Morgunblaðið - 04.12.1957, Side 18
18
MORGVNBl AÐIÐ
Miðvikudagur 4. des. 1957
Landssamband íslenzkra
Grœnlandsáhugamanna
— Almenna bóka-
félagiö
Frh. af bls. 1.
öllum skeiðum ævi hans. Eru tek-
in ljóð úr öllum kvæðasöfnum
skáldsins, og er bókinni skipt í
kafla eftir því.
Auk þess eru þarna nokkrar
stökur sem ekki hafa verið prent-
aðar áður í kvæðasöfnum E. B.,
kafli úr Pétri Gaut og fjórar
smásögur. Jóhannes S. Kjarval,
hefur myndskreytt bókina af frá-
bærri smekkvísi.
Hundadagastjórn Pippins IV.
er síðasta bók Steinbecks, all-
ólík fyrri bókum hans, góðlát-
leg, en bráðfyndin háð- og ýkju-
saga um stjórnmálaástandið í
Frakklandi og sitthvað fleira. —
Hefur bók þessi víða komið út
og átt miklum vinsældum að
fagna. Þýðinguna annaðist Snæ-
björn Jóhannsson cand. mag.
Sagan gerist einhvern tíma á
síðarihluta þessarar aldar, þeg-
ar Frakkar gerast leiðir á lýð-
ræðisskipulaginu og endurreisa
hjá sér konungdæmi. Miðaldra
maður, áhugasamur um stjörnu-
fræði, er gerður að konungi,
nauðugur þó. Þetta hefur mörg
og óvænt vandamál í för með sér.
Tvö hundruð auralausir aðals-
menn fyltjast þegar ásamt kon-
ungi og drottningu til Versala,
en út yfir tekur þó, þegar kon-
ungur vill fara að láta eitthvað
gott af sér leiða og bæta úr ýmsu,
sem miður fer í ríkinu. Háðið
virðist hitta allvel í mark, og
minnir sagan oft á Heljarslóðar-
orustu.
Félagsbréf er 128 bls. að þessu
sinni og fjölbreytt að efni. I
þessu hefti eru m. a. fimm ljóð
eftir sænska skáldið Harry Mar-
tinsson, sem var hér í haust.
Þýðandi þeirra er Jón úr Vör.
Einnig eru þarna ljóð eftir Sig-
urð A. Magnússon og Helga Krist
insson. Kristmann Guðmundsson
á þarna frásöguna Bláa fífilinn,
brot úr sögu skálds. Tvær mjög
athyglisverðar smásögur eru þar
einnig. önnur eftir Jón Dan, hin
eftir Ingimar Erl. Sigurðsson,
kornungan höfund. Steingrímur
Sigurðsson ritar bráðskemmti-
lega frásögn, er hann nefnir At-
vik undir Jökli, en um bók-
menntir, íslenzkar og erlendar
skrifa þeir Andrés Björnsson,
Baldur Jónsson, Ragnar Jóhann-
esson og Sigurður A. Magnússon.
Ivar Orgland ritar um norska
skáldið Tore Örjasæter, en Ind-
riði G. Þorsteinsson grein, er
hann nefnir: Hver eru helztu
vandamál ungs rithöfundar á Is-
landi í dag. Þá er grein um Ein-
ar Benediktsson, þar sem rifjuð
eru upp ummæli merkra manna
um skáldið á fjórum merkisaf-
mælum þess. Loks skrifar Hall-
dór Þorsteinsson um íslenzka
leiklist, og margt fleira er í heft-
inu.
Aukabækur Bókafélagsins eru
þrjár að þessu sinni. Er þar fyrst
fyrir Heimurinn okkar, saga
veraldar í máli og myndum,
„þessi niðandi lofsöngur um
Móður Jörð .... stærsti skerf-
urinn til almennrar vísinda-
fræðslu, er sézt hefur í bókar-
formi til þessa,“ eins og danski
gagnrýnandinn Niels Blædel
komst að orði í ritdómi um bók-
ina í Politiken fyrir skömmu.
Bókin er 304 bls. í geysi-
stóru broti (26x35 cm) og í
henni eru um 350 myndir, 280
þeirra litmyndir, margar
mjög stórar, sumar næstum
því metri á lengd. Er þetta
vafalaust einhver sú glæsileg-
asta bók, sem komið hefur út
á íslenzku. Hún skiptist í 13
aðalkafla, sem fjalia um upp-
haf jarðar og þróun um 4—
5000 millj. ára, upphaf lífsins
og framvindu þess, auðlegð
náttúrunnar til sjós og lands.
