Morgunblaðið - 16.06.1957, Page 16
16
MORCVNBL 4ÐIÐ
Sunnudagur 16. júní 1957
I
I
I
I
A
ustan
Edens
eftir
John
Steinbeck
59 i
= I
Mennirnir tveir riðu hægt heim
til Adams. Síðdegisbirtan var gul
leit, þar sem geislar kvöldsólar-
innar skinu í gegnum móbrúna
rykmóðu loftsins. Eins og venju-
lega lægði vindinn undir dag-
setur, en stundum var það ekki
fyrr en síðla nætur, sem rykið
hafði fallið til jarðar aftur og
loftið var orðið tært og hreint.
„Ég vissi það alltaf að þetta var
kostaland", sagði Samúel. — „Það
getur hver maður séð. En mig
grunaði ekki, að það væri svona
gott. Það hlýtur að liggja iiér stór
neðanjarðar vatnsæð ofan úr
fjöllunum. Ja, þér kunnið sannar-
lega að velja yður land“
Adam brosti: — „Við áttum
jörð í Connecticut", sagði hann
— „ Og í sex mannsaldra hefur
ætt okkar rifið þar grjót úr jorðu.
Eitt fyrsta sem ég man eítir er
það, þegar við vorum að flytja
steina á sleða og hlaða þeim í
garða. Þannig hélt ég að allar
jarðir væru. Hér kemui mér allt
svo undarlega fyrir sjónir, næst-
um syndsaml. Ef mann vantaði
stein, þyrfti að fara langar leiðir
til að finna hann“.
„Syndin kemur fram í ólík-
ustu myndum“, sagði Samúel. —
„Ef einhver þyrfti að afhjúpa
algerlega sinn ytri og innri mann,
—□
Þýðing
Sverrir Haraldsson
□----------------------□
myndi honum áreiðanlega takast
að fela nokkrar litlar syndir ein-
hversstaðar, sjálfum sér til óþæg-
inda. Þær eru það síðasta, sem
við viljum skilja okkur við“
„Kannske gera þær sitt gagn
með því að skapa auðmýkt hjá
okkur“
„Ég ‘býst við því“, sagði Sam-
úel — „Og ég held að auðmýktin
hljóti að vera góður eiginleiki"
„Segið mér eitthvað nánar um
töfrastafinn yðar“, sagði Adam.
— í hverju er kraftur hans fólg-
inn?
Samúel strauk með fingrinum
yfir viðar teinimginn, sem hann
var nú búinn að binda aftur við
hnakknefið: — „Ég veit eiginlega
ekki hvernig á að svara þeirri
spurningu". Hann leit brosandi á
Adam — „Kannske er kraftur
hans alls enginn Kannske veit ég
hvar vatnið er, finn það á mér.
Sumt fólk hefur hæfileika til
þessa eða hins. Kannske, já, kallið
Fáksfélagar
sem vilja selja happdrættismiða fyrir skeiðvallarhapp-
drætti Fáks, til ágóða fyrir nýbyggingar á skeiðvell-
inum, eru vinsamlega beðnir að taka happdrættismiða
á skrifstofu félagsins, Smiðjustig 4.
Opið á sunnudag 1—4, mánudag 9—12 f: h. aðra
daga 9—6 e. h.
Vinningur: Svartur Buick Super 4ra dyra 1956.
Skeiðvallarhappdrætti Fáks.
o I -l^uAATI ^
er mjög Ijúffengur
28i
það auðmýkt, eða vantrú, sem
knýr mig til að beita töfrum, til
þess að finna það, sem ég raun-
verulega veit um. Skiljið þér
hvað ég meina?“
„Ég myndi þurfa að hugsa um
það“, sagði Adam.
Hestarnir röltu áfram í hægð-
um sínum með álút höfuð og
slaka beizlistauma.
„Getið þér gist hjá okkur í
nótt?“, spurði Adam.
