Morgunblaðið - 10.04.1958, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 10. april 1958
MORCDISBL 4 ÐIÐ
3
Þormóður goði. — 190 fet — 848 tonna togari.
Ljósm. Mbl.: Ol. K. M.
Ýmsar athyglisverðar nýjungar
í „Þormóði goða"
Stærsta skip islenzka fiskiflotans
kom til Reykjavíkur i gær
BJART veður og sólskin var, er
Þormóður goði sigldi fánum
skrýddur inn á ytri höfnina hér
í Reykjavík um klukkan 11,30 f.
h. í gær. Þá þegar lögðu margir
leið sína niður að höfn til þess
að sjá togarann, serh er allur hið
glæsilegasta skip.
Um kl. 1 síðd. lagðist togarinn
að hafnarbakkanum undir kola-
krananum. Var þar fyrir allmargt
fólk. A nokkrum byggingum við
höfnina var flaggað í tilefni af
komu togarans.
Um nónbil í gær bauð skipstjór
inn Hans Sigurjónsson blaða
mönnum að skoða togarann. Tók
hanná móti gestum sínum í hinni
glæsilegu skipstjóraíbúð. Þar
voru þeir einnig Hafsteinn Berg
þórsson framkv.stj. og Þorsteinn
Arnalds skrifstofustjóri Bæjarút
gerðarinnar.
Skipstjórinn skýrði meðal ann-
ars frá því, að í síðari reynsluför
hefði togarinn náð 15 sjómílna
hraða. Hann kvað enga reynslu
enn komna á sjóhæfni togarans
því ládauður sjór hefði verið alla
leiðina. Þjóðverjar sögðu, að þó
togað væri í 9 vindstigum, væri
hvorki öryggi skipsmanna né
skips teflt í tvísýnu.
Á heimleið var komið við í
Grimsby og tekin þ5r veiðarfæri
og ýmislegt fleira. Eru í togaran
um um 400 tonn af salti og á ann-
að hundrað tonn af öðrum far-
angri, svo að heita má að hann
hafi verið ,á hleðslumerkjum', er
hann kom. Hann var þrjá sólar-
hringa frá Grimsby.
Skipstjórinn sagði frá nokkrum
nýjungum. Á stjórnpalli eru t. d.
þrjú stýri, sem nota má til skiptis
eftir þörfum. Það er stýri í miðri
brúnni, hið venjulega stýri, skips
ins, en svo eru stýri á hvorri síðu,
sem notuð eru þegar togarinn er
að veiðum. I brúnni sýndi skip-
stjórinn blaðamönnum tvær fisk
sjár. Er önnur þýzk, og er hún
jafnframt dýptarmælir, en hin er
Kelvin-Hughes fisksjá. Þá sýndi
hann sérstakan lofthemlaútbún-
að fyrir vörpuna, sem verða á til
mikils hagræðis við „veiðar.
Stjórnpallur skipsins er stór og
bjartur. Sími er lagður um allt
skipið, alls konar rofar og örygg-
istæki, sem gripið er til, ef eitt
Frá Alþingi
FUNDUR hefur \?erið boðaður í
Sameinuðu Alþingi í dag kl. 1,30.
Minnzt verður látins fyrrver-
andi alþingismanns. Á dagskrá er
og fyrirspurn um félagsheimili,
kosning í raforkuráð og 3 þings-
ályktunartillögur: Gj aldeyrisaf-
koma. Biskupsstóll í Skálholti.
Lífeyrisgreiðslur. — Fundir voru
ekki á Alþingi í gær.
hvað óvænt ber að höndum, t. d.
eld.
