann. Kemur plata þessi út eftir nokkra daga. Er upptakan afburðagóð og leikur tögnvalds með miklum ágætum. íafa gagnrýnendur H.M.V. lok- 5 miklu lofsorði á leik hans. Skömmu fyrir jól kom út á egum Fálkans hæggeng plata neð pianóleik hins unga og mik- lhæfa listamanns, Gísla Magnús- onar. Eru viðfangsefnin Ensk ;víta eftir Bach og lög eftir dr. Pál ísólfsson og Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Er það fyrsta ís- lenzka platan hæggeng, sem hljóðrituð hefur' verið. Hefur Sísli hlotið mikið lof kunnáttu- nanna fyrir þennan leik sinn. Þá hefur Fálkinn gefið út hæg- genga plötu (E.P.) með söng Guðrúnar Á. Símonar. Hafði Guðrún áður sungið inn á þrjár hraðgengar plötur, en fjögur af þeim lögum eru á þessari plötu. Guðrún Á. Símonar er menntuð og vaxandi söngkona, enda hef- ur hún getið sér góðan orðstír utan lands og innan. Haraldur Ólafsson gat þess, að allar þessar hæggengu plötur væru einnig gefnar út til sölu á. erlendum markaði. Þá skýrði hann í stuttu máli frá fyrirhug- uðum plötuútgáfum Fálkans í ná- inni framtíð. — Karlakór Reykja víkur hefur, undir stjórn Sigurð- ar Þórðarsonar, „sungið inn“ 12 lög og verk, sum með einsöng Guðmundar Jónssonar, Guðrúnar Á. Símonar og Þuríðar Pálsdótt- ur. — Þá hefur karlakórinn „Fóstbræður“ undir stjórn Jóns Þórarinssonar, „sungið inn“ 10 lög, nokkur með einsöng Kristins Hallssonar. Sagði forstjórinn að plötur þessar kæmu á markað- inn innan tíðar. — Þá hefur Fálk- inn ákveðið að gefa út, fyrst í stað, eina hæggenga plötu með „rammíslenzkri“ músík, eins og hann komst að orði. Verður lögð áherzla á að velja lögin þannig, að þau verði gott sýnis- horn þjóðlegrar íslenzkrar tón- listar og því vel fallin til kynn- ingar erlendis. Að lokum gladdi Haraldur Ól- afsson gestina með þeim góðu fréttum, að Davíð Stefánsson skáld frá Fagraskógi muni í sumar lesa úrval ljóða sinna á H.M.V.-plötur. Verða plöturnar þrjár, alls um 66 mín. lestur. Er ætlunin að gefa plötur þessar einnig út til sölu í íslendinga- byggðum í Vesturheimi og ef til vill á Norðurlöndum. Sagði Har- aldur að dr. Helgi Tómasson hefði átt þessa snjöllu hugmynd, sem Fálkinn hefði mikla ánægju af að geta komið í framkvæmd. — Er ekki vafi á því að margir munu bíða eftir þessum plötum með eftirvæntingu, því að skáld- ið les manna bezt upp með sinni djúpu og hreimfögru rödd. Alls hefur Fálkinn gefið út, á eigin kostnað, um 200 klassiskar plötur en um 35 dans- og dæg- urlög. Með þessari útgáfustarfsemi sinni hefur Fálkinn unnið og vinn ur athyglisvert menningarstarf, sem hann á skilið fyrir miklar þakkir. Hann opnar með þessu listamönnum okkar leið til er- lendra hlustenda, víkkar starf- svið þeirra og kynnir jafnframt tónmennt okkar á erlendum vett- vangi. Slíkt er okkur vissulega mikilsvirði, enda náum við að sjálfsögðu bezt til framandi þjóða á vængjum tónlistarinnar, — þessu undursamlega alheims- máli. — S. Gr. □------------------------O OLÍUSKÖMMTUN HÆTT f BRETLANDI 1. apríl sl. var olíuskömmtun hætt í Bretlandi, en fram að þeim tíma fi’á 1. janúar hafði sala til skipa verið skorin niður um 