Morgunblaðið - 29.01.1958, Page 15
Miðvikudagur 29. jan. 195S
MORGVN BLAÐIÐ
15
Tonleikar kamniermíísikklúbbsiiis
SÍBUSTU tónleikar kammer-
músíkklúbbsins, á fyrsta starfs-
ári hans, voru haldnir í Mela-
skólanum föstudaginn 24. þ. m.
Verkefni á tónleikunum voru eft-
ir Schubert og Mozart. Strok-
kvartett Björns Ólafssonar lék
verkefnin ásamt þeim Agli Jóns-
syni, klarinettleikara og Jóhann-
esi Eggertssyni cellóleikara.
Fyrst var hinn mikli strok-
kvintett Schuberts, op. 163, leik-
inn. Þetta unaðslega verk var
flutt hér í fyrsta sinn á þessum
tónleikum. Það er erfitt að nefna
hliðstætt verk þessum kvintett
Schuberts. Fluttu þeir félagar
verkið einkar vel og skilmerki-
lega, og var mikil nautn að hlusta
á það í flutningi þeirra.
Clarinett-kvintett Mozarts kom
á eftir. Heiðríkj a og blámi him-
insins ríkir í þessu verki, eins og
flestum verkum þessa meistara.
Egill Jónsson leysi sitt vanda-
sama hlutverk af hendi með mikl
um sóma. En allir léku þeir fé-
lagar prýðilega' vel í alla staði,
svo að ég efast um að þeim hafi
öðru sinni tekist betur.
Það var öllum meðlimum
kammermúsikklúbbsins óblandin
ánægja að tilkynnt var af Ragn
ari Jónssyni 1 byrjun tónleik-
anna, að starfseminni yrði haldið
áfram með svipuðu sniði og áð-
ur, og jafnvel nokkrum nýjum]
mönnum gefið tækifæri til að ger
ast meðlimir. Bragi Brynjólfs-
son bóksali afgreiðir meðlima-
kort fyrir klúbbinn næstu daga.
Tónleikar kammermúsíkklúbbs
ins eru hverju sinni viðburður í
tónlistarlífi bæjarins og ánægju-
legt' að sitja svo mannbætandi
félagsskap. Þeir Árni Kristjáns-
son píanóleikari og Björn Ól-
afsson fiðluleikari sjá um efni
það, sem flutt verður og er valið
í svo góðum höndum sem verið
getur. —P. í.
LONDON 25. jan. — Ástandið á
Kýpur er uggvænlegt. Brezki
landsstjórinn ræddi við leiðtoga
verkalýðshreyfingarinnar í dag.
Verkamenn eru í tveggja sólar
hringa verkfalli og láta ófriðlega.
'f\ ' ' > •
Qhróttai
Enska knattspyrnan
VEÐRIÐ á Bretlandseyjum sl.
laugardag var mjög óhagstætt
fyrir knattspyrnu. í Skotlandi
var frost og snjókoma, enda varð
að fresta 13 leikum af 17, sem
leika átti í deildunum. Englend-
ingarnar sluppu miklu betur, því
einungis tveim leikum var frest-
að í bikarkeppninni.
Newcastle United, en félagið
hefur unnið bikarkeppnina þrisv
ar sinnum eftir stríð, tapaði illi-
lega fyrir Scunthorpe, sem leikur
í þriðju deild. Erfitt var að fóta
sig á vellinum vegna frosts.
Jimmy Scoular, fyrirliði New-
castle, sagði í viðtali við frétta-
menn: „Við lékum eins vel og
andstæðingarnir leyfðu okkur.
Þeir voru vel af sigrinum komn-
ir, og ég óska þeim góðs gengis
í keppninni".
Vellirnir «í London voru í mjög
slæmu ástandi á laugardag
inn. Hafði myndazt svað, vegna
þess að vatnið seig ekki niður
þar sem jörðin var enn frosin.
