Morgunblaðið - 10.04.1958, Blaðsíða 2
i.
MORCVNTtJ 4Ð1Ð
Fimmtudagur 10. apríl 1958
L'r lokaatridi revíunnar.
Sjálfsfceðishúsið ómaði af hlátri
á frumsýningu revíunnar
Heimsótti í fyrsta skipti
stórborg nær niræior oð oldri
1 FYRRAKVÖLD var frumsýnd
í Sjálfstæðishúsinu revían
nýja „Tunglið, tunglið, taktu
mig“, eftir Harald Á. Sigurðsson
og Guðmund Sigurðsson. Var
húsfyllir í Sjálfstæðishúsinu og
var revíunni tekið með dynjandi
lófataki. Hlátrasköllin bergmál-
uðu í húsinu eftir brandararegn
Haralds og smellnar vísur Guð-
mundar. Er ekki að efa að þús-
undir Reykvíkinga eiga eftir að
eiga ánægjustund í Sjálfstæðis-
húsinu meðan „Tunglið, tunglið,
taktu mig“ verður sýnd þar.
Revían er í tveim þáttum. Ger-
ist hinn fyrri á stjórnarráðsskrif-
stofu í Reykjavík á „síðustu og
TÓNLEIKAR Polyfonkórsins í
Laugarneskirkju s. 1. þriðjudags-
kvöld undir stjórn Ingólfs Guð-
brandssonar, voru öllum viðstödd
um til mikillar ánægju. Hrifn-
ingin í fullri kirkjunni var
greinileg.
Hin gömlu kirkjulegu verk
voru flutt af lotningu og gleði,
með mikilli hógværð og ná-
kvæmni. Kvennaraddirnar voru
sérlega bjartar og mjúkar og
fyllsta jafnvægi milli þirra og
karlaraddanna.
Þetta er að vissu leyti nýr
söngur hér á landi, þessi gömlu
verk í þessum flutningi.
Þá var orgelleikur dr. Páls
ísólfssonar með þeim myndug-
leika og glæsibrag sem von var.
á frá honum.
Þarna söng Ólafur Jónsson,
ungur tenor, bjart og fagurt verk
eftir Stradelli, fór þarna saman
hvort tveggja, smekkvís flutning
ur og raddgæði.
Ennfremur komu þarna fram
nokkrir af okkar ágætu hljóð-
færaleikurum og önnuðust und-
irleik með kórnum.
Þetta á ekki að vera nein
beztu“ tímum. Er þar von nýs
ráðherra og er koma hans og
fyrstu kynni af stjórnarstörfun-
um hápunktur þáttarins. í lokin
koma í heimsókn á leið til tungls-
ins flugstjórar á Sputnik þriðja
og á Explorer og er tekið með
viðhöfn.
Síðari þátturinn gerist á tungl-
inu og eru ráðherrahjónin nýju
frá íslandi komin í heimsókn. —
Umhverfið er næsta nýstárlegt og
samskipti jarðarbúa og tungl-
búa hin spaugilegustu. —
Með hlutverk ráðherrahjónanna
fara þau Haraldur Á. Sigurðsson
og Steinunn Bjarnadóttir og bera
þau sýninguna uppi öðrum frem-
„músik“-gagnrýni, til þess brest-
ur mig auðvitað þekkinguna.
En ég vil þakka öllu þessu
fólki þessa góðu stund í kirkj-
unni, óska kórnum og söngstjór-
anum góðrar framtíðar í göfugu
starfi og hvetja fólk til að láta
ekki þá fögru list, sem hér er
boðið upp á, fara framhjá sér.
Garðar Svavarsson.
Leiðrétting
í VIÐTALI við Frode Jakobsen,
sem birtist í blaðinu í gær, hafa
slæðzt tvær villur, sem þarfnast
leiðréttingar: I þeim kafla, er
fjallar um friðarsinna, átti að
standa: „Ég hef enga samúð með
friðarsinnum, sem sitja og bíða
eftir því, að þeim verði bjargað.
Ég ber hins vegar virðingu fyrir
þeim, er ekki vilja beita valdi
gegn neinum ....“. Síðar í grein-
inni er rætt um danska heima-
varnarliðið og sagt, að megin-
styrkur þess séu menn, sem
komnir séu á herskyldualdur,
orðnir 28 ára. Hér átti að standa:
komnir af herskyldualdri.
ur. Baldur Hólmgeirsson fer með
stór hlutverk í báðum þáttum
og leysir vel ‘ af hendi. Aðrir
helztu leikendur eru Sigríður
Guðmundsdóttir og Hulda Emils
sem syngja mikið og vel. Hanna
Bjarnadóttir, sem einnig syngur
mikið, Lárus Ingólfsson, Hjálm-
ar Gíslason og síðast en ekki sízt
Karl Guðmundsson, sem m. a.
fer með eftirhermur af mikilli
snilli og virðist sívaxandi í list
sinni.
