Morgunblaðið - 10.04.1958, Síða 8
s
MORCVTS BL AÐlb
Fimmtudagtir 10. apríl 1958
Helgi Cunnlaugsson á
Hafursstöðum 70 ára
Á SUMARKVÖLDI fyrir tæp-
um 34 árum, var ég á gangi
í Húsavík og satt að segja í hálf-
gerðir leiðslu yfir fegurð islenzka
jónsmessukvöldsins, þegar allt í
einu vatt sér að mér vörpulegur
ljóshærður Þingeyingur, sagðist
Helgi heita Gunnlaugsson frá
Hafursstöðum í Öxárfirði, vera
trúlofaður ágætri stúlku sem
Kristín héti Gamalíelsdóttir úr
Þistilfirði og nú yrði ég að gefa
þau saman straks, því fagurt væri
veðríð og engan mætti sumar-
daginn missa við nýbyrjaðan bú-
skapinn.
Ég brosti og spurði hvort ekki
mætti dragast til morguns, en þá
tók ungi maðurittn fast í hendina
á mér brosti svo drengilegu og
hýru brosi um leið og hann
mælti: „Kvöldið er svo fallegt,
ég veit að þú gerir þetta fyrir
mig kunningi". Þetta ávarp, eins
fallega og hreinskilningslega og
það var sagt, sló á allan mótþróa
minn og ég gerði auðvitað eins
og um var beðið.
Á þessu tuttugasta og sjöunda
júníkvöldi 1927 hófst kunnings-
skapur okkar Helga, sem síðan
hefir vaxið og orðið að innilegri
vináttu.
Helgi er næstelsti sonur merkis
hjónanna Gunnlaugs Flóvents-
sonar og Jakobínu Sigurjónsdótt-
ur, sem bjuggu á Hafursstöðum
og þar hefir Helgi í hópi góðra
og glaðra systkina alist upp og
orðið svo heillaður af heiðalönd-
unum íslenzku, að hann hefir
lifað alla þá fegurð og yndis-
leik þeirra, sem Jón Trausti lýsir
í inngangi sínum að „Heiðarbýl-
inu“, þarna við dunandi hljóðið
úr Dettifossi og Vígabjargsfossi
orðið svo bergnuminn í jaðri hins
mikla Hólssands í suðri en hjá
bökkum Álftavatnsins í norðri,
að hann hefir aldrei getað hugsað
sér að yfirgefa þessa fögru föður-
leifð sína, þrátt fyrir vetrarríkið
og þrátt fyrir mein, sem hefir
meinað honum um mörg ár að
ganga heill til skógar.
Ekki hefði þó á atvinnunni
þurft að standa fyrir þennan elju
sama völund, því svo er hann
hagur á tré, svo smekklegur í
tréskurði og litavali, að allt verð-
ur fallegt, sem Helgi snertir á.
Hann hefir byggt upp Hafurs-
staði bæði að utan og innan,
hann hefir verið við smíðar ótal
húsa í Öxafirði og víðar í Norð-
ur- Þingeyjarsýslu og síðast en
ekki sízt hefur hann staðið fyrir
byggingu kirkjuturnsins á
Skinnastaðakirkju á 100 ára af-
mæli hennar og þá um leið málað
kirkjuna innan svo sem þurfa
þótti, og ber allt vott um skiln-
ingsríkt og kærleiksríkt verk
listamannsins, sem alla ævi hefir
lifað við Kröpp kjörin heiðarbýl-
isins og aldrei fengið að svala
listhneigð sinni eða til náms sett-
ur.
En þarna í töfrum öræfanna,
sem hann hefir bundið tryggð
við, hefir ágæt kona hans Kristín
Gamalíelsdóttir bundið tryggð
við hann, verið honum stoð og
stytta í stríðu sem blíðu og fjórar
dætur hafa verið foreldrum sín-
um vænar og samhentar í fá-
sinni vetrarríkisins, sem fáir
þekkja, en þar og þá á Helgi líka
annan hauk í horni, sem er systir
hans merkiskonan góða og glað-
væra, frú Halldóra á Ærlæk, sem
aldrei lætur á sér standa, þegar
hægt er að rétta fram hjálpandi
hönd.