10% □- Frjálsíþrottamót ÍR: Bigniiig spillti úrangri FYRSTA frjálsíþróttamót sumarsins fór fram í hellirigningu í fyrrakvöld. Veðrið spillti árangri gersamlega, völlurinn var ataður for og illt að athafna sig. Mótið fékk mjög á sig svip veðursins og þess að það er fyrsta sinn sem frjálsíþróttamenn keppa úti í sumar, og er það mun fyrr á árinu en áður hefur tíðkazt. Upphoð Uppboð á jörðinni Dalland í Mosfellssveit með til- heyrandi, sem auglýst hefir verið í Lögbirtingablað- inu og átti að fara fram 9. apríl s.l. fer fram á staðn- um föstudaginn 3. maí n.k. kl. 4 e.h. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Skrúðgarðavlnna Tökum að okkur alla garðavinnu. Standsetningar nýrra lóða Utvegum efni. Vanir garðyrkjumenn. Skrúður s.f. Upplýsingar hjá Blóm og Grænmeti, Skólavörðustíg 10. Sími 5474. Einbýlishús á góðum stað í Kópavogi til sölu, 3 stofur, eldhús og bað á hæð ásamt óinnréttuðu risi. Húsið er sem nýtt 108 ferm. flatarmál. Lóð 1140 ferm. girt og ræktuð. Mjög hagkvæmir greiðsluskilmálar. STEINN JÓNSSON, Lögfræðiskrifstof a—F asteignasala. Kirkjuhvoli, Símar: 4951 og 82090. Bezt ú auglýsa í Morgunblaðinu Af árangri er einna athyglis- verðast langstökksafrek Helga Björnssonar. Hann hefur aldrei náð svo góðum árangri og má búast við miklu af honum í sum- ar. Stangarstökkið eyðilagðist ger samlega í rigningunni. 2000 m hlaupið var skemmti legasta grein mótsins. Og árangur þeirra Svavars, Sig- urðar og Kristjáns mjög góður — Það verður áreiðanlega gaman að millivegalengdunum í sumar. 100 m hlaup: . Þórir Þorsteinsson, Á 11,6 sek 2. Höskuldur Karlsson, iBK 11,7 3. Karl Hólm, ÍR 12,2 4. Trausti Ólafsson, Á 12,4 200 m hlaup: 1. Þórir Þorsteinsson, Á 23,4 sek 2. Karl Hólm, lR 24,7 3. Sæmundur Pálsson, Á 25,4 2000 m hlaup: 1. Svavar Markúss., KR 5:46,6 mín 2. Sigurður -Guðnason, lR 5:52,4 3. Kristján Jóhannsson, 1R 5:58,6 Langslökk: 1. Helgi Björnsson, ÍR 6,74 m 2. Einar Frímannsson KR 6,61 m 3. Björgvin Hólm, ÍR 6,15 m Stangarstökk: 1. Valbjörn Þorláksson, lR 3,60 m 2. Valgarður Sigurðsson IR 3,40 3. Brynjar Jensson, IR 3.20 Kringlukast: 1. Þorsteinn Löve, KR 45,71 m 2. Friðrik Guðmundsson, KR 44,90 3. Tómas Einarsson, Á 38,47 Spjótkast: 1. Halldór Halldórss., IBK 52,52 m 2. Björgvin Hólm, 1R 52,03 3. Ingvi B. Jakobsson IBK 47,99 Kúluvarp: 1. Skúli Thorarensen ÍR 14,50 m 2. Friðrik Guðmundsson KR 13,71 3. Sigurður Júlíusson FH 12,03 sfcrifar úr daglega lifinu SVEINN skrifar: Ég bý í einu því hverfi bæj- arins þar sem erfitt reynist urn útburð Morgunblaðsins. Stundum kemur blaðið ekki BöRN virðast vera treg til þess að ráða sig til starfans á þessu svæði og oft vilja allmikil vanhöld verða á útburðinum sök- um þessa. Ég hefi stundum verið að hugleiða það til hverra ráða væri hægt að grípa til þess að koma í veg fyrir að illa þyrfti að fara um útburð blaðsins því það er vitað að fátt fer eins í taug- arnar á blaðakaupendum eins og einmitt það að fá ekki sitt blað snemma um morguninn eða kannske alls ekki suma daga. Ég hefi tekið eftir því, að er- lendis er sá háttur hafður á, að blöð eru ekki borin í húsin. Þar