Morgunblaðið - 21.05.1957, Side 15
Þriðjudagur 21. maí 1957
MORCUNBLAÐ1Ð
15
Aðalfundur Ljós-
fæknifél. íslands
AÐALFUNDUR Ljóstæknifélags
íslands var haldinn 9. maí sl.
Skýrði formaður frá starfsemi
félagsins á liðnu starfsári. Tvö
rit voru gefin út á vegum fé-
lagsins, haldnir tveir fyrirlestrar
í skólanum, hafin myndataka af
lýsingum á ýmsum stöðum og
gerðar athuganir á lýsingu eftir
beiðni.
ERINDI
Á fundinum voru flutt tvö
erindi. Gísli Jónsson, rafmagns-
verkfræðingur flutti erindi um
viðhald lýsingakerfa og Aðal-
steinn Guðjohnsen rafmagns-
verkfræðingur um ljóstæknilega
tilrauna- og mælistofu. Að erind-
unum loknum var sýning á áhrif-
um ýmissa ljósgjafa á liti.
UNGT AÐ ÁRUM
Ljóstæknifélag fslands er ungt
að árum, stofnað haustið 1954.
Starfsemi þess færist í aukana
og eru félagar nú 109, þar á með-
al ýmsar stofnanir og fyrirtæki.
Félagið vinnur að bættri lýsingu
í landinu og veitir hlutlausa
fræðslu um allt, sem ljóstækni
varðar ,en ljóstækni er nú viður-
kennd sem sérstök tæknigrein og
er í örum vexti um allan heim.
STJÓRNIN
Stjórn félagsins skipa: formað-
ur, Steingrímur Jónsson, raf-
magnsstjóri, ritari Jakob Gísla-
son, raforkumálastjóri, gjald-
keri, Hans Þórðarson, stórkaup-
maður, meðstjórnendur: Hannes
Davíðsson, arkitekt, Bergsveinn
Ólafsson., augnlæknir, og Krist-
inn Guðjónsson, forstjóri.
Snfókoma
á SuðurlaiuJi
Á LAUGARDAGSNÓTT snjó-
aði þó nokkuð á fjall-
vegum hér í nágrenni
Reykjavíkur. Var þá um tíma
þaafingsfærð á Bellisheiði, en
skárri að mun niðri í Svína-
hrauni. Óvenjumikið rigndi um
nóttina á Þingvöllum, 3 mm. og
hefir þá verið snjókoma hærra
uppi, á heiðinni, Esjan gránaði og
svo sem árrisulir Reykvíkingar
sáu. Ekki er þetta neitt sérstakt
og hefir það iðulega áður komið
fyrir í maí að nokkurrar snjó-
komu gætti. Ekki var veðuvstof-
unni kunnugt um snjókomu 1
byggð hér sunnanlands, nema á
Kirkjubæjarklaustri. Þar snjóaði
nokkuð á laugardag Norðan-
lands snjóaði allmikið og varð
m.a. að hætta við snjómokstur í
Siglufjarðarskarði. Hríð var og í
Dýrafirði, á Sauðárkrók og í
Siglufirði.
M*rhreÍH*ApL
i hzitni
Gillette
Baksturinn endist allan daginn
Heildsölubirgðir: Globus hf., Hverfisgötu 50, sími 714ð
Skólogaiðor Reykjavíkur hefja starfsemi sína um mánaðamótin. Umsóknum skal skilað til Ráðningastofu Reykjavíkurbæjar (v. Lækjartorg) og skrifstofu bæjarverkfræðings, Skúlatúni 2, fyrir 25. þ.m. Umsóknareyðublöð liggja frammi í barnaskólum bæjarins, þátttaka er heimil öllum börnum í Reykjavík, á aldrinum 10—14 ára. Þátttökugjald verður kr. 150,00. Reykjavík, 18. maí 1957. Gabðyrkjuráðunautur Reykjavíkurbæjar.
Félag íslenzkra hljómlistarmanna fundur verður haldinn í Breiðfirðingabúð í dag kl. 4 e.h. Fundarefni: Félagsheimilið o. fl. Mjög áríðandi að félagar mæti. Stjórnin.
B.F.S.R.
Aðalfundur
Byggingarsamvinnufélags starfsmanna Reykjavíkur-
bæjar verður haldinn í Grófinni 1, miðvikudaginn 22.
maí 1957 kl. 8,30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjómin.
Blikksmiðja
Ágústs Guðjónssonar, Hringbraut 78
Keflavík.
Smíðar meðal annars:
Þakrennur, Rennubönd,
Kjöljárn, Þakglugga,
Rör fyrir lofthitun,
Benzíngeyma o. m. fl.
Grjótagötu 7 — Símar 3573 - 5296
Landsmálafélagið VÖRÐUR
heldur fund í Sjálístæðishúsinu n.k. miðvikudagskvöld klukkan 8,30 e. h.
Umræðuefni:
Bankafrumvörp ríkisstjórnarinnar
\
Frummælandi:
Ingólfur Jónsson fyrrv. viðskipfamálaráðherra
Allt sjálfstæðisfólk velkomið meðan húsrúm leyfir.