Morgunblaðið - 23.10.1957, Síða 12
n
MORCUNBTAÐIÐ
Miðvikudagur 23. okt. 1957
WmtMl wpH
verska þjóðin hafði orðið að þola
á undanförnum árum undir
kommúnískrj stjórn.
Kommúnistar hölðu
lítið fylgi
f almennum þingkosningum,
sem fram fóru í Ungverjalandi
í lok styrjaldarinnar sýndi það
sig, að kommúnistar höfðu til-
tölulega lítið fylgi meðal ung-
versku þjóðarinnar. I þessum
kosningum hlaut Smábænda-
flokkurinn hreinan meirihluta á
þingi, eða 245 þingsæti. Komm-
únistar fengu aðeins 70 þingsæti.
Þrátt fyrir það kröfðust komm-
únistar þess að fá að vera með
í svonefndri alþýðufylkingu og
fengu þar sitt fram með rúss-
neskum ógnunum. í samsteypu-
stjórninni fengu kommúnistar
m. a. embætti innanríkisráðherra.
Stofnuðu þeir hina pólitísku lög-
reglu Avó og notuðu hana til að
ofsækja stjórnmálaflokka. Árið
1948 var lögreglan búin að þagga
niður í öllum andstæðingura
kommúnista. Alþýðulýðveldi var
stofnað og kommúnísk ógnarvöld
urðu allsráðandi.
4) Kóreuvikan.
5) Stjórnarskrárdagurinn.
6) 10 ára afmæli þess, að Rak-
ósi var sleppt úr fangelsi.
7) Keppnisdagur til að ljúka
vinnuáætlun fyrir árið 1950.
8) Til að heiðra kosningar í
verkalýðsfélaginu.
9) 33 ára afmæli rússnesku
byltingarinnar.
10) Afmælisdagur Stalins.
11) Til að heiðra annað flokks-
þing ungverska kommúnista-
flokksins.
Hagur ungverskr# verkamanna
var skertur á margvíslegan hátt
annan og er ekki nema eðiilegt,
að stöðug gremja væri meðal
verkamanna bæði í garð komm-
únistastjórnarinnar og einnig í
garð Rússa, sem hirtu mikinn
hluta þjóðararðsins.
Alveg með sama hætti voru
bændur beittir þvingunum. Þeim
var með valdi skipað að gerast
verkamenn á samyrkjubúum og
smájarðir þeirra voru teknar
eignarnámi, án þess að nokkur
greiðsla kæmi fyrir. Á samyrkju
búunum höfðu þeir hin hrak-
smánarlegustu laun. Þeir höfðu
tæpast til hnífs og skeiðar.
Hin volduga Stalinstytta í Búdapest var Ungverjum tákn hinnar rússnesku kúgnnar. Hinir
kommúnísku valdhafar neyddu þjóðina til að halda þjóðhátíðir sínar í skugga styttunnar. Þessi
mynd var tekin af hersýningu ungverska hersins við styttuna á valdadögum Rakósi.
í DAG er eitt ár liðið síðan bylt-
ing brauzt út í Ungverjalandi.
Hún beindist gegn ofríki komm-
únista í landinu og gegn rúss-
neskri kúgun. Heita má að öll
ungverska þjóðin hafi verið sam-
einuð í byltingartilraun þessari
og sýnt var að hún hefði skipað
*ér nýja stjórnendur og lýðræð-
islegt stjórnarfar, ef Rússar hefðu
ekki skorizt í leikinn með ofur-
•fli herliðs og bælt byltinguna nið
ur. Síðan fengu Rússar í lið með
■ér örfáa línukommúnista, sem
mynduðu stjórn undir forustu
Janos Kadar. Þarf ekki að orð-
lengja það, að öll ungverska
þjóðin lítur svo á, að Kadar cg sá
fámenni hópur, sem með honum
■tendur séu landráðamenn.
Það er athyglisvert að Rúss-
ar og þjónar þeirra i (Jng-
verjalandi hafa snúið við ÖU-
um staðreyndum varðandi or-
sakir hinnar ungversku bylt-
ingar. Staðhæfa þeir stöðugt,
að hún hafi verið bylting fas-
ista og afturhaldssinna. Þessu
halda þeir fram, jafnvel þótt
glöggar upplýsingar séu fyrir
hendi um það, að mikill f jölði
flokksbundinna kommúnista
▼ar í fremstu röð byltingar-
manna og það einnig þótt það
hafi komið í ljós, að allur
æskulýður og skólafólk lands-
ins var í uppreisn gegn vald-
höfnnum og sömuleiðis allur
her landsins.
Staðhæfingar Kadar-stjórnar-
hmar um fasistagagnbyltingu eru
*vo fráleitar, að bitur gamansaga
gengur í Ungverjalandi um bylt-
inguna: — Það voru 9 milljónir
gagnbyltingarsinnaðra landeig-
enda, verksmiðjueigenda, banka-
•tjóra, aðalsmanna og kardinála,
■em gerðu byltingu gegn aiþýð-
unni. En ungverskir verkamenn
og bændur voru hollir alþýðu-
■tjórninni og mynduðu þeir allir
■ex Kadar-stjórnina.