Loftskeytamaðurinn, Guðmund
ur Pétursson, sýndi gestunum
hina miklu loftskeytastöð togar-
ans. Sagði hann, að stöð skipsins
væri það öflug að á stuttbylgjum
mætti ná talsambandi við skipið
nærri því hvar sem er á þeim sigl
inga- og veiðisvæðum, sem ísl.
togararnir kæmu á hér við land
og við Grænland. Þá sýndi hann
lítið tæki, sem er sjálfvirkur
neyðarsendir og setja skal í sam-
band, ef yfirgefa þarf skipið,
hvort heldur er vegna strands eða
óvæntra atvika á hafi úti. Þessi
sjálfvirki neyðarsendir gerir það
kleift fyrir önnur skip og strand
stöðvar, að miða togarann ná-
kvæmlega út.
Gísli Jón Hermannsson, fyrsti
stýrimaður, fylgdi blaðamönnun-
um um skipið. Allar íbúðir og
gangar eru klæddir að innan með
ljósum harðviði.. Eru íbúðirnar
hinar vistlegustu og rúmgóðar.
Gísli Jón benti á ýmislegt af því,
sem nýtt er í þessu skipi. Sér-
stakur gangur er úr brú og aftur
í skipið til mikils hægðarauka og
öryggis fyrir skipsmenn. Þegar
komið er í hásetaíbúðir, er fyrst
komið í þurrkklefa, þar sem skips
menn fara úr hhfðarfötum, en
þar fyrir innan er hvítmálað,
bjart snyrtiherbergi íbúðir eru
allar hitaðar upp með rafmagni.
Eru hásetaklefar ýmist 2 eða 4
manna og eru þar inni borð, koll-
ar og bekkir. — Rafmagnselda-
vél er í stóru og rúmgóðu eldhúsi
og í matsalnum geta 26 skips-
menn borðað samtímis.
Athyglisvert er það og að
klampar allir í fisklestinni eru úr
aluminium og einangrun fisklest
ar er jöfn í lofti sem gólfi lestar-
innar. Sérstakur stigi er úr stiga-
húsi við framsiglu, niður í fisk-
lestar.
Hafsteinn Bergþórsson framkv.-
stjóri, upplýsti aðspurður, að
þessi stóri togari, sem er eign
Reykvíkinga, hefði kostað um 14
milljónir króna.
Þormóður goði hefur meiri út-
haldsmöguleika en nokkur annar
íslenzkur togari. Hann getur ver
ið að veiðum án þess að koma til
hafnar og endurnýja vatns- eða
olíubirgðir samfleytt 45 daga.
Hafsteinn sagði að togarinn
myndi í fyrstu veiðiförinni veiða
fisk til söltunar. Lestarrýmið er
það mikið, að ef vel gengur, get-
ur togarinn komið með um 550
tonn af saltfiski úr þessari veiði
för. Það er nær 100 tonnum,
méira en „methafinn“ Þor-
steinn Ingólfsson, hefur landað
eftir eina veiðiför.
Hafsteinn Bergþórsson sagði,
að nú ætti eftir að reyna það,
hversu vandað skip Þormóður
goði væri. Hið ytra væri svo að
sjá, sem allt væri sérlega vand-
að og vandvirknislega af hendi
leyst. Skipasmíðastöðin Seebeck
í Bremerhaven hefur ekki fyrr
smíðað jafnstóran togara. Aðal-
vél skipsins er 1650 hestafla
Krupp vél. Sagði skipstjórinn frá
því að í reynsluförinni hefði ekki
orðið vart neins titrings, þó snún
ingshraðinn næði hámarki.
Nú þegar er búið að ráða um
30 menn á Þormóð goða. í gær-
dag komu um borð nokkrir sjó-
menn til þess að falast eftir skip
rúmi. Væntanlega heldur Þor-
móður goði til veiða um helgina.
Togarinn verður til sýnis fyrir
almenning milli kl. 5 ög 9 síðdegis
í dag.