„Ég gæti það, en ég held að ég
ætti samt ekki að gera það. Ég
nefndi það ekki við Lizu, að ég
myndi verða að heiman í nótt. Ég
vil ekki gera hana órólega"
„En hún veit hvar þér eruð“
Já, hún veit það, en ég ætla nú
samt að fara heim í kvöld. Hins
vegar skal ég með mestu ánægju
borða með ykkur kvöldverð, ef
hann stendur til boða. Og hvenær
viljið þér svo að ég byrji á brunn-
greftrinum?"
„Núna — eins fljótt og þér get-
ið“.
„Þér vitið að það er mjög dýrt
að afla sér vatns. Ég yrði víst að
heimta af yður fimmtíu cent eða
meira á hvert fet, sem ég græfi.
Það gæti orðið talsvert fé, ef grafa
þyrfti mjög djúpt“.
„Ég á næga peninga. Ég þarfn-
ast vatns, framar öllu öðru. Sjáið
þér til hr. Hamilton".
„Ég vildi heldur að þér kölluðuð
mig Samúel".
„Sjáið þér til, Samúel. Ég vil
gera allt landið mitt að einum
garði. Munið það, að ég heiti
Adam. Hingað til hef ég ekki átt
neinn Eden og þess vegna heldur
aldrei verið rekin út úr neinum
Eden“.
„Og hvar eiga þá eplatrén að
vaxa?“ spurði Samúel hlæjandi.
„Ég myndi ekki rækta nein epla
tré“, svaraði Adam. „Slíkt væri
bara til að bjóða hættunni heim“.
„Hvað segir Eva um það? Þér
verðið að muna að hún hefur at-
kvæðisrétt í því máli. Og Eva elsk
ar epli“.
„Ekki mín Eva“. Augun í Adam
ljómuðu. „Þér þekkið ekki Evu
mína. Hún samþykkir áreiðanlega
uppástungu mína. Ég held að eng-
inn geti gert sér grein fyrir því,
hversu góð hún er“.
„Þá eigið þér sannarlega fá-
gætan dýrgrip. Betri gjöf get ég
naumast hugsað mér“.
Þeir voru komnir í minni litla
þverdalsins, þar sem Sanzhes-hús-
in stóðu og sáu ávalar krónur
stóru eikanna.
„Gjöf“, sagði Adam hljóðlega.
„Þér getið ekki gert yður í hug-
arlund hvílík hún er. Það getur
cnginn. Allt líf mitt var grátt og
omurlegt, hr. Hamilton — Samú-
el. Ekki svo að skilja að það væri
verra en margra annarra, en ég
hafði alls ekkert til að lifa fyrir.
Ég veit ekki hvers vegna ég er að
segja yður þetta“.
„Kannske af því að mig langar
til að heyra það“.
„Móðir mín dó fyrir mitt minni.
Stjúpmóðir mín var góð kona, en
útslitin og heilsulaus. Faðir minn
var harður og strangur maður —
kannske mikill maður“.
„Og yður gat ekki þótt vænt um
hann?"
„Ég fann til sömu tilfinninga
gagnvart honum og ég finn til í
k.rkju, — ekki svo lítill ótti“.
Samúel kinkaði kolli. „Ég skil
-— og sumir menn vilja hafa það
þannig". Hann brosti angurvært:
„Þannig hef ég aldrei verið. Liza
segir að það sé mín veika hlið“.
„Faðir minn sendi mig í herinn,
til þess að berjast við Indíánana".
„Þér sögðuð mér það. En þér
hugsið ekki á hermanna vísu“.
„Ég var heldur aldrei góður her
maður. — En hvað er ég annars
að hugsa. Hér sit ég og þreyti yð-
ur á einkamálum mínum“.
„Þér þarfnist þess eflaust, að
létta af hjarta yðar. Orsakir
liggja til alls“.
