Morgunblaðið - 10.04.1958, Síða 1
20 síður
'T
Greinileg hreyfing í rétta átt á
Genfarráðstefnunni
Þó eru margar þjóðanna jbeirrar skoð-
unar, að tillaga Islands cjangi of langt
Genf, 9. apríl.
Einkaskeyti frá
fréttaritara Mbl.
MARGAR þjóðanna á Genfar-
ráðstefnunni eru þeirrar skoðun-
ar að tillaga íslands gangi alltof
langt og nauðsynlegt sé að setja
ákvcðin takmörk fyrir einka-fisk
veiðiréttindum, eða að minnsta
kosti sé ákveðið að gerðardómur
fjalli um dciluefnin, þannig að
útilokað sé að strandríki geti
misnotað aðstöðu sína og útilok-
að aðrar þjóðir með öllu frá
miðunum.
Ovíst er þvi, hvaða undirtekt-
ir tillagan fær, en allmörg Asíu
og Suður Ameríku-ríki munu
vera henni hlynnt. íslenzka
nefndin h,j;fur frá upphafi ráð-
stefnunnar haldið því fram að
strandríki bæri lögsaga á land-
grunnshafinu, en í þeirri nefnd,
sem um málið fjallar fékkst það
sjónarmið ekki viðurkennt, þar
sem aðeins 11 af 87 þjóðum
greiddu atkvæði með því.
Þess vegna tók íslenzka sendi-
nefndin þá afstöðu að bera fram
tillögu sína um viðbótarsvæði við
fiskveiðilandhelgina, þess efnis
að við sérstakar aðstæður, þar
sem strandríki byggir alla af-
komu sína á fiskveiðum, verði
því heimilað að taka sér einka-
rétt á fiskveiðum svo langt út
til hafs, sem nauðsynlegt má telj-
ast eftir öllum aðstæðum og séu
þau yfirráð ekki bundin við 12
mílna landhelgi.
Nú er aðstaðan slík hér á ráð-
stefnunni, að sumar þjóðir vilja
leysa landhelgismálin með því
að færa út landhelgina og þar
fyrstir Bretar með tillögu sína
um 6 sjómílna landhelgi, sem þeir
lögðu fram, þegar sýnt var, að
3 mílna reglan átti nær ekkert
fylgi. Það er enn nær útilokað
að þessi nýja tillaga Breta hljóti
þá % hluta atkvæða, sem þarf til
samþykktar, en hugsanlegt er,
að hún dragi úr fylgi við 12-
mílna tillögu Kanada.
Á hinn bóginn eru lönd sem
vilja rétt strandríkis til friðun-
ar utan landhelginnar. í dag var
borin fram tillaga frá Burma,
Chile, Kostarika, Ekvador, Indó-
nesíu, Kóreu, Mexíkó, Nikara-
gua, Filippseyjum, Vietnam og
Júgóslavíu um það, að ef tak-
marka þurfi veiðar, skuli hags-
munir strandríkisins ganga fyrir
og að það megi gera einhliða
verndunarráðstafanir, sem þó
megi skjóta til úrskurðar gerð-
ardóms.
Indland hefur borið fram
tillögu- um að strandríki beri
einka-fiskveiðiréttur 12 sjó-
mílur frá ströndinni, svo að
greinileg hreyfing er í þessa
átt, þótt annars hafi verið
gengið út frá því í umræðum
í fiskfriðunarnefndinni, að
allar þjóðir séu jafnréttháar
við veiðarnar, þótt strandríkið
setji sjálft friðunarreglurnar.
Krúsjeff sendir Her-
manni Jónassyni bréf
frá Ungverjalandi
Castro uppreisnarforingi
Bardagnr í hafnarhverfi Havona
HAVANA 9. apríl (Reuter). —
Róstur brutust í dag út í Havana,
höfuðborg Kúbu. Fregnir af þess
um atburðum eru mjög óljósar,
þar sem símasamband við borg-
ina er rofið.
Það er-þó víst, að uppreisnar-
menn úr liði Fidel Castros náðu
útvarpsstöð einni á sitt vald um
skeið og lásu þeir upp áskoranir
til verkamanna í borginni að
hefja allsherjarverkfall til að
steypa Batista einræðisherra af
stóli.
Þá er það einnig víst, að upp-
rcisnarmenn gerðu tilraun til að
ná á sitt valda vopnageymslum
stjórnarinnar við höfnina í borg-
inni. Geisuðu bardagar við höfn-
ina og tóku þátt í þeim meðal
annars sjóliðar úr flotanum og
fjölmennt vopnað lögreglulið.
Utvarpsstöð stjórnarinnar seg-
ir, að flokki uppreisnarmanna,
sem náði á sitt vald lítilli út-
varpsstöð í útjaðri borgarinnar
hafi verið gereytt.
