Morgunblaðið - 26.09.1957, Page 1
20 siður
Fallhlífahermenn fylgdu
sverfingjabörnunum í skóla
Við borholuna við Fúlutjörn, þar sem boranir hófust í janúar. Vatnið þar er 88 stiga heitt og
rennslið nær 15 sekúndulítrum.
Framkvæmdir hefjast við
Höfðahitaveituna
WASMNGTON, 25. sept.: — íj
dag fylgdiu fallhlífahermenn
með brugðna byssustingi níu j
svertingjabörnum í gagnfræða-
skólann í Little Rock, en hingað
til hefur þeim verið meinuð inn-
ganga í skólann af æstum skríl
Jhvítra manna. Börnunum var
ekið að skólahúsinu í brynvörð-
um bíl og síðan fylgdu hermenn-
irnir þeim inn í húsið án þess
að til tíðinda kæmi. — Skömmu
síðar gerðu allmargir menn að-
sókn að hermönnum fyrir fram-
an skólann og var einn þeirra
stunginn í handlegginn með
byssusting, en annar fékk kylfu-
högg í höfuðið.
Fréttamenn segja, að svertingj
ar séu meðal þeirra 1000 her-
manna, sem sendir voru til Little
Rock til að sjá svo um, að úr-
skurði Hæstaréttar Bandaríkj-
anna um skólavist hvítra og
svartra barna sé framfylgt.
Eins og kunnugt er, var úrskurð-
urinn á þá leið, að ekki mætti
skilja að hvít og svört börn í
skólunum.
. í>ess má geta, að allmargir hvít
ir skólanemendur yfirgáfu skól-
Ríkisstjórnin hefir tafið málið í mánuð
■4 annað hundrað hús fá heita vatnið
Bann við tilraunum með
kjarnorku- og vetnisvopn!
ann, þegar svertingjabörnin fóru
inn í hann. Hermennirnir gáfu
þeim fyrirskipanir um að safnast
ekki saman á almannafæri. sór
hver skyldi fara til síns heima.
— Hershöfðinginn, sem stjórnar
aðgerðum bandaríska hersins í
Little Rock, sagði í dag, að menn
hans væru vel þjálfaðir og
mundu þeir hindra óspektir og
skrílslæti í borginni.
Nixon varaforseti sagði í dag,
að skrílslætin í Little Rock væru
Faubus fylkisstjóra að kenna. —
Stevenson sagði, að Eisenhöwer
hefði ekki átt annars úrkosta en
senda herlið til Little Rock, en
það væri aðeins bráðabirgða-
úrræði.
100 þúsund ítalir
með Asíuveikina
RÓMABORG, 25. sept. — Hell-
brigðisyfirvöldin á ftalíu tll-
kynntu í dag, að 15 menn hefðu
dáið úr Asíuinflúenzunni, sem
undanfarið hefur herjað í Ítalíu.
Um 100 þús. manns eru nú með
veikina, en læknar segja, að hún
hafi náð hámarki og sé nú í
rénum. Þess er einnig getið í frétt
um frá Rómaborg, að 37 þús. her-
menn hafi fengið veikina og af
þeim létust 6. — NTB.
Á FUNDI sínum á þriðjudaginn samþykkti Jbæjarráð sam-
hljóða að fela liitaveitustjóra að hefja nú þegar fram-
kvæmdir við lagningu hitaveitu um Höfðahverfi og skor-
aði á ríkisstjórnina að veita strax fjárfestingarleyfi.
Verður hitaveitan lögð í hús við göturnar Hátún, Mið-
tún og Samtún, auk húsa við Laugaveginn innan Rauðarár-
stígs. Hitaveitustjóri tjáði Mbl. í gær að allar vonir stæðu til
þess að hitaveitan kæmist í þessi hverfi og framkvæmdum
lyki í vetur.
Ríkisstjórnin hefir nú tafið þetta mikla hagsmunamál
fjölda bæjarbúa í um það bil mánaðartíma.
Það var snemma í júlí, sem*
bæjarráð samþykkti að leggja
hitaveitu í Höfðahverfið. Var þá
strax sótt um fjárfestingarleyfi
og samþykkti Innflutningsskrif-
stofan að veita leyfi til byrjun-
arframkvæmda, fyrir 500.000 kr.
En málið þurfti endanlegt sam-
þykki ríkisstjórnarinnar sem önn
ur fjárfestingarmál. Innflutnings-
skrifstofan sendi málið 23. ágúst
til ríkisstjórnarinnar en þar hafa
engin svör fengizt og liggur mál-
ið enn óafgreitt.
Athyglisvert er þó, að er-
lendur kostnaður við Höfða-
hitaveituna mun allur vera um
hálf millj. króna. En olíu-
kostnaður þessa hverfis er á
ári hverju hálf milljón króna
svo í augum uppi liggur hve
gífurlegur gjaldeyrissparnað-
ur er af hitaveitunni. Er öll
frekari töf þessa nauðsynja-
máls mjög bagaleg þar sem
vetur fér nú í hönd.
Mikið vatnsmagn
Það var á síðasta ári sem bor-
anir hófust við Höfða og komið
var þar niður á heitt vatn. í
janúar í ár var byrjað að bora
þar skammt frá, við svo kallaða
Fúlutjörn og I ágúst var komið
þar niður á heitt vatn. Úr þessum
tveimur holum mun Höfðahverf-
Framh. á bls. 2
Parnir sökk kk 2
á laugardag
LUNDÚNUM, 25. sept. — Giinth-
er Hasselbach er einn þeirra sex
sjómanna af þýzka skólaskipinu
Pamír, sem bjargað hefur verið.
