Morgunblaðið - 16.05.1957, Side 15

Morgunblaðið - 16.05.1957, Side 15
Fimmtudagur 16. maí 1957 MORGUNBLAÐ1Ð 15 Hinn heimskunni rithöfundur Helen Keller sem dvalizt hefur hér á landi fór héðan með Sólfaxa Flugfélags fslands síðastliðinn laug- ardag. Margt fólk var komið á flugvöllinn til þess að kveðja hana, m a. sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, skólastjóri Blindra- skólans og margir nemendur skólans, er færðu Keller blóm að skilnaði. Myndin er tekin skömmu fyrir brottförina og er Helen Keller þriðja frá vinstri á myndinni —Ljósm. Sv. Sæm. Samþykktir bœjarstjórnar Siglufjarðar: Fishiðjuvei—Greiðsla til olmunnu tryggingn — Flugvöllur — Rudioviti — Skemmlanusknttur EINS og áður hefur verið skýrt frá í blaðinu var fjárhagsáætlun Siglufjarðar samþykkt fyrir nokkru. — Á þeim fundi bæjar- stjórnarinnar voru eftirfarandi tillögur fluttar af meirihluta bæjarstjórnar að frumkvæði full trúa Sjálfstæðisflokksins í bæj- arstjórn og samþykktar með öll- um atkvæðum: „Bæjarstjóm Siglufjarðar sam þykkir að fela bæjarstjóra ásamt alþingismönnunUm Áka Jakobs- syni og Gunnari Jóhannssyni að vinna að útvegun lánsfjár allt að kr. 1.000.000 til byrjunar bygg ingar hins fyrirhugaða fiskiðju- vers á grundvelli kostnaðaráætl- unar þeirrar, er þegar hefur ver- ið lögð fyrir bæjarstjórn og að fenginni þeirri fjárveitingu verði hafizt handa um byggingu fisk- iðjuversins". „Bæjarstjórn Siglufjarðar skor ar á Alþingi og ríkisstjórn að létta að verulegu leyti af bæjar- sjóði greiðslum til almannatrygg inga og að bæjarsjóði verði feng- inn nýr eða nýir tekjustofnar, sem raunverulega auka tekjur bæjarsjóðs og felur bæjarstjórn ásamt alþingismönnunum Áka Jakobssyni og Gunnari Jóhanns- syni að vinna að framgangi þess- ara mála á Alþingi og hjá ríkis- stjórn." Bæjarstjórn Siglufjarðar skor ar á flugmálastjórnina að látaj fara fram athugun á flugvallar- stæði og staðsetningu flugvallar í Siglufirði og minnir á fyrri samþykktir sínar í því efni. Jafn- framt felur bæjarstjórn bæjar- stjóra og alþingismönnunum Áka Jakobssyni og Gunnari Jóhanns- syni að vinna að því að fram- kvæmdir í þessu efni hefjist eigi síðar en á sumri komanda.“ „Bæjarstjórn Siglufjarðar skor ar á ríkisstjórn og Alþingi að breyta lögunum um löggæzlu á þann hátt að ríkissjóður greiði framvegis allan kostnað af lög- gæzlu í kaupstöðum landsins eða að öðrum kosti hækki til muna hlutdeild sína í þeim kostnaði. Jafnframt felur bæjarstjórn bæj- arstjóra og alþingismönnunum Áka Jakobssyni og Gunnari Jó- hanssyni að vinna að framgangi málsins á Alþingi". „Bæjarstjórn samþykkir að fela alþingismönnunum Á. J. og G. J. að afla fjárveitingar frá Alþingi til byggingar stefnu-radiovita á Selvíkurnefi eða öðrum heppileg um stað að dómi þar um bærra manna og felur bæjarstjóra að semja greinargerð fyrir nauðsyn slíks stefnuvita í samráði við Skipstjóra- og stýrimannafélagið Ægi“. Þá fluttu fulltrúar einir eftir- farandi tillögu: „Bæjarstjórn Siglufjarðar sam þykkir að fela bæjarstjóra og alþingism. Á. J. og G. J. að fá því framgengt að skemmtanaskattur af kvikmyndasýningum í Siglu- firði verði látinn renna í sérstak- an sjóð er varið verði til rekstrar og byggingar elliheimilis í Siglu- firði“. Þessi tillaga var einnig sam- þykkt með öllum atkvæðum. Þakpappi - Veggflísar Figum ennþá þýzkan þakpappa og hvítar veggi'lísar á gamla verðinu. Ludvig Storr & Co. Samkomusalur fæst leigður á komandi vetri fyrir félagsfundi i Garðastræti 8. Salurinn rúmar nálægt 100 manns í sæti. Möguleikar eru fyrir kaffiveitingum. Þau félög, sem óska að fá ákveðin kvöld á vetrinum, geta fengið nánari upplýsingar í síma 3224. Til sölu snurpinót og snurpibátar Snurpinót 178 faðmur á lengd og 38 faðmar á dýpt, Sagt frá miklum þjáningum FYRIR nokkru er út komin hjá dönsku Gyldendals-útgáfunni bóli eftir norska blaðamanninn Erik Rostböll, sem nefnist „Ung- arske Vidnesbyrd“ og segir höf- undurinn í bókinni frá ástand- inu i Ungverjalandi, eftir upp- reisnina í október sl. Höfundurinn segir, að er hann lagði af stað til Ungverjalands hafi landið verið frjálst.. Svo hafi þá virzt, sem uppreisnin myndi heppnast. En þegar hann kom til Vínarborgar höfðu Rúss- ar bælt uppreisnina niður. Hann kveðst ekki hafa verið sjónar- vottur að bardögum. Þeir voru hjá liðnir er hann kom til Ung- verjalands. En með þátttöku í hjálparstarfi kynntist hann fólk- inu, þjáningum þess og harmi yfir ósigri. Eins og nafn bókarinnar ber með sér, felur hún í sér vitnis- burð ungversku þjóðarinnar. — Hún er samtal við fjölda fólks af alþýðusétt, segir frá draum- um þess og ótta. Engir aðrir eru færari að segja þessa skelfingar- sögu, en sjálf sú þjóð, er hefur gengið gegnum hörmungarnar. Bókin er 110 blaðsíður. Afmælisbók próf. RICHARDS BECK kemur út á sextugsafmæli þessa merka Vestur-íslendings 9. júní nk. Bókin tr um 3000 bls. í stóru broti, prýdd mörg um myndum og prentuð á myndapappír. Hún er gefin út í að eins 500 eintökum, töusettum og árituðum af höfundi. Þeir, sem vilja gerast áskrifendur, og heiðra með þvi höf- • undinn á 60 ára afmælinu, þurfa að hafa sent pantanir fyrir 25. þ. m. þar sem nöfn allra áskrifenda verða prentuð fremst í bókinni. Áskriftum veita viðtöku Árni Bjarnarson, Akur- eyri og Bókav. Kr. Kristjánssonar, Hverfisgötu 26, Reykja- vík, sími 4179. NÝ SENDING MARKAÐURINN Hafnarstræti 5. ásamt snurpilínu. Ennfremur 2 nótabátar, stórir og góðir með vélum, spilum og davidum. — Allt í bezta standi. Er til sölu nú þegar. Hagkvæmt verð og skilmálar. KEBLBR HE. — SÍMI 6550— EASY ÞVOTTAVÍLAR Þriðja hver amerísk þvottavél með þvæli, sem kom til landsins á síðasta ári, var EASY-þvottavél. Því miður höfum við ekki vegna gjaldeyriserfið- leika getað annað eftirspurn undanfarið, en pant- anir verða afgreiddar í þeirri röð, sem þær berast. BÞflBITFIHgSflli g JGBH80H g GRJÓTAGÖTU 7 — SÍMAR 3573—5296.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.