Morgunblaðið - 23.10.1957, Side 1
20 síður
44. árgangur.
240. tbl. — Miðvikudagur 23- október 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsin**
Frelsisbaráttu Ungverja minnzt um allan heim
Landflótta ritstjóri talar á fundi
„Frjálsrar menningar64 3. nóvember
Ný bók um þjóðbyltinguna
23. október 1956 — 23. október 1957
Eitt ár er í dag liðið frá því frelsisstríð Ungverja hófst. Sjá greinar á bls.
Rætt um stækkun MiÓbæjarins
og flugvöllinn á Varbarfundi
BLAÐAMENN áttu í gær fund
með Tómasi Guðmundssyni, for-
manni félagsins Frjáls menning,
og Eyjólfi K. Jónssyni, forstjóra
Almenna bókafélagsins. — Tómas
Guðmundsson skýrði frá því, að
stjórn Frjálsrar menningar hefði
gert svohljóðandi ályktun í til-
efni eins árs afmælis ung-
versku byltingarinnar:
1. Félagið Frjáls menning
vottar ungversku þjóðinni
virðingu sína og samúð, og
harmar þá ógæfu frjálsra
þjóða, að hafa ekki getað
komið henni til liðs í þeirri
frelsisbaráttu, sem hún háði
við miskunnarlaust ofurefli.
2. Félagið fordæmir árásar-
styrjöld Sovétríkjanna á
hendur Ungverjum sem hróp-
Iegt afbrot gegn grundvallar-
lögmáli í sambúð siðaðra
þjóða. Það fordæmir í nafni
mannúðar og mannréttinda
hinar hryllilegu ofsóknir,
mannrán, fangelsanir og af-
tökur, sem haldið er uppi
gegn ungverskum föðurlands-
vinurn, körlum og konum,
sem liafa unnið sér það eitt
til saka að berjast fyrir sjálf-
stæðri tilveru þjóðar sinnar.
3. Félagið beinir þeirri á-
Skipulagsmálanefnd
lagði fram tillögur
a
félagsins
' gær
smar
SÚ STARFSEMI, sem nú er í miðbænum í Reykjavík, þarf aS fá
aukið oinbogarúm í hverfum, er reist verð'i þar sem flugvöllurinn
er nú.
íbúða- og lðnaðarhverfi séu áfram aðskilin.
Ný átök verði gerð í lóðamálum og nýjar leiðir farnar til að
fullgera götur eins fljótt og unnt er.
Umferðarmiðstöð verði komið upp vestan Miklatorgs.
Staðsetning háhýsa verði vandlega undirbúin.
Þetta eru meginniðurstöður skipulagsmálanefndar landsmála-
félagsins Varðar. Tillögurnar voru til umræðu á félagsfundi i gær-
kvöldi, — öðrum fundinum, sem Vörður gengst fyrir um framtið
Reykjavíkur.
Skipulagsmálanefndin hefur að undanförnu unnið að því að
kynna sér skipulagsmál Reykjavíkur, umferðarmál, lóðamál, gatna-
mál og fegrunarmál.
Á fundinum í gær höfðu þrír nefndarmanna framsögu um til-
lögurnar og að loknum umræðum var þeim vísað til bæjarstjórnar-
flokks Sjálfstæðismanna.
unar íbúa og einnig nýrra þarfa,
sem smám saman verða til vegna
tækniþróunar og breyttra menn-
ingarhátta.
Eftir því sem fólksfjöldi eykst
og vöruflutningar og umferð
magnast verður æ erfiðara að
finna nógu margar og nógu góð-
ar lóðir í miðbænum og við höfn-
ina, og þessir hlutar bæjarins
verða ekki færir um að gegna
sínu upprunalega og eðlilega
hlutverki.
Það er skoðun nefndarinnar, að
tími sé til þess kominn að gera
sér grein fyrir því, hvernig mið-
bærinn verður stækkaður. Ekki
aðeins vegna hagnýtra sjónar-
miða, heldur og frá fagurfræði-
legu sjónarmiði, verða borgir
Frh á bls. 19.
skorun til íslendinga, að þeir
festi sér örlög ungversku
þjóðarinnar í minni, og láti
þau verða sér til varnaðar í
skiptum við þau ofbeldisöfl,
sem líkleg eru til þess að
grafa undan sjálfstæði þjóð-
arinnar og búa í haginn fyrir
erlenda íhlutun og yfir-
drottnun.
