Morgunblaðið - 12.01.1958, Qupperneq 18
18
MORCUN BLAÐ1Ð
Sunnudagur 12. jan. 1958
Afvinnurekendur
Tveir ábyggilegir og laghentir menn óska eftir
starfi. — Vanir bílaviðgerðum og akstri utan- og
innanbæjar. Meirapróf. Einnig kemur til greina alls
konar innivinna.
Upplýsingar eftir hádegi í dag í síma: 3.24.54.
Föndurskóii fíofnarfjorðar
Föndurskóli Hafnarfjarðar
er aftur tekinn til starfa.
Getum enn bætt við nokkrum börnum.
Uppl. á kvöldin í síma 22873.
I. O. G. T.
St. Svava nr. 23
Fundur í dag kl. 2. Inntaka. —■
Kosning embættismanr.a. — Kvik-
myndasýning o. m. fl.
— Gæzlumenn.
^__
VITBÐ ÞER að elckert er betra til að þvo úr ull, silki og nælon en
Þér getið verið öruggar
með beztu ullarpeysuna yðar, ef þér þvoið hana úr
ÞVOL, því ÞVOL inniheldur nýtt efni, sem jafnframt
því að þvo vel, er algjörlega skaðlaust ullartaui. uælon
og silki.
"Tii’vel me8
hendur...
ÞVOL
t>VOL hefir einnig
þann eiginleika að
skýra liti í ullartaui,
þvo jafnt í heitu sem
köldu vatni, og er
mjög létt í skolun. —
ÞVOL er því ákjós-
anlegt til þvotta á
barnataui.
Þ V O L er ótrúlega
drjúgt.
Burnnstúkan Æskan
Fundur í dag kl. 2. Kvikmynd.
Mætið öll. — Gæzlumenn.
VÍKINGUR
Fundur annað kvöld, mánudag,
kl. 8,30, í G.T.-húsinu. - - Skýrsl-
ur, kosningar og innsetning emb-
ættismanna. Hagnefndaratriði.
— Æ.t.
HafnarfjörSur
St. Morgunstjurnan nr. 11
Fundur annaðkvöld. — Teknir
inn nýir félagar. — Kosning emb
ættismanna. Minnst áramótanna.
Fjölmennið. — Æ.t.
Félcagslíf
Landliðsæfing
í kvöld kl. 7,15 i K.R.-húsinu.
Hafið vegabróf með. — H.S.I.
Félag austfirzkra kvenna
, Félagskonur, munið skemmti-
fundinn þriðjudaginn 14. janúar
kl. 8,30 í Garðastræti 8. — Til
skemmtunar: Skuggamyndir. Fjöl
mennið og mætið stundvíslega.
—— Stjórnin.
KnattspyrnufélugiS VALUR
Skemmtifundur fyrir 4. og 5.
flokk verður í dag kl. 2 ’ félags-
heimiiinu. Skemmtiatriði: Upp-
lestur — talnahappdrætti (verð-
laun), — kvikmyndasýning. Fjöl-
mennið. — Unglinguleiðtogi.
Knattspyrnufélugið Þróttur
Handknattleiksæfing hjá meist-
ara-, 1. og 2. fl. karla í dag kl.
4,20 í K.R.-heimilinu. Mætið stund
víslega. — Sljórnin.
8
LESBÓK BARNÁNNA
LESBÓK BARNANNA
S
Valtýr Steíánsson:
Börnin og skógrœktin
ENDUR fyrir löngu var
ísland skógi vaxið „milli
fjalls og fjöru“. Hér uxu
þó aðallega birkiskógar,
og þeir munu varla hafa
verið mjög hávaxnir. En
þeir veittu öðrum gróðri
og jarðveginum skjól og
hlífð, Nú eru hinir gömlu
skógar nærri horfnir,
menn hjuggu þá í eldinn
en búféð eyddi ungu
trjánum, þegar því var
beitt. Undireins og skóg-
arnir hurfu skemmdist
líka margur annar gróð-
ur, blómjurtum fækkaði
og jarðvegurinn rann
burt með vatni eða blés
burt með vindum.
ísland er um 103 þús-
und ferkílómetrar að
stærð. Á landnámsöld
munu um 40 þúsund fer-
kílómetrar hafa verið
gróið land og að líkind-
um mest allt skóglendi.
Nú eru hér um 17—18
þúsund ferkílómetrar eft-
ir af grónu landi og
birki þekur ekki nema
um 1 þúsund ferkiló-
metra. Af þessum tölum
má marka, hve eyðing
landsins er mikil.
Islenzku landnáms-
mennirnir komu flestir
frá Noregi. Þar í landi
eru stórvaxnir greni- og
furuskógar um allt land.
Skógarnir vaxa langt
norður fyrir heimsskauts
baug, þar sem veðrátta
er kaldari en á fslandi.
Þar eru sums staðar til
25 metra há furutré. Eft-
ir nokkra tugi ára verða
slík tré til hér á landi.
Alla krakka langar til
að verða stóra. Þá fá þau
íslenzk „jólatré“
að vera með fullorðna
fólkinu og taka þátt í
störfum þess. En störf
fullorðna fólksins eru
misjafnlega erfið. Sum
þe:rra geta bórn gert
jaínvel og fullorðnir. Eitt
af því er að gróðursetja
tré. Það er ekki erfitt, en
þó verður að gera það
með mikilli vandvirkni.
