Morgunblaðið - 23.10.1957, Qupperneq 9
Miðvikudagur 23. okt. 1957
MORCVNBT AÐ1B
9
Sameiginlegur
vörumarkaður
Álif norrænu efnahagssamvinnunefnd
arinnar lagt fram
Khöfn í október 1957.
HINN 21. þ. m. voru birtar til-
lögur og nefndarálit norrænu
efnahagssamvinnunefndarinnar
run aukna norræna efnahagssam-
vinnu og þá fyrst og fremst um
sameiginlegan norrænan vöru-
markað. í h. u. b. hálft þriðja
ár hefur nefndin unnið að und-
irbúningi þessa máls. Upphaflega
var hún aðeins skipuð Dönum,
Norðmönnum og Svíum, 4 sér-
fræðingum frá hverju landi, en 4
Finnar bættust við, eftir að Finn-
land gerðist aðili að Norður-
landaráðinu. Nefndarmennirnir
hafa haft marga aðra sérfræð-
inga sér til aðstoðar og þeir hafa
iðulega ráðgert við efnahagsráð-
herrana og fulltrúa atvinnulífsins
í þessum fjórum löndum. — fs-
land hefur ekki tekið þátt í þessu
starfi.
Nefndarálitið er mikið verk í
5 bindum, samtals 1390 blaðsíður.
Seinna verður gefið út 6. bindið,
sem á að fjalla um samanburð
á hinum þremur áformum, sem
nú eru á döfinni um aukið við-
skiptafrelsi í Vestur-Evrópu,
nefnilega norrænu tollabanda-
lagi, fríverzlunarsvæði OEEC-
landanna og sameiginlegum
markaði Litlu-Evrópu-ríkjanna.
Nefndarálit norraenu efnahags-
samvinmuiefndarinnar fjallar m.
a. um almenn skilyrði fyrir auk-
inni norrænni efnahagssamvinnu.
Nefndin gerir um leið grein fyr-
ir, á hvaða sviðum samvinnan
verði auðveldast framkvæmd.
Norrænt tollabandalag
Nefndin hefur samið skrá yfir
allar vörur, sem Danir, Finnar,
Norðmenn og Svíar flytja út eða
inn. Hún hefur athugað, hvaða
vörur eigi að vera tollfrjálsar í
viðskiptum þessara þjoða á milli,
gert uppkast að samningi um
norrænt tollabandalag og samið
ítarlega tollskrá, þar sem til- I
greindir eru þeir tollar, sem nú |
eru í gildi í þessum 4 löndum,
og um leið eru gerðar tillögur
um þá tolla, sem lagðir verði á
innflutning frá Iöndum utan
norræna tollabandalagsins.
Aðalatriðið í tillögum nefnd-
arinnar er uppkastið að samn-
ingi um norrænt tollabandalag,
sem Danir, Finnar, Norðmenn og
Svíar gerist aðilar að.
Þegar um þetta mál er að ræða,
er eðlilegt að líta fyrst á það,
hve mikil eða lítil vöruviðskipti
þessar fjórar þjóðir hafi hver við
aðra. Innbyrðis vöruviðskipti
þeirra námu árið 1955 13—14%
af allri vöruverzlun þeirra við
útlönd. Innflutningur þeirra frá
hverri annarri var -samtals 4.300
milljónir danskra króna og til-
svarandi útflutningur 4.200 millj.
d. kr.
Áttatíu af hundraði tollfrjálst
Efnahagssamvinnunefndin legg
ur til, að 80% af vöruviðskipt-
unum milli þessara 4 þjóða verið
tollfrjáls og haftafrjáls. Þarna
er fyrst og fremst um að ræða
hráefni til iðnaðarframleiðslu og
hálfunnar vörur en þó líka nokkr
ar en langt frá allar fullunnar
iðnaðarvörur, þ. á. m. ýmsar
rafmagnsvörur, vélar, skip og
læknislyf.
Toll- og haftafrelsið á fyrst um
sinn ekki að ná til landbúnaðar-
og sjávarafurða. En fari svo, að
Norðurlandaþjóðirnar gerist aðil-
ar að hinu fyrirhugaða friverzl-
unarsvæði OEEC-landanna, og
þessar vörur njóti þar tollfrelsis,
þá verða þær líka að gera það
innan vébanda norræns tolla-
bandalags.
Sameiginlegir tollar út á við
Aðildarríki norræns tolla-
bandalags eiga að hafa sameig-
inlega tolla út á við. Samkvæmt
uppkastinu að tollabandalags-
samningnum eiga tollar á hálf-
unnum vörum að nema 3—9% og
á fullunnum vörum 8—12%.
Hæsta tollinn, nefnilega 17%, á
að leggja á útvarpstæki. Hráefni
verða flest öll tollfrjáls.
Ætlast er til, að toll- og hafta-
frelsið gangi í gildi strax þegar
tolla-bandalagið kemst á laggirn-
ar. Nokkrar undantekningar
verða þó gerðar frá þessari meg-
inreglu. En þær vörur, sem þarna
verður um að ræða, nema aðeins
8% af vöruverzluninni milli
aðildarlandanna.
Vegna sérstakra efnahagslegra
erfiðleika, sem Finnar eiga við að
striða, er ætlazt til, að þeim verði
veittur dálítill frestur til að fram
kvæma þær ráðstafanir, sem þátt
taka þeirra í tollabandalaginu
hefur í för með sér.