„Góður hermaður hlýtur að
vilja gera þá hluti sem við vorum
neyddir til að gera. — Hann má
a. m. k. ekki vera þeim andsnúinn.
Ég gat ekki fundið neina gilda á-
stæðu til þess að myrða menn og
konur og skildi þær heldur ekki,
þegar þær voru útskýrðar fyrir
okkur“.
Þeir riðu þögulir um hríð. Svo
hélt Adam áfram talinu. „Þegar
ég losnaði úr hernum, flakkaði ég
um í langan tíma, áður en ég hélt
Afhending
nýju símaskrárinnar 1957
Til þess að greiða fyrir fljótri afgreiðslu, verður nýja
símaskráin afhent símanotendum þriðjudaginn 18. júní til
laugardagsins 22. júní n. k. að báðum dögum meðtöldum í
Góðtemplarahúsinu, uppi. Opið kl. 13—19 (1—7) hvern dag.
í Hafnarfirði verður símaskráin afhent símanotendum
á sama tíma í landssímastöðinni, Austurgötu 11.
Þetta nær þó ekki til þeirra símanotenda, sem fá nýjan
síma í sumar.
Bæjarsími Reykjavíktur og Hafnarfjarðar.
M ARKÚS Rftir Ed Dodd “
” PAT, í OON'T UKE YOUR.
BRINSINS JOHN WALKIN6
AWAY WERE /
I’M FLVING TÓ
»ST. LOVITE FOR
THE BLOOD.
MR. HILLEV/
but tmis is a
CASE OF LIFE AND DEATH,
- DAD ...OLD JOHN WILL DIE
UNLESS HE HAS THE PROPER
CARE AND SOME WHOLE BLOOD.
you?/.
VES, DO VOU HAVE
A WEATHER REPORT
FROM THAT AREA ?
A
1) — Peta, ég vil ekki tð þú
komir með Jóa hingað. — Já, en
hér er um líf og dauða að tefla.
Jói gamli deyr, er hann lær ekki
góða hjúkrun.
2) — Ég fer í flugvélini tinl
St. Lovite eftir blóði, Halur. —
Þú?
NO, WE DON'T
HAVE A STATION
THERE, BUT
JUDGINS FROM
NEARBV REPORTS
IT SHOULD BE.
ljust fine/
3) — Já, hefirðu gert nokkrar
veðurathuganir á flugleiðinni? —
Nei, við höfum enga veðurathug-
unarstöð hér, en hún er skammt
VOU MAV
RUN INTO
SOME LOW
SCATTERED
CLOUDS ON
VOUR RETURN,
BUT VOU'LL
HAVE GOOD I
VISIBILITV/
héðan og segir að veðurútlitið
sé ágætt. Þú lendir ef til vill í
einhverjum skýjum, en skyggni
verður annars gott.
heim á leið, til staðar sem ég
mundi eftir, en unni ekki“.
„En faðir jjðar?“
„Hann var dáinn og heimilið var
einungis þak yfir höfuðið, staður
þar sem maður þrælkaði sér út og
beið dauðans".
„Aleinn?“
„Nei, ég á bróður".
„Hvar er hann? Þrælar hann
áfram og bíður?“
„Já — það er einmitt það sem
hann gerir. En svo kom Cathy. —•
Kannske segi ég yður frá því ein-
hvem tíma seinna, þegar ég get
sagt frá og þér viljið hlusta á
mig“.
„Ég vil ekkert fremur", sagði
Samúel. — „Ég gleypi í mig sög-
ur, eins og lostætustu ávexti".
„Það var líkast því sem björtu
ajUtvarpiö
Summdagur 16. júní:
Fastir liðir eins og venjulega.
11,00 Messa í Hallgrímskirkju
(Prestur: Séra Jakob Jónsson. —
Organleikari: Páll Halldórsson).
15,00 Miðdegistónleikar (plötur).