Umhyggju Helga og Kristínar,
vináttu þeirra og velvild þekki
ég sérstaklega í breytni þeirra
við dótturson minn ungan, sem
hefir í fjögur sumur verið í orðs-
ins fegurstu og fyllstu merkingu
til fósturs hjá þeim á Hafursstöð-
um og á þaðan aðeins fagrar
endurminningar um fólkið góða,
sem hann var hjá. — Frá hon-
um, móður hans og mér eru í dag
10. apríl sendar hugheilar heilla-
óskir til Kristínar og Helga á
Hafursstöðum á sjötugsafmæli
hans.
Júl. Havsteen.
Til sölu
3 herbergi og eldhús á hæð og eitt herbergi í risi
við Hringbraut. — Nánari upplýsingar gefur:
Málflutningsskrifstofa Einars B. Guðmundssonar,
Guðlaugs Þorlákssonar og Guðmundar Péturssonar,
Aðalstræti 6, III. hæð (Morgunblaðshúsið)
Símar: 1-2002, 1-3202 og 1-3602.
Vandaðar íbuðir til sölu
1 húsinu Álfheimar 34 höfum við til sölu íbúðir á hæð-
um, sem eru 117 ferm. 4 herbergi, eldhús, bað og hall. 1
kjallara fylgir auk þess 1 íbúðarherbergi, sérstök geymsla
eignarhluti í þvottahúsi, þurrkherbergi, barnavagna-
geymslu, og frystigeymslu. Ibúðirnar eru nú tilbúnar und-
ir tréverk og málningu. Þær verða seldar í því ástandi
með múrhúðun utanhúss og sameign fullgerðri. Hægt er
að fá þær lengra komnar eða fullgerðar. Lán á II. veð-
rétti kr. 50 þús. fylgir. I. veðréttur laus fyrir kaupanda.
Eru til sýnis á venjulegum vinnutíma.
Fasteigna & Verðbréfasalan
(Lárus Jóhannesson, hrl.)
Suðurgötu 4, símar: 13294 og 14314.
Upplýsingar eftir kl. 20 í símum 34619, 16649 og 15801.
BOKAÞATTUR:
* Sænska skáldið *
Eyvind Johnson
EYVIND JOHNSON, einn áhrifa
mesti og merkasti nútímarithöf-
undur Svía er væntanlegur hing-
að til lands á sænsku bókasýn-
inguna, er verður opnuð 19. þ. m.
Því miður hafa verk þessa stór-
skálds, sem sæti á í sænsku Aka-
demíunni, ekki verið þýdd á ís-
lenzku, Hann er því ekki þekktur
og metinn að verðleikum hér á
landi, en búast má við, að heim-
sókn hans verði til að kynna ís-
lendingum manninn. Eyvind
Johnson er hinn prýðilegasti
ræðumaður, og munu á næstunni
gefast góð tækifæri til nð njóta
málsnilldar hans og skarp-
skyggni.
Eyvind Johnson er fæddur
aldamótaárið 1900 í Överluleá,
en sá staður er í norðurhluta
Norrlands. Æskuár hans voru við
burðarík. Fjórtán ára gamall fór
hann að heiman frá fósturfor-
eldrum sínum og starfaði um
skeið við timburfleytingar. Síðar
lagði hann stund á ýmis störf:
vann í múrsteinaverksmiðju,
sögunarmyllu, starfaði sem raf-
virkjanemi og sýndi kvikmyndir.
Á þessum tíma voru verkföll tíð
í Svíþjóð, atvinnuleysi mikið og
ókyrrð í mönnum. Þessum minn-
ingum frá næmastai skeiði æv
sinnar hefur Eyvind Johnson lýst
í bókaflokki er nefnist Romanen
om Olof (Skáldsagan um Ólaf).
Bækur þessar, sem eru vinsæl-
ustu rit Eyvinds Johnson, eru að
verulegu leyti ævisaga hans og
eru meðal merkustu þróunar-
skáldsagna Svía á þessari öld.
