Morgunblaðið - 10.04.1958, Side 10
10
MORC.UmtT AÐIÐ
Fimmtudagur 10. apríl 1958
tltg.: H.í. Arvakur, Reykjavlk.
Framkvæindastjóri: bigfus Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson,
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045
Augiýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480
Asknftargjalo kr. 30.00 á mánuði ínnaniands.
t lausasölu kr. 1.50 eintakið.
HOTANIR BER AÐ HAFA AÐ ENGU
FÁ A R þjóðir eru vinsælli
eða meira virtar á íslandi
en Bretar .Þegar svo er
mælt, þá eru það ekki orðin tóm,
heldur stutt af ítrekaðri reynslu.
Þegar Bretar komu hingað í
maí 1940, voru þeir óboðnir og
fjarri fór að allir landsmenn
skildu nauðsyn hingaðkomu
þeirra. Þess er því hollt að minn-
ast, að aldrei urðu Bretar fyrir
neinum óskunda hvað þá skemmd
arverkum af hálfu almennings.
Og þegar þeir hurfu úr landi að
ófriðarlokum, viðurkenndu flest-
ir, að Bretar hefðu betur skilið
hernaðarþýðingu landsins en ís-
lendingar sjálfir og þeir hefðu
sízt komið hingað að ófyrirsynju.
Traust á Bretum og góðar tillögur
þeirra áttu og sinn þátt í því, að
íslendingar gerðust aðilar Atlants
hafsbandalagsins skömmu síðar.
Enn reyndi á hug íslendinga til
Breta, þegar útgerðarmenn þar í
landi settu á löndunarbannið til
að hefnast á íslendingum fyrir
að neyta réttar síns um friðun
fiskimiða. fslendingar töldu og
telja enn, að brezk stjórnvöld
hafi haft bæði rétt og skyldu til
að koma í veg fyrir þær hefnd-
arráðstafanir. Varð og raunin sú,
að þegar þau létu málið til sín
taka af alvöru, var banninu af-
létt. En þrátt fyrir það sambland
yfirgangs og skeytingarleysis,
sem á þeim árum lýsti sér í at-
höfnum Breta, högguðust vin-
sældir þeirra furðanlega lítið hér
á landi. íslendingar létu sér
nægja að sýna, að þeir gætu ver-
ið án markaðs í Bretlandi, og
vöktu athygli á málinu á alþjóða-
vettvangi með þeim hætti, að
málið allt varð Bretum til meiri
óþurftar en'íslendingum.
Svo er nú að sjá sem brezkir
útgerðarmenn hugsi sér til
hreyfings um hótanir í garð ís-
lendinga til að hindra á þann veg
nýja stækkun fiskveiði-landhelg-
innar. Á íslandi hefur það aldrei
þótt til heilla að höggva oft í
sama knérunn. Skiljanlegt er, að
Bretar uni því ekki, að íslend-
ingar brjóti á þeim lög í þessum
efnum. Hingað til hefur þess
vandlega verið gætt af hálfu ís-
lendinga að forðast slíkt. Málið
hefur einmitt verið betur undir-
búið en flest önnur, og fulls sam-
hengis gætt í meðferð þess frá
því, að undirbúningur var fyrst
hafinn fyrir meira en 10 árum.
Vonandi tekst enn svo til, að
allar okkar framkvæmdir í þess-
um efnum standist. Svo langt
verði farið sem lög frekast leyfa
en lengra ekki. Hingað til hefur
þróun málanna á alþjóðavett-
vangi verið okkur mjög í vil og
er mikið undir því komið að nota
sér þá þróun til hins ýtrasta og
misstíga sig hvergi.
Hitt er víst, að hótanir, hvað-
an sem þær koma, munu hafa
alveg öfug áhrif við það, sem
upphafsmenn þeirra ætla. Nú sem
fyrr mun sannast, að ofbeldi í
þessu verður aðeins efni til nýs
ósigurs fyrir þá, sem það hafa í
frammi.
HVENÆR LYKUR LEYNDINNI ?
1-^ K K 1 bólar enn á hinum
j „varanlegu úrræðum í
-A efnahagsmálunum",
„þriðju leiðinni" eða hverju
nafni, sem stjórnarliðar hyggjast
kalla snjallræði sín, þegar þau
loksins koma. Fullyrt er þó, að
úrræðin séu nú í burðarliðnum,
og þeirra sé að vænta eftir næstu
helgi í síðasta lagi. Má og ekki
seinna vera, því að um er að ræða
tillögur, sem að réttu lagi hefðu
átt að liggja fyrir jafnskjótt og
frumvarp til fjárlaga var lagt
fram á Alþingi í október sl: Eins
og fjárlagafrumvarpið var þá og
það síðan var gert að lögum um
jólaleytið, var það ekki nema hálf
karað verk, botnlaust, ef svo má
segja.
