Morgunblaðið - 23.05.1957, Side 15
Fimmtudagur 23. maí 1957
MORGU'NBLAÐIÐ
15
— Minningarorð —
Stefanía Thorarensen
Það mun mörgum þykja ó-
maklegt og það með réttu, að
hvergi sé minnzt Stefaníu frá
Hróarsholti, eins og hún oft var
nefnd af vinum hennar og kunn-
ingjum, nú þegar ævi hennar er
öll. Hún andaðist hér í bæ 14.
febr. sl., kominn hátt á níræðis-
aldur.
Stefanía var fædd 19. okt. 1869
að Ólafsvöllum á Skeiðum, og var
hin sjöunda í röð þrettán syst-
kina. Hún átti til stórmenna að
telja í báðar ættir. Faðir hennar
var sr. Stefán Stephensen prest-
ur á Ólafsvöllum 1864—1885, síð-
an prestur á Mosfelli í Grims-
nesi til 1900, er hann lét af
prestsskap. Faðir hans var sr.
Stefán á Reynivöllum, Stefáns-
sonar, Stephensens amtmanns á
Hvítárvöllum. —• Móðir sr.
Stefáns á Mosfelli var Guð-
rún dóttir sr. Þorvalds Böðvars-
sonar í Holti. — Kona sr. Stefáns
á Mosfelli og móðir Stefaníu var
Sigríður dóttir sr. Gísla ísleifs-
sonar í Kálfholti, alsystir sr. ís-
leifs í Arnarbæli.
Stefanía ólst upp hjá foreldr-
um sínum á Ólafsvöllum og flutt
ist með þeim 16 ára að aldri að
Mosfelli. Hún stundaði nám í
Kvennaskólanum á Ytri-ey. Yar
þar bæði bóklegt nám, hannyrðir
og húsmæðranám. Hljóðfæraleik
nam Stefanía í heimahúsum og
síðar hjá Jónasi Helgasyni tón-
skáldi og organista. Iðkaði hún
hljóðfæraleik langt fram eftir
ævi og var um tíma kirkju-
organisti. Á þeirrar tíðar mæli-
kvarða var Stefanía vel menntuð
kona, enda var hún vel gefin til
líkama og sálar.
Árið 1893 giftist Stefanía Sig-
fúsi Thorarensen, Skúlasonar
læknis að Móeiðarhvoli, Vigfús-
sonar sýslumanns að Hlíðarenda,
en móðir Sigfúsar var Ragnheið-
ur dóttir sr. Þorsteins Helgason-
ar í Reykholti.
Þau Sigfús og Stefanía reistu
bú að Holtakotum í Biskupstung-
um og bjuggu þar í tvö ár, en
fluttust þaðan að Hróarsholti í
Flóa, þar sem þau bjuggu í full-
an aldarþriðjung, þar til þau
brugðu búi 1929 og fluttúst til
Reykjavíkur. Leigðu þau fyrst
í fjögur ár hjá Helga Bergs, en
fluttust síðan til dóttur sinnar,
Sigríðar ljósmóður og manns
hennar, Guðna Árnasonar verzl-
unarstjóra. Þar héldu þau sitt
eigið heimili. Hjá þeim dvöldust
þau upp frá því til dauðadags.
Sigfús andaðist 1937, tæplega sjö-
tugur að aldri.
1 Hróarsholti vann Stefanía
sitt aðalævistarf. Þar var hún
húsfreyja á stóru heimili sín
beztu manndómsár. Þar ól hún
upp börn sín, og þar hlúði hún
að foreldrum sínum af mestu ást-
úð og nærgætm síðustu æviár
þeirra. En þau dvöldust á heim-
ili hennar síðustu níu árin, sem
þau lifðu, frá 1913 til 1922. Það
ár önduðust þau bæði í hárri
eUi.