16.30 Veðurfregnir. — Færeysk
guðsþjónusta (Hljóðrituð í Þórs-
höfn). 17,00 Sunnudagslögin. 18,30
Barnatími (Helga og Hulda Val-
týsdætur). 19,30 Tónleikar (plöt-
ur). 20,20 Tónleikar (plötur). —
20,35 Erindi: Séra Bjarni Gissur-
arson í Þingmúla, — austfirzkt
skáld á 17. öld (Stefán Einarsson
prófessor). 21,00 Tónleikar (plöt-
ur). 21,25 „Á ferð og flugi“.
Stjórnandi þátarins: Gunnar G.
Schram. 20,05 Danslög (plötur).
— 23,30 Dagskrárlok.
Mánudagur 17. júní:
(Þjóðhátíðardagur íslendinga).
Fastir liðir eins og venjulega.
10.30 Útvarp frá Bessastöðum: —
Lúðrasveitir reykvískra drengja
heimsækja forseta Islands. 10,50
Tónleikar: íslenzk kór- og hljóm-
sveitarverk (plötur). 12,00 „Óður-
inn til ársins 1944“ eftir Eggert
Stefánsson, lesinn af höfundi.
13,15 Sinfónískir tónleikar (plöt-
ur). 13,55 Frá þjóðhátíð í Rvík. —■
Hátíðin sett (Þór Sandholt skóla-
stjóri, formaður þjóðhátíðarnefnd
ar). 14,30 Hátíðarathöfn við Aust
urvöll. Forseti íslands leggur
blómsveig að minnisvarða Jóns
Sigurðssonar. Ræða forsætisráð-
herra. Lúðrasveitir leika. — 15,00
Miðdegistónleikar (plötur). 16,00
Frá barnaskemmtun þjóðhátíðar-
dagsins (á Arnarhóli). Lúðrasveit
ir drengja leika, svo og önnur
skemmtiatriði. 17,00 Frá þjóðhá-
tíð f Reykjavík: Tónleikar við
Austurvöll. Sinfóníúhljómsveit ís-
lands leikur. Stjórnandi: dr. Páll
ísólfsson. Einsöngvarar: Krist-
inn Hallsson og Þorsteinn Hannes
son. — Karlakórinn Fóstbræður
syngur. Söngstjóri: Ragnar
Björnsson. 17,45 Lýst íþrótta-
keppni í Reykjavík (Sigurður Sig-
rcðsson). 19,30 Tónleikar: íslenzk
píanólög (plötur). 20,20 Frá þjóð-
hátíð ' Reykjavík: Kvöldvaka á
Arnarhóli. Ýmiss konar skemmtiat
riði. 22,05 Danslög (útvarpað frá
skemmtunum á Lækjartorgi, Lækj
argötu og Aðalstræti). Hljómsveit
ir Kristjáns Kristjánssonar, Ósk-
ars Cortes, Björns R. Einarssonar
og Aage Lorange leika. Söngvar-
ar: Sigrún Jónsdóttir, Ragnar
Bjarnason, Sigurður Ólafsson og
Haukur Morthens. 02,00 Hátíðar-
höldum slitið frá Lækjartorgi. —
Dagskrárlok.
Þriðjudagur 18. júnt:
Fastir liðir eins og venjulega.
19,00 Hús í smíðum; XIV: Mar-
teinn Björnsson verkfræðingur tal
ar um vetrarsteypuna. 19,30 Þjóð-
lög frá ýmsum löndum (plötur).
20.30 Erindi: Um uppruna goða-
valdsins í íslenzka þjóðveldinu
(Bergsteinn Jónsson kand. mag.).
21,00 Dagskrá Kvenréttindafélags
Islands í tilefni af minningardegi
kvenna 19. júní. 22,10 íþróttir —■
(Sigurður Sigurðsson). — 22,25
„Þriðjudagsþátturinn". — Jónas
Jónasson og Haukur Morthens sjá
um flutnings hans. 23,25 Dagskrár
lok. —