Morgunblaðið - 04.12.1957, Qupperneq 1
20 síður
44. árgangur.
276. tbl. — Miðvikudagur 4. dcsember 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsins*
Bandaríska gervitunglinu
sennilega skotiö á loft í dag
WASHINGTON, 3. des. Banda-
rískir vísindamenn og tækni
fræðingar unnu að því í alian
dag að undirbúa sendingu
bandaríska gervitunglsins út í
himingeiminn. Gera þeir ráð
fyrir, að það nái um 2000 km
hæð. Ef allt gengur samkvæmt
áætlun, verður tunglinu skotið
upp á morgun, miðvikudag. I*að
fer með Vanguard-skeyti, sem
vegur um 11 smál. Hefur því
verið komið fyrir í eldflauga-
stöðinni í Cape Canaveral í
Florida.
Frá því hefur verið skýrt, að
vísidnamennirnir hafi unnið bug
á ýmsum erfiðleikum í sam-
bandi við tunglið, en þó er eftir
að leysa það vandamál, hvernig
eigi að koma í veg fyrirof mikinn
Ókyrrð í Indónesíu -
menn sló eign sinni
enzk fyrirtæki *
a
Verkn-
holl-
DJAKARTA, 3. des. — Verka-
mcnn í Indónesíu tóku eítt
stærsta fyrirtæki Hollendinga
í landinu herskildi í dag. Var
það hið konunglega indónes-
íska skipafélag. Verkamenn -
irnir drógu rauða fánann að
hún á skrifstofubyggingu fé-
lagsins í Djakarta. Síðan lýstu
þeir því yfir, að félagið væri
orðið eign indónesíska lýð-
veldisins.
Ríkisstjórn Sukarnos tilkynnti
verkamönnunum síðdegis í dag,
að þeir hefðu enga heimild til
að slá eign sinni á hollenzk fyr-
irtæki án leyfis stjórnarinnar.
Stjórnin hefur jafnframt bannað
öllum hollenzkum skipa- og flug-
félögum að flytja farþega til og
frá landinu og allt símasambana
við Holland hefur verið slitið síð-
an í gær.
Willem Drees, forsætisráðherra
Hollands, tilkynnti á þingi í dag,
að stjórn sín mundi gera allt,
sem í hennar valdi stæði til að
slegið yrði skjaldborg um hags-
muni hollenzkra manna í Indó-
nesíu. Hann sagði, að framkoma
Indónesíumanna bryti algjörlega
bág við mannréttindi. Við von-
um, hélt forsætisráðherrann á-
fram, að Indónesíustjórn geri sér
ljóst, að hún skaðar ekki aðeins
Holland með því að slíta stjórn-
málasambandi við okkur, heldur
líka — og ekki síður — Indónesíu.
titring í skeytinu. Þessu verður
að kippa í lag, því að skeytið
getur hristst sundur að öðrum
kosti.
Gervitunglið bandaríska er 15
sm. í þvermál. í því eru tvö radíó
senditæki, sem ráðgert er, að falli
aftur til jarðar. — Vísindamaður
sá, sem ber höfuðábyrgð á þessu
fyrirtæki, hefur sagt, að vel geti
svo farið, að eldflaugarhylkið
snúist í kringum jörðina eftir að
eldsneytið er til þurrðar gengið.
Hylki þetta, sem hlotið hefur
nafnið „Tuzigoot", mun þá sjást
um sólarris og sólarlag, en tungl-
ið er aftur á móti svo lítið, að
það sést ekki frá jörðinni með
berum augum.
Rússneski vísindamaðurinn
Grenin Fraw skrifar í dag grein
í flugtímaritið rússneska og ræð-
ir þar um ástæður þess, að Banda
ríkjamönnum hefur ekki enn tek-
izt að skjóta langdrægum flug-
skeytum. Hann segir, að orka
slíkra skeyta sé svo mikil, að 3000
gráða hiti á celsíus myndist í
skeytinu. Rússum hefur tekist
að koma í veg fyrir, að skeytin
splundrist í loftinu, en Banda-
ríkjamenn hafa ekki enn fundið
aðferð til þess, segir vísindamað-
urinn.