í Tímanum í gær er rætt af
meiri hógværð og skynsemi um
þessi mál en um langa hrið hefur
sézt í því blaði. Vonandi veit það
á gott og reynist ekki fyrirslátt-
ur einn. Þar er tekið undir og
samþykkt meginefni þess sem um
þessi efni var sagt í Reykjavík-
urbréfi hér í blaðinu sl. skírdag.
Voru þar rifjuð upp þau sann-
indi, sem Sjálfstæðismenn og
Morgunblaðið nú hafa flutt fyr-
ir mönnum árum saman. Hér skal
að því einu vikið, að Tíminn
segir það „vissulega satt“, er
hermir í þessum orðum Reykja-
víkurbréfsins:
„Hér sem ella er þekking og
fræðsla undirstaða þess, að við
vandann verði ráðið, og frum-
skilyrði umbóta er að leggja mál-
in afdráttarlaust fyrir almenn-
ing, svo að hann geti sjálfur
gert upp sinn hug.“
UTAN UR HEIMI
Judy Garland fallandi stjarna
EIN af stærri „stjörnunum“ í
Hollywood er nú að slokkna. Það
er Judy Garland, sem eitt sinn
bar höfuð og herðar yfir kyn-
systur sínar í kvikmyndaborginni.
Um tíma hvarf hún af sjónar-
sviðinu og svo virtist sem hún
hefði sungið sitt síðasta lag, en
skyndilega skaut henni upp aft-
ur — og endurkoma hennar á
kvikmyndatjaldið var með mikl-
um glæsibrag . . . í kvikmynd-
inni „A star is borne“, sem sýnd
var hérlendis fyrir skemmstu. En
nú virðist Judy Garland hafa dal-
að svo mjög að vafasamt þykir að
hún eigi viðreisnarvon.
Ef Tíminn í raun og veru er
sammála því, sem þarna segir,
þá hlutast hann væntanlega til
um, að tafarlaust verði birtar þær
sérfræðingaskýrslur, sem fyrir
hendi eru og væntanlega geta
orðið til verulegrar leiðbeiningar
um lausn málsins.
Má þar til nefna skýrslu hinna
erlendu sérfræðinga frá haust-
inu 1956, úttektina, sem þá var
heitið að fram skyldi fara í al-
og endurfæddist í rauninni sjáif
í heim kvikmyndanna með þeirri
mynd, virðist nú ekki eiga aftur-
kvæmt á kvikmyndatjaldið — a.
m. k. ekki í veigamiklum hlut-
verkum. Nánustu vinir nermar
segja: Það eru ekki peningarnir,
sem valdið hafa vandræðunum.
Þegar henni tekst vel upp, þá er
hún frábær. Þegar hún er eitt-
hvað miður sín hleypur hún eins
og hrædd hind út af sviðinu.
Saga Judy Garland er dæmigerð
mannleg harmasaga.
Judy Garland fellur nú í áliti
— bæði hjá skattheimtunni og
kvikmyndahússgestum.
Það var fyrir nokkrum dögum,
er hún kom fram í „Town and
Country Club“, næturklúbbi ein-
um í New York, að hún afhjúp-
aði vandræði sín. Hún kom þar
fram og söng, en þegar hún hafði
lokið fyrsta laginu brast hún í
grát og hrópaði: „Ég get ekki
meir .... það er búið að segja
mér upp“ — svo hljóp hún út
af sviðinu og lokaði sig inni í
búningsherbergi sínu — hágrát-
andi.
Um leið og „stjörnuhrapið"
varð lýðum ljóst komu fulltrú-
ar skattheimtunnar á vettvang —
og voru ekki seinir á sér. Hófust
nú viðræður með skattheimtu-
mönnum annars vegar og síðasta
eiginmanni Judy Garland, Sid
Luft, og eiganda næturklúbbsins
hins vegar um það hve Judy
Garland hefði greitt mikið af
skatti sínum — og hve mikið
væri enn ógreitt. Að loknum þess
þjóðar augsýn, og séifiæðinga- : um vigrægum átti eigandi nætur-
skýrslurnar frá því í vetur. | klúbbsins> Maksik> tal við blaða-
Þegar Sjálfstæðismenn undir- (menn og saggi: nHún hefði
bjuggu lausn tilsvarandi vanda, • ekki átt að koma fram, hún var
um áramótin 1949—50 og voru mjög sjúk. Hún býr yfir gáfum
einir í ríkisstjórn, létu þeir hinum , til þess ag vinna sér inn milljónir
lýðræðisflokkunum tillögur og
greinargerðir jafnskjótt í té og
til voru. Ef þær skýrslur og til-
lögur, sem nú eru fyrir hendi,
eru ekki þess eðlis, að henta þyki
að birta þær opinberlega, væri
ráð að leggja þær fyrir alþingis-
menn sem trúnaðarmál. Meðan
svo er ekki gert, þá sýna stjórn-
arliðar, að þeir vilja enga sam-
vinnu um þessi mál hafa við
Sjálfstæðismenn né æskja leið-
beininga þeirra, sem þeir þó í
öðru orðinu kvarta yfir, að ekki
séu fyrir hendi.
