Morgunblaðið - 04.12.1957, Qupperneq 10
10
MORCVNBLAÐ1Ð
Miðvik'udagur 4. des. 1957
mttiritafrifc
tJtg.: H.i. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðamtstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktssorj,
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Ola, simi 33045 .
Auglysingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðaistræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargialci kr. 30.00 á mánuði innaniands.
í lausasölu kr. 1.50 emtakið.
YFIRLYSING KOMMUNISTA UM
BROTTFÖR VARNARLIÐSINS
LOKKSÞING kommúnista
|H flokksins, sem staðið hef-
-* ur yfir undanfarið hefur
nú lýst því yfir, að það líti svo
á að „ríkisstjórn sú, sem nú situr
sé skuldbundin gagnvart um-
bjóðendum sínum og samkvæmt
stjórnarsáttmálanum að fram-
fylgja tafarlaust samþykktinni
um brottför bandaríska hersins
frá íslandi.
Fyrir því skorar þingið á ríkis-
stjórnina að standa við fyrirheit
sín um brottför hersins úr land-
inu og treystir því að fulltrúar
Aiþýðubandalagsins í ríkisstjórn
og á Alþingi neyti allra krafta tii
þess að knýja fram tafarlausa
lausn í þessu höfuðmáli þjóðar-
innar og heitir á alla fylgjendur
hins íslenzka málstaðar, einstakl-
inga og félagssamtök, að standa
sem einn maður í þessari baráttu,
unz fullur sigur er unninn“.
Þá lýsti þing kommúnista því
einnig yfir að það teldi höfuð-
nauðsyn á því að hafinn verði
undirbúningur að því að ísland
segi sig úr Atlantshafsbandalag-
inu árið 1959.
Enda þótt samþykkt þessi sé
nokkuð óljós virðist þó auðsætt
að hún eigi að fela í sér til-
raun til þess að reka af flokkn-
um slyðruorðið varðandi fram-
kvæmd tillögunnar frá 28. marz
1956 um brottrekstur þess.
Kommúnistum finnst æru
sinnar vegna að þeir verði að
taka fastar á málinu en þeir
hafa hingað til gert, þess
vegna segjast þeir „treysta
því, að fulltrúar Alþýð<ubanda
lagsins í ríkisstjórn og á Al-
þingi neyti allra krafta til þess
að knýja fram tafarlausa
lausn í þessu höfuðmáli þjóð-
Hvað hafa þeir gert
til þessa?
En á hverju er það traust
byggt? Hvað hafa þeir gert á
því rúmlega eina ári, sem þeir
hafa setið í ríkisstjórn til þess
að „standa við fyrirheit sín um
brottför hersins úr landinu“?
Ekkert, hreint ekkert. Þeir
hafa hins vegar tekið ábyrgð á
samningi ríkisstjórnarinnar um
áframhaldandi setu hans hér.
Skammir „Þjóðviljans“ um Guð-
mund í. Guðmundsson vegna
þessa samnings og ýmissa stjórn-
arathafna skipta í þessu sam-
bandi engu máli. Þær hafa þann
tvíþætta tilgang að reyna annars I
vegar að breiða yfir ábyrgð
kommúnista á athöfnum utanrík- j
isráðherrans og hins vegar að i
auðvelda honum að koma óheil- |
indum vinstri stjórnarinnar í ör-
yggismálum í dollaraverð, verzla
með réttinn til þess að verja ís-
lenzkt öryggi og sjálfstæði.
Brottför úr Atlants-
haf sban dala^í nu
En hvað sem öllu öðru líður
krefjumst við þess að ísland segi
sig úr Atlantshafsbandalaginu ár-
ið 1959, segja kommúnistar.
Virðast þeir reikna með því
að hægt sé að koma þvi
í kring á tveimur árum. En
hér er um lævíslega til-
raun til blekkinga að ræða. í 13.
gr. stofnsamnings Atlantshafs-
bandalagsins segir svo:
„Þegar 20 ár eru liðin frá gild-
istöku samnings þessa getur hver
aðili sagt honum upp með eins
árs fyrirvara, talið frá afhend-
ingu tilkynningar þess efnis til
ríkisstjórnar Bandaríkja Ame-
ríku, en hún skýrir ríkisstjórn-
um annarra aðila frá afhendingu
slíkra tilkynninga“.
Stofnsamningur Atlantshafs-
bandalagsins er þannig gerður til
20 ára. Hins vegar er í honum
ákvæði um endurskoðun hans.