★
Síðdegis í gær skoðuðu borgar-
stjóri, bæjarstjórn og nokkrir
gestir skipið. Formaður útgerð-
arráðs, Kjartan Thors, flutti við
það tækifæri eftirfarandi ræðu:
„Virðulegir gestir
Bæjarútgerð Reykjavíkur er
það mikil ánægja að bjóða ykk-
ur hjartanlega velkomna um
borð í þetta nýjasta og stærsta
skip útgerðarinnar. Vissulega er
slík viðbót við fiskiflota lands-
manna merkur og gleð.ilegur við
burður. Ög efast ég ekki um að
flestir íbúar þessa bæjar óski
þess af heilum hug að gæfa og
gengi megi ætíð fylgja hinu
fagra skipi og áhöfn þess. í fljótu
bragði virðist einnig, að ástæðu-
laust ætti að vera að óttast að
slíkar óskir rættust ekki.
Þormóður goði mun vera
stærsta og fullkomnasta fiski-
skip, sem til þessa dags hefir
komið í eigu íslendinga. Það er
byggt í einhverri þekktustu og
beztu togarasmíðastöð, sem starf-
rækt er í Evrópu, undir umsjón
ágætra manna. Ekkert hefir
heldur verið sparað til þess að
það geti gegnt því forustuhlut-
verki í veiðiflota íslendinga, sem
vonast mætti til af svo stóru og
vel búnu skipi. Gera verður
einnig ráð fyrir að skiprúm verði
eftirsótt og í það veljist úrval
ágætis manna. Dagleg stjórn í
landi verður einnig í höndum
hinna valinkunnu framkvæmda-
stjóra Bæjarútgerðarinnar.
Tvennt er þó það, sem varpar
dálitlum skugga á gleði mína.
Má þar fyrst nefna hina ískyggi-
legu aflatregðu, er nú um langt
skeið hefir verið á veiðisvæðum
togaranna. Og í öðru lagi mjög
svo ófullnægjandi starfsgrund-
völlur, sem þessum veiðiskipum
er búinn. Aflabrestinn ráðum
við ekki við, en með bjartsýni
útvegsmannsins er sífellt vonað
að úr rætist. Ég held að allir
séu mér sammála um að starfs-
grundvöllur sá, er togararnir búa
við, er allsendis óviðunandi. Og
þarf þar skjótra úrbóta, ef forða
á vandræðum. Hefi ég ástæðu til
að ætla, að bráðlega vei'ði gerð-
ar ráðstafanir til.lagfæringar.
Að lokum vil ég biðja ykkur,
góðir gestir, að rísa úr sætum og
sameinast um þá ósk, að þetta
nýja skip megi ætíð verða sann-
kölluð' happafleyta. — Guð og
gæfa fylgi ætíð skipi og óhöfn
þess. Það lifi“.
Gunnlaugur Briem, ráðuneyt-
isstjóri þakkaði af hálfu gesta og
árnaði skipinu heilla.
Ljósmyndari Mbl. tók í gær þestw . x...okkrum af
yfirmönnum togarans Þormóðs goða. Efst til vinstri er Guð-
mundur Pétursson loftskeytamaður, en til hægri Hans Sigur-
jónsson, skipstjóri, sem er þrítugur að aldri. Hann byrjaði í
þjónustu Bæjarútgerðarinnar árið 1952 og var nú síðast skip-
stjóri á bv. Jóni Þorlákssyni. Að neðan er Pétur Gunnarsson,
vélstjóri, og með honum vélaeftirlitsmaður frá Kruppverk-
smiðjunum, sem fer í fyrstu veiðiförina með skipinu.
Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
SMSTEINAR
Hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn „einangrazt“?
Málgögn vinstri stjórnarinnar,
nú síðast Alþýðublaðið, fjölyrða
mjög um það, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi „einangrazt i
íslenzknm stjórnmálum".
Er þessu í raun og veru þannig
farið? Ástæða er til þess að at-
huga það lítillega.