Umfram allt er þó ljóst, að fá-
sinna er að láta svo sem farið sé
eftir óskum verkalýðsfélaganna
og annarra stéttasamtaka í land-
inu um lausn mála, ef hinum
mikilsverðustu gögnum er haldið
leyndum fyrir almenningi. En
hingað til hafa stjórnarliðar ver-
ið sammála um það eitt í undir-
A Rainier Jannhvassa tengdamömmu ?
ÞÆR fregnir hafa flogið, að
Rainier fursti í Monaco hugleiði
nú mjög hvort hann eigi að skipta
um nafnbót — og gerast konung-
ur. Sem kunnugt er hefur Grace
nýlega alið manni sínum son —
og fullvíst er talið, að sú fæðing
hafi ekki hvað sízt orðið Rainier
hvatning til þess að ríða á vaðið
og „hækka“ sjálfan sig í tign.
Gárungarnir halda því fram, að
það sé hins vegar tengdamóðir
hans, sem hvað mest hefur rekið
á eftir honum og vill áköf verða
„konungstengdamóðir". I erlend-
um blöðum segir, að gamla kon-
an, sem býr í Philadelphia, sé
mjög metnaðargjörn. Hafi hún
mörg undanfarin ár barizt þrot-
lausri baráttu fyrir því að kom-
ast a blað í The Social Register,
sem er eins konar skrá yfir heldri
menn og auðjöfra Bandaríkjanna.
Hingað til hafa allar tilraunir mis
heppnazt, en áreiðanlegt má telja
að tengdamóðirin komist ofar-
lega á blað, ef Rainier gerist kon-
ungur.
Annars má telja það til tíðinda,
að Grace er byrjuð að undir-
búa sig undir kvikmyndaleikinn
að nýju. Að vísu verður það ekki
Hollywood-mynd að þessu sinni,
en hún á að fara með aSalhlut- trú.
verkið í trúarlegri kvikmynd um
dýrlinginn Gracia Patricia. Kvik-
myndin verður gerð í samráði við
kaþólsku kirkjuna — og hefur
hans heilagleiki, páfinn, lagt
blessun yfir starfið, því að sjálf-
ur hefur hann mikinn áhuga á
Langar hann til þess að verða
konungur?
kvikmyndum og telur kvikmynda
tæknina geta orðið mjög að liði
við að útbreiða og efla kristna
Dulles þófti gaman að óeirðum
Dulles þekkir stúdentana.
DULLES utanríkisráðherra
Bandaríkjanna ræddi við frétta-
menn á dögunum — sem oft áð-
ur. Beindist talið að fjöldafund-
um stúdenta í Indonesiu þar sem
þeir létu í ljós andúð sína á
Bandaríkjamönnum. Dulles sagð-
ist ekki hafa neinar áhyggjur af
ópum stúdenta. — „Ég tek ekki
allt of mikið mark á stúdenta-
óeirðunum. Ég man að þegar ég
var stúdent við Sorbonne í París
(1908—09) tók ég venjulega þátt
í óeirðum stúdenta . . . . og ég
man ekki lengur hvorum megin
við stóðum. Á þessu sjáið þið, að
stúdentar efna til óeirða — aðeins
af því að þeim þykir gaman að
því“.
á ári, en í sannleika sagt, þá a
hún ekki grænan skilding . . .“
Næsta dag sendi skattheimtan
lögreglubíl eftir henni þar eð
gefin hafði verið út handtöku-
skipun. Ástæðan var sú, að hún
skuldaði skattheimtunni enn
8,637 dollara. Hún lýsti því yfir,
að hún ætti ekki fé til þess að
greiða skuldina, en kvaðst hins
vegar fús til þess að láta skraut
muni ýmsa að veði fyrir greiðsl-
unni. Skattheimtumenn bentu á
það, að samkv. viðtali við eig-
anda næturklúbbsins ætti hún
enn hjá honum litla fjárhæð,
sem hún gæti a.m.k. látið renna
upp í skuldina. Judy Garland
skýrði þá svo frá því, að þessum
peningum yrði hún að verja til
matarkaupa, ef börnin hennar
þrjú ættu ekki að svelta í hel
Var það látið gott heita.
Judy Garland, sem sigraði
búningi málsins að hafa sem hjörtu kvikmyndahússgesta svo
mesta leynd á öllu, sem máli eftirminnilega með leik sínum í
skiptir. i kvikmyndinni „A star is born“ —
Það þótti 1 frásögur færandi í Bretlandi á dögunum, er námu-
verkamaður einn, Thomas Riley að nafni, vann 209,079 sterl-
ingspund i knattspyrnugetraun. Hann hafði ekki greitt nema
tæpa tvo shillinga fyrir getraunaseðilinn. Hann ákvað þegar
að fara vestur um haf í heimsókn tii ættingja sinna þar — og
leyfði allri fjölskyldunni að fljóta með. Hér er sá heppni með
konu sinni.