Lendi eitthvert aðildarland-
anna í alvarlegum gjaldeyris-
vandræðum, má leyfa því að
leggja um stundarsakir höft á
innflutning frá tollabandalags-
þjóðunum.
Aukið viffskiptafrelsi —
aukin framleiffsla.
Búizt er við, að viðskiptafrels-
ið milli aðildarþjóða tollabanda-
lagsins auki framleiðslu þeirra
og þá um leið fjárfestingarþörf-
ina. Efnahagssamvinnunefndin
norrœnn
leggur því til, að stofnaður verði
norrænn fjárfestingarbanki, sem
útvegi atvinnurekendum lán í
erlendum gjaldeyri. Stofnfé hans
á að vera 300 millj. dt^lara.
Nefndin telur nauðsynlegt, að
aðildarlöndin hafa sameiginleg-
an erlendan gjaldeyrisforða. Hún
gerir ráð fyrir náinni samvirmu
þeirra á milli, þegar um við-
skiptasamninga við önnur lönd
er að ræða. Ennfremur er búizt
við aukinni norrænni samvinnu
á sviði framleiðslunnar og vís-
indalegra rannsókna.
Fundur efnahagsráffherra
Á fundi í utanríkisráðuneytinu
danska skýrði Bertel Dahlgaard,
efnahagsráðherra Dana, dönskum
og erlendum blaðamönnum frá
tilllögunum um norrænt tolla-
bandalag. „í fyrsta sinn í verald-
arsögunni eru þarna bornar fram
tillögur um sameiginlegan
norrænan markað með sérstök-
um ákvæðum fyrir hverja vöru-
tegund“, sagði ráðherrann m. a.
Hann gat þess, að efnahags-
ráðherrar Norðurlanda ætli að
koma saman í Stokkhólmi 24
þ. m. til að ræða þessar tillögur,
að efnahagsmálanefnd Norður-
landaráðsins muni ræða þær á
fundi í Svíþjóð í byrjun nóvem-
ber og að þær verði lagðar fyrir
fund Norðurlandaráðsins í Osló
í janúar n. k.
Ráðherrann tók það fram, að
ríkisstjórnir hlutaðeigandi landa
hafi ekki tekið afstöðu til tolla-
bandalagsins. Hann sagði ekkert
um möguleikana fyrir stofmm
þess. En engum getur dulist, að
það verður miklum og margvís-
legum erfiðleikum bundið.
Steinar í götunni
Áhuginn fyrir þessu tollabanda
lagi hefur víða minnkað vegna
áformanna um langtum víðíæk-
ari verzlunarfrelsissvæði í Vest-
ur-Evrópu. Norrænt tollabanda-
lag mætir mikilli mótspyrnu víða
ástæðum tekið þátt í þvi. f Dan-
mörku heimta bændur, að Dan-
mörk gerist aðili að sameigin-
legum markaði Litlu-Evrópu-
ríkjanna, en það mundi útiloka
danska þátttöku í norrænu tolla-
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 69-, 70. og 71. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1957 á v.b. Sæfari, KE 52, fer fram við
skipið sjálft þar sem það liggur í Keflavíkurhöfn,
fimmtudaginn 24. okt. n.k. kl. 3 e.h.
Keflavík, 22. október 1957,
Bæjarfógetinn í Keflavík.
Verzlunarmannafél.
Reykjavíkur
heldur almennan félagsfund í kvöld kl. 8,30 í Vonarstr. 4
Dagskrá:
1. Breytingar á reglugerð lífeyrissjéðsins
lagðar fram til samþykktar.
2. Gefin skýrsla um starfsemi lífeyris-
sjóðsins.
3. Rætt um lífeyrissjóðsreglugerð KRON.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Aðalfundur
Týs, F.U.S. í Kópavogi
verður haldinn miðvikudaginn 30. okt. n.k.
kl. 8,30 að Melgerði 1.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
í Noregi. Margir búast við, að bandalagi.
Finnar geti ekki af pólitískum I
Fáll Jónsson.
Skrifstofusfúlka
Stúlka óskast á skrifstofu hjá heildsölufyrirtæki.
Almenn skrifstofustörf, enskar bréfaskriftir. —
Umsóknir með uppl. um aldur, menntun og fyrri
störf, sendist afgr. Mbl. merkt: Merkúr — 7860 fyrir
n.k. föstudagskvöld.
Ef þér eruð sjúkur eða veiklaður
getur verið alveg ómetanlegt fyrir yður að fá eins full-
komna hvíld og unnt er. Ekki er vitað um neinn einn hlut,
er skipti meira máli fyrir þetta, en koddinn, sem þér eigið
að hafa undir höfðinu, er þér hvílist.
REST-BEST-koddar taka öðrum koddum fram, þar sem
þeir eru lagaðir eftir mannslíkamanum. — Einkaleyfi
þegar veitt eða væntanlegt í flestum menningarlöndum.
HARALDARBÚ8
Nýkomið
Umbúðapappír
(40 og 57 cm.)
Toiletpappír
H. Benediktsson hf.
Hafnarhvoll — Sími 1-1228
Cúmmí bomsur
Nýkomnar gúmmí bomsur
fyrir karlmenn og unglinga
í stærðunum 38 til 45. —
Mjög hentugt hlífðar skótau
fyrir haust og vetrar veður.
HECTOR
Laugaveg 11
Laugaveg 81