Heildarsvipur sýningarinnar er
góður. Bráðfyndin er revían og
óspart gert grín að ýmsu því er
mest er áberandi í þjóðlífinu í
dag, mönnum og málefnum, þó
án þess að hastarlega og illa sé
að nokkrum kastað. Þótti þessi
revía betri ýmsum fyrri revíum
Haraldar og Guðmundar og er þá
mikið sagt. Hún er auðug að
hlátursefni, og þó ýmsum þyki
kannski sum atriði mættu öðru
vísi vera, t. d. söngvar styttri og
kannski færri og deilt sé um
hvort klassisk túlkun Hönnu
Bjarnadóttur á einu lagi eigi
heima 1 revíunni eða ekki, þá er
heildarmyndin góð og marg-
breytileg, þar eru dansar, nýstár-
leg og falleg leiktjöld og sýn-
ingin góð skemmtun sem eflaust
á eftir að njóta mikilla vinsælda.
— Norbmenn
Frh. af bls. 1
Norska verkalýðshreyfingin verð
ur að sýna samheldni við þýzku
verkalýðshreyfinguna.
Það að búa Vestur-Þýzkaland
kjarnorkuvopnum mun leiða til
þess að Austur-Þýzkaland verði
einnig kjarnorkuvopnað og sömu-
leiðis önnur riki Austur-Evrópu.
Þar með eru brostnar vonir alls
heimsins um að dregið verði úr
spennu og afvopnun framkvæmd.
Noregur verður að koma í veg
fyrir þá ógæfu með því að taka
upp þá grundvallarstefnu að
snúast gegn staðsetningu kjarn-
orkuflugskeyta í Vestur-Þýzka-
landi á fundi landvarnarráðherr-
ánna 14,—16. apríl n. k. og að
beita neitunarvaldi sínu á fundi
utanríkisráðherranna 6. maí. Slík
afstaða er hið eina eðlilega fram-
hald frumkvæðis Einars Ger-
hardsen á Parísar-fundinum í
desember s. l.“.
Undrun Torps
Oskar Torp þingforseti og einn
af helztu leiðtogum Verkamanna-
flokksins lýsti því yfir strax eftir
að ályktunin var afhent ríkis-
stjórninni, að hann væri stórlega
undrandi yfir því að hinir 44
þingmenn Verkamannaflokksins,
sem undirrituðu ályktunina,
skyldu ekki taka málið fyrir á
öðrum grundvelli, t. d. með því
að ræða málið á fundi í þing-
flokknum eða þá að bera fram
ályktunartillögu á þingi. Með
þessum hætti hafa þeir farið í
kringum bæði ríkisstjórn og
flokksstjórnina.
ÞAÐ er sjaldgæft að háaldraðir
menn takist á hendur stórreisur.
En um páskana lagði Sigmundur
Sveinsson, fyrrum húsvörður í
Miðbæjarskólanum, land undir
fót og brá sér suður til Ítalíu,
til borgarinnar eilífu. Er það í
fyrsta skiptið. sem þessi aldraðí
heiðursmaður bregður sér til út-
landa. Hann varð 88 ára í gær.
í gær hitti tíðindamaður Mbl.
Sigmund sem snöggvast, heima
hjá honum að Brávallagötu 40.
Hann var hress og kátur að
vanda. — Jú, Ítalíuförin hafði öll
verið sannkallað ævintýri, hvort
heldur um var rætt flugferðina
sjálfa eða dvölina á Ítalíu: Bláa
hellinn á Capri, gönguferð um
rústir Pompei, eða hina viðburða
riku daga suður í Róm og heim-
sóknina til Píusar páfa.
Sigmundur sagði að ferðafólkið
hafi verið mjög skemmtilegt. Það
var algert vopnahlé rikjandi með
al þingmannanna og þessi hópur
íslendinga var sem ein fjölskylda.
Fólkið bar mikla umhyggju fyrir
mér, ekkf sízt blessaðar frúrnar,
sagði Sigmundur. Hann átti tæp
lega orð til þess að lýsa
hrifningu sinni yfir suðurgöng-
unni. Já, hugsaðu þér, að það
skyldi taka mig álíka langan tíma
að komast heim sunnan frá Róma
borg og Þingvallaferðirnar í
gamla daga, þegar ég hélt uppi
hestvagnaferðum til Þingvalla.
Þær eru hrikalegar þessar stór
borgir og allt þetta mannhaf. —
Fjarlægðir miklar eftir því. Ég
var stundum orðinn þreyttur,
- Krúsjeff
Frh. af bls. 1
geysiöflugum hátölurum hafði
verið komið alls staðar fyrir, og
þrumuðu þeir ræðu Krúsjeffs um
allt nágrennið.
