Morgunblaðið - 19.05.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.05.1957, Blaðsíða 1
20 siður 44. árgangur 111. tbL — Sunnudagur 19. maí 1957. Prentsmiðja Morgunblaðsins Kishi fer til Bandarík janna TOKYO, 18. maí. NOBUSUKE KISHI forsætisráðherra Japans sagði japanska þinginu, Diet, í gær, að stefna Japana gagnvart Bandaríkja- mönnum væri óbreytt. Kristján Daviðsson ÞESSA VIKU verða verk Kristjáns Davíðssonar listmálara til sýnis á vegum listkynningar blaðsins. Hann er ættaður frá Patreksfirði og er nú tæplega fertugur að aldri. Kristján Davíðsson hóf list- nám sitt hér í Reykjavík hjá þeim Jóhanni Briem og Finni Jónssyni. Stundaði hann nám hér árin 1934 og 1935. Til Bandaríkj- anna fór hann árið 1945 til frek- ara listnáms. Dvaldist hann þar í tvö ár við Barnes Foundation í Fíladelfíu. En það mjög þekkt- ur listaskóli. Kom hann síðan hingað heim árið 1947. Síðan hefur hann m. a. dvalizt hálft ár í París og um skeið í London. Kristján Davíðsson hélt fyrstu sjálfstæðu listsýningu sína í International Studenihouse í Fíladelfíu. Hér heima hélt hann fyrst sýningu árið 1950 í Listamanna- skálanum í Reykjavík. Hann hefur jafnframt tekið þátt í listsýningum Norræna lista bandalagsins síðan 1947. Enn- fremur tók hann þátt í íslenzku listsýningunum i Osló og Brussel og fékk þar góða dóma. Listasafn rikissins hefur keypt 4 myndir af Kristjáni og enn- fremur keypti safn Barnes Foundation af honum 3 myndir. Þá hefur hinn kunni franski listgagnrýnandi, Michel Tapié kcypt af honum málverk. Kristján Davíðsson málar „ab- strakt“. Hafa sýningar hans jafn- an vakið mikla athygli, bæöi hér heima og erlendis. Hann sýnir nú fjögur olíumál- ▼erk á vegum listkynningar blaðsins og eru tvö þeirra til sölu hjá Mbl. eða listamanninum sjálfum. Kishi lét þessi orð falla, áður en hann lagði upp í þriggja vikna heimsókn um hin frjálsu ríki Asíu, en síðan mun hann fara til Bandaríkjanna um miðjan júní- mánuð. Hann sagði ennfremur, að það væri Japan mjög mikil- vægt að hafa nána samvinnu við Bandaríkin, sem hefðu forustu- hlutverk í alþjóðamálum og sýndu það í verki, að þau bæru frið og velgengni Asíu-ríkja mjög fyrir brjósti. Hins vegar kvaðst Kishi fara til Bandaríkjanna í vitund þess, að alþjóðaástandið hefði breytzt að því er tæki til Japans. „Við tókum upp stjórnmálasamband við Sovétríkin í fyrra, og með því að gerast meðlimir Samein- uðu þjóðanna erum við orðnir fullgildur aðili að alþjóðalifi“, sagði hann. Með tilliti til þessa kvað hann það ómótmælanlegt, að samskipti Japans og Banda- ríkjanna fengi nýja stefnu. Heimsókn hans til Bandaríkj- anna væri gerð í þeim tilgangi einum að ræða hreinskilnis- lega við bandaríska leiðtoga um það, hvernig samskipti ríkjanna yrðu í framtíðinni. Hann lagði áherzlu á það í ræðu sinni til þingsins, að hann mundi ekki semja um nein ákveðin vandamál eða leysa „með einu höggi“ öll óleyst vandamál í sambúð Jap ans og Bandaríkjanna. IViótmælagartga í Suður-Afríku „Leikfang heims- valdasinna66 KAIRÖ, 17. maí. — Talsmað- ur egypzku stjórnarinnar sagði í dag í tilefni af þeirri fyrirætlan ísraelsmanna að senda skip um Súez-skurð, að ísraelsmenn væru leikfang í höndum heimsvaldasinna. — Hann bætti því við, að Egypt- ar mundu grípa til sinna ráða, ef skip frá ísrael reyndi að sigla um Súez-skurð. Þeir hefðu fulla heimild til að bregðast við slíkum hótunum, eins og þeim sýndist. — NTB. Höfðaborg, 18. maí. Yfir 2000 íbúar Höfðaborgar i Suður-Afríku tóku þátt í mót- mælagöngu gegn lögum, sem þing Suður-Afríku samþykkti í vik- unni sem leið. Samkvæmt þeim verðá kirkjur og trúfélög að fara í manngreinarálit: hvítir og svart ir mega ekki eiga neitt samneyti. Þegar mannfjöldinn gekk um helztu götur Höfðaborgar, kom múgur manns að horfa á göng- Misklíð milli Japans og Bandaríkjanna Washington, 18. maí. Deila er komin upp milli her- stjórnar Bandaríkjanna og jap- önsku stjórnarinnar. í vetur skaut bandarískur hermaður í Japan konu eina til bana. Gerð- ist þetta á skotæfingavelli hers- ins, en konan var að safna brota járni. Japanska stjórnin krafðist þess að hermaðurinn yrði fram- seldur japönskum dómstólum samkvæmt milliríkjasamningi, en herstjórnin neitaði. Skutu þá báðir aðilar, Jap ansstjórn og herstjórn Banda- ríkjanna, málinu til hermála ráðuneytisins í Washington. I