Morgunblaðið - 15.12.1957, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.12.1957, Blaðsíða 22
2? MORCT’lVBTAÐlÐ Sunnudagur 15. des. 1957 Hræðslan v/ð nýju fötin SKÁLDIÐ og læknirinn á Blöndu ósi, Páll V. G. Kolka, hefur fund- ið hjá sér hvöt til að taka upp hanzkann fyrir nafnleysingja nokkurn, sem birti pistil hér í Morgunblaðinu á dögunum og hugðist sanna mönnum það í eitt skipti fyrir öll, að rímlaus ljóð væru ekki ljóð og taka mætti hvaða texta sem væri og gera úr honum rímlaust ljóð með því að raða honum í mislangar línur. Kolka þykja athugasemdir mín ar við yfirlýsingar nafnleysingj- ans fjarri öllu lagi og líkir þeim við framferði hrappanna í ævintýri Andersens um nýju föt- in keisarans. Líkingin er bráð- snjöll, en maður fær þann lúmska grun, að læknirinn hafi dottið niður á hana, áður en hann hafði fyrir því að lesa athugasemdir mínar í ró og næði. Þetta marka ég m.a. af því, að hann sér ekki ástæðu til að hafa tilvitnanir inn- an gæsalappa orðrétt eftir. En það er kannski bara hégómamál. Þó neyðist ég til að benda á það enn einu sinni, að höfundur pistilsins fræga kvað það vera ósamrýmanlegt íslenzkri mál- venju „að kalla annað kvæði eða ijóð en það mál, sem er bundið, stuðlað og rímað og með réttum Ijóðstöfum" (í staðinn fyrir og setur Kolka eða). Hér er ekki um neina smámunasemi af minni hálfu að ræða, heldur skiptir þetta litla „og“ meginmáli, því ljóð verða að hafa öll nefnd ein- kenni að skoðun höfundar, ef þau eiga að nefnast því nafni. Það sér hver sem vill, að þetta er fjarstæða. Spurningum mínum í þessu sambandi lætur Kolka með öllu ósvarað. Ég spurði t.d. um Eddu- kvæðin, Tristransljóð og tvö af fegurstu Ijóðum síðustu alda, „Sorg“ Jóhanns Sigurjónssonar og „Söknuð" Jóhanns Jónsson- ar. Mér er sérstaklega í mun að fá að vita, hvers konar bók- menntalegt fyrirbrigði „Sorg“ er. Kolka sér sóma sinn í því að minnast ekki á rím í sambandi við skilgreiningu sína á ljóðum, enda mun honum vel kunnugt um, að endarím er franskur inn- flutningur síðari alda, en inn- rím og hálfrím var ekki til í norrænum kveðskap fyrir daga Egils Skallagrímssonar. Hvers vegna nýjungar Egils eiga meiri rétt á sér en nýjungar nútíðar- skálda, er mér raunar hulin ráð- gáta. Aftur á móti ræðir Kolka mikið um hrynjandi og er þá kominn út í allt aðra sálma en skjólstæð- ingur hans, nafnleysinginn. Um hrynjandi er nefnilega hægt að tala í órímuðum og óstuðluðum ljóðum engu síður en þeim ljóð- um, sem rímuð eru og stuðluð. Það er yfirleitt ófrávíkjanleg regla, að öll góð ljóð hafa hrynj- andi, en óhefðbundin ljóð hafa bara sína eigin hrynjandi, sem ekki fer eftir „fastri reglu“, eins og Kolka vill hafa það. Ég skal ekkert um það segja, hvernig eða af hvaða hvötum Páll Kolka yrkir. En ég hefði haldið, að Ijóð væri tjáning á- kveðinna tilfinninga og hugsana á því augnabliki, sem það er skapað. Nú er það nokkurn veg- inn augljóst mál, að engar tvær tilfinningar og engar tvær stund- ir í lífi manns eru nákvæmlega eins. Leiðir þá ekki af sjálfu sér, að hver fersk og upprunaleg tján ir.g hljóti að fá sitt eigið form, nýtt form, sem ekki var til áð- ur, vegna þess að tilfinningin, sem skapar þetta form, var ekki til áður? Hefðbundin form hafa tilhneigingu til að hefta upp- runalega tjáningu. Þau verða ekki ósvipuð rúmi Prókrústesar í hinni grísku sögn, þ. e. a. s. skáldið verður að pressa tilfinn- ingar sínar í hið ákveðna form með