Sjálfstæðisflokkurinn er um
þessar mundir í stjórnarand-.
stöðu, hann á ekki fulltrúa í rík-
isstjórn og harmar það lítt. Hin
margumtalaða vinstri stjórn hef-
ur fengið sitt tækifæri og þjóðin
hefur fengið gott tóm til að
kynnast stefnu hennar og úrræð-
um.
En meðal þjóðarinnar er Sjálf-
stæðisflokkurinn síður en svo ein
angraður. í síðustu alþingiskosn-
ingum jók hann kjósendafylgi
sitt úr rúmlega 37% í 42,4%. Og
í bæjar- og sveitarstjórnarkosn-
ingunum í vetur fékk hann yfir
50% atkvæða meðal þeirra 80%
kjósenda, sem þá gengu að kjör-
borðinu. Við næstu bæjarstjórnar
kosningar þar á undan hafði hann
fengið um 45% atkvæða.
Sá fiokkur, sem þannig er á
vegi staddur meðal þjóðarinnar
er vissulega ekki „einangraður í
íslenzkum stjórnniálum'“, eins og
vesalings Alþýðublaðið heldur
fram í forystugrein sinni í gær.
Flokkur án fylgis
En Alþýðufiokkurinn er allt
öðru vísi á vegi staddur. Hann á
að vísu fulltrúa í ríkisstjórn og
ótal ráðum og nefndum, sem
vinstri stjórnin er afkastamikil
við að unga út. En meðal þjóð-
arinnar hangir hann á nástrái.
Miðað við úrslit bæjarstjórnar-
kosninganna í vetur myndi hann
hvergi fá mann kosinn hjálpar-
Iaust á þing. Hér í Reykjavík er
fylgi hans komið niður í 2800
atkvæði, sem er f jarri því að duga
til þess að fá einn þingmann kos-
inn hér.
Á ísafirði, þar sem flokkurinn
fékk fyrir örfáum árum á áttunda
hundrað atkvæða er fylgi hans
nú komið niður í um það bil 350
atkvæði, ef miðað er við síðustu
bæjarstjórnarkosningar.
í öðru aðalvígi flokksins,
Hafnarfirði, fær Sjálfstæðisflokk
urinn nú fleiri atkvæði en Al-
þýðuflokkurinn í bæjarstjórnar-
kosningum. í Neskaupstað er Al-
þýðuflokkurinn í heild genginn i
kommúnistaflokkinn, í Kópavogi
fær hann rúm 100 atkvæði, í
Keflavík og Vestmannaeyjum
hefur hann stórtapað fylgi og á
Sauðárkróki hefur hann nærri
þurrkazt út.
Alþýðublaðið á aðeins eina
huggun gegn þessum áföllum:
„Sjálfstæðisflokkurinn er ein-
angraður í íslenzkum stjórnmál-
um“. Þetta er fávísleg huggun, en
það er gott ef hún nægir leiðtog-
um Alþýðuflokksins. Sjálfstæðis-
mönnum finnst það hins vegar
betra hlutskipti að vera í stjórn-
arandstöðu og njóta sívaxandi
trausts og fylgis þjóðarinnar en
að vera í ríkisstjórn, hafa svikið
öll sín loforð og hafa bókstaf-
Iega ekkert fylgi bak við sig. En
það er hið ömurlega hlutskipti
Alþýðuflokksins.
„í r»æstu viku“
Nú er helzt gert ráð fyrir aS
„bjargráð" ríkisstjórnarinnar
verði lögð fyrir Alþingi „í næstu
viku“. Um áramótin var sagt að
þau kæmu fram „að loknum bæj-
arstjórnarkosningum". Síðan var
sagt að þau kæmu „fyrir páska“.
Þar næst voru þau boðuð „strax
eftir páska“. Og nú er rætt um
að þau líti dagsins ljós „í næstu
viku“. Vinstri stjórnin er af-
kastamikil, samhent og skjótráð.
Það má nú segja!!