Rafmagnsstraumur rofnaði síð-
degis í dag í aðalviðskiptahverfi
Havana og hefur það valdið
nokkurri óreiðu í borginni. Hins
vegar virðist allt rólegt á yfir-
borðinu, nema í hafnarhverfinu,
en þaðan hefur heyrzt vélbyssu-
skothríð og sprengingar.
, Fidel Castro hefur staðhæft í
viðtali við bandaríska blaða-
Krúsjeff segir verkamonnum á Csepel:
Þið tókuð ekki bátt í
uppreisninni, heldur voru
eintómir fasistar
jb að
BÚDAPEST, 9. apríl. — (Reuter).
Nikita Krúsjeff flutti í dag ræðu
yfir verkamönnum á Csapeleyju,
í suðurhluta Búdapest. Það var
einmitt á þessum stað sem ung-
verskur verkalýður veiti rúss-
neska árásarliðinu harðast við-
nám í uppreisninni 1956.
En Krúsjeff skýrði verkamönn-
unum í dag frá því að það hefðu
ekki verið þeir, sem tóku þátt í
uppreisninni. Það hefðu aðeins
verið fasistar og örfáir svikarar
í hópi verkamanna, sem gerðu
gagnbyltinguna.
Voldugir hátalarar
Fréttamenn vestrænna frétta-
stofnana, sem undanfarið hafa
fengið að fylgjast með Krúsjeff
á ferðalagi hans um Ungverja-
land fengu ekki aðgang að
Csapel-eyju. Var öflugur lög-
regluvörður við brýr og hlið að
hinum miklu verksmiðjum eyjar-
innar og fengu engir inngöngu
nema þeir sem sýndu aðgangs-
skilríki. Það var þó óþarfi fyrir
fréttamennina að fara alla leið til
fundarstaðar, því að stórum og
Framh. á bls 2
menn, að 5000 fylgismenn hans 1
Havana hafi verið búnir vopn-
um og þeir séu reiðubúnir að
hefja götubafdaga.
Engar sættir
PARÍS, 9. april. — Sáttanefnd
þeirra Murphys og Beeleys í deil-
unni milli Frakka og Túnis til-
kynnti í dag, að sáttaumleitanirn-
ar hefðu reynzt árangurslausar
fram til þessa. — Það er almennt
álitið í Frakklandi, að útilokað
sé að samkomulag takist í þess-
ari deilu.
NIKITA KRÚSJEFF, for-
sætisráðherra Sovétríkjanna,
hefur skrifað Hermanni
Jónassyni, forsætisráðherra
íslands, bréf. Gekk sendi-
herra Sovétríkjanna, P. K
Ermoshin í fyrradag á fund
Hermanns Jónassonar og af-
henti honum það.
Athyglisvert er, að hréfið
er dagsett þann 4. apríl
(föstudaginn langa) en þá var
Krúsjeff ekki staddur í Rúss-
landi, heldur í Ungverjalandi
og flutti sama dag og hann
sendi hréfið ræðu á Hetju-
torginu í Búdapest af fóstall-
inum þar sem koparstytta
Stalins hin mikla áður stóð
Staðsetning á bréfinu er þo
engin.
Liður I áróðurssókn
Efni bréfsins er hið sama og
í bréfum, sem Krúsjeff hefur að
undanförnu sent m. a.: Eisen-
hower forseta og forsætisráð-
herrum Svíþjóðar, Danmerkur,
Bretlands og Vestur-Þýzkalands.
Fjallar það um stöðvun á tilraun-
um með kjarnorkusprengjur og
er ekki ástæða til að birta bréfið
í heild.
í því segir m. a., að æðsta ráði
raunum með allar gerðir kjarna-
og vetnisvopna í Sovétríkjunum.
„Til framkvæmdar þessari sam
þykkt æðsta ráðs Sovétríkjanna
hefur Sovétstjórnin ákveðið að
hætta einhliða frá 31. marz 1958
tilraunum með hvers konar gerð-
ir kjarna- og vetnisvopna.
Sovétstjórnin hefur beint því
til ríkisstjórna Bandaríkjanna og
Stóra-Bretlands, að þær geri
slíkt hið sama. Sovétstjórnin
mælist til þess að ríkisstjórn ís-
lands styðji þetta frumkvæði í
þágu mannkynsins alls.“
Tilboðið stendur ekki lengi
Nokkru síðar segir í bréfinu:
„Ef stjórnir þeirra ríkja, er
ráða yfir kjarnorkuvopnum, vilja
samt sem áður ekki taka undir
þessa ákvörðun Sovétstjórnar-
innar, og ef þær kjósa heldur, að
allt verði sem áður, ef þær halda
áfram tilraunum með kjarna- og
vetnisvopn, þá munu Sovétríkin
að sjálfsögðu ekki eiga annars
kost, öryggis síns vegna, en að
telja sig laus við þá skuldbind-
ingu að hætta kjarnorkutilraun-
unum. Sovétstjórnin myndi ekki
óska þess, að sá yrði endir máls-
ins.“
Að lokum segir í bréfinu:
„Leyfið mér, herra forsætis-
ráðherra, að láta í ljós þá ósk að
Rússlands hafi verið hugleikið ofangreindum tillögum Soyét-
að stíga fyrsta spor í þá átt að
bjarga mannkyninu frá hættu af
eyðandi kjarnoi'kustyrjöld og
hafi það því ákveðið að hætta til-
stjórnarinnar verði vel tekið af
hálfu ríkisstjórnar íslands.