Þá er lýsing á jörðinni í dag,
allt frá auðnum heimskauta-
landa til frumskóga hitabelt-
is, langur kafli um stjörnu-
geiminn o. s. frv.
Bókin er upphaflega gerð fyrir
ameríska tímaritið Life, og unnu
að henni 220 vísindamenn. Gerð
myndanna er mjög fullkomin, og
má segja, að þar séu tekin í þágu
fræðslunnar öll nýjustu brögð
1 j ósmyndatækninnar.
Útgáfa þessarar bókar var því
aðeins kleif hér, að víðtæk sam-
vinna átti sér stað meðal ev-
rópskra útgáfufyrirtækja. Mynd-
irnar eru gerðar í Þýzkalandi
fyrir mörg Evrópulönd, m. a.
fjögur Norðurlanda, og textinn
prentaður í Kaupmannahöfn fyr-
ir Danmörku, Noreg og ísland.
Hjörtur Halldórsson mennta-
skólakennari íslenzkaði bókina og
naut til þess aðstoðar margra ís-
lenzkra vísindamanna.
Félagsmenn geta fengið Heim-
inn okkar fyrir 315 krónur, en í
bókabúðum kostar hún 450 kr.
Sögur Guðmundar Friðjóns-
sonar er og aukabók að þessu
sinni. Eru þar saman komnar tíu
af smásögum bóndans á Sandi.
Valið annaðist Guðmundur G.
Hagalín í samráði við Þórodd
Guðmundsson. Gunnar Gunnars-
son listmálari myndskreytti bók-
ina. Með þessari bók er aukið
við „gula flokkinn", en í honum
hafa áður komið út smásagnaúr-
völ Þóris Bergssonar og Jakobs
Thorarensens.
Konan mín borðar með prjón-
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi athugasemd frá hitaveitu-
stjóranum í Reykjavík:
í Þjóðviljanum 30. nóv. er
grein með fyrirsögninni: „Mölin
keyrð úr Reykjavík og austur í
Hveragerði og lokin steypt þar
á hitaveitustokkana í Hlíðunum."
Höfundur greinarinnar telur
ólíklegt að slík vinnubrögð séu
hagkvæm fyrir Hitaveituna og
lýkur greininni með þeim orðum,
að þess sé að vænta, að forráða-
menn Hitaveitunnar og bæjarins
láti ekki á því standa að gefa
skýringar á þessari einkennilegu
ráðstöfun.
I upphafi greinarinnar er vikið
að því, að lagning hitaveitu í
Hlíðahverfi hafi staðið yfir ári
lengur en ráð var fyrir gert. Við
þetta er það að athuga, að þótt
sótt væri um fjárfestingarleyfi
fyrir 18 millj. kr. árið 1956, var
aðeins veitt leyfi fyrir 5 rrillj.
krónum. Um áramótin var svo
sótt um 15V4 millj. kr. til að ljúka
verkinu. í júní fékkst 8 millj. kr.
bráðabirgðaleyfi, var þá strax
send ný umsókn, en það var ekki
fyrr en 24. okt. að Hitaveitunni
barst leyfi til að ljúka verkinu.
Hitaveitunni verður því ekki
kennt um þennan drátt.
Þá eru það lokin. Um þau er
það að segja, að þau voru boðin
út. Byfjað var á þeirri gerð, sem
fyrst átti að nota. Fimm fyrirtækj
um, þar af fjórum hér í Reykja-
vík, var send útboðslýsing, en að-
eins tvö tilboð bárust. Verðið
miðaðist við lokin komin á efnis-
geymslu Hitaveitunnar. Hærra til
boðið var kr. 318,80 pr. stykki
miðað við 500 m, en 22% lægra
eða kr. 248,66 pr. stykki, ef teknir
yrðu 3500 m af þeirri gerð. Hitt
tilboðið frá 'Steingerði h.f. var kr.
190,00 pr. stykki komin á efnis-
geymslu Hitaveitunnar, en kr.
170,00 tekin í verksmiðju. Pípu-
verksmiðju Reykjavíkurbæjar
var gefinn kostur á að bic ða í lok
in en gerði það ekki vegna anna
við aðra framleiðslu. Auk verð-
munarins hafði tilboð Steingerð-
is það umfram hitt að steypan er
gufuhert, en það gefur sterkan
steypu og steypan harðnar miklu
fyrr. Afgreiðsla gat því hafizt
miklu fyrr frá Hveragerði en
Reykjavík.
