Morgunblaðið - 01.05.1957, Page 9

Morgunblaðið - 01.05.1957, Page 9
Miðvikudagur 1. maí 1957 MORGVIS BI AÐIÐ 9 S.Þ Þongað mænir heimnrinn vonaraugum NÝLEGA er Xokið fundum í undirnefnd þeirri í Efna- hags- og félagsmálaráði Sam- einuðu þjóðanna, sem fer með ýmis þau mál, sem varða almenna þjóðfélagslega stöðu og réttindi kvenna i hin- um ýmsu hlutum heims. Sigurlaug Bjarnadóttir, fréttamaður Morgunbiaðsins, hefir setið sem áheyrandi á fundum þessum í New York, en henni var veittur styrkur í því skyni af bandaríska Zonta-klúbbnum í Boston. — „Zonta“ er alþjóðlegur félags- skapur kvenna, er stofn. var til vestan hafs upp úr lokum fyrri heimsstyrjaldarinnar á svipuðum grundvelli og „Rotary“. Hefir starfsemi hans síðan breiðzt víða um heim og hér á tslandi eru starfandi tveir Zonta-klúbbar, í Reykja- vík og á Akureyri. í greininni, sem hér fer á eftir lýsir Sigurlaug nokkuð hinum glæsilegu bækistöðvum S. Þ. í New York. Síðar mun hún skýra frá störfum ofan- greindra funda S. Þ. New York, í marz 1957. „.... Farþegar, hafið bólu- setningarvottorð til reiðu“, — skipar einkennisbúinn starfsmað- ur frá einhverju heilbrigðiseftir- litinu. — Og ég sé, að ferðafé- lagar mínir, sem næstum allir eru eitthvað annað en íslenzkir, draga syfjulega upp sína pappira og sýna svart á hvítu það sem kraf- izt er — eftir misjafnlega erfiða leit innan um óteljandi önnur vottorð, skírteini og skilríki af öllum tegundum. — Já, það er betra að hafa öll sín plögg í lagi hér, lagsmaður, viljurðu ekki hafa verra af. — En ég? — Bólusetningarvott- orð? — Hvers konar? — Til hvers? — Eg hefi ekkert af því tagi. — Það var skrítið. Haldið þér, að þér séuð einhver undantekn- ing hér? Hvaðan komið þér? — Hvaðan eg kem? — Frá Reykjavík, beint frá Reykjavík. — Nú, frá Reykjavík. Þá er þetta allt í lagi! — Og með það fer hann, sá borðalagði. — Þið eruð víst ónæmir fyrir öll- um pestum, þarna á íslandi, seg- ir norskur sessunautur minn, og eg læt það gott heita, þótt ég viti að „rugg og velta“ í Búðinni heima í Reykjavík er bráðsmit- andi. Við erum hér stödd á flugstöð- inni í Gander á Nýfundnalandi, eftir um átta klst. flug frá ís- landi. Akaflega kuldalegt og ó- yndislegt hér um að litast, enda hánótt og umhverfið í svefni nema þessi síkviki blettur, sem við hér stöndum á, iðandi af flug- vélum og fólki úr öllum áttum é leið í allar áttir á nóttu sem degi. YFIR SLÓÐUM LEIFS Tilveran er mun notalegri, þeg- ar við, að skammri stundu lið- inni, fljúgum í glaða sólskini langt fyrir ofan skýin á leið til New York, svífandi í hægu sæti nokkrum þúsund metrum yfir þeim slóðum, er Leifur frændi vor sálugi hinn heppni og aðrir hans líkar börðust í návígi við ís- kaldar öldtir Atlantshafsins í leit «ð óvísu landi. En hvað þýðir að vera að veita vöngum yfir þessum hlutum svo óra langt að baki eða miklast af því að við stöndum framar? — Skyldum við hreint og beint geta gefið okkur tíma til þess í öllu okkar vonlausa kapphlaupi við tímann? Fyrr en varir erum við orðin að örlitlum flugum innan um skýjakljúfana á Manhattan. Hér verður engrar undankomu auðið frá 20. öldinni, hversu mjög sem við hefðum viljað dvelja eilítið lengur með Leifi heppna. HVAR SKAL BYRJA? En hvar eigum við svo að hefja okkar landkönnun? Við þurfum víst hvorki að óttast Indíána né aðra landsmenn okk- ur fjandsamlega. Við gætum mæta vel byrjað með að klífa upp á topp Empire State, hæsta byggingar veraldar. Það mun vera ágæt aðf. til að fá skipulag New York borgar sem skýrast inn í höfuðið. En við þurfum ekki endilega að byrja ofan frá. Við getum fullt eins vel labbað nið- ur að bakka East River og skoð- að þar annað furðuverk veraldar, sem okkur er vafalaust langtum hugstæðara heldur en Empire State risinn, þótt hann gnæfi 40 —50 hæðum hærra í loft upp. Þetta furðuverk — því að víst er það slíkt — er bækistöðvar Sameinuðu þjóðanna. TILHÖGUN ÖRLAGANNA Sumir vilja telja það kald- hæðnislega tilhögun örlaganna, að þessi stórkostlega