Morgunblaðið - 29.05.1957, Qupperneq 2
J
M O P G V y F L A1» IÐ
MlS’Æudsgur 29. ma! 1957
**
f
\ J mm j|2I - *11
—Ef nahagsástand
Frakka
Frh. af bls. 1.
um 250 milljarða lán frá þjóð-
bankanum. Vegna sívaxandi
skorts á erlendum gjaldeyri
verður Frakkland e. t. v. um
stundarsakir a. m. k. að hætta
við þær rýmkunarráðstafanir
á viðskiptasviðinu, sem það
hafði ákveðið að gera í sam-
ráði við 16 önnur meðlima-
ríki Efnahagssamvinnustofn-
unar Evrópu (OEEC). Ef til
þess kemur, verða Frakkar
að taka upp innflutningshöft
aftur.
BÚNIR MEÐ DOLL,ARANA
Frakkar eru næstum búnir með
þær 2625 milljónir dollara, sem
þeir fengu að láni hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum í Washington
fyrir nokkrum mánuðum.
56 kennaraefni luku
burtfararprófi í gœr
1 GÆR LAUK 48. skólaári Kenn-
araskóla íslands.
Við athöfnina í skólanum afhenti
skólastjóri Freysteinn Gunnarsson
nemendum prófskírteini. Ekki
minntist skólastjórinn í ræðu sinni
á byggingarmál skólans. En ekki
hafa fengizt nein fjárfestingar-
leyfi til áframhaldandi fram-
kvæmda við hið nýja skólahús sem
byrjað var að grafa fyrir í fyrra-
haust.
1 vetur voru rúmlega 100 nem-
endur í Kennaraskólanum og til
vorprófa nú komu 106 nemendur.
Nú luku kennaraprófi við skólann
56 nemendur, þar af úr fjórða
bekk 18, úr svonefndri stúdenta-
deild 15, en í þeirri deild stunda
nám þeir háskólastúdentar er
setjast í skólann, og að auki 18
úr handavinnukennaradeild, en það
er tveggja ára nám og loks luku
5 söngkennarar kennaraprófi, en
hér er um að ræða nýja deild við
Kennaraskólann. Er þetta fyrsti
veturinn sem söngkennaradeildin
starfar í föstum skorðum og er
þar með orðinn vísir að þeirri
söngkennaradeild sem i framtíð-
inni verður við Kennaraskólann.
Skólastjóri skýrði frá úrslitum
vorprófa og kennaraprófa. Hæstu
einkunn í '. bekk hlaut Magnús
Jónsson frá Hafnarfirði 8,36.
Hæsta próf í stúdentadeild tók
Svanhildur Björgvinsdóttir frá
Dalvík 8,70. Hæsta einkunn
stúlkna í handavinnukennaradeild
hlaut Erla Adamsdóttir frá Ak-
ureyri '9,0 og af piltum Björn M.
Loftsson frá Hellu í Rangárvalla-
sýslu 9,07, en Bjöm var jafnframt
hæstur allra hinna rúmlega 100
nemenda skólans sem próf þreyttu
nú í vor. Hæstur í söngkennara-
deild var Stefán Edelstein Reykja
vík, 8,85.
Hinir nýju nemendur munu
strax næsta haust er skólaárið
hefst á ný geta fengið vinnu.
Freysteinn Gunnarsson skóiastjóri,
siljandi fyrir miðju, ásamt hinum
nýju kennurum er kennaraprófi
luku við skóla hans í gær.
(Ljósm. Mbl.)
Freysteinn skólastjóri kvaðst telja
víst að aðsókn að skólanum yrði
meiri næsta vetur en á þessu ný-
lokna skólaári. Gat -íann þess t.d.
að handavinnudeild stúlkna væri
þegar fullskipuð.
Sýilenzkt somsæri í Jórdoníu
Amman, 28. maí-Frá Reuter-NTB.
DAG sökuðu Jórdaníumenn yfirmann sýrlenzku njósnaþjón-
ustunnar, Abdul Hamid Sarraj ofursta, um að hafa skipu-
lagt samsæri gegn stjórn Jórdaníu ekki alls fyrir löngu. Var
ætlunin að láta sýrlenzkar hersveitir, sem þá voru í Jórdaníu,
taka þátt í samsærinu.
Sýrlenzkir herforingjar hjálp- [ sem skorað var á menn að steypa
i
uðu mönnum, sem voru sekir um
landráðastarfsemi , til að flýja
til Sýrlands, og sýrlenzkar her-
sveitir umkringdu þorp og smá
bæi í norðurhluta Jórdaníu með
það fyrir augum að einangra
höfuðborgina Amman.