Menntunarþorsti Eyvinds John-
son var óslökkvandi, og þótt
hann nyti aðeins barnaskóla-
fræðslu þá tókst honum með
sjálfsnámi að verða einn hinna
lærðustu og víðlesnustu rithöf-
unda úr alþýðustétt. Fróðleiks-
fýsn hans knúði hann til langra
utanlandsferða, og hann hefur
dvalizt árum saman í Berlín og
París. Þetta voru erfið ár, og oft
bjó hann við skort. Á þessum ár-
um þroskuðust hæfileikar Ey-
vinds Johnson til ritstarfa, og
voru þá gefnar út fyrstu merku
skáldsögur hans, t. d. Stad í ljus
(Borg í ljósi) og Stad í mörker
(Borg í myrkri). Fyrrnefnda bók
in, sem upphaflega var gefin út
á frönsku, segir frá ungum manni
í París, sem býr við sult og seyru
en bíður eftir ábyrgðarbréfi með
þóknun fyrir fyrstu bók sína.
Síðari bókin lýsir kulda og and-
legri stöðnun í smábæ norður
undir heimskautsbaug. Umhverf-
ið minnir á Boden. Þessar tvær
andstæður, þorpið Boden og
heimsborgin París, eru í raun-
inni táknrænar fyrir tvo megin-
þætti í skáldskaparferli Eyvinds
Johnson. Annars vegar ríkja þar
norrlenzkt þunglyndi og alvara,
er hann lýsir hljóðlátum og inni-
byrgðum sálum í myrkri og
kulda. Hins vegar kemur hin
bjartari hlið Eyvinds Johnson
fram við náin kynni hans af
menningarlífi meginlandsins,
fornum stílbrögðum og nýjum
menningarstraUmum. Nýtur sín
þar glettni hans og skýrleiki.
Eyvind Johuson
Meðan Eyvind Johnson dvald-
ist erlendis, kynntist hann nýjum
stefnum í bókmenntum og sálar-
fræði. Meðal rithöfunda, er hann
kynnti sér, má nefna Gide, Joyce
og D. H. Lawrence. Hugsjónir
þeirra og frásöguhátt tók hann
upp, en gaf þeim um leið sinn
persónulega biæ. Eyvind Johnson
er einnig með fyrstu sænsku rit-
höfundunum, er tóku sálgreining
arstefnu Freuds í þjónustu skáld
skaparins, Með nýjum og skýrum
hugmyndum og frumlegum frá-
sagnarstil hefur Eyvind Johnson
haft feikileg áhrif á nútímamenn
ingu Svía. Ekki sízt sem fyrir-
mynd margra yngri rithöfunda,
enda eru það áhrif beztu erlendra
bókmennta, sem gætir í ritum
hans. Enda þótt Eyvind Johnson
sé einn þeirra manna, sem alltaf
stendur styr um og þó að hann
reyni aldrei að þóknast lesend-
um sínum, hafa vinsældir habs
farið sívaxandi.
Þjóðskáld varð Eyvind John-
son þó fyrst við útgáfu bóka-
flokksins Romanen om Olof. Það
ritverk skipaði honum á bekk
með fremstu skáldsagnahöfund-
um Svia á þessari öld. í þessum
bókum er frásögnin hraðari og
jafnari en í íyrri bókum hans
þar sem rökræður bera stundum
söguþráðinn ofurliði. Bókaflokk-
urinn um Ólaf er ritaður í ein-
földum og gagnyrtum stíl en í
alvörunni bregður víða _ fyrir
sjálfhæðni. Unglingurinn Ólafur
nær tökum á lesendum þegar í
upphafi og heldur þeim til loka
hins langa bókaflokks, sem einn-
ig er merkileg heimild um við-
burðaríkt tímabil í sögu sænska
þjóðfélagsins. Jafnframt er hér
lýst á ógleymanlegan hátt þróun-
arsögu fróleiksfúss unglings.
Er síðasta bindi ritsafnsins um
Ólaf kom út, hafði blikur dregið
á loft, nazismi og fasismi náðu
æ meiri völdum, og á Spáni
hafði um hríð geisað borgara-
styrjöld. Eyvind Johnson hafði
alltaf fylgzt með atburðum líð-
andi stundar og verið andvígur
hvers konar ofbeldi. Það var því
eðlilegt að hann andmælti yfir-
gangsstefnunum. Þetta kemur
fram í skáldsögunum Nattövning
(Heræfing að nóttu) 1938 og Sold
atens áterkomst (Hermaður snýr
heim) 1940. Athyglisverðust
þeirra bóka er sýna baráttu
skáldsins í þágu mannkynsins er
þó bókaflokkurinn mikli um Kril
on fasteignasala og vini hans
(1940—45). Hér er viðfangsefnið
— andstæðan einræði : lýðræði
— fært á persónulegt svið. Til-
gangurinn og ádeilan er þó aug-
Ijós. Krilon lýsir skoðunum sín-
um þannig: „Frjálsar umræður
eru merkasta aðferðin sem mann
kynið hefur fundið upp, og ég
trúi á þær“ Að láta allar skoðan-
ir njóta sín einkennir ritverk Ey-
vinds Johnson. Hann er umburð-
arlyndur og hefur yndi af rök-
ræðum. í mörgum eldri bókum
hans er varpað fram svo mörgum
og skynsamlegum skoðunum að
erfitt er að átta sig á því hvaða
málstað höfundurinn sjálfur
fylgi. En þegar aðalatriðið, mál-
frelsið, er í hættu, þarf enginn að
vera í vafa um skoðanir Eyvinds
Johnson.