Yðar einlægur.
N. Krúsjeff.“
Meirihluti þingmanna norska Verka-
mannaflokksins styður ályktun í
blóra við stjórnina
Foringjar flokksins undrandi og gramir
OSLO, 9. apríl. — Skv. fregnum NTB, Reuters og Aftenpostens. —
ALYKTUN sem beint er til norsku ríkisstjórnarinnar um að beita
neitunarvaldi í NATO til að hindra að vestur-þýzki herinn verði
búinn kjarnorkuvopnum, hefur komið sem þruma úr heiðskíru lofti
og valdið foringjum norska Verkamannaflokksins undrun og þung-
um áhyggjum.
Ástæðan fyrir því er að hvorki meira né minna en 44 af 78 þing-
mönnum Verkamannaflokksins hafa undirritað áskorunina, eða
hreinn meirihluti þingflokksins.
Helztu forustumenn Verkamannaflokksins, Einar Gerhardsen
forsætisráðherra, Halvard Lange utanríkisráðherra, Oscar Torp
þingforseti og Nils Ilönsvald foringi þingflokksins, hafa lýst yfir
undrun sinni og óánægju með aðferð hinna 44 þingmanna flokks-
ins til að koma skoðunum sínum fraih.
Er flokkurinn klofinn?
Einar Gerhardsen sagðist
harma það, að þingmennirnir
hefðu undirritað áskorunina.
Sagði hann í dag að málið yrði
rætt í ríkisstjórninni og þing-
flokki Verkamannaflokksins. —
Hann lagði áherzlu á að enginn
ágreiningur ríkti í Verkamanna-
flokknum, hvorki um utanríkis-
né landvarnamál.
Blöð stjórnarandstöðunnar stað
hæfa hins vegar, að þessi atburð-
úr sýni alvarlegan ágreining
innan Verkamannaflokksins, að
minnsta kosti í utanríkismálum.
Neitunarvald fráleitt
Halvard Lange utanríkisráð-
herra lýsti því yfir í dag, að
hann væri algerlega andvígur
ályktun þeirri sem áskorunin
fólst í. Hann sagði að það væri
fjarstæða að norska stjórnin
beitti neitunarvaldi í NATO til
að hindra þann vígbúnað, sem
talinn væri óhjákvæmilegur.
Stúdentar höfðu forgöngu
Það var félag Verkamanna-
flokks-stúdenta „Sosialistisk
Studentlag“, sem beitti sér fyrir
ályktun þessari og fékk í lið með
sér fjóra þingmenn Verkamanna-
flokksins þá Olav Meisdalshagen,
Sverre Löberg, Peter Kjeldseth
Moe og Hans Offerdal.
Ályktunin
Ályktunin var loks á páskadag
afhent Ulrik Olsen verkamála-
ráðherra, sem gegndi embætti
forsætisráðherra í fjarveru Ein-
ars Gerhardsens, sem þá var í
páskafríi. Ályktunin er svohljóð-
andi:
„Til norsku ríkisstjórnarinnar.
í apríl og maí-mánuði verður
ákvörðun tekin um það, hvort
Vestur-Þýzkaland skuli búið
kjarnorkuvopnum. Noregur verð-
ur að koma í veg fyrir að
ákvörðun vestur-þýzka sambands
þingsins um þetta nái samþykki
NATO. Þýzkir Jafnaðarmenn og
verkalýðshreyfingin berjast ein-
beitt gegn þeirri ákvörðun.
Framh. á bls. 2
Heimsókn Voroshi-
lovs iil Tíiós
BELGRAD, 9. apríl. — Það var
tilkynnt opinberlega í dag, að
Voroshilov, forseti Ráðstjórnar-
ríkjanna, myndi koma í opinbera
heimsókn til Júgóslavíu í næsta
mánuði.
Upphaflega var ætlunin að
hann færi í þessa opinberu heim-
sókn haustið 1956, en henni hefur
hvað eftir annað verið frestað,
af því að kastast hefur í kekki
milli Rússa og Júgóslava.
Voroshilov ætlar að heimsækja
Pólland í lok apríl og er talið
að hann muni fara þaðan beint
til Júgóslavíu.
— Reuter.