ÁSAKANIR HRAKTAR
Þessar upplýsingar voru í opin-
berri yfirlýsingu, sem Jórdaníu-
stjórn hefur birt. í yfirlýsingunni
eru hraktar lið fyrir lið þær
ásakanir, sem Sýrlendingar komu
fram með á mánudaginn um, að
Jórdaníumenn hefðu egnt sýr-
lenzku hersveitirnar til reiði.
VÍÐTÆKUR UNDIRBÚNINGUR
Jórdaníustjórn heldur því fram
að Sarraj sé hinn eiginlegi yfir-
maður sýrlenzka hersins. Sýr-
lenzku hersveitirnar smygluðu
vopnum og vopnuðum herflokk-
um inn í Jórdaníu, fengu af-
brotamönnum vopn, hleruðu síma
samtöl, áttu fundi við kommún-
ista og dreifðu flugmiðum, þar
stjórninni.
SLEPPT LAUSUM
800 sýrlenzkir hermenn fengu
lausn úr herþjónustu og var þeim
sleppt lausum í Jórdaníu. Marg-
ir þeirra voru handteknir og
fluttir úr landi af stjórnarvöld-
unum í Jórdaníu, segir í yfirlýs-
ingunni.
Undarlegasta stjórn Dono
Verðtall í kauphöllinni
Kaupmannahöfn, 28. maí.
Einkaskeyti til Mbl.
r 7NDUN nýrrar ríkisstjónar í
Danmörku hafði í för með sér
verðfall í kauphöllinni. Segja
starfsmenn kauphallarinnar, að
verðfallið eigi rætur sínar í þeim
vonbrigðum, sem menn urðu fyr-
ir ,þegar mennimir, sem sóuðu
öllum gjaldeyri þjóðarinnar og
lömuðu atvinnulífið, ákváðu að
stjórna áfram.
Hin nýja stjórn fær misjafn-
ar móttökur. Stjórnarandstað-
an segir, að þetta sé undarleg-
asta ríkisstjórn, sem Danir
hafi nokkurn tíma haft; sam-
setning hennar sé vægast sagt
litrík. Jafnaðarmenn gangi til
stjórnarsamstarfs við Réttar-
kambandið, sem þeir hafi hing-
að til stimplað sem afturhalds-
flokk. Réttarsambandið varpi
öllum sínum frjálslyndu kenn-
ingum fyrir borð. Róttækir
fari í stjórn með erkifjendum
sínum í Réttarsambandinu.
Kaupmannahafnarblaðið „Soci-
aldemokraten", höfuðmálgagn
Jafnaðarmanna, ver stjórnar-
myndunina með þeim rökum, að
hún hafi komið í veg fyrir að
Eriksen myndaði stjórn, en það
mundi hafa orðið verkalýðnum
til tjóns. Blaðið segir, að utan-
ríkisstefna Dana verði óbreytt.
Síldarverð
VIÐ eldhúsdagsumræðuriiar í gær
kvöldi skýrði Lúðvík Jósefsson
sjávarútvegsmálaráðherra frá því
að ákveðið hafi verið verð á
bræðslusíld og saltsíld. Verður
bræðslusíldarmálið keypt á 95 kr.
og verðið á uppmældri saltsíldar-
tunnu verður 130 krónur.
Fulltrúar 47 þjóða við-
staddir kjarnorkutilraun
I
Yucca Flat, Nevada, 28. maí — Frá Reuter-NTB.
MORGUN var sprengd lítil kjarnorkusprengja á Nevada-eyði-
mörkinni í Bandaríkjunum. Var hún sprengd í 160 metra
háum turni. Kraftur þessarar sprengju svarar til 10.000 tonna af
hinu þekkta sprengiefni TNT, en það er um helmingur þess
kraftar, sem var í kjarnorkusprengjunni, er kastað var á Hiro-
shima. Sprengjur af þessu tagi verða að líkindum notaðar í eld-
flaugar eða handsprengjur.
Rússnesk æska hæðisl
að föðurlandsást
Rr
Moskvu, 28. maí.
►ÚSSNESKA rithöfundatímaritið „Literaturnaja Gazeta“ birti ný-
lega mjög harðorða grein, þar sem ráðizt er heiftarlega á sín-
girni, sjálfselsku, stjórnleysi og hunzku rússneskrar æsku. — í
.greininni segrir m. a.: „En ennþá ískyggilegri er skortur æskunnar
á föðurlandsást". Kennir greinarhöfundur síðari heimsstyrjöldinni
um þetta; hún hafi haft mjög siðspillandi áhrif á æskuna. En hann
nefnir einnig „hinn skefjalausa ákafa“ sumra valdamanna við að
uppræta „persónudýrkunina", þ.e.a.s. stalinismann.
