Morgunblaðið - 29.05.1957, Page 12
n
MORWHBVAnia
Miðvikudagur 29. maí 1957
.iuttM$fri
Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavfk
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Ami Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
Eitir eldhúsverkin
UTAN ur 'EIMI
Mayflower hrekur af /e/ð
XJndarleg sjón á Atlantshafinu
ELDHÚSUMRÆÐURNAR, sem
lauk í gærkvöldi, báru greini-
legan svip þeirrar staðreyndar,
að núverandi ríkisstjórn íslands
er í miklum vandræðum. Enda
þótt hún hefði þrefaldan ræðu-
tíma á við stjórnarandstæðinga,
Sjálfstæðimenn, var hún allan
tímann, sem umræðurnar stóðu í
aumlegri vörn.
Þessi varnaraðstaða stjórn-
arinnar birtist fyrst og fremst
í því, að málsvarar hennar
ræddu aðallega um verk fyrr-
verandi ríkisstjórna og reyndu
að koma allri ábyrgð á því,
sem nú fer aflaga í þjóðfélag-
inu á þeirra reikning.
SleffPÍudómar um fyrr-
verandi ríkisstfórnir.
Þessi viðleitni vinstri stjórn-
arinnar til þess að kenna fyrir-
rennurum sínum um allt, sem
miður fer í dag, sýnir hversu aum
og úrræðalaus þessi ríkisstjórn
er. Þrátt fyrir öll hennar glæstu
loforð um lausn vandamálanna
hefur hún engu áorkað, sem tal-
izt geti raunhæf lausn á nokkru
vandamáli. Hún getur þessvegna
ekki byggt málflutning sinn og
réttlætingu tilveru sinnar á eig-
in afrekum. Hún verður að grípa
til ófrjórrar gagnrýni og raka-
lausra sleggjudóma um fyrrver-
andi ríkisstjórnir.
Það ber vott oftrú kommún-
ista og Alþýðuflokksins á
dómgreindarleysi almennings
þegar leiðtogar þessara flokka
tala sig klökka um kapphlaup-
ið milli kaupgjalds og verð-
lags og vöxt dýrtíðarinnar á
undanförnum árum. Engir
hafa nefnilega átt eins ríkan
þátt í þcssari ógæfu í íslenzk-
um efnahagsmálum og einmitt
þeir. Það voru kommúnistar
og meðreiðarmenn þeirra, sem
hleyptu verðbólguskriðunni af
stað með pólitískum verkföll-
um árið 1955. En þá hafði
ríkisstjórn Ólafs Thors tekíst
að skapa jafnvægi í efnahags-
málunum og stöðvað vöxt verð
bólgunnar um skeið. Miklum
framkvæmdum var haldið
uppi og þjóðfélagið var í mark
vísri uppbyggingu.
Gialdbrot efnahags-
málastefnu vinstri
stiórnarinnar
Sú staðreynd stendur áþreif-
anlegust eftir eldhúsdagsumræð-
urnar, að efnahagsmálastefna
vinstri stjórnarinnar hefur beð-
ið algert skipbrot. Stjórnin lof-
aði „nýjum úrræðum" og „nýj-
um leiðum“ í viðureigninni við
verðbólguna. Það loforð hefur
hún gersamlega svikið. Hún hef-
ur ekki getað bent á eitt einasta
nýtt úrræði í þeim málum. Hins
vegar hefur hún vaðið lengra út
í uppbótafenið en nokkur önn-
ur ríkisstjórn hefur gert. Hún
hefur lagt drápsklyfjar nýrra
skatta og tolla á almenning. Þess
ar nýju álögur hafa haft í för
með sér stóraukna dýrtíð og þung
bæra skerðingu á lífskjörum
fólksins.
Þetta finnur hver einasta
fjölskylda á öllu fslandi. En
ráðherrar vinstri stjórnarinn-
ar rembast samt við að halda
því fram, að dýrtíðin hafi
ekkert aukist og að lífskjörin
hafi ekki verið skert. Á svona
háu stigi er sjálfsblekkingin
hjá vinstri stjórnar hirðinni.
Gengislækkun skollin á
Það þurfti þess vegna engum
að koma á óvart þegar Áki
Jakobsson lýsti því yfir á Alþingi
fyrir nokkrum dögum að hver
heilvita maður sæi að gengis-
lækkun væri nú óhjákvæmileg,
orðin vegna aðgerða ríkisstjórn-
arinnar á sl. vetri.
En í raun og veru er gengis-
lækkunin þegar skollin yfir.
íslenzk króna er þegar fallin.