Stutta spilið varð Tottenham
að falli í viðureigninni gegn
Sheffield United. Minnti spil
þeirra á leik Fram í sumar sem
leið. Miðvallarspilið varð alltof
þröngt, neikvæðar sendingar
fram og aftur, ístaðinn fyrir fá-
ar jákvæðar sendingar til fram-
herjanna. Það er augljóst, að
framherjarnir eiga auðveldara
með að komast í gegnum öftustu
vörnina, áður en framvörðunum
tekst að koma vörninni til hjálp
ar.
Sheffield Utd. notuðu aftur á
móti álika leikaðferð og Albert
Guðmundsson lék með Hafnfirð- <
ingum í sumar. Langar, nákvæm
ar sendingar út á kantana og inn
fyrir bakverðina, og síðan skotið
viðstöðulaust, þegar knötturinn
kemur fyrir markið. Þetta gefst
vel, þegar vellirnir eru blautir
og sleipir. Miðherjinn Pace, en
hann er nýkeyptur frá Aston
Villa, skoraði fyrsta markið og
„skapaði" annað markið.
Chelsea var hætt komið gegn
Darlington. Darlington er fjórða
neðsta liðið í þriðju deild. _ í
hálfleik stóðu 2 mörk gegn engu
fyrir gestina. Áhangendum Chel-
sea var skotið skelk í bringu,
þegar því þriðja var bætt við í
byrjun seinni hálfleiks. Breytti
Chelsea nú um leikaðferð og
tókst að jafna. Leikurinn milli
Lundúnaliðanna Fulham og Carl-
ton var geysispennandi. Mark-
verðirnir báðir vörðu af mikilli
dirfsku og voru þeir beztu menn
liðanna. Fulham skoraði í fyrri
hálfleik, en Charlton tókst að
jafna á síðustu minútu.
WBA vakti vonbrigði fyrir
leikinn gegn Nottingham. 58 þús.
áhorfendur sáu þennan spenn-
andi leik milli tveggja liða úr 1.
deild.
Það kom á óvart, að Stoke
skyldi vinna leikinn gegn Midd-
lesbrough. Clough, hinn ungi og
efnilegi miðherji Middlesbrough,
skoraði fyrsta markið. Stoke svar
aði tveim mörkum í fyrri hálf-
leik, en liðið bætti þriðja mark-
inu við í seinni hálfleik. Vinstri
útherjnn Wilshaw skoraði öll 3
mörkin. Hann var keyptur ný-
lega frá Úlfunum fyrir 10 þús.
pund. Wilshaw hefir leikið tólf
sinnum fyrir England.
Manshester United hefði átt að
skora strax á fyrstu mínútunum
gegn Ipswich. Taylor komst í
gegnum vörnina og dró mark-
vörðinn út úr marki sínu. Síðan
gaf hann knöttinn til vinstri inn-
herjans Charlton, en hann skaut
yfir fyri ropnu marki. Charlton
bætti þó úr þessu með því að
skora bæði mörk United.
Manchester United getur ekki
notað Gregg, markvörðinn fræga,
í bikarkeppninni þetta árið.
Ástæðan er sú, að hann lék með
fyrrverandi félagi sínu Doncaster
gegn Chelsea í þriðju umferð. —
Lögin mæla svo fyrir, að leik
maður megi aðeins leika með
einu félagi í bikarkeppninni,
hvert tímabil.
Úlfarnir hófu þegar sókn í
leiknum gegn Portsmouth. Um
leið og komið var að vítateig
skutu Úlfarnir viðstöðulaust. Á
16. mín. varði Uprichard mark-
vöi'ður Portsmouth vítaspyrnu,
sem framvörðurinn Clamp tók.
í hálfleik stóðu leikar 2:1 fyr-
ir Úlfana. Vegna hæfileika Up-
richard markvarðar tókst Úlfun
um aðeins að skora 3 mörk í
seinni hálfleik.