í dag birtist samtal við hann í
Þýzkalandi. Hann segir, að Pam-
ír hafi sokkið kl. 2 síðd. á laug-
ardag. Björgunarbát með 21
manni var skotið út skömmu
áður en skipið sökk. Það var eini
björgunarbáturinn, sem hægt var
að nota á þeirri stund, en
skömmu eftir að skipið var sokk-
ið flaut annar björgunarbát-
ur, sem 15 sjómenn komust í. —
Aðeins 5 af þessum 15 skipbrots-
mönnum voru á lífi, þegar björg-
unarbáturinn fannst, 9 höfðu
drukknað og 1 dáið.
Skipbrotsmönnunum sex bar
saman um, að Pamír hafi sokkið
svo snögglega, að ekki hafi verið
unnt að setja gúmmíbátana á
flot.
★
í gærkvöldi var tilkynnt, að
bandariskt björgunarskip nefði
bjarðað nokkrum skipbrotsmönn
um af Pamir í viðbót. Ekki var
skýrt frá því, hve marga menn
hér væri um að ræða.
NEW YORK, 25. sept. — Ind-
verski fulltrúinn hjá S.Þ. lagði í
dag fram tillögu á fundi Allsherj-
arþingsins, þar sem þess er kraf-
izt, að aðildarríkin hætti nú þegar
og skilyrðislaust öllum tilraunum
með kjarnorku- og vetnisvopn.
Ennfremur er gert ráð fyrir því,
að aðildarríkin tilkynni þegar í
stað til aðalitara S.Þ., ef þau
Rússar sprengja
vetnissprengjur
LUNDÚNUM, 25. sept. —
Rússneska stjórnin tilkynnti
í dag, að Rauði herinn hefði
sprengt kjarnorku- og vetn-
issprengjur á flotaæfingun-
um, sem Rússar halda nú á
Barentshafi.
Frá Washington berast þær
Stúdenfaóeirð-
ir í Tókíó
LUNDÚNUM, 25. sept. — í dag
kom til alvarlegra átaka á milli
1000 stúdenta og lögreglumanna
í Tókíó og gat lögreglan ekki kom
ið á kyrrð í borginni, fyrr en hún
hafði dreift sér um miðborgina
í herbílum. Stúdentarnir fóru í
kröfugöngu til að mótmæla hand-
töku 54 manna, sem teknir voru
úr umferð, þegar þeir æstu til
ófriðar um helgina vegna stækk-
unar á bandarískri flugstöð við
Tókíó.
verða þess var, að sprengdar hafi
verið vetnis- eða kjarnorku-
sprengjur. — f tillögunni segir,
að fullvíst megi telja, að bann
við tilraunum með kjarnorku-
vopn mundi draga úr kalda stríð-
inu og koma á meira jafnvægi í
hciminum. — Gromyko ptanrik-
isráðherra Rússa flutti líka til-
lögu um bann við kjarnorkutil-
raunum.
kjarnorku- og
*-----------------------
fregnir, að Rússar hafi sprengt
kjarnorkusprengju í gær.
Rúbíninn í 60 þús.
eintökum
Ó'SLÓ, 25. sept. — Réttarhöldun-
um yfir norska rith. Agnar Mykle
var haldið áfram í dag. — Það
vakti mikla athygli, að ung lækn-
isfrú skaut allt í einu upp kollin-
um í réttarsalnum. Hún kom alla
leið frá Danmörku og hafði farið
til Noregs án þess að maður henn
ar vissi af. Hún sagði, að ástæðan
til ferðalags síns væri sú, að
hún væri hneyksluð á, að engin
kona léti álit sitt uppi á máli
þessu. Þegar dómarinn vildi ekki
hleypa henni í vitnastúkuna, tók
hún af honum orðið, en þá var
réttarhöldunum frestað. Tnga
læknisfrúin las af handriti sínu,
en viðstaddir virtust ekki mjög
forvitnir og innan skamms heyrð-
ist ekki mannsins mál í réttar-
salnum. Rödd konunnar hafði
ekki enn heyrzt í Myklemálinu.
Það kom fram í réttarhöldun-
um í dag, að Söngurinn um rauða
rúbíninn hefur selzt í 60 þús. ein-
tökum í Noregi.
Atlas-svar Banda-
ríkjanna
WASHINGTON, 25. sept. —
Bandaríkjaher hyggst nú
byrja tilraunir með eldflaug
af Atlas-gerð, en hún á að
geta farið heimsálfa á milli.
Þetta skæða vopn verður svar
Bandaríkjamanna við þeirri
fullyrðingu Rússa, að þeim
hafi tekizt að framleiða eld-
flaug, sem hægt er að skjóta
tii hvaða staðar á hnettinum
sem er. — í dag skutu Banda-
ríkjamenn Atlas-flugskeyti
1500 metra í loft upp. — Það
gerðist í Florida.
Flugslys við
NATO-æfingar
WASHINGTON, 25. sept.: — Það
hefiur verið tilkynnt að 10 banda
rískir flugmenn hafi farizt í
tveimur árekstrum, sem urðu i
dag, þegar fjórar herflugvélar
rákust á fyrir utan Noregsströnd.
— Þær tóku allar þátt í NATO-
æfingunum, sem fara fram á At-
Iantshafi um þessar mundir.
Annað slysið varð, þegar tvær
orrustuvélar frá flugþiljuskip-
inu Saratoga rákust á, skömmu
áður en þær ætluð að lenda, en
hitt slysið varð, þegar tvær
sprengjuvélar frá flugþiljuskip-
inu Essex rákust á, þegar þær
voru á eftirlitsflugi. í hvorri vél
voru 4 menn og fórust þeir allir.
v
m