Morgunblaðið - 23.10.1957, Blaðsíða 20
Banaslys á Borgartúni í
fyrstu hríðinni á haustinu
í FYRSTU hríðinni á þessu hausti, árla í gærmorgun, beið maðui
bana á götu hér í Reykjavík. Varð maðurinn, sem hét Albert S.
Clafsson, til heimilis í Blönduhlíð 29, fyrir strætisvagni með þeim
af'eiðingum að hann beið bana. Var ekkert lífsmark með mann-
inum er komið var með hann í sjúkrahús.
Slys þetta varð á Borgartúni
og er það annað slysið sem þar
verður með aðeins rúml. 3 sólar-
hringa millibili. Maðurinn, sem
slasaðist þar aðfaranótt sl. laug-
ardags, var enn rænulaus í gær-
kvöldi.
Slysið varð um klukkan 7 í
gærmorgun. Var strætisvagninn,
sem maðurinn varð fyrir á leið
niður á Lækjartorg, til að hefja
þar fyrstu ferðina vestur á Sel-
tjarnarnes. Vagninum ók þaul-
vanur vagnstjóri. Um þetta leyti
var snjókoma og skyggni slæmt,
snjóföl var yfir öllu. Strætisvagn-
inn var keðjulaus. Góð ljós voru
á vagninum og hafði vagnstjórinn
Hjálmar Blöndal
forstöðumaður
Hagsýslu-
stofunnar
HJÁLMAR Blöndal framkvstj.
Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur, hefur af bæjaryfirvöldun-
um verið ráðinn forstöðumaður
Hagsýslustofu bæjarins, er
bærinn hefur nú ákveðið að setja
á stofn til að gera tillögur um
aukna hagkvæmni í vinnubrögð-
um og starfsháttum bæjarins og
stofnana hans og sparnað í
rekstri.
Hjálmar Blöndal á að baki sér
langan starfsferil í þjónustu
Reykjavíkurbæjar. Að loknu
framhaldsnámi við Verzlunar-
skólann árið 1935, gerðist hann
starfsmaður í skrifstofu bæjar-
verkfræðings. Hann var síðar,
1946, skrifstofustjóri þar. Hann
var skipaður framkvæmdastjóri
loftvarnanefndar Reykjavíkur
1951. Frá því 1953 vann Hjálmar
að undirbúningi að rekstri Heilsu
verndarstöðvarinnar, bæjarspítal
ans og slysavarðstofunnar og
var haustið eftir skipaður fram-
kvæmdastjóri þessarar miklu mið
stöðvar heilsuverndarinnar í bæn
um.
Hjálmar Biöndal er nú 42 ára.
einnig kveikt hin gulu ljós, sem
notuð eru í þoku og hríð. Hvasst
var og vindur austanstæður.
í gær gaf eitt vitni, maður sem
var í strætisvagninum þá er slys-
ið varð, svo og vagnstjórinn
sjálfur skýrslu hjá rannsóknar-
lögreglunni. Um allveigamikið
atriði ber vagnstjóranum og vitn-
inu ekki saman.
Vitnig skýrir svo frá að
strætisvagninn hafi verið kom-
inn á hlið við annan strætisvagn,
er einnig var á leið til bæjarins,
og mun hinn fyrrnefndi hafa ætl-
að fram úr.
Kveðst maðurinn, sem sat
frammi í vagninum, þá skyndi-
lega hafa séð mann á reiðhjóli
rétt framan við vagninn. Hafi
engu skipt, að vagninn rakst á
manninn. Taldi hann að þeir
myndu hafa séð manninn nær
samtímis hann og vagnstjórinn,
því vagnstjórinn hafi þá hemlað.
Vagnstjórinn kvaðst aftur á
móti fullyrða að hann hafi ekki
verið að fara fram úr öðrum
vagni, eða öðium bíl, þá er slysið
varð eða að hann hafi venð bú-
inn að fara fram úr öðrum bíl
þar á götunni. Hann kvað strætis
vagn hafa ekið spölkorn á undan
sér, einnig á leið niður í bæ. —
Hvorki vagnstjórinn né vitnið
telja sig hafa séð ljós á reiðhjóli
hjns látna manns.
Athuganir rannsóknarlögregl-
unnar á verksummerkjum á slys
staðnum sýndu að á hinni rúm-
lega 40 metra breiðu malbikuðu
götu, hafi strætisvagninn verið
á yztu brún hægra meginn, þar
af leiðandi ekki á sínum retta
kanti eins og það er kallað.
Hemlaförin á snæviþaktri göt-
unni reyndust vera 16 metra iöng.
Varðandi reiðhjól Alberts heit
ins Ólafssonar, þá kom í ljós að
Ijósútbúnaður var á því, og reynd
ist í lagi þá er reynt var.