Eftir stríðið hefur Eyvind
Johnson leitað nýrra leiða í skáld
skap sínum, bæði að .efnisvali og
stíl. Hann er einn þeirra rithöf-
unda, sem aldrei eru í rónni, en
alltaf þurfa að leita að einhverju
nýju. Bókin Strándernas svall
(Sævarhljóð) sem ort er upp úr
Odysseifskviðu, varð mjög vin-
sæl. í henni sýnir hann grísku
hetjurnar í ljósi nútíma sálar-
fræði. Reynir hann með því að
draga upp sannari mynd af
mannseðlinu en hetjukvæðin
sýna. Á síðari árum hefur Eyvnd
Johson enn fært út kvíarnar um
efnisval, meðal annars skrifað
ágæta skáldsögu um galdraof-
sóknir í Frakklandi á miðöldum,
Drömmar om rosor och eld
(Draumur um rósir og eld). Þessi
bók er táknræn eins og önnur
rit Eyvinds Johnson og á brýnt
erindi til nútímamanna.
Síðasta bók Eyvinds, Johnson
er Molnen över Metapontion
(Ský yfir Metapontion) en hún
kom út 1957. Molnen över Meta-
pontion er yfirgripsmikil frásögn,
er gerist í Hellas, S.-Ítalíu for-
tíðarinnar og einnig í Evrópu nú-
tímans. Þessi bók segir frá mann-
legum kjörum og listinni að lifa
af allar hörmungar. Það má að
vísu segja að ritverk Eyvinds
Johnson fjalli öll um þetta efni.
Norrlendingurinn sjálfmenntaði
er orðinn einn mesti húmanisti
sænskra nútímabókmennta, for-
vígismaður vestrænnar menning-
ar og einstaklingsréttinda. Það er
þetta, sem veldur því, að Ey-
vind Johnson getur komið jafn-
auðveldlega fram á hinum ólík-
ustu sviðum, í Norrlandi og
Stokkhólmi nútímans, í Frakk-
landi miðaldanna og Grikklandi
fornaldarinnar. Umhverfið er
baksvið persónanna í smæð
þeirra eða mikilleik, en maður-
inn og vandamál hans eru söm á
öllum öldum.
Áður var rætt um Krilon fast-
eignasala, sem er aðalpersónan
í einum af merkustu ritverkum
Eyvinds Johnson. Orðið Krilon
er myndað af nöfnunum Krist og
Platon. Andlegs skyldleika Ey-
vinds við Sokrates og Platon
kennir víða í ritum hans, og þótt
lifsskoðun Eyvinds sé fjarlæg
kristindómi, verður skáldskapar-
stefnu hans ef til vill bezt lýst
með orðunum: Ecce homo, Sjáið
þið manninn. B. A.
Clœsilegt einbýlishús
Glæsilegt nýtízku einbýlishús, sem er 2 hæðir og lítið
niðurgrafinn kjallari, á góðum stað í Austurbænum til
sölu. Á neðri hæð eru 2 stofur, hall með gluggum og eld-
hús. Á efri hæð eru 4 herbergi og bað. I kjallara 3 her-
bergja íbúð. Góður bílskúr og ræktuð lóð með fallegum
trjám. Flatarmál hússins er 80 fermetrar. Skipti á nýtízku
4—5 herbergja íbúðarhæð (efri hæð) ásamt rúmgóðu
íbúðarrisi koma til greina.
STEINN JÓNSSON, hdl.
lögfræðiskrifstofa — fasteignasala
. urkjuhvoli, símar: 14951 og 19090.