og glæsilega stofnun, sem allur heimurinn hef- ir mænt til vonaraugum — stund- eru á þönum myrkranna á milli upp og niður, niði^r og upp rnnsð hávaðalausum leifturhraða. Hér í þessum björtu og glæsi- legu húsakynnum stunda þúsund- ir karla og kvenna hin fjölbreyti- legustu störf allan ársins hring, störf, sem að vísu er hljóðara um en fundi „hinna stóru“ í sölum Allsherjarþingsins eða Öryggis- ráðsins en sem engu að síður hljóta að teljast til þungamiðj- unnar af heildarstarfi Sameinuðu þjóðanna. f hAlfa stöng En nú skulum við leggja leið okkar inn í sjálfar fundarbygg- ingar S. Þ., sem liggja á bak við og til hliðar við skrifstofu- báknið. Við getum komizt þang- að eftir einhverjum ganganna, sem tengja byggingarnar saman, en fullt eins vel getum við líka fangið okkur ferskt loft í leiðinni og gengið utan frá inn um hinn glæsilega aðalinngang. Fyrir utan veitum við sérstaka athygli fánastöngunúm rúmlega 60 að tölu, eða jafnmörgum að- innar, er hér líka öll úr gleri. Sameinuðu þjóðunum er víst al- veg óhætt að búa í glerhúsi, því að ekki munu þær kasta grjóti í eina eða aðra átt. Þegar inn kemur blasir við vítt og mikið anddyri, sem er allt- af iðandi af gestum og ferðamönn um úr öllum áttum, sem hingað eru komnir til að skoða hið mikla friðarins musteri. ALLS KONAR FÓLK Þarna sér maður alls konar fólk. Flokka ferðafólks eða skóla- barna, í fylgd leiðsögumanna sinna. Fólk af öllum litum og þjóðernum. Þarna koma ungar stúlkur í S. Þ. einkennisbúningi, sem aka hjólastólum með sjúku fólki. í einum þeirra er lagleg lítil svertingjastúlka, lömuð upp að mitti. 1 öðrum er flogaveikur drengur, í þeim þriðja er mið- aldra hærugrár maður, sem mér virðist næstum óskiljanlegt, að skuli vera lifandi. Hann er í rauninni ekki meira an helming- ur af manni — eða tæplega það. Einhverja hörmungasögu á þessi Bækistöðvar S. Þ. við Austurá i New York. um örvæntingarfullum vonaraug- um — eftir friði og öryggi hrelldu mannkyni til handa — er til húsa á . svæði, þar sem áður stóðu sláturhús og aðrar lítt hugþekkar stofnanir í daunillu skuggahverfi. En það var allt lát- ið víkja — allt rifið niður til að reisa aftur af grunni tákn hins stórkostlegasta átaks, sem sagan getur um fyrr og síðar í þágu bræðralags og einingar allra þjóða. HREINAR og tígulegar LÍNUR Mér finnst eg hvergi hafa séð nýtízku-byggingarlist njóta sín betur og birtast í jákvæðari mynd en í þessum byggingum. Stíllinn hreinn, einfaldur og tígu- legur í senn. Við skulum fyrst virða fyrir okkur aðalskrifstofu- bygginguna, sem hæst ber. Hún er byggð á 39 hæðum yfir jörðu og víst þremur eða fjórum, sem grafnar eru í jörð niður. Eg veit varla við hvað ætti helzt að líkja henni. Við gætum ef til vill hugsað okkur risastóran og flat- an aflangan kassa, úr gleri, sem reistur væri upp á annan endann, hliðarnar eru allar. úr gleri, í blá- grænum lit, sem gefur bygging- unni einkennilega hreinan og ævintýralegan blæ. Gaflarnir eru úr marmara. ÓTELJANDI HÓLF OG GANGAR Innan dyra er byggingin jafn þægilega hrein og bein og að ut- an. Gleröskjunni hefir hér verið skipt niður í óteljandi hólf og ildarþjóðum S. Þ., sem mynda tígulega sveigmyndaða röð fremst á svæði S. Þ. Venjulega blakta fánar aðilja á stöng, en í dag að- eins einkennisfáni S. Þ. — í hálfa stöng vegna hins sviplega andláts Magsaysay, forseta Filippseyja, sem fórst í flugslysi í gær. HJÁLPH) OKKUR! Athyglin beinist líka sérstaklega að öðrum níu fánastöngum, sem komið er fyrir hinum megin göt- unnar, beint á móti fánaröð S. Þ., fyrir ofan stórt hvítt áklæði fram an á lágreistri múrsteinsbygg- ingu. Á áklæðinu stendur skrif- að svörtum stöfum: „Hinar Sameinuðu þjóðir. Við heimtum brottför allra Sovét-herja úr löndum okkar — og frjálsar kosningar. — Hjálp- ið okkur! Þjóðir Albaníu, Búlgaríu, Tékkó-Slóvakíu, Ungverjalands, Eistlands, Lettlands, Litavíu, Pól- lands, Rúmeníu." Eg veit ekki, hve lengi þetta er búið að hanga þarna. Eg sé, að hvíti dúkurinn er