Albert S. Ólafsson var á leið
til vinnu sinnar í verkstæði
Strætisvagna Reykjavíkur, er
slysið varð. Hefur hann orðið að
berjast á móti snjókomu og all-
miklum vindi á reiðhjólinu.
Klukkan 6 í gærmorgun var
veðurhæð 5 vindstig, en kl. 8 var
veðurhæðin 7 vindstig. Hinn látni
lætur eftir sig konu og tvö upp-
komin böm.
Nýr bálur fil
Sandgerðis í gær
SANDGERÐI, 22. okt. — Nýr bát-
ur sigldi hér inn í bátaleg-
una klukkan 8 í morgun. —
Var þetta nýja skip Rafnkell KG
510, stálbátur, er smíðaður hefur
verið í A-Þýzkaiandi. Hann hafði
verið 5 % sólarhring frá Kaup-
mannahöfn og hreppti brælu og
allt að storm í hafi. Hann hafði
farið með 9 sjómílna hraða að
jafnaði alla leiðina, en Garðar
Guðmundsson, skipstjóri, sonur
eigandans Guðmundar Jónssonar
útgerðarmanns frá Rafnkelsstöð-
um í Garði, sigldi skipinu heim.
Með honum voru þeir Eggert
Gíslason skipstjóri á Víði II. og
vélstjórarnir Kristján Guðmunds
son og Vilhjálmur Ásmundsson,
og Magnús Berentsson bryti.
í reynsluför sigldi báturinn 10
sjómílur, en hann er með 280
hestafla Manheimvél. Skipsmenn
láta hið bezta yfir hinu nýja
skipi og sjóhæfni þess. —Axel.
Flugtak i snjó
I gærmorgun, er Gullfaxi lagði af stað í áætiunarferð sína til Glasgow og Kaupmannahafnar,
var aihvít jörð í Reykjavík og snjóföl á flugbrautunum á Reykjavíkurflugvelli. Myndin er tek-
in í þann mund, er flugvélin er að hefja sig t'l flugs og þyrlast snjórinn aftur undan henni.
(Ljósm.: Sv. Sæm.)
Ungversku flóttamennimir kunna vel
við sig á Islandi
Einkona hefur bætzt í hópinn — tvær
stúlkur farnar heim aftur.
BLAÐAMENN ræddu í gær við |
dr. Gunnlaug Þórðarson frkv.stj. _
Rauða Kross íslands og skýrði ^
hann frá því, að ungversku .
flóttamennirnir, sem dveljast I
hér á landi, mundu koma saman J
í samkomusal Héðins í kvöld til j
að minnast þess, að eitt ár er ,
liðið. frá því að ungverska bylt- j
ingin hófst. Dr. Gunnlaugur sagði ,
að allir flóttamennirnir væru enn !
hér á Iandi nema tvær stúlkur !
á 15. ári, sem hefðu farið heim. ’
Þær áttu ættingja í Ungverja- I
landi og báðu þeir um, að stúlk- |
urnar yrðu sendar heim. Þær eru (
nú komnar heim til Ungverja-
lands, og hefur Rauði Krossinn
fengið bréf um það, að þær hafi
náð sambandi við ættingja sína.
Háskólafyrirlestur
um Óðinsdýrkun
PRÓFESSOR G. Turville-Petre
frá Oxford, sem hér er um þessar
mundir í boði Háskóla íslands,
flytur fyrirlestur fyrir almenn-
ing fimmtudagskvöld kl. 8,30 í
I. kennslustofu háskólans um
Óðinsdýrkun.
Aðalheimildir vorar um heið-
inn átrúnað á Norðurlöndum eru
Eddurnar, fornaldarsögurnar og
Saxo. Samkvæmt þessum heirrf-
ildum mætti gera sér í hugar-
lund, að menn hefðu haft mestan
atrúnað a Óðni. En í Landnámu
og öðrum sagnfiæðilegum heim-
ildum er Óðinn örsjaldan nefnd-
ur; nafn hans kemur ekki fyrir
í mannanöfnum og ekki í staða-
nöfnum á íslandi og óvíða í
Skandinavíu. Hvernig ber að
skýra þetta? Sú skoðun virðist
nú ríkjandi erlendis, að Óðinn
hafi verið svo ginnheilagur, að
ekki hafi mátt nefna eftir honum,
sbr. „áss inn almáttki", sem sum-
ir telja að sé Óðinn.
Prófessor Turville-Petre mun
ræða allt þetta mál og skýra frá
nýjustu rannsóknum í þessu efni,
einkum í samanburði við ind-
verskar hugmyndir um hinn
æðsta guð.
Fyrirlesturinn verður fluttur
á íslenzku, og er öllum heimill
aðgangur.
Frétt frá Háskóla íslands.