—)(—
í DAG, 23. október, er ár liðið frá
því, er ungverska þjóðin reis upp
til einhuga baráttu gegn komm-
únistastjórn landsins og sagði
Tómas Guðmundsson, að þeirra
atburða yrði minnzt hvarvetna
um frjálsan heim. Systurfélög
Frjálsrar mennmgar, sem starfa í
fjöimörgum löndum, senda frá
sér ályktanir í tilefni þessara
tímamóta og gangast fyrir því, að
almenningur um heim allan verði
minntur á hina hræðilegu at-
burði, sem gerðust í Ungverja-
landi fyrir einu ári. Tómas sagði,
að starfsemi Frjálsrar menning-
ar væri mjög viðtæk, ekki sízt
í Asíu og hefði hann fengið tæki-
færi til að kynnast því, þegar
hann var staddur í Nýju Delí í
sumar. Heimsótti hann aðalstöðv-
ar félagsins þar í borg og sýnd-
ist honum starfsemin þar öflugri
en hann hafði gert ráð fyrir.
Hann bætti því við, að Frjáls
menning væri ekki stofnuð til að
Framh. á bls. 2
Atlantshafsráðið ræðir
skýrslu Norstads
Fundir um framtíð
Reykjavíkur
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
formaður Varðar, setti fundinn
í gærkv. og las upp 69 inntöku-
beiðnir, sem allar voru sam-
þykktar. Síðan fór Þorvaldui
nokkrum orðum um fundi Varð-
ar um framtíð Reykjavíkur, en
þeir hófust fyrir hálfum mánuði
með fundi um orkumálin. Nefnd-
ir hafa unnið á félagsins vegum
að því að gera tillögur um ýmsa
málaflokka. Verða tillögurnar
ræddar á félagsfundum og niður-
stöðurnar síðan sendar bæjar-
stjórnarflokki Sjálfstæðismanna
í Reykjavík til athugunar.
Miðbærinn er of lítill
Fyrsti ræðumaður í gærkvöldi
var Gísli Halldorsson verkfræð-
ingur. Fjallaði hann um skipu-
lags- og umferðarmál.
Gísli sagði í ræðu sinni, að
bæjarbúum myndi halda áfram
að fjölga og að ekki verði hjá
því komizt að byggja jafnt og
þétt, — bæði til að fullnægja
kröfum, sem skapast vegna fjölg-
Drottning kentur
heim til Eiiúlands
LUNDÚNUM, 22. okt. — Elísa-
bet drottning og Filip hertogi
komu til Lundúna í dag úr opin-
berri heimsókn sinni til Kanada
og Bandaríkjanna. Móðir drottn-
ingar og Anna litla prinsessa
heilsuðu þeim fyrst, þegar þau
stigu á land úr flugvélinni, sem
flutti þau yfir. hafið. Á flugvell-
inum voru einnig ráðherrar með
Macmillan í broddi fylkingar, er-
lendir sendiherrar og blaðamenn.
PARÍS, 22. okt. — Fastaráð At-
lantshafsbandalagsins hér í borg
var í dag kallað saman til fund-
ar að ræða skýrslu yfirmanns
bandalagsins, Lauris Norstads,
um varnarstöðuna í Evrópu um
þessar mundir og framtíðai'horf-
Ur. Skýrslan er rædd sem leyni-
skjal og verður ekki birt. Sam-
kvæmt upplýsingum frá tals-
manni NATO, svaraði yfirhers-
höfðinginn fjölmörgum spurn-
ingum frá meðlimum ráðsins ura
hernaðarstöðuna.
Ekki alls fyrir löngu var
skýrt frá því, að lágmarksher-
afli bandalagsins í Evrópu
væri 30 herdeildir. Álitið er,
að bandalagið hafi ekki nema
helming þessa mannafla.
Myndar Mollet sljórn fyrir
föstudag i
PARÍS, 22. okt. — Stjórnmálafréttaritarar hér í borg eru þeirrar
skoðunar, að lausn muni fást á stjórnarkreppunni í Frakklandi
eítir að leiðtogi j afnaðarmanótijGuy Mollet hefur tekizt á hendur
að reyna að mynda 24/stjórn lafiasins eftir styrjöldina. Fréttaritar-
crnir segja, að ef ekki komi eitthvað óvænt fyrir, þá verði stjórn
Mollets hleypt af stokkunum, ef svo mætti segja, fyrir næstkom-
andi föstudag
Mollet tókst á hendur að gera
tilraun til stjórnarmyndunar eft-
ir viðræður við Coty Frakklands-
forseta og óháða hægrimanninn
Pinay, fyrrum forsætisráðherra,
um efnahagserfiðleika landsins.
A viðræðufundunum hvatti Coty
leiðtoga hægrimanna og jafnað-
armanna að leggja deilumálin til
hliðar og gera gangskör að því
að bjarga Frakklandi úr þeim
erfiðleikum, sem landið á við að
stríða um þessar mundir.