góðu eða illu — annað hvort að teygja úr þeim eða skera af þeim! Líkingin er langsótt, en hún gefur nokkurn veginn til kynna, hvers vegna ungir skap- endur vilja síður nota gömul og þvæld form. Hins vegar má yngja upp eldri form, eins og mörg skáld, bæði yngri og eldri, hafa gert. En öll góðskáld hafa fyrst og fremst verið nýskapendur. Svo var um Egil, Jónas, Einar Benediktsson, Davíð, Tómas og Stein Steinar. Þessir menn notuðu að vísu oft- ast stuðla, og er ekkert nema gott um það 'að segja, því stuðla- setning var þeim ekki neinn fjöt- ur um fót, að því er séð verði. Hins vegar sleppti Jóhann Sigur- jónsson stuðlum í sumum ljóð- um sínum, og finnst mér þau einskis hafa misst af þeim sök- um. En það var þetta með hrynj- andina. Hvað er hún? Að minum skilningi er hún ákveðið hljóm- fall, sem er í hverju ljóði og gef- ur því blæbrigði, stíganda og músík. Það er einmitt hrynjand- in sem gefur beztu órímuðu ljóð unum formfegurð; það er hrynj- andin sem speglar tilfinningar skáldsins í andrá sköpunarinnar. Þegar efni og hrynjandi falla saman, hefur ljóðið fengið form, hvort sém það er skreytt rimi og stuðlum eða ekki. Það er miklum mun erfiðara að yrkja órímað og óstuðlað en í hefðbundnum formum, því þá fyrst reynir á myndvísi, formtilfinningu og orðleikni skáldsins. Mér var það löngu kunnugt, að mörg erlend skáld stuðla ljóð Flogið um álfur allar Skemmtileg ferðabók með 40 myndum og 2 litmyndum. Kostar kr. 98.00 í fallegu bandi. Bókaforlag Odds Björnssonar Hatnartjörhur Ný deild oð Vegamótum Reykjavíkurvegi 6, Fallegt úrval Kvenblússur og undirfatnaður Slæður — Ilmvötn Snyrtivörur — Snyrtiáhöld Kjólablóm, Eyrnalokkar, Nælur nýjasta tízka. Barnafatnaður Sokkar á alla f jölskylduna. Lítið í gluggana um helgina. sín. W. H. Auden, einn nýtízk-1 astur nútímaljóðaskálda, stuðlar | undir drep, og sama má segja um Gerard Manley Hopkins, einn helzta brautryðjanda í enskri nú- tímaljóðlist. Aftur á móti er T. S. Eliot óheppilegt dæmi um rímlaust skáld, hvað þá að hann sé „frægast núlifandi skálda rím lausra", eins og Kolka vill vera láta. Eliot er einmitt mjög gef- inn fyrir rím, allt frá fyrstu Ijóð- um sínum til síðustu ljóðabókar- innar, „Four Quartets“. Hann hef ur jafnvel gefið út heila Ijóða- bók með eintómum rímuðum ljóðum „The Waste Land“, sem Kolka nefnir í grein sinni, er mjög kunnáttusamlega rímað, þar sem skáldið kærir sig um að nota rím. Má bæði benda á upp- haf kvæðisins, niðurlag þriðja kafla, fjórða kafla og upphaf fimmta kafla., Það er leitt, að læknirinn skuli ekki enn vera farinn að skilja þetta merkilega kvæði eftir margra ára yfirsetu, en ég leyfi mér að efast um, að Eliot eigi alla sök á því. Eins og tekið hefur verið fram þegar, er ég engu minni aðdá- andi rímaðra ljóða en órímaðra, en ég get ekki fellt mig við að nota rím og stuðla sem mæli- stiku á gæði skáldskapar, og það var þungamiðjan í athugasemd- um mínum um daginn. Hvort íslenzkt mál og íslenzk menning stendur og fellur með stuðlum skal ósagt látið. Ég held satt að segja, að við mundum enn eiga nokkuð af máli okkar og menningu, þótt ekki hefði verið annað skrifað á íslenzku en íslendingasögur. Ég fæ a. m. k. alls ekki séð, að dróttkvæðin og rímurnar hafi verið betri vörð- ur um tunguna en sögurnar. Þau orð Sigurðar Nordals, sem Kolka tilfærir, hagga varla þeim tveim tilvitnunum í Nordal, sem ég tók til handargagns. Ég tek af heilum hug undir þau orð