orðinn slit- inn — og stengurnar eru hér lika fánalausar. En þessi hjálpar- beiðni — þetta ákall hinna níu fjötruðu þjóða, verkar óþægilega á mig — eins og neyðaróp bág- staddrar veru. En hér stöndum við þá fyrir framan fundarbygginguna, sem við ætluðum að líta inn í. Hún er miklu lægri en skrifstofubygg- ingin við hliðina, en línurnar, fullkomlega einfaldar sem fyrr, eru fjölbreytilegri og þokkafyllri fyrir augað. Framhliðin, sem rís vesalings maður að baki, og varla getur hann litið björtum augum mót framtíðinni. En heyrði eg ekki ungbarns- grát þarna einhvers staðar? Jú, reyndar. Þarna stendur ungur maður, sem hampar litlum barn- unga í ferðapokanum sínum — sennilega einn af þessum fyrir- myndar amerísku eiginmönnum, sem nauðugir viljugir keppast við að gera betri hlutanum til hæfis. ÞÝÐING AF MUNNI RÆfiUMANNSinS Út frá þessum stóra og bjarta forsal liggja svo fundarsalir S. Þ. í ýmsar áttir. Hinn stærsti þeirra og tilkomumestur, er salur Alls- herjarþingsins. Þar eru sæti fyrir rúmlega 900 fulltrúa og ráðgjafa þeirra, þúsund áheyrendur og á 5. hundl'að mánns frá blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Við hvert einasta sæti er heyrnartæki og áheyrandinn getur hlustað á um- ræðurnar, sem fram fara hverju sinni á ensku, frönsku, spænsku, rússnesku eða kínversku, eftir því sem honum bezt líkar. Hann þarf ekki annað en að færa stilli á töluna 1, 2, 3, 4 eða 5 á smáskífu neðan á sætinu. Túlk- arnir, sem sitja í blaðaherbergj- um við fundarsalinn, sjá fyrir því. Þeir þýða af furðulegu ör- yggi og hraða setningu fyrir setn- ingu, jafnótt sjálfum ræðumann- inum, sem talar á sínu móður- máli. — Sama fyrirkomulag er í öllum hinum fundarsölunum. ÓHEMJU KOSTNAÐUR Uppi á annarri og þriðju hæð finnum við m. a. setusali og veit- ingasali, sem ætlaðir eru fulltrú- um eingöngu. Hér er gengið á dúnmjúkum teppum, er nú út í hvern krók og kima og yfirleitt er allt eins glæsilega úr garði gert og hugsazt getur. — Hvílíkt ó- hemju fé hefir ekki þurft til að byggja öll þessi salarkynni og búa svo vel og vandlega að öll- um hlutum? — Eg held að það þýði varla að hugsa í minna en trilljónum, ef við ætlum okkur að áætla kostnaðinn í íslenzkum krónum. Það er annars fremur fátt um fulltrúa S. Þ. hér um þess- ar mundir. Allsherjarþingið hefur lokið störfum — stóri salurinn hljóður og tómur. í dag eru boðaðir fundir í gæzluverndarráði og auk þess á að opna hina árlegu ráðstefnu í þeirri deild Fjárhags- og félags- málaráðsins sem fer með þau mál sérstaklega er snerta stöðu kvenna í þjóðfélögum hinna ýmsu landa heims. Þessi nefnd, eða ráð, sem er ein af átta öðr- um, sem Fjárhags- og félagsmála- ráðið skiptir störfum sínum niður á, er skipuð fulltrúum (öllum konum) frá 18 löndum. Flestir fulltrúanna hafa einn eða fleiri ráðgjafa sér við hlið. SAMA SAGAN AR EFTIR AR Við lítum inn í fundarsal nr. II, þar sem konurnar munu halda fundi sína þær tvær-þrjár vikur, sem þær sitja á rökstólum. Fund- arstjóri hefir verið kjörinn full- trúi Svíþjóðar, mjög svo geðþekk og sköruleg kona. Hún ljær orðið fulltrúa Sovétríkjanna, sem hefir kvatt sér hljóðs og kvartar yfir því, að Kínverska alþýðulýðveld- ið skuli ekki eiga fulltrúa á þessu þingi. Kínverski fulltrúinn( full- trúi Formósu-stjórnarinnar) smá- vaxin gráhærð kona, bregzt við allsnögglega og mótmælir harð- lega. Telur tillögu Sovétfulltrú- ans um þátttöku kínverskra kommúnista engan rétt eiga á sér og er byrst í máli. — Mér er sagt, að svipuð orðaskipti þess- ara fulltrúa endurtaki sig ár eft- ir ár. sib. Iðnaðarhusnæði 30—40 ferm., sem næst Hlemmtorgi, óskast undir léttan iðnað. Uppl. í síma 5720. ganga á alla vegu og lyfturnar hærra en afturhluti byggingar- Til sölu eru Standard 8 (model 1946), Ford, prefekt (model 1948) og Willys landbúnaðarjeppi. Bílarnir eru allir í góðu standi. Bílarnir verða til sýnis á bifreiðaverkstæði Jóns Friðgeirs við Hálogaland í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.