Eru þau á þá leið að þegar 10
ár eru liðin, og hvenær sem er
eftir það er hægt að krefjast
endurskoðunar samningsins, ef
ein eða fleiri þjóðir óska þess.
En það er ekki hægt að segja
samningnum upp fyrr en 20 ár
eru liðin frá gildistöku hans.
Auðvitað vita leiðtogar
kommúnista þetta, en þeir
hika samt ekki við það að láta
flokksþing sitt gera samþykkt,
þar sem gert er ráð fyrir að
ísland geti sagt sig úr Atlants-
hafsbandalaginu árið 1959!
FuIItrúar íslands á
Parísarfundinum
Um miðjan desember n.k. hefst
fundur ráðs Atlantshafsbanda-
lagsins og æðstu manna þjóða
þess í París. Er gert ráð fyrir að
hann verði sóttur af samtals um
60 ráðherrum, þar af öllum for-
sætis- og utanríkisráðherrum
NATO-ríkjanna. Munu þannig
sækja fundinn 4 ráðherrar að
meðaltali frá hverju þátttökuríki.
Ákveðið mun verið að Her-
mann Jónasson forsætisráðherra
og Guðmundur f. Guðmundsson
utanríkisráðherra, sæki fundinn
af hálfu íslands. En liklegt má
telja að þriðji flokkur ríkisstjórn
arinnar, kommúnistaflokkurinn,
óski þess að senda annan af ráð-
herrum sínum til fundarins.
Mundi þá annaðhvort Lúðvík
Jósefsson eða Hannibal Valdi-
marsson sækja fundinn. Senni-
legast er að Hannibal mundi
verða fyrir valinu. Koma þar til
tvær ástæður. í fyrsta lagi mun
sjávarútvegsmálaráðherra hafa
öðrum hnöppum að hneppa um
miðjan desember en sækja ráð-
stefnur erlendis. í öðru lagi hef-
ur Hannibal orðið allmiklu meiri
æfingu í að sitja -ráðstefnur er-
lendis eftir fjölmargar utanfarir
á yfirstandandi ári. En eins og
kunnugt er, er hann fyrir nokkr-
um dögum kominn heim frá
Moskvu eftir að hafa setið þar
gestaboð Krúsjeffs ásamt fleiri
ráðamönnum frá leppríkjum
Rússa.
Öðrum forráðamönnum NATO
mun vafalaust forvitni á að sjá
hinn eina ráðherra Atlantshafs-
ríkjanna, sem í þá heimsókn fór.
Ekki sízt, þegar hann hefur þann
boðskap að flytja, að heimaland
hans skuli hverfa 10 árum fyrr úr
bandalaginu en samningar standa
til.
12 mínúturnar, sem réðu úrslitum
óKÝRT var frá því í frétt hér í
blaðinu á dögunum, að Rússar
hefðu haft á prjónunum að
myrða Tító árið 1953. Á síðustu
stundu hefði komið skipan frá
Moskvu um að hætta við morð-
tilraunina.
Sögumaðurin* er Boris Morr-
os, sem um margra ára skeið
stundaði njósnir fyrir bandarísku
leynilögregluna. En það sögulega
við njósnir hans var, að á sama
T í T Ó
tima var hann mikilvægur hlekk
ur í njósnakerfi Rússa í Banda-
ríkjunum — og á þann hátt varð
hann bandarísku leynilögregl-
unni mikilvægari njósnari en
flestir eða allir þeir menn, sem
verið hafa á snærum hennar.
Morros hefur ritað grein í banda
ríska timaritið Look þar sem
hann greinir frá fyrirhuguðu
morði Títós.
Morros tók ekki sjálfur þátt í
undirbúningi morðsins, en hins
vegar fékk hann vitneskju um
þær áætl. frá fyrstu hendi. Þann
17. marz árið 1953 kveðst hann
hafa átt fund með Yefimov nokkr
1 um, sem var mjög taugaóstyrkur
I — og sagði honum að lokum, að
j honum hefði verið falið að skipu
leggja morð Títós. Hann hafði
fengið sex menn sér til aðstoðar,
en" hann einn var ábyrgur fyrir
að allt færi vel. Um svipað leyti
hurfu þrír Júgóslavar með dul-
arfullum hætti í Austurríki — og
á sínum tíma var mikið rætt um
hvarf þeirra. Þeir voru allir myrt
ir, segir Morros, og voru Yefi-
mov og félagar hans þar að verki
— í æfingarskyni.