Óskar Bjarsiasen um-
Þá gat dr. Gumnlaugur þess,
að ein kona heíði bætzt í hóp
flóttamannanna. Henni tókst að
flýja til Júgóslavíu, en þaöan
komst hún til Ítalíu. ítalski Rauði
Krossinn kom henni í samband
við mann hennar hér á landi .og
nú hefur Rauði Kross íslands
kosíað ferð hciHlar hingað. Má
gera sér í liugarlund, hvort ekki
hafi verið fagnaðarfundir, þcgar
þau hjón hittust afliur hér norður
á íslandi.
Allir Ungverjarnir, sem hér
dveljast 50 að tölui, eru í vinnu,
þó að einum undanskildum. Fjór-
ir þeirra hafa reynt sjómennsku
og tveir hafa getið sér gott orð
í því starfi. Eru þeir báðir á tog
urum. — Loks má geta þess, að
flestir Ungverjarnir eru í Reykja
vík og nágrenni, allmargir eru
þó í Vestmannaeyjum, eða níu
að tölu. Sumir hafa lært talsvert
í íslenzku og ekki er vitað annað
en þeir kunni vel við sig hér á
landi, sagði dr. Gunnlaugur að
lokum.
Aðalfundur Þórs
HAFNARFIRÐI — Þór, félag
Sjálfstæðisverkamanna og sjó-
manna, hélt aðalfund sinn sl.
föstudag. í stjórn voru kjörnir:
ísleifur Guðmundsson.formaður,
og aðrir í stjórn: Ólafur Björns-
son, Ámundi Eyjólfsson, Pétur
Auðunsson, Magnús Guðmunds-
son, Bjarni Þórðarson og Karl
Auðunsson. Endurskoðendur
voru kosnir: Sigurbjörn Torfason
og Árni Jónsson og til vara
Jóhann Vilhjálmsson. Þá var kos
ið í fulltrúaráð.
Gunnar Helgason erindreki
Sjálfstæðisflokksins flutti mjög
snjallt erindi á fundinum um
verkalýðsmál. Ræddi hann eink-
um um svik núverandi ríkis-
stjórnar við launastéttirnar og
hagsmuni þeirra. Var máli hans
mjög vel tekið. Síðan uiðu
nokkrar umræður um félagsmál.
Til máls tóku ísleifur Guð-
mundsson og Magnús Guð-
mundsson.
Var mikill áhugi ríkjandi á
fundinum fyrir eflingu félags-
starfsins og vaxandi gengi Sjálf-
stæðisflokksins hér í Hafnarfirði.
ÓSKAR Bjarnasen umsjónarmað-
ur, Háskóla íslands, lézt í gær eft
ir langvarandi veikindi, nær sex-
tugur að aldri. Lézt hann í heilsu
verndarstöðinni, en þangað var
hann fluttur fyrir nokkrum vik-
um. Hann var búinn að vera hús-
vörður háskólans frá þvi hann
flutti í háskólabygginguna 1940.
Lýsl eftlr
Norðmanni
SEINT í gærkvöldi var lesin tilk.
frá lögregiunni þar sem iýst var
eftir norskum manni, sem ætlaði
að ganga á fjöll, að því er talið
var, og leggja upp frá Skíðaskál-
anum. Hafði hann farið héðan úr
bænum á mánudagsmorgun. 1 gær
kvöldi var farið að óttast um
manninn, þar sem ekkert hafði
til hans spurzt. Hann hafði ekki
komið í Skíðaskáiann, svó vitað
væri, en þar upp frá og á Hellis-
heiði hefur verið versta veður
siðasta sólarhringinn eða þar um
bil.
Skurðurinn b jar«-
aði mönnunuin
MJÖG harður árekstur varð I
gær á Bústaðavegi, þar sem þann
veg skera Háaleitisvegur, Klif-
vegur og Mjóumýrarvegur. Hafa
þarna iðulega orðið mikil um-
ferðarslys.
Stór bíll hlaðinn fimm síma-
staurum kom akandi inn á Bú-
staðaveginn, en bílstjórinn mun
ekki hafa' séð að á hægri hönd
kom vörubíll eftir Bústaðavegi.
Rákust þeir saman með þeim
afleiðingum að vörubílinn rann
út af Bústaðavegi á allmikilli
ferð, sleit þar svert vírstag úr
rafmagnsstaur og endastakkst
aþnnig að stýrishús bílsins kom
beint ofan í djúpan skurð. Svo
mikið var kastið á bílnum að
„hásingin“ með drifskafti og
fjaðraklemmum slitnaði undan.
honum og þeyttist út í móa.
Mennina í bílnum sakaði ekki,
þar eð skurðurinn var svo mikill
að húsið dældaðist ekki einu sinni
og bjargaði það mönnunum ef-
laust frá meiðslum. Komust þeir
hálparlaust út úr stýrishúsinu.