Sjálfkrafa unnreisn
bióðarinnar
Rannsóknarnefnd Sameinuðu
þjóðanna hefur rannsakað ýtar-
lega þá staðhæfingu Rússa og
Kadar-stjórnarinnar, að bylting-
in í Ungverjalandi hafi aðeins
▼erið verk örfárra fasista. Kemst
nefndi að eftirfarandi niðurstöðu
um það:
Það sem gerðist í Ungverja-
landi í október og nóvember 1956
var sjálfkrafa uppreisn þjóðar-
innar, sem stafaði af ýmiss konar
böli er þjóðin hafði orðið að þola
og hafði valdið gremju meðal al-
mennings. Eitt af því sem olli
mestri gremju var að Ungverja-
land var ætíð skipað á óæðri
bekk í samskiptunum við Rúss-
menntamenn forustu í bylting-
unni. Margir þeirra voru komm-
únistar eða fyrrverandi komm-
únistar.
Þannig mælir Rannsóknar
nefnd Sameinuðu þjóðanna
Kúeiin verkamanna
Eitt versta bölið var gemýt-
ing Rússa á ungversku atvinnu-
lifi. Það, samfara kostnaðarsamri
þjóðnýtingu, olli stórkostlegum
efnahagsvahdræðum og kúgun á
verkamönnum. Lífskjör manna
fóru stöðugt versnandi. Verkíalls
£réttur var afnuminn, en í þess
ályktunarorðum sínum um ung-
versku uppreisnina. Orsakir henn
ar eru margs konar böl, er ung-
"flWÍSHBHI
Bækistöð Avóanna. í þessum byggingum voru fangelsi og pynd-
ingarklefar fyrir pólitíska fanga.
stað kom stórfelld vinnuþvingun
samkvæmt hinu rússneska Stakk-
anov-kerfi.
Aðallega voru tvær aðferðir
notaðar til að ræna verkamenn
arði og launum. í fyrsta lagi
var kerfi hinna svonefndu „Frið-
ar“-lána. Svo var látið heita, að
verkamenn veittu þau af frjáls-
um vilja, en í rauninni voru þeir
beittir margs konar þvingunum
til að afhenda rikinu 12% af
launum sínum. Þeir sem neituðu
að greiða voru settir í gapastokk,
reknir úr vinnu og jafnvel hand-
teknir. Hin aðferðin var „sjálf-
boðaliðsvinna" sem verkamenn
urðu að inna af hendi ókeypis í
ýmiss konar yfirskyni. T.d. má
geta þess, að á tímabilinu apríl
1950 — febrúar 1951 voru ellefu
svonefndir vinnukeppnisdagar:
1) Til minningar um frelsun
Ungverjalands.
2) Til heiðurs 1. maí.
3) Til minningar um stofnun
verkalýðsfélaga.
óánap^a stúdenta
Óánægjan fór einnig stöðugt
vaxandi meðal stúdenta. Að visú
fengu aðrir ekki inngöngu á há-
skóla landsins, en þeir sem voru
meðlimir í kommúnistaflokknum.
i Börn háttsettra embættismanna
! og foringjar i kommúnista-
flokknum gengu fyrir við skóla-
nám. Þrátt fyrir þetta virðist
sem andúð unga fólksins á komm
únismanum hafi stöðugt farið
vaxandi. Því gramdist sérstak-
lega hin víðtæka kennsla í póli-
tískum fræðum kommúnismans
og í rússnesku. Skömmu áður en
uppreisnin brauzt út 23. október
höfðu stúdentar fengið því fram-
gengt, með háværum og marg-
ítrekuðum kröfum, að dregið
skyldi úr skyldunámi í rússnesku.
Það var í beinu framhaldi ai
þessu, sem stúdentar settu fram
nýjar kröfur, er urðu eitt helzta
tilefni uppreisnarinnar.
Rússnesknkennslan byrjaðl
í fyrstu bekkjura barnaskól-
anna. Hún gekk siðan í gegn-
um miðskóla og menntaskóla
og alla leið npp í háskólann.
Háskólakennsla í Ungverja-
landi hafði verið lík þvi sem
tíðkast annars staðar í Evrópu.
Þótti stúdentura það þvi furðu
leg ráðstöfun. begar þeir voru
land. Þá ber þess að geta, að
stjórnarfyrirkomulaginu var hald
ið uppi með ógnaraðgerðum, sem
voru framkvæmdar með hinni
pólitisku lögreglu Avó. Bar mjög
á aðgerðum hennar að minnsta
kosti tíl ársloka 1955 en hún
starfaði með viðtæku kerfi njósn
ara og uppljóstrunar-manna, sem
eitruðu þjóðlíf Ungverja. Rúss-
nesk áhrif ollu gremju á mörgum
fleiri sviðum. Þeirra gætti alls
staðar, þeirra gaetti í því að mál-
frelsi var aínumið og i því að
ungverski herinn tók upp rúss-
neska einkennisbúninga. Ung-
verjar báru ekki persónulegan
fjandskap til einstakra rúss-
neskra hermanna, sem dvöldust
á ungverskri grund, en þetta út-
lenda herlið var tákn einhvers,
sem skapraunaði stoltri þjóð og
hún þráði frelsið.
Sú kenning, að afturhaldsöfl i
Ungverjalandi hafi æst tii bylt-
ingarinnar, eða að hún hafi íeng-
ið styrk frá afturhaldsöflunum
og frá vestrænum heimsvaida-
sinnum hefur ekki staðizt við at-
hugun rannsóknarnefndarinnar.
Frá byrjun til loka höfðu stúd-
entar, verkamenn, hermenn og
1111 ■ ;
id
Að kvöldi 23. október réðust stúdentar að Stalin-styttunni og brutu hana niður. Hinn þungi
koparhaus Stalins var dreginn út á götu og hafður þar til háðungar.