„Æskan er dauðleið og algerlega sinnulaus", segir ennfremur
í greininni. „Álitlegur hluti af æskulýðnum lítur svo á, að kærustu
og helgustu hugmyndir okkar og þær hugsjónir, sem við íórnum
lífinu fyrir, séu ekki annað en þreytandi orðagjálfur". Aðrir hlæja
háðslega að föðurlandsást, vanrækja nám sitt og hafa yfirleitt þá
afstöðu, sem bezt verður lýst með orðunum: „Hvað kemur mér
það við?“
Ljósglampinn frá sprengjunni
var jafnskær og himdrað sólir
og framleiddi milljón gráða hita
(Celcius). Veðrið var mjög hag-
stætt, og töldu sérfræðingar, að
lítil sem engm hætta væri á
geislavirku • ryki.
Viðstaddir tilraunina voru 50
fréttamenn frá Bandaríkjunum
og öðrum löndum ásamt opin-
berum fulltrúum frá 47 þjóðum.
Þeir stóðu í 18 km. fjarlægð" frá
stálturninum. Tilraunin var hin
fyrsta af mörgum, sem áætlað
er, að fari fram á Nevada-eyði-
mörkinni.
Bandaríska kjarnorkunefnd-
in tilkynnti í dag, að sérfræð-
ingar væru að vinna að undir-
búningi þess að gera tilraunir
með kjarnorkuvopn neðan-
jarðar, og mundi það útiloka
hættuna á kjarnageislun. Var
jafnframt tilkynnt, að síðan
1951 hefðu Bandaríkjamenn
gert um 60 tilraunir með kjarn
orkuvopn, en þær hafa ekki
haft neina teljandi hættu í för
með sér, að því er formælandi
kjarnorkunefndarinnar sagði.
Tilkynnt var í Tokyo, að
Japansstjórn hefði mótmælt
kjarnorkutilraununum í Nevada-
eyðimörkinni. Hefur hún farið
þess á leit við Bandaríkjastjórn,
að hætt verði við frekari tilraun-
ir.
Bandarikin fækka
mönnum á Formósu
Washington, 28. maí.
Frá Reuter-NTB.
BANDARlSKA stjórnin er nú að
athuga möguleikana á að fækka
starfsliði sínu á Formósu, bæði
því er fer með hermál og almenn
mál. Talsmaður utanrikisráðuneyt-
isins sagði, að þetta hefði verið
til umræðu alllengi, en að óeirð-
irnar við bandaríska sendiráðið í
Taipeh sl. föstudag mundu líklega
leiða til framkvæmda í málinu.
— Rúíssar vaka
Frh. af bls. 1.
skapa ný sambönd við starfs-
bræður sína þar. Tíu af fremstu
blaðamönnum Póllands voru ný-
lega gestir Sovétstjórnarinnar og
urðu m. a. þeirrar virðingar að-
njótandi að hlusta á 3*4 tíma
ræðu Krúsjeffs húsbónda i
Kreml.
AUKIN RITSKOÐUN
Um þetta er lítið skrafað
eða skrifað, en þess gengur
enginn, sem til pekkir, dulinn,
að ritskoðun pólskra blaða
hefur verið aukin síðustu vik-
urnar. Greinar, sem höfðu að
geyma árásir á Rússa, voru
birtar fyrir nokkrum vikum,
en nú sjást þær hvergi.
RÚSSNESK LIST
BEZT I IIEIMI I
Sendinefnd rússneskra rithöf-
unda er nú í Prag og er m. a.
að gefa tékkneskum kollegum
sínum hollráð um framtíðarskrit
þeirra. Á fyrstu ráðstefnu rit-
höfunda og listamanna í Alban-
íu var aðalumræðuefnið „sósíal-
realismi", og var með því átt
við það, að höfundar og lista-
menn ættu með verkum sinum
að ala upp almúgann til „þegn-
skapar við föðurlandið (Rúss-
land) og til að hata hið rotna
auðvaldsskipulag". Yoru albansk
ir rithöfundar hvattir til að taka
rússneskar bókmenntir til fyrir-
myndar, þar eð rússnesk list og
bókmenntir væru hinar beztu j
heimi.
Rússar hafa ekki gleymt lönd-
unum utan við járntjaldið í hinni
nýju „menningarviðleitni" sinnL
Nýstofnuð ríkisnefnd, sem sér
um mennigartengsl við vestræn-
ar þjóðir, hefur það höfuðmark-
mið að sjá svo um, að þau rúss-
nesk tímarit, sem prentuð eru á
vestrænum tungum, stórauki
lesendahóp sinn vestan jára-
tjalds.