Með hinum gífurlegu álögum
á s. I. vetri til þess að standa
undir uppbóta- og styrkjastefn
unni ákvað vinstri stjórnin að
gengisbreyting yrði að" koma
á næstunni. Hún gafst upp við
að finna nokkra aðra leið út
úr ógöngum, sem skemmdar-
starfsemi kommúnista undan-
farin ár hefur komið íslenzk-
um efnahagsmálum í.
Marklausir svardasrar
Svardagar kommúnista í eld-
húsdagsumræðunum um það, að
gengið myndi ekki verða fellt í
haust eru þess vegna eins mark-
lausir og hugsast getur. Þeir hafa
þegar fellt gengiíslenzkrarkrónu
og leitt yfir íslenzkan almenn-
ing dýrtíð og fjölþætta erfiðleika.
Enginn nema þeir Hannibal
Valdemarsson og Lúðvík Jósefs-
son trúa því lengur, að stjórnin
hafi stöðvað verðbólguna og
tryggt lífskjör fólksins. Þeir hafa
skrökvað þessu að sjálfum sér
og eru farnir að trúa sínu eigin
skröki.
En almenningur veit betur en
þeir. Fólkið sér hvað er að ger-
ast, finnur það á sinni eigin af-
komu.
Það er þess vegna rétt, sem
Ólafur Thors, formaður Sjálf-
stæðisflokksins sagði í lok út-
varpsræðu sinnar í fyrrakvöld:
Núverandi ríkisstjórn nýtur
lítils trausts, bæði innanlands
og utan. Hún stendur uppi með
gjaldþrota efnahagsmála-
stefnu, gengisfellingu og
svarta fortíð flokka sinna.
Úrræði Sjálfstæðis-
manna
Það er vissulega aumleg afsök-
un hjá þeim, sem nú bera ábyrgð
á stjórn landsins, á úrræðaleysi
sínu og getuleysi, að stjórnarand-
staðan hafi ekki lagt fram nein-
ar tillögur um lausn helztu
vandamólanna. En auk þess er
þess að gæta, að Sjálfstæðismenn
hafa verið við völd allmörg und-
anfarin ár og sýnt, að þeir hafa
sín úrræði til lausnar efnahags-
vandamálum. Kommúnistar og
meðreiðarmenn þeirra hafa hins
vegar notað verkalýðsfélögin til
þess að eyðileggja árangur þeirra.
Og nú brennur sá eldur er þeir
kveiktu á skinni kommúnista. Og
þá eiga þeir þá vörn helzta, að
ásaka Sjálfstæðismenn fyrir að
þeir hafi engin úrræði á tak-
teinum!!
U ti á miðju Atlants-
hafi velkist um þessar mundir
undarlegt lítið seglskip. Það ber
ekki merki nútímans, heldur
gæti maður trúað að þarna væri
á ferð einhverjar eftirstöðvar af
landkönnúnarflotum fyrri alda.
Skipið hefur hið sérkennilega lag
miðaldanna með hárri lyftingu.
Væri næstum hægt að ímynda
sér, að fyrir 400 árum hefði þetta
merkilega litla skip orðið inn-
lyksa í þanginu á Zargossa-haf-
inu, en sjógörpunum tekizt að
losna að lokum og halda áfram
för til fyrirheitna landsins í
vestri. Er þá hætt við því að hin-
um 400 óra gömlum sjómönnum
þætti undarleg aðkoma, er þeir
sigla upp Hudson fljótið og líta
augum þyrpingu skýjakljúfanna.
Og nú skulum við virða fyrir
okkur sjómennina á þessu skipi.
Þeir eru vissulega fornfálegir að
útliti, klæddir eftir tízku miðald-
anna, alsettir spegilfögrum hnöpp
um og gljáandi speldum, með
barðastóra hatta og blúnduermar.
Og alskeggjaðir eru þeir eins og
sjóræningjar. En áhöfnin verður
að teljast kvik í hreyfingum, ef
miðað er við að meðalaldurinn sé
300—400 ár. Svo mann fer að
gruna margt, ekki sízt þegar einn
hásetinn tekur upp úr vasa sínum
sígarettupakka. Það eru raunar
filter-sígarettur og hann kveikir í
einni með Ronson-kveikjara af
nýjustu gerð. Og það fara einnig
að renna tvær grímur á mann,
þegar maður heyrir glymjandann
út úr káetudyrunum frá útvarps-
tæki, þar sem hamazt er á* Roek
and Roll. Og þegar tónlistinni
lýkur eru lesnar fréttir þar sem
þulurinn skýrirhinumfornfálegu
sægörpum frá því að smíðuð hafi
verið eldflaug, sem fari með 3000
km. hraða á klst.