Yefimov sagði Morros, að hann
ætti að klæðast sem prestur, er
hann framkvæmdi verknaðinn —
og hefði hann um tvo daga að
velja til framkvæmdanna: 28.
marz og annan dag — í júlí.
Ekki hafði Morros neinar fregn
ir af undirbúningi morðsins í tvo
mánuði, en 4. maí 1953 átti hann
íund með yfirmanni Yefimovs,
Christopher Petrosian. Sagði
hann Morros, að Yefimov hefði
verið komið í sjúkrahús
vegna taugaveiklunar. Einn á-
kveðinn dag, sem Petrosian til-
tók ekki, hefði Yefimov átt að
hafa yfirumsjón með morði mik-
ilvægs manns, en 12 mínútum
áður en til skarar átti að skríða
kom orðsending frá Moskvu um
að hætt skyldi við morðið —
hvað sem það kostaði.
I Tókst Yefimov að stöðva fram
' kvæmdina á þessum stutta tíma
| og koma skilaboðum til allra að-
stoðarmanna og þátttakenda. En
I þessi þolraun varð Yefimov um
megn. Hann fékk taugaáfall, þeg-
ar hann hafði stöðvað alla „morð
vélina" og var fluttur í sjúkra-
hús.
Ensk móðir og 3 born
hennar flýja Pólland
Ensk kona, sem verið hafði í
Póllandi frá styrjaldarlokum,
kom sl. fimmtudag aftur heim til
Englands. Hafði henni tekizt að
flýja rússneskt fangelsi í Póllandi
og komast heim sem laumufar-
þegi ásamt þrem börnum sínum.
Frú Ciesielka giftist pólskum her
manni í Skotlandi í lok styrjald-
arinnar og fluttust þau til Pól-
lands. Þar var hún handtekin af
lögreglunni í Chozsno og sökuð
um njósnarstarfsemi.
Henni tókst að flýja út um
klefagluggann og komast 30 km
leið heim til sín til að sækja börn
sín. Þann 8. nóv. sl. tókst henni
að finna brezkt skip, sem sigla
átti frá Gdynia. Tókst henni að
laumast um borð og fela sig
ásamt börnum sínum í lestinni.
Börnin eru 2, 4 og 12 ára. Sagð-
ist frú Ciesielka aldrei mundu
yfirgefa England aftur — „í Pól-
landi er ekkert að hafa nema
sjúkdóma, hungur og ótta, „sagði
hún. Maður hennar er ennþá í
Póllandi.
Bandarískir vísindamenn hafa
upplýst, að mýs, sem hafa fæðzt
ob lifað í gerilsneyddu umhverfi
í tili aunastofum þeirra, hafa ekki
fengið krabbamein. Aftur á móti
hafi allmargar mýs af sama
stofni, sem ekki hafi notið sömu
skilyrða, fengið krabbamein. —
Þykja þetta allmerkar niðurstöð-
ur, en ekki segjast vísindamenn
vita, af hverju þetta stafar. Þeir
eru dr. James A. Reyniers og
Miriam R. Sacksteder.
Rainier fursti og Gracy Kelly brosa við ljósmyndaranum.
Menntamenn ■ Ungverjaiandi eru
kommúnistum óþægur ijár í þúfu
Þeir sýna kenningum Marx kœruleysi
eða jafnvel fjandskap
BÚDAPEST. — Undanfarið hafa
ungversk blöð mjög kvartað um
kæruleysislega eða fjandsamlega
afstöðu menntamanna til kenn-
inga Marx. Hafa þau komizt svo
að orði, að mestur hluti ung-
verskra menntamanna sé ekki
marxistar.
Ungverskur yfirverkfræðingur
segir frá því í blaði nokkru, að
hann hafi verið neyddur til að
aflýsa fundum, af því að enginn
sýndi minnsta áhuga á þeim.
f grein í málgagni menntamála
ráðuneytisins, „Közneveles", er
skýrt frá því, að margir, sem
sækja um þátttöku í námskeiðum
um marxisma og leninisma, hafi
raunverulega ekki Iöngun til aff
kynnast faginu.
Enn fremur er það upplýst, að
skólastjórar, sem fengið hafa
skipun um að kenna marxisma
og leninisma, færist undan því
og beri við annríki. Slíkar afsak-
anir er engan veginn hægt að
taka til greina, segir blaðið. Skóla
stjórar, sem ekki liafa tíma tii
að sinna slíkum efnum, verða
fyrr eða síðar lýstir óhæfir til að
stýra skóla, segir í greininni.