Almenna bókafélagið hefur gefið út120 þús
eintök bóka á 2 árum
„Heimurinn okkar' — glæsilegasta bók
félagsins til þessa
„Stœrsti skerfurinn til almennrar vísinda-
frœðslu", segir danskur gagnrýnandi
Stevenson til Parísar?
WASHINGTON, S. des. — í dag
bau’ð' Eisenhower Bandarikjafor-
seti Adlai Stevenson leiðtoga
demókrata að taka þátt í ráð-
herrafundi Atlantshafsbandalags
ins, sem haldinn verður í París
í þessum mánuði. — Dulles utan-
ríksráðherra fer til Parísar í byrj
un næstu viku að undirbúa þenn-
an mikilvæga fund leiðtoga
NATO-ríkjanna.
★
Stevenson lýsti því yfir í
gærkvöldi, aS hann mundi
ekki sækja NATO-ráðstefnu
í París nema álitið væri af
heztu mönnum, að dvöl hans
þar væri bráðnauðsynleg.
Menntamenn handteknir
BÚDAPEST, 3. des. — Fjölmarg-
ir menntamenn hafa verið hand-
teknir í Ungverjalandi undan-
farið. Meðal þeirra er einn af
leiðtogum Þjóðlega bændaflokks
ins, sem áður var menntamála-
ráðherra. Er þessum mönnum gef
i ðað sök að hafa tekið þátt í
uppreisninni í fyrra. Fréttamenn
segja ,að svo virðist sem ofsóknir
á hendur ungverskum mennta-
og listamönnuih færist cnn i auk.
ana. —
Á FUNDI með fréttamönnum
í gær skýrði Eyjólfur K.
Jónsson forstjóri frá starf-
semi Almenna bókafélagsins
og sagðist honum svo frá:
Almenna bókafélagið hefur
nú starfað í rúm 2 ár og á því
tímabili hefur það sent út, hvorki
meira né minna en 120 þúsund
eintök bóka eða nær eina bók
á hvern lesandi íslending.
Þátttaka í félaginu hefur orðið
miklum mun meiri en ráð var
fyrir gert í upphafi. Hefur því
verið hægt að senda félögum
fyrir óbreytt árgjald vandaðri
og dýrari bækur en þeim var
heitið. Samt hefur allur útgáfu-
kostnaður hækkað geysilega á
þessum tíma.
Fullkomnir skinulagshættir
Samhliða hefur félagið styrkzt
svo, að nú, er lokið er tveggja
ára starfstíma þess, hefur verið
ákveðið að hverfa frá þeim
skipulagsháttum, sem einkennt
hafa íslenzk bókafélög, þ. e. a. s.
að skylda félagsmenn til að taka
ákveðnar félagsbækur. í stað
þess verður félögum nú veitt
fullt valfrelsi milli allra útgáfu
bókanna.
Jafnframt verður reynt að
fylgjast með því, hvað aðrir út-
gefendur hafa á prjónunum. Ef
væntanleg er sérlega eiguleg
bók, mun Bókafélagið leitast við
að ná samningum við útgefanda
hennar um að því verði heimilað
að bjóða félagsmönnum hana með
sérstökum vildarkjörum. Ef slík
bók er tekin frá öðrum útgef-
anda verður litið á það sem sér-
staka viðurkenningu bókmennta-
ráðs.
Bók mánaðarins
Útgáfunni verður þannig hátt-
að frá næstu áramótum, að ein
bók verður send út í hverjum
mánuði. Verður hún væntanlega
kölluð „bók mánaðarins" eða
„mánaðarbókin". Þurfa félags-
menn aðeins að taka einhverjar
fjórar þessara bóka til að halda
félagsréttindum og þeim sér-
stöku kjörum, sem félagið veitir.