Af framangreindu er ljóst að
sjálfsagt var að kaupa lokin aust-
an frá Hveragerði. Því má bæta
við, að hinn litli áhugi reyk-
viskra fyrirtækja á að bjóða í
iokin, stafar e.t.v. af því, að
nokkru fyrr voru boðnir út 5000
um eftir danska blaðamanninn
Karl Eskelund er skemmtileg
frásögn og ferðasaga. Segir hún
frá unglingsárum höfundarins í
Kína og allævintýralegum ferða-
lögum hans og kínverskrar konu
hans í Evrópu og Asíu á stríðs-
árunum. Kristmann Guðmunds-
son rithöfundur íslenzkaði bók-
ina.
Þjóðbyltingin í Ungverjalandi
eftir danska rithöfundinn Erik
Rostböll kom út á vegum Bóka-
félagsins fyrir skömmu. Þetta er
greinargóð frásögn sjónarvotts af
hörmungum þeim, sem ung-
verska þjóðin varð að þola í bylt-
ingunni í fyrra. Þarna er að finna
mörg athyglisverð viðtöl við
ýmsa Ungverja, flóttamenn og
aðra. Tómas Guðmundsson þýddi
bókina og ritar merkan eftir-
mála. Ágóði af sölu bókarinnar
rennur til Ungverjalandssöfnun-
ar Rauða kross íslands.
Að lokum tóku til máls þeir
Magnús Víglundsson, ræðismað-
ur, (ræða hans birtist á öðrum
stað í blaðinu í dag) og Hjörtur
Halldórsson, menntaskólakenn-
ari, sem ræddi nokkuð um bók-
ina „.Heimurinn okkar“ og gat
þeirra vísindamanna, er veittu
honum aðstoð við þýðingu henn-
ar. Þeir eru: Finnur Guðmunds-
son, Sigurður Þórarinsson, Ingi-
mar Óskarsson, Jón Jónsson,
Björn L. Jónsson, Páll Bergþórs-
son, Geir Gígja, Hákon Bjarna-
son, Baldur Þorsteinsson.
m af steinsteyptum lokræsapíp-
um fyrir Hlíðahverfið og einnig
þar var tilboð Steingevðis h.f.
hagkvæmast af fjórum tilboðum
sem bárust, en þar af var eitt frá
Pípuverksmiðju Reykjavíkur.
Að fenginni þessari reynslu, var
samið -við Steingerði h.f. um
steypu þeirra loka er síðar voru
keypt á sama einingarverði mið-
að við steypumagn.
Mér er ókunnugt um hvaðan
möl og sandur er fenginn í lokin,
en hins vegar liggur fyrir skýrsla
Atvinnudeildar Háskólans um
gæði efnisins og kornastærð og
fullnægir það ágætlega kröfum
þeim, sem settar voru í útboos-
lýsingu.
Helgi Sigurðsson.
Norræn samkeeppni
um tillöguuppdrætfi
að glervöru
f SAMVINNU við Landsforening
en Dansk Kunsthaandværk
(Landssamband danskra listiðn-
aðarfélaga) efnir glervöruverk-
smiðjan A/S Kastrup Glasværk,
Kaupmannahöfn, til almennrar
norrænnar samkeppni um tillögu
uppdrætti að ýmsum gerðum af
glösum, svo sem vatns-, öl- og
vínglösum, könnum og ýmsum
fleiri munum úr gleri, m. a. að
hvers konar ljósakúplum úr gleri.
Veitt verða verðlaun að upp-
hæð alls d. kr. 9000,00. Fyrstu
verðlaun eru d. kr. 4000,00.
Tillöguuppdrættirnir verða að
vera komnir í hendur A/'S Kastr-
up Glasværk í síðasta lagi 20.
jan. nk.
íslenzkir teiknarar, sem hafa í
hyggju að taka þátt í samkeppni
þessari, geta fengið allar nauð-
synlegar upplýsingar um sam-
keppnisskilmála hjá form. Fél.
íslenzkra listiðnaðar, Lúðvíg
Guðmundssyni skólastjóra.
Þjófur fekinn
TVEIR bílstjórar hjá Hreyfli
handtóku í fyrrinótt mann, sem
var búinn að troða inn á sig
heilmiklu af sælgæti. — Stóðu
þeir hann að verki í verzl. Egils-
kjör, sem er skammt frá Hreyfils-
stöðinni við Hlemmtorg, en hann
; hafði brotið rúðu við inngang-
inn og tókst að seilast gegnum
1 gatið í sælgætið.