er fyrirkomulagið þannig, að mað ur verður að sækja sitt blað sjálf- ur, alveg eins og menn afla sér annarra nauðsynjavara, svo sem brauðs og mjólkur. Hví tök- um við íslendingar ekki þetta fyrirkomulag upp um blaðadreif- ingu okkar? Mér er líka kunnugt um að í sumum kaupstöðum úti um land er þessi háttur hafður á, blaðið er ekki borið út heldur verða kaupendurnir að ná í það í út- söluna. Blaðsöluturn í hverju hverfi HUGSANLEGT fyrirkomulag á þessu væri það hér í Reykja vík, að blöðin tækju sig saman um að reisa blaðsöluturna einn í hverju hverfi eða leigja til þess annað húsnæði. Þangað gætu kaupendur blaðanna komið á hverjum degi og aflað sér þeirra. Og ef öll fimm dagblöðin í bæn- um færu í félag um þetta fyrir- komulag og sami maðurinn af- greiddi þau öll þá yrði kostnað- urinn af þessu tiltölulega lítill. Vera má að kaupendum þætti það hart svona fyrst í stað að verða að sæta því að ná í blöðin út á næsta horn, eða nokkurn spöl, líkt og þegar menn fara eftir nauð synjum í verzlanir, nálægt heimil um sínum. En ég held að óánægj- an yrði ekki almenn og hennar gætti ekki nema fyrst í stað. Horfin væru samstundis þau leið- indi, sem því fylgja að nú fá kaupendur blöðin oft með van- skilum og sjálfum blöðunum væri þetta léttir frá erfileikunum, sem þau eiga í að afla sér blaðburðar- fólks. En hvað segja kaupendur um þetta fyrirkomulag? Lestur stúdentanna FRÆÐAÞULUR einn hringdi til Velvakanda fyrir fáum dög- um og minntist á dagskrá kristi- legs félags stúdenta, sem nýlega var flutt í útvarpinu. Hrósaði hann dagskránni sem slíkri og því efni, sem þar var flutt, en vildi gera nokkrar athugasemdir um flutning stúdentanna á efn- inu. Ég ætlast til þess af háskóla- menntuðum mönnum, að þeir fari sæmilega með móðurmálið og geti lesið svo upp af bók að skilj- anlegt sé, sagði hann. En á þvi var sorglegur misbrestur í þess- ari dagskrá. Stúdentarnir lásu svo hratt og þvöglulega upp, að erfitt var að skilja þá og því fór það sem flutt var margt fyrir ofan garð og neðan hjá hlustendum. Og satt er hér mælt, að vissulega ættu menn sem gengið hafa í skóla hálfan annan áratug að geta lesið svo upp að skiljist og áheyri legt sé. En út af þessari athugasemd hvarflar mér annað í hug. Skóla. maður einn kunnur flutti erindi um skólamál í Þýzkalandi í út- varpið á sunnudaginn var og gerði nokkurn samanburð á þýzk- um skólum og íslenzkum. Tungumál ekki talað MEÐAL annars gat hann þess, að í þýzkum skólum væru próf í tungumálum bæði munn. leg og skrifleg, en hér á landi mundi það tíðkast sums staðar að prófin væru eingöngu skrifleg. Skólamaðurinn drap á, að áhöld væru um hvort þetta væri æski- leg þróun hér á landi, og svo mun fleirum finnast. Og þegar svo er komið að próf í tungumáium eru orðin eingöngu skrifleg, þegar framburður máls- ins liggur þannig í láginni, er þá ekki með því fengin skýringin á því hvers vegna ungir mennta- menn kunna sumir varla að lesa svo af bók að áheyrilegt sé? Ef um sök er þar að ræða þá er það skólanna sök ekki síður en þeirra sjálfra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.