Verkamenn streyma af fundi
Fréttamönnum þótti það undar-
legt, að um líkt leyti og ræða
Krúsjeffs hófst gengu þúsundir
verkamanna brott frá Csepel-
eyju, eins og þeir kærðu sig ekki
um að hlýða á ræðu hins rúss-
neska einræðisherra. Opinbera
ungverska fréttastofan segir að
10 þúsund verkamenn hafi hlýtc
á ræðu Krúsjeffs, í hinum stóra
verksmiðjusal stálverksmiðjunn-
ar. —■
Eintómir fasistar
Krúsjeff ræddi um uppreisnina
1956 og sagði að á Vesturlöndum
væri það kallað að kúga ung-
versku þjóðina, þótt þaggað væri
niður í nokkrum verstu glæpa-
mönnum gagnbyltingarinnar. En
er ekki betra að fangelsi nokkra
uppreisnarmenn, heldur en að
eiga yfir höfði sér gagnbyltingu?
spurði Krúsjeff.
Þá neitaði hann fregnum vest-
rænna blaða frá uppreisninni
1956, að ungverskir verkamenn
hefðu verið andvígir alþýðu-
stjórn kommúnista. „Það er
staðreynd“, sagði hann, „að það
voru Horthy-fasistar sem stóðu
fyrir byltingunni og að þeim
tókst að blekkja fáeina verka-
menn skamma stund.“
„Einu verkamennirnir, sem
tóku þátt í uppreisninni voru ör-
fáir uppgjafaliðsforingjar Horth-
ys, nazistar og svikarar, sem
höfðu falið sig í röðum verka-
manna. Verkalýðurinn getur
aldrei verið á bandi gagnbylt-
ingarinnar“, sagði Krúsjeff.
Heitir nýjum tækjum
í ræðu sinni vék Krúsjeff
einnig að efnahagsmálum og
verksmiðjurekstri. Hann sagði að
nú yrðu sósíalísku ríkin að leggja
síaukna áherzlu á framfarir í
verksmiðjurekstri og notkun
sjálfvirkra tækja. Hann játaði að
verksmiðjurnar á Csapel væru
illa búnar að tækjum, en ef Ung-
verjar vildu efla samstarf við
Sovétríkin myndu þeir fá nýtízku
verksmiðj uvélar.
þegar ég kom heim í hótelher-
bergið mitt. Þá er og seinratað
í borginni. Einu sinni villtist ég
með fleira fólki og þó Sveinbjörn
Högnason reyndi að ræða við lög
reglumann í neyð okkar bar það
engan árangur. Kaupmaður einn
bjargaði málinu: Náði í bíl, sem
ók okkur beinustu leið til hótels-
ins.
Já, þetta var eftirminnileg för.
En ég er ósköp feginn að vera
kominn heim aftur, sagði Sig-
rnundur, sem bað Mbl. að flytja
samferðáfólki sinu beztu kveðj-
ur.
Ný starfaskipun
hjá Flugfélaginn
FYRIR nokkru var frá því skýrt
í fréttum, að ýmsar breytingar
hefðu verið gerðar á skipun
starfa hjá Flugfélagi íslands. —
M. a. hefur Sigurður Matthíasson,
sem á undanförnum árum hefur
stjórnað þeirri deild félagsins,
sem fjallar um millilandaflug,
tekið við starfi sem fulltrúi for-
Sigurður Matthíasson
stjóra. Sigurður Matthíasson er
35 ára að aldri. Hann hóf störf
hjá Flugfélaginu árið 1941, stund-
aði síðar nám í viðskiptafræðum
við ríkisháskólann í Texas í
Bandaríkjunum og tók við stjórn
millilandaflugs félagsins, er það
hófst 1946.
Drengur í Kefla-
vik varð undir bíl
KEFLAVÍK, 8. apríl. — Um kl,
6 síðdegis á föstudaginn langa
varð þriggja ára drengur, Helgi
Kristjánsson, Hringbraut 59 hér í
bæ fyrir fólksbifreið, en svo ó-
trúlega vildi til, að drengurinn
slasaðist lítið, fékk aðeins smá-
vegis heilahristing.
Slysið vildi til með þeim hætti,
að drengurinn var við leik hjá
bílnum sem stóð skammt frá
heimili hans. Er bílstjórinn kom
að gekk hann aftur fyrir bílinn
og settist síðan undir stýrið og
og ók af stað. Hann varð ekki
var við neitt nálægt bílnum. —
Helgi litli sem sat á höggbretti
bílsins datt er bíllinn fór af stað
og mun hann hafa slegizt með
höfuðuð við framhjólið, að því er
talið er. Bílstjóri sem þarna
kom að á bíl sínum sá hvað skeð
hafði og gaf þegar hljóðmerki til
hins bílsins og veitti hann því
þegar athygli og stanzaði. Þá lá
Helgi litli milli afturhjólanna.
Læknir var þegar sóttur og var
Helgi litli þegar fluttur í sjúkra-
húsið til rannsóknar, en eins og
áður er sagt, voru meiðsli drengs
ins ekki önnur en að framan get-
ur. Var hann fluttur heim til sín
í dag af sjúkrahúsinu og líður
vel. — I.
Haraldur Á. Sigurðsson og Guðmundur Sigurðsson, höfundar
revíunnar, hvílast í hiéi og ræða við Steinunni Bjarnadóttur.
Tóaleikor í Laugarneshirkju