SUNNUDAGINN 1. desember
var stofnað hér í Reykjavík með
opinberum fundi er haldinn var
í samkomuhúsinu „Iðnó“, Lands-
samband íslenzkra Grænlands-
áhugamanna með um 200 stofn-
félögum, en áskriftarlistar liggja
ennþá frammi í nokkra daga fyr-
ir þá sem vilja gerast stofnfélag-
ar. Á fundinum í Iðnó ríkti mik-
ill einhugur með mönnum og
mikill áhugi á því, að eyða því
tómlæti er hér hefur ríkt fyrir
Grænlandi og fornu sambandi
þess við ísland.
Ávörp fluttu þarna Henry A.
Hálfdansson, Þorkell Sigurðsson
og Sigurjón Einarsson, er höfðu
framsögu fyrir hönd Farmanna-
og fiskimannasambands íslands,
er hafði forgöngu um málið, en
bæði Landssamband íslenzkra út-
vegsmanna og Fiskifélag Islands
sendu fulltrúa á stofnfundinn.
Aðrir, sem tóku til máls á fund-
inum voru: Ragnar Sturluson
verkamaður, Arngrimur Fr.
Bjarnason útvegsmaður, Svein-
björn Beinteinsson bóndi, Stefán
Pálsson tannlæknir, Erlingur
Pálsson yfirlögregluþjónn, Ind-
riði Indriðason rithöfundur og
Björn Sigurbjörnsson bankagjald
keri. Að lyktum talaði dr. juris.
Jón Dúason og var hann óspart
hylltur af fundarmönnum fyrir
hans mikla og óeigingjarna starf
varðandi rannsóknir á landa-
fundum íslendinga og rétti ís-
lendinga til Grænlands og ómet-
anlegar leiðbeiningar varðandi
fiskveiðar þar. Kusu fundar-
menn dr. Jón heiðursfélaga sam-
bandsins — einum rómi.
Á fundinum voru samþykkt
lög fyrir sambandið og kjörin
sambandsstjórn, en hana skipa
7 manna framkvæmdaráð auk
fulltrúa, einum frá hverjum
landsfjórðungi.
Stjórnina skipa: Henry A. Hálí
dansson formaður, Þorkell Sig-
urðsson gjaldkeri, Jón N. Sigurðs
son hæstaréttarlögmaður, Stur-
laugur Jónsson stórkaupmaður,
Erling Erlingsson forstjóri, Ragn-
ar Sturluson verkamaður. Yara-
menn í framkvæmdaráði: Sigur-
jón Einarsson forstjóri, Svein-
björn Benteinsson bóndi, Andrés
Kristjánsson fréttaritstjóri, Sig
urður Kristjánsson forstjóri, Örn
Steinsson vélstjóri, Guðmundur
Jensson skrifstofustjóri og Garð-
ar Jónsson verkstjóri.
Aðalfulltrúar fyrir landsfjórð-
ungana voru kjörnir: Fyrir Vest-
firðingafjórðung: Arngrímur Fr.
Bjarnason, fyrir Norðlendinga-
fjórðung: Þorsteinn Stefánsson
hafnarvörður, Akureyri, fyrir
Sunnlendingafjórðung: Björn Sig
urbjörnsson bankagjaldkeri, Sel-
fossi og fyrir Austfirðingafjórð
ung: Thulin Johansen forstjóri,
Reyðarfirði. — Endurskoðendur
sambandsins voru kjörnir: Gísli
Sigurbjörnsson forstjóri og Hall-
grímur Jónsson vélstjóri.
4 í sambandslögunum segir, að
tilgangur sambandsins og mark-
mið sé að kynna fyrir þjóðinni
og umheiminum fornan rétt og
erfðakröfur íslendinga til Græn-
lands og gera gangskör að því að
fá viðurkennda og endurheimta
meðferð eignar og yfirráðaréttar
íslands yfir Grænlandi, sem ís-
lendingar hafa aldrei glatað. Enn
fremur að beita sér fyrir gagn-
kvæmum skilningi og samstarfi
milli íbúa beggja landanna og
vinna að efnalegum og menning-
arlegum framförum, er snerta
samskipti þeirra.
Merki sambandsins hefur ver
ið ákveðið íslenzku landvættirn-
ir að viðbættum hvítabirni með
reiddan hramm. Var merkið til
sýnis á fundinum en það hefur
gert frú Kristín Þorkelsdóttir.