gær kvað Wilson landvarna- ráðherra upp þann úrskurð, að hermaðurinn skyldi a.m.k. fyrst um sinn sitja í gæzlu- varðhaldi Bandaríkjahers í Japan, en ekki verða framseld ur Japönum. una og sumir slógust í hópinn. Meðal þeirra, sem tóku þátt í mótmælagöngunni, voru þing- menn og háskólaprófessorar sem og fulltrúar kirkjufélaga og ann arra samtaka, m.a. blindrafélags- ins. Biskup anglikönsku kirkjunnar í Höfðaborg talaði til mannfjöld- ans og sagði, að frumvarpið sem þingið samþykkti væri ógnun við frelsi manna til trúariðkana og samfélags. Hann lét í ljós von um, ais íbúar Höfðaborgar linntu ekki baráttunni, fyrr en þessi ómannúðlegu lög væru úr sög- unni. Hnngnrsneyð ylirvofondi Karchi, 18. maí: STJÓRNIN í Pakistan mun senda miklar birgðir af hveiti og hrís- grjónum til Austur-Pakistan til að koma í veg fyrir hungursneyð þar. Talsmaður stjórnarinnar sagði, að nóg væri af matvælum í Austur-Pakistan, en orðrómur um matvælaskort og hömstrun hefðu orsakað mikla verðhækk- un. Stjórnin er nú að senda vara- lið úr hernum til héraðsins til að bæla niður hugsanlegar róstur. Mollet fordæmir gengisfellingu Drottning lögð af stað LONDON, 18. maí. ELÍZABET Bretadrottning og Filippus maður hennar fóru í dag frá London áleiðis til Danmerkur, en þangað kóma þau í opin- bera heimsókn á þriðjudag. Ferðast þau með hinni konunglegu skemmtisnekkju „Britannia“ til Kaupmannahafnar. Hin opinbera heimsókn stendur yfir í tvo daga eða fram á fimmtudag, en síðan mun drottningin og hertoginn verða um kyrrt í Höfn fram á laugardag í einkaheimsókn. Á meðan drottningin er fjarverandi munu 5 handhafar fara með völd þjóðhöfðingjans. Einn þeirra er hertoginn af Kent, sem nú fer með þetta vald í fyrsta sinn, en hann er 21 árs gamall. Róstur í Kuwait LONDON, 18. maí: — Fréttir frá Kuwait, hinu auðuga olíu- svæði Persaflóa, herma, að 8 Arabar hafi verið drepnir og margir særðir í bardaga við lög- regluna. Áreksturinn átti sér stað Wyszinski fær hattinn RÓM, 18. maí: — Pius páfi hefur afhent Wyszinski kardínála í Pól- landi hin rauða hatt kardínála og tekið af honum kardínálaeið- inn. Viðstaddir voru helztu menn við páfahirðina ásamt nokkrum pólskum biskupum og prestum. Wyszinski erkibiskup var gerð- ur kardínáli 1953, en var fang- elsaður skömmu síðar og gat því ekki tekið við rauða hattinum. Þetta er fyrsta heimsókn hans til Rómar síðan 1951. á miðvikudaginn vegna deilu um eignarréttá ákveðnuin landskika. Einhverjir ættmenn Sjeiksins í Kuwait höfðu krafizt þess fyrir rétti, að þeir fengju til umráða stóra byggingu í Kuwait-borg, þar sem hún væri eign þeirra. Rétturinn felldi þann dóm, að kröfur þeirra væru ekki á rökum reistar. En ættmennirnir ákváðu að virða úrskurð dómarans að engu og tóku sér bólfestu á land- areigninni og bjuggust til varna. Lögreglan reyndi allt sem hún gat til að koma þeim burt, en þeir létu ekki undan fyrr en 8 þeirra voru fallnir. Iiinir voru handteknir og verða dregnir fyrir dóm. París, 18. maí: GUY MOLLET forsætisráðherra Frakka hefur farið þess á leit við neðri deild þjóðþingsins, að hún samþykki traust á stjórnina í sambandi við fjárlagafrumvarp hennar. í ræðu sem Mollet flutti í sambandi við þessi tilmæli sagði hann, að ekki kæmi til mála að grípa til gengislækkunar. Undanfarið hafa hægri flokk- arnir ymprað á því að gengis- lækkun væri óhjákvæmileg, og síðustu dagana hafa kröfur út- flytjenda um gengislækkun orðið háværar. Ráðherrann sagði, að gengislækkun væri í senn bæði heimskuleg og glæpsamleg; hún mundi koma piður á verkalýðn- um og þeim sem njóta elli- og örorkustyrkja. Atkvæðagreiðsla um traustsyfirlýsinguna fer fram á þriðjudaginn. Eins og sagt var frá í Mbl. á fimmtudaginn hefur verið mikill órói meðal stúdenta í Austur-Berlín, eftir að forseti læknadeildar Hunt boldt-háskólans, prófessor Schiitzler, varð að flýja vegna ofsóknu kommúnistastjórnarinnar. Fjöldi stúdenta hefur nú verið rekinn úr háskólanum og nokkrir forustumenn þeirra í stúdentafélögum hafa verið handteknir. Hér birtist mynd af einum þeirra, Gunther Schmeil, sem nú hefur verið dreginn fyrir rétt sakaður um andbyltingaráróður og njósnastarf- semi, en á þeim forsendum hafa pólitískir dómstólar Austur- Þýzkalands oft dæmt unglinga til 16 ára fangavistar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.