læknisins, að menning okk- ar verði að vera í lífssambandi við fortíðina. Það útilokar hins vegar ekki, að sótt sé fram. Menn ingin stendur ekki í stað fremur en annað það, sem lífi er gætt. Menningin er ekki aðeins forn afrek, heldur einnig og engu síð- ur líf líðandi stundar, viðleitni lifandi manna og glíma þeirra við vandamál dagsins. Þegar menn fara inn á nýjar brautir, eru þeir ekki endilega að „afskrifa" for- tíðina, heldur vakir fyrir þeim að tjá samtímann á ferskan og líf- rænan hátt. Þeim er ljóst, að af- reksverk forfeðranna voru speg- ill þeirra tíma, en verða ekki endurtekin í sömu mynd á okkar tímum. Það má vel vera, að íslenzk ljóðlist sé nú á „nið-skeiði“ eins og Kolka orðar það svo skáld lega, en hún er áreiðanlega á leið til „ný-skeiðsins“. Hún er að leita nýrra farvega, einmitt af því „gamlir hættir ganga sér til húðar og stirðna oft að lokum í andlausri formhyggju", eins og læknirinn kemst réttilega að orði. Hvort stuðlar og rím eru einhvers staðar í hinum nýju farvegum, verður framtíðin að skera úr um. Flest ungu skáldanna yrkja jöfnum höndum stuðlað og ó- stuðlað. En það er ekkert annað en „andlaus formhyggja“ að halda því fram, að þetta ráði úr- slitum um gæði verka þeirra. Ég hirði ekki um að ræða út- úrdúra læknisins um húsagerð- arlist í Hollandi og andlegan dósamat frá New York eða Moskvu. Kjánalegt tildur pen- ingamanna á íslandi í húsagerð er engan veginn hliðstæða þeirr- ar viðleitni ungu skáldanna að yrkja á frumlegan og persónuleg- an hátt. Það er að fara kring- um kjarna málsins að gera slík- an samanburð. Kolka leiðir Laxness fram sem vitni gegn nýjungamönnum í íslenzkri ljóðagerð. Hann á að hafa sagt, „að rímlaus ljóð séu sjaldan annað en lélegt prósa“. Ef þetta er rétt, sem ég dreg ekki í efa, þá er það enn eitt dæmi um hótfyndna ósam- kvæmni nóbelsverðlaunaskálds- ins. Laxness orti einu sinni ljóð, sem hann nefndi „Únglingurinn í skóginum" og var bæði stuðla- laust og órímað. Þetta litla Ijóð birti hann ekki í smásagna- eða ritgerðasafni. Nei, það birtist í „Kvæðakveri" skáldsins! Að lokum þetta í sambandi við nýju fötin keisarans, sem eiga að vera skálkaskjól mitt gagn- vart fordæmendum rímlausra ljóða, að sögn Kolka: Til eru menn,‘ sem þannig ei-u gerðir, að þeir vilja ekki sjá ný föt og geta helzt ekki gengið í flíkum, fyrr en þær hafa verið notaðar og helzt snjáðar. Sumir kalla þetta vanafestu, aðr- ir sérvizku. En stundum getur þetta verið sprottið af eintómri hlédrægni og óbeit á því að láta á sér bera. Þessir menn g'anga með þá kynlegu grillu í hausnum, að þeir geti horfið í fjöldann, ef þeir gæta þess að láta aldrei sjá sig í ríeinu nýju. Ungum mönnum mun hins veg- ar yfirleitt vera meinilla við að ganga í flíkum feðra sinna. Bæði er nú það, að þær eru oft illa slitnar, og svo fara þær þeim alla jafna svo bölvanlega. Þeir fá sér ný föt og láta sig þá hafa það, þótt þau séu sniðin eftir tízku, sem þekktist ekki á öldmni áður. Menn gengu flestir í jakka og buxum á öldinni sem leið, og það gera ungu mennirnir ennþá. Þeir vilja bara hafa jakkann og buxurnar með ofurlitið öðru sniði en tíðkaðist á uppvaxtarár- um afa þeirra. Munurinn er J rauninni ekki annar! I Sigurður A. Magnússon. Amerískar Jólatrésseríur NOMA, bezta tegund, 16 ljósa með litum mislitum perum og einnig með tkopa- perum (bubble lights). — Ennfremur varaperur —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.