Á fundinum voru eftirfarandi
samþykktir gerðar:
1. Stofnfundur Landssam-
bands íslenzkra Grænlandsáhuga
manna vítir það tómlæti sem
margir ráðamenn þjóðarinnar
hafa sýnt varðandi lamband ís-
lands og Grænlands að fornu og
nýju og það að heimta viðunandi
reikningsskil af Dönum og heitir
á alla góða íslendinga að sam-
einast um þessi mál með því að
fylkja sér í félög íslenzkra Græn-
landsáhugamanna, sem búið er að
stofna eða verið er að stofna úti
um land.
2. Landssamband íslenzkra
Grænlandsáhugamanna skorar á
Alþingi það sem nú situr, að
stofna landnámssjóð Grænlands
til eflingar fiskveiðum og hvers
konar framkvæmdum Islendinga
á Grænlandi, rannsókna og vís-
indastarfsemi, og verði að jafn-
aði leitað álits stjórnar sam-
bands íslenzkra Grænlandsáhuga
manna um allt er þessi mál
varðar.
3. Landssaasband íslenzkra
Grænlandsáhugamanna beinir
þeim tilmælum til stjórnar
kennslumála, að fræðslu barna
og unglinga verði þannig hagað
framvegis að glæddur verði hjá
þeim áhugi á siglingum og
landafundum forfeðranna og fyr-
ir þeim verði skýrð hin sögulegu
rök fyrir réttindum íslendinga á
Grænlandi og þörf fyrir athafna-
svæði þar. Verði það gert að
venj.u í skólunum, að lóta nem-
endur skrifa ritgerðir um þetta.
4. Fundurinn skorar á ríkis-
útvarpið að flytja ávörp frá
stofnfundi Landssambands Græn
landsáhugamanna, sem tekin
voru upp á segulband á staðnum.
k
Frá Bolungavík barst fundin-
um svohljóðandi símskeyti:
„Félag Grænlandsáhugamanna
í Bolungavík, stofnað hér 28.
nóvember, stofnendur 15, æskir
inngöngu í væntanlegt landssam-
band; lög send síðar. Stjórnin
kosin þannig: Formaður Friðrik
Sigurbjörnsson, lögreglustjóri,
ritari Finnur Th. Jónsson, gjald-
keri Bernódus Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri. Varastjórn í sömu
röð: Gísli Hjaltason, hafnarvörð-
ur, Benedikt Bjarnason, fram-
kvstj., Guðmundur Kristjánsson,
skrifstofustjóri. Endurskoðendur:
Halldór Halldórsson skrifstofu-
maður, Guðfinnur Einarsson
framkvæmdastjóri. Félagið send-
ir stofnfundi Landssambandsins
beztu kveðjur og árnaðaróskir.
Friðrik Sigurbjörnsson formað-
ur“.
Fleiri sambandsfélög eru á
uppsiglingu sem vitað er um. A
ísafirði með 20 stofnfélögum, 4
Akranesi með 14 og á Akureyri
og Selfossi eru margir búnir að
skrifa sig sem stofnfélaga vænt-
anlegra sambandsfélaga þar, og
unnið er að því að koma upp
sambandsfélögum um allt land.
Skólafólk fær afsláll
á fargjaldi
FLUGFÉLAG fslands hefir nú,
eins og undanfarin jól, ákveðið
að veita skólafólki, sem ætlar að
ferðast í jólafríinu, afslátt á far-
gjöldum og stuðla þannig að því
að sem flestir geti notið hátíðar-
innar á heimilum sínum.
Afsláttur sá sem félagið veitir
skólafólki, nemur 25% frá tví-
miðagjaldi og kemur því aðeins
til greina, að viðkomandi sýni
vottorð frá skólastjóra, sem stað-
festi að hann stundi nám við skól
ann og ennfremur að keyptur sé
tvímiði og hann notaður báðar
leiðir. Afsláttur er veittur á öll-
um flugleiðum innanlands. Tíma-
bil það sem afsiátturinn gildir,
er frá 15. des. í ár, til 15. jan.
1958.
Skólafólki og öðrum sem ætla
að ferðast með flugvélum félags-
ins um jólin, er bent á að tryggja
sér far í tíma, en þar sem sæta-
pantanir í ferðunum næst hátíð-
inni eru teknar að berast, má
búast við að þser verði fljótt full-
skipaðar.
Athugasemd iió hitaveitustjdra