Þau Sigfús og Stefanía bjuggu
rausnarbúi í Hróarsholti, enda
er jörðin mesta vildisjörð. Sig-
fús var framfaramaður og mundi
ekki hafa orðið eftirbátur, ef bú-
skaparaldur hans hefði enzt fram
á þann tíma véltækni og fram
fara, sem nú stendur yfir í sveit-
um landsins. Hann var sá fyrsti
í sinni sveit, sem keypti skil
vindu. Hann var og einn fyrsti
maður þar um slóðir, sem eign-
aðist sláttuvél. í Hróarsholti var
tvíbýli og sambýli gott. í hinum
bænum bjó Guðmundur Guð-
mundsson og Guðrún Halldórs-
dóttir. Þær Guðrún og Stefanía
voru tryggðavinkonur og verður
varla svo minnzt annarrar, að
ekki sé hinnar getið. Bæði voru
heimilin vel efnuð, myndarbrag-
ur á öllu, gestkvæmt oft og gest-
risni mikil. Sýndi Stefanía það
oft í því sem mörgu öðru, að hún
taldi hvorki eftir sér spor né
handtök í þarfir annarra, enda
var hún alla tíð starfsöm og
starfsglöð, reiðubúin til hjálpar
þeim, sem með þurftu, og vildi
öllum vel gera.
Þau Sigfús og Stefanía eignuð-
ust sjö börn, þrjá sonu og fjórar
dætur, og eru fimm þeirra á lífi.
Dáin eru Skúli, sem aðeins varð
tveggja ára, og Ragnheiður, sem
dó árið 1942. Hún var gift Guð-
mundi Ágústssyni frá Birtinga-
holti, og áttu þau þrjá sonu. Á
lífi eru Sigríður, gift Guðna
Árnasyni, sem áður er sagt, og
eiga þau tvær dætur; Steinunn,
búsett við Ölfusá, gift Boga
Thórarensen frá Kirkjubæ, og
eiga þau sjö börn; Kristín, búsett
á Hellu, gift Þórði Bogasyni,
börn þeirra eru fimm. Þá eru
bræðurnir tveir, búsettir hér í
bæ: Stefán lögregluþjónn, ekkju-
maður, var kvæntur Oddnýju
ísfeld, og áttu þau einn son, og
loks er Helgi, kvæntur Soffíu
Jónasdóttur, og eiga þau tvo
sonu.
Barnabörn Stefaníu eru því
alls tuttugu ,og er það mannvæn-
legur hópur. Barnabarnabörnin
eru þegar orðin allmörg. Og
þannig heldur lífið áfram.
Börn Sigfúsar og Stefaníu ól-
ust öll upp heima hjá þeim í
Hróarsholti og unnu heimilinu,
þegar þau höfðu þroska til. En
þar komu fleiri við sögu, sem
dvöldu þar langdvölum og festu
tryggð við þau hjónin. Systur-
dóttir Stefaníu, Ragnheiður Ing-
varsdóttir, fluttist þangað með
afa sínum og ömmu sjö ára að
aldri og ólst þar upp sem ein af
systkinahópnum. Af hj úum
þeirra hjóna skal aðeins nefna
Guðrúnu Jónsdóttur, sem kom til
þeirra innan við fermingu og var
síðan í þeirra þjónustu í full 30
ár og vann þeim af einstakri
tryggð og hollustu.
Stefanía var traustlynd og
vinföst, hreinskilin og hispurs-
laus, þreklunduð og þýðlynd í
senn, glöð í fasi og skemmtileg í
viðræðu og kunni vel að meta
það, sem broslegt var og til gam
ans mátti verða, til léttis í alvöru
Skrifstofu-
lífsins. Trúkona var hún einlæg
og fylgdist vel með skoðunum
og kenningum, sem fram komu í
þeim efnum á hennar löngu æfi,
valdi þar og hafnaði af fullri ein-
u.rð og lét ekki mannasetningar
viila um fyrir sér. í öðrum efn-
um íylgdist hún einnig vel með,
las mjög mikið, ekki sízt síðari
árin, eftir að um hægðist og heim
iiisönnum var af henni létt. Hún
héit góðri sjón fram til hins síð-
asta, en heyrnin var biluð fyrir
löngu og loks farin að mestu.