Þeir geta hafnað þeim bókum,
sem þeir ekki girnast. Gerir
stjórn félagsins ráð fyrir, að
með þessu íyrirkomulagi muni
þátttaka í félaginu mjög aukast,
þar sem enginn þarf nú að ótt-
ast að fá sendar bækur, sem
hann ekki óskar. Enginn skuld-
binding hvílir heldur á mönn-
um um að halda áfram þátttöku
í félaginu. Þvert á móti þurfa
þeir ekki annað en hafna ákveð-
inni tölu „mánaðarbóka“ til þess
að falla út af skrá félagsins.
Félagsbréf sent ókeypis.
Haldið verður áfram útgáfu
Félagsbréfs og verður það senr
félögum ókeypis. í ráði er að
gefa það út ársfjórðungslega, en
endanleg ákvörðun hefur ekki
verið tekin í því efni.
Myndabækur
Hinar fögru myndabækur ÍS-
LAND og ELDUR í HEKLU hafa
skapað félaginu miklar vinsæld-
ir og selzt mjög vel. Er ánægju-
legt að geta skýrt frá því, að
þær fást nú báðar að nýju. Er
hugmynd félagsins að halda á-
fram útgáfu myndabóka eftir
því sem aðstæður leyfa.
Velgengni félagsins
Er Almenna bókalélagið var
stofnað, var safnað miklu fé með
al hundraða velviljaðra manna
og stofnað félagið Stuðlar, sem
er styrktarfélag Bókafélagsins.
Festi það kaup á hluta fasteign-
arinnar Tjarnargata 16 og tryggði
hið ákjósanlegasta aðsetur fyrir
Bókafélagið og hjálpaði því að
öðru leyti yfir erfiðasta hjall-
ann. Var sá stuðningur auðvitað
mjög nauðsynlegur, en nú er að
því stefnt, að Almenna bókafé-
lagið geti staðið óstutt, og heitir
hinn mikli áhugi almennings á
félaginu góðu um, að svo megi
verða.
í forföllum Gunnars skálds
Gunnarssonar skýrði Eiríkur
Hreinn Finnbogason frá bókaút-
gáfu félagsins að þessu sinni:
Félagsbækur Bókafélagsins
eru: Einar Benediktsson: Sýnis-
bók, John Steinbeck: llunda-
dagastjórn Pippins IV. og Fé-
lagsbréf.
Val verkanna í Sýnisbók önn-
uðust í sameiningu stjórn Ut-
gáfufélagsins Braga og bók-
menntaráð Almenna bókafélags-
ins. Vakti fyrst og fremst fyrir
veljendum, að bókin sýndi sem
fjölbreytilegasta mynd af skáld-
skap Einars Benediktssonar á
Framh. á bls. 18
Fréttir í stuttu máli
LUNDÚNUM, 3. des. — í dag bárust enn fregnir um áframhald-
andi bardaga milli spænskra hersveita í Marokkó og skæruliða-
sveita. Hefur komið til allsnarpra bardaga í landinu.
Frá Sydneý berast þær fregnir, að mjög hefði dregið úr skógar-
cldunum í Bláfjöllum. Ástralska stjórnin hefur tilkynnt, að tjónið
r emi nú orðið meira en 2 millj. sterlingspunda. — í kvöld var
spáð kaldara veðri á brunasvæðinu.
Fréttir frá Washington lienna, að ákveðið hafi verið, að framlög
til Iandvarna verði aukin um 2 milljarða dollara á næstu fjárlög-
um, eð;i úr 38 milljörðum í 40 milljarða. — Þá er búizt við, að
þingið samþykki fjögurra milljarða dollara framlag til vinveittra
þjóða og í dag skýrði Hennings öldungadeildarþingmaður frá því,
að liklcga verði varið 600 milj. dollara til hernaðarvísinda.
Hammarskjöld og David Ben Gurion forsætisráðherra ísraels
ræddu í þrjár klukkustundir í dag um landamæradeilur ísraels-
manna og Jórdaníumanna. — Aður hafði Hammarskjöld rætt málið
við Hussein konung í Jórdaníu.