Bristol Rovers 2 — Burnley 2
Cardiff 4 — Leyton Orient 1
Chelsea 3 — Ðarlington 3
Everton — Blackburn, frestað.
Fulham 1 — Chai'lton 1
Liverpool 3 — Northampton 1
Manch. United 2 — Ipswich 0
Newcastle 1 — Scunthorpe 3
Notts County — Bolton, frestað
Sheff. Wed. — Hull City, frestað
Stoke City 3 — Middlesbrough
Tottenham 0 — Sheffield Utd.
West. Brom. 3 — Nottingh. For. 3
West Ham 3 — Stockport 2
Wolves 5 — Portsmouth 1
York City — Bolton frestað.
Búið er að draga fyrir fimmtu
umferð bikarkeppninnar.
Þessi lið leika saman:
Manch. United — Sheffield eða
Hull City.
Wolves — Chelsea eða Darlingt.
Bristol Rovers eða Burnley —
Bristol City.
Bolton eða York City — Stoke
City.
Scunthorpe — Liverpool.
West Ham — Charlton eða Ful-
han Cardriff — Everton eða
Blackburn Sheffield Utd. — WBA
eða Northampton Town.
G. K.
Til sölu
BLOKKÞVIiXiGIJR
25 skrúfur í 5 búkkum. — Upplýsing-
ar í síma 18909.
Amerískar
kennslubækur í teikningu
(How to draw)
IVSargar gerðir
Verð kr. 26.40
HELGAFELL
Laugavegi 100
Rafsuðuhjálmar
OvítmáBniur
Járnsagarlsloð
H.sp. sagarbloð
fyrirliggjandi —
eHflB8ÍHH880HgJ0BM80HI
------ mm TlliTI- .... « .... lilf
Grjótagötu 7 — Sími 2-42-50
Þakka hjartanlega öllum þeim, sem glöddu mig á átt-
ræðisafmælinu, 24. janúar sl.
Sigurður Níelsson.
Innilegar þakkir færi ég vinum mínum og frændfólki,
sem glöddu mig með gjöfum og heillaóskum, á sjötugs.
afmæli mínu þann 12. jan. sl.
Sigríður Þórðardóttir,
Kirkjuvegi 22, Keflavík.
Sonur minn
FKIÐJÓN GUÐMUNDSSON
bóksali frá Staðarbakka andaðist 16. þ.m.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey samkvæmt ósk
hins látna.
Guðmundur Einarsson,
Staðarbakka, Helgafellssveit.
Móðir okkar
SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR
frá Borðeyri
andaðist á Bæjarspítalanum 27. þ.m.
Dýrfinna Tómasdóttir,
Hans J. K. Tómasson,
Sigurbjarni Tómasson.
Jarðarför
SIGURJÓNS GUÐMUNDSSONAR
múrarameistara, Hraunteig 26 fer fram frá Fossvogs-
kirkju, föstudaginn 31. jan. kl. 1,30 síðdegis.
Anna Ólafsdóttir og börn.
Innilega þökkum við öllum þeim, nær og fjær, sem á
einn eða annan hátt minntust móður okkar
KRISTÍNAR KARÓLlNU JÓNSDÓTTUR
við andlát hennar og jarðarför.
Guðrún Halldórsdóttir,
Kristín Halldórsdóttir.
Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim, nær og fjær,
er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðar-
för eiginkonu minnar
CHRISTINE TOFT
Fyrir mína hönd, dætranna og tengdasona.
Hartwig Toft.
Af alhug viljum við þakka öllum þeim sem sýndu okk-
ur framúrskarandi vinarhug og samúð við andlát og jarð-
arför sonar okkar
SIGURJÓNS FRANKLÍNSSONAR.
Guð blessi ykkur öll.
Iíristín Hansdóttir, Franklín Steindórsson,
systkini og aðrir aðstandendur.