Þeir eru margir enn ofan mold-
ar, sem þekktu Stefaníu og
liöfðu af henni náin kynni. Er
þar fyrst að telja fjölmennan
hóp afkomenda og skyldmenna
og annarra venzlamanna. Auk
þeiira voru vinirnir margir og
kunningjarnir. Öllum þeim hefur
hún eftir látið góðar og hugljúf-
ar minningar. Hvenær sem henn-
ar er minnzt, glaðnar og birtir í
hugum þeirra, sem þekktu hana
bezt.
Og enda þótt slíkar minning-
ar eigi fyrir sér að glatast og
gleymast og fara smátt og smátt
í gröfina með þeim, sem þær eiga
nú, mun áhrifa langrar ævi og
göfugs mannlífs gæta lengur en
menn viti, því að vissulega mun
allt það, sem góður maður eða
göfug kona hefur gert og sagt af
góðum hug, „bera af sér fræ x
nýjar sálir“. Af ávöxtum þeirra
frækorna fá komandi kynslóðir
veganesti.
Freysteinn Gunnarsson.
Frá Sjómannafélagi
Hafnarfjarðar
Ef einhverjir félagsmenn eru enn óráðnir og óska
að komast á báta eða togara, hafið þá samband við
skrifstofu félagsins, sem er opin frá kl. 5—6 dag-
lega, að Vesturgötu 10. — Sími 9248.
Sjómannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknum
um sumardvöl barna verður veitt móttaka í skrif-
stofunni Thorvaldsensstræti 6, dagana 28. og 29.
maí kl. 10—12 og 1—6.
Börn fædd árin 1950, 1951 og 1952 koma eingöngu
til greina.
Reykjavíkurdeild R.K.Í.
Stúlka
óskast til afgreiðslu
Kjötbúðin Langholfsveg 17
Sími 80585
maður eða stúlka
óskast. Þarf að hafa Verzlunar-
skóla- eða hliðstæða menntun eða góða æfingu í
starfinu. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri
störf, sendist Morgunblaðinu fyrir 27. þ.m. merkt:
„Stundvís — 5002“.
Vanan afgreiðslumann
og afgreiðslustúlku
vantar í matvörubúð. — Tilboð merkt:
Reglusemi — 5337, sendist Mbl. fyrir
mánudag.
Nýkomnar
Svartar kvendragtir
Ásbjörn Ólafsson hf.
Grettisgötu 2A . •
Hugtnyndasamkeppni
um skipulag á Klambratúni
Frestur til að skila uppdráttum í hugmyndasam-
keppni bæjarráðs Reykjavíkur um skipulag á
Kambratúni hefur verið framlengdur til 11. júní
n.k. Ber að skila Sveini Ásgeirssyni, skrifstofu
borgarstjóra, uppdráttunum fyrir kl. 15 nefndan
dag. Þeir, sem kunna að óska, geta enn fengið af-
henta uppdrætti og keppnisskilmála.
BORGARSTJÓRL
Uppboð
Samkvæmt ákvörðun skiptafundar 18. maí 1957 í fé-
lagsbúi Ingileifar Hallgrímsdóttur og Gunnars Pálsson-
ar, Lynghaga 13, hér í bænum, verður húseignin nr. 13
við Lynghaga í Reykjavík, eign félagsbúsins, seld við
opinbert uppboð, sem fram fer á eigninni sjálfri mið-
vikudaginn 29. mai 1957, kl. 2 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Stúlka
vön saumaskap óskast strax.
C A R I T A HF.
Garðastræti 6, III. hæð.
Fullorðin stúlka
óskast til glasaþvotta.
Reykjavíkur Apotek
Atvinna
Stúlka óskast til starfa í pylsugerð.
Kjöt & Grænmeti
Snorrabraut 56