Austur í Hallormsstaða
skógi standa 6 tré í ein-
um hnapp. Þau eru nú
um 50 ára. Fimm þeirra
eru 10—11 metrar á hæð,
eða hærri en nokkur
símastaur. En eitt af
trjánum er samt ekki
nema tæpur hálfur met-
er, og er þó jafngamalt
stóru trjánum. Þetta er
af því að þetta tré hefur
ekki verið gróðursett af
nægilegri vandvirkni og
ekki nógu vel um það
hirt á fyrstu árunum eft-
ir gróðursetninguna.
Þegar trjáplöntur eru
gróðursettar, eru þær oft-
ast fjög'urra ára. Fyrstu
árin eru þær aldar upp í
gróðrarstöðvum, og þær
eru ekki nema 10—12
sentimetrar á hæð, þegar
þær eru teknar þaðan og
fluttar á þá staði, sem
þær eiga að standa á alla
ævi. En tré geta orðið
feikna gömul, sem kunn-
ugt er. Flest verða nokk-
ur hundruð ára, ef þau
fá að lifa í friði, og sum-
ar tegundir verða meira
en þúsund ára.
Þó að tré vaxi hægt
fyrstu ár ævinnar, þá
eru þau ekki lengi að
vaxa upp, ef að þau kom-
ast í góða og frjóa mold,
og eru gróðursett með
vandvirkni. Dæmi eru til
að grenitré verði mann-
hæð á 10 árum, og eftir
það eykst vöxturinn enn
meira, svo að þau geta
orðið 10 metrar eftir önn-
ur 10 ár. Hér á landi
vaxa nú víða falleg rauð-
grenitré, sem geta orðið
að fallegum jólatrjám á
næstu árum.
Undanfarin ár hafa fs-
lendingar fengið reynslu
fyrir því, að hér á landi
geta vaxið margar teg-
undir nytjatrjáa. Með því
að gróðursetja slík tré
innan um birkikjarrið
okkar getum við eignast
hávaxna og nytjamikla
barrskóga á fáum áratug-
um.
Ef nógu margir vinna
að gróðursetningu trjáa
á hverju ári, mundu víð-
lendir og stórir skógar
geta vaxið upp á fjölda
mörgum stöðum á íslandi.
Það mundi prýða land-
ið ótrúlega mikið, ef sí-
grænir skógar yxu þar í
framtíðinni, sem nú eru
grjótholt og lágvaxið
kjarr. Og svo mundu
menn hafa miklar tekjur
af skógunum að auki.
Öllum íslendingum
þykir vænt um land sitt.
Þess vegna verða allir
að gera eitthvað fyrir
föðurlandið. Og fátt er
hægt að gera betra fyrir
framtíð landsins okkar
en að öll þörn og allir
fuilorðnir gróðursetji tré,
hvenær sem tækifæri
gefst.
Skógræktarfélög hafa
nú verið stofnuð í öllum
sýslum landsins nema
tveim. Þau safna fólki
saman til þess að gróður-
setja skóg. Þar geta allir
orðið félagar, hversu
ungir sem þeir eru.
Ef ykkur, börnin góð,
langar til að gróðursetja
tré, ættuð þið að biðja
pabba ykkar eða mömmu
að láta skrá ykkur sem
meðlim í skógræktarfé-
lag. Það væri góð og ó-
dýr nýjársgjöf, og þið
munið áreiðanlega hafa
gaman og gagn af síðar
á ævinni.
ISl
Pár Lagerkvist:
Bréf mér barst
Um sumarannir
barst mér bréf,
um berjamó og engja-sef,
af mildi ritað minnisblað,
hún mamma skráði það.
Af orði hverju
angan steig
frá akurlendi
og smárateig.
Ég las þar fegurst lof
um Hann,
sem lífi hverju ann.
Og mína gömlu
sólskinssveit
í sælu Drottins þar ég leit.
Ég heyrði klukkur
hringja frið,
og heiminn titra við.
Og óm ég nam
frá aftansöng,
og ilmur fyllti
bjarkagöng.
Frá helgidagsins ríku ró
um ritmál blíðu sló.
Og bréfið hafði borist
fljótt,
um bjartan dag
og ljósa nótt,
í mína döpru útlegð inn,
með eilífgeislann sinn.
Sigurður Kristinn
Draumland,
íslenzkaði.
Gleðilegt nýjár og þakka
ykkur öllurn kærlega fyr-
ir liðna árið. Lesbók
barnanan vill sérstaklega
þakka öll bréfin, sem þið
hafið skrifað henni og
margt skcmmtilegt efni,
sem þið hafið sent. Gam-
an væri að geta orðið við
öllum óskum ykkar og
tillögum um stærð og
efni blaðsins. Við geym-
um þær allar vandlega,
og hver veit nema ein-
hvern tíma verði hægt að
hafa Lesbókina stærri og
fjölbreyttari en nú er.
Með þessu blaði byrj-
ar annar árgangur Les-
bókarinnar. Vonandi eig-
ið þið öll blöðin af fyrsta
árgangi, og geymið þau
vel, því að sum þeirra
eru nú orðin ófáanleg.
Það er gaman fyrir ykk-
tr að eiga Lesbók barn-
tnna alla frá byrjun.
Svo vonum við, að þið
verðið dupr,í'g að skrifa
tkkur á nyja árinu eins
og þið hafið verið að
indanförmt.
Með kærri kveðju
LESBÓK BARNANNA.
SKRÍTLUSAMKEPPNIN
40. Kennari: Er buxur
eintala eða fleirtala?
Gunnar (eftir langa um