á verður það ljóst
að þetta gamla skip úti á öldum
Atlantshafsins er gabb eitt og
auglýsingabrella og sæfararnir
eru nútímamenn í gervi miðald-
anna. Og þegar við lesum nafn
skipsins „Mayflower 11“ á kinn-
ungnum verður það ljóst að þeir
eru að leika að nýju hina frægu
för púrítananna frá Englandi til
Ameríku.
Fyrir 337 árum lögðu
púrítanarnir út frá bænum Ply-
mouth á Cornwall-skaga í hir.ni
mestu niðurlægingu. Þeir voru að
flýja vægðarlausar trúarofsóknir
og voru harmi þrungnir yfir því
að skilja við sitt feðraláð. Þeir
nefndu skip sitt Mayflower (maí-
blóm). Um borð í því var 20
manna áhöfn og 102 farþegar. í
hafi dóu þrír menn, en samt fækk
aði ekki ó skipinu, því að þrjú
börn fæddust. Eftir 65 daga sigl-
ingu reis austurströnd Ameríku
úr hafi og þar sem pílagrímarnir
stigu á land helguðu þeir jörðina
og nefndu staðinn Plymouth eins
og brottfararstaðinn í Englandi.
Púritanarnir voru iðnir og dug-
legir. í nýja heiminum hófust þeir
brátt til efna og með tíð og tíma
urðu þeir með ríkustu og voldug-
ustu þjóðum Bandaríkjanna. Eru
nú um 15 milljónir manna sem
telja ættir sínar til púrítana og
þykir það mjög fínt í Bandaríkj-
unum að eiga til þeirra að teija.
F yrir nokkrum árum
datt enskum auglýsingamanni í
hug, að hægt væri að græða
vel á því að sigla öðru maí-
blómi yfir Atlantshafið og nota
siglinguna þá í leiðinni til að aug-
lýsa ýmiss konar verzlunarvarn-
ing. Hann fékk enskan skipasmið
í lið með sér og tóku þeir nú að
leita í söfnum, unz þeir fundu
nákvæma teikningu af skipi píla-
grímanna. Síðan var kjölurinnj
lagður í bænum Brixham á Suður
Englandi. Tók smíðin tvö ár og
er það mælt að hið nýja maí-
blóm sé nákvæm eftirlíking af
hinu eldra.
Ákveðið var að leggja úr höfn
þann 20. apríl, og tókst með herkj
um að halda þeirri áætlun. Var
allt á síðustu stundu eins og oft
vill verða. Skipshöfnin hafði
engan tíma til að æfa sig í með-
ferð þessa furðulega skips og
dráttarbát varð að fá til að draga
skipið milli Brixham og Ply-
mouth.
A tburður þessi hafði
verið auglýstur geysilega bæði
austan og vestan hafs, svo að þeg-
ar 20. apríl rann upp voru þúsund
ir manna viðstaddar brottförina,
þeirra á meðal fjölmenni Amerík
ana, sem hreyknir eru af því að
vera komnir af púrítönum. Nokk-
ur vindblær var þegar kveðjuat-
höfnin hófst, en ræður voru mikl-
ar og langar, svo að þegar lagt
var af stað, var komið dúnalogn.
Þýðingarlaust var því að draga
upp segl og var nú enn á nýleitað
aðstoðar dráttarbátsins, sem dró
skipið út fyrir öll annes.
Síðan hefur ferðin gengið
skrykkjótt. Ætlunin var að sigla
þvert yfir Atlantshafið, en skipið
hrakti af leið, langt suður með
Afríku. Það hefur lent í still.
um, dag eftir dag komst það ekki
nema þrjár sjómílur og þótt það
hafi verið nær 6 vikur í hafi er
leiðin aðeins hálfnuð.
í Bandaríkjunum verður May-
flower til sýnis, fyrst í Plymouth,
siðan í Boston og loks í New
York. Er þess vænzt að hundruð
þúsunda manna komi um borð
til að líta á alla dýrðina. Og
máske einhverjir gestanna vilji
þá um leið líta á brezku iðnaðar-
vörurnar, sem verða samtímis til
sýnis. Ef til vill eru það þæi' sem
eru kjarni málsins í siglingu May
flower 1957.
*
Ur heimsókn
í heimsókn
LONDON, 27. maí: -—- í morgun
sigldu nokkur brezk herskip til
móts við „Britannia“ 10 mílur út
fyrir austurströnd Skotlands til
þess að taka á móti Elísabetu
drottningu og manni hennar Filip
prinsi, sem voru að koma úr hinni
opinberu heimsókn til Danmerkur.
Hélt „Britannia" til hafnar í Skot
landi, en drottning mun verja
næstu þrem dögum í heimsókn í
stöðvar brezka heimsflotans.
Miðaldakappar á Mayflowcr