Morgunblaðið - 10.04.1958, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 10. apríl 1958
MORGVNBLAÐIÐ
13
sömu tök á mannafundum hin
síðari ár þingtíma sins og hann
hafði áður haft, er honum reynd-
ist flestum auðveldara að sann-
íæra áheyrendur um sitt mál.
Magnús var frumkvöðull sam-
taka Sjálfstæðismanna í Reykja-
vík, stofnandi og fyrsti formaður
Varðarfélagsins og drýgsti ræðu-
maður á félagsfundum langa
lengi. Stóð svo fram að átökun-
um, sem urðu um myndun þjóð-
stjórnarinnar 1939. Magnús var
henni eindregið fylgjandi en
margir, ef ekki flestir, flokks-
menn í Reykjavík mjög andsnún-
ir. Magnús lét það ekki á sig fá
og fór sínu fram, svo sem forustu
manni sæmdi, en afstaða hans þá
var erfð við hann öðrum fremur.
Gætti þess nokkuð við undir-
búning kosninganna 1942. Þá
hafði Magnús tekið forystu og
beitti sér manna mest fyrir því
innan þingflokksins, að kjör-
dæmamálið var tekið til af-
greiðslu. Hann var ráðherra í
fyrstu stjórn Ólafs Thors, og fór
víða um landið til fundahalda og
reyndist enn sem fyrr hinn skel-
eggasti málsvari nauðsynlegra
réttarbóta í innanlandsmálum og
sóknar til fulls sjálfstæðis út á
við.
Stjórnarferli Magnúsar lauk
með því að utanþingsstjórnin var
mynduð mjög gegn ráðum Sjálf-
stæðisflokksins. Síðan tók ný-
sköþunarstjórnin við og var
Magnús eindreginn stuðnings-
maður hennar, en þegar leið að
kosningum 1946 aftók hann með
öllu að vera oftar í framboði.
Á nsesta ári var lögboðin stofn-
un Fjárhagsráðs og kom í hlut
tSjálfstæðismanna að benda á for-
mann þess, þó að sjálfsögðu með
samþykki samstarfsflokkanna, er
þá voru Alþýðuflokkur og Fram-
sókn. Varð þá að ráði að leita
til Magnúsar og tók hann starfið
að sér. Magnús hafði manna
lengst barizt fyrir frjálsræði í
athöfnum og einarðlega sýnt
fram á galla áætlunarbúskapar.
Hefði því mátt ætla, að þeir, sem
voru þessa fyrirkomulags meira
fýsandi en við Sjálfstæðismenn,
bæru takmarkað traust til Magn-
úsar um framkvæmd hinnar nýju
skipunar. En allir treystu rétt-
sýni hans og vilja til að bregðast
í engu þeim trúnaði, er honum
var sýndur.
Svo sem vænta mátti gekk
Magnús að þessu starfi laus við
alla kreddufestu og taldi sig þai
óbundinn flokkum og sérsjónar-
miðum. Oðru hverju fann hann
þó að því, að við, sem kallað
höfðum hann til starfsins, stæð-
um ekki nógu fast með honum í
vanda þeim, er á hann var lagður
eða þegar honum þótti hann fá
ómaklegar bakslettur. En við
töldum það hvorki okkar sök né
hans, að verkefnið sjálft reynd-
ist óleysanlegt, þótt sjálfsagt
væri að reyna að ráða fram úr
því af heilum hug, svo sem við
allir vildum. Veit ég nú eftir á
engan íslending, er betur hefði
ráðið við þennan vanda, en Magn
ús.
Þegar Magnús hvarf úr Fjár-
hagsráði hóf hann rannsóknir sín
ar á landshöfðingjatímabilinu,
sem hann lauk að skrifa um í
banalegunni. Fyrri hluti þess
verks kom út nú fyrir jólin og er
þegar sýnt, að það verður höf-
undi sínum til mikils sóma.
Samhliða þessu gegndi Magnús
fram á síðasta ár formennsku í
útvarpsráði og bankaráði Lands-
bankans. Að sálfsögðu fylgdi
ærið ónæði hvoru starfi um sig,
en smáræði var það þó miðað við
störf Magnúsar áður fyrri, þegar
hann stóð í miðri orrahríð stjórn-
málanna.
Þá bætti hann því oft ofan á
önnur verk að skrifa t. d. fyrir
kosningar mikið af því, sem í
Morgunblaðið var ritað um
stjórnmál. Á blaðið fáum mönn-
um meira upp að inna en honum
fyrir að vera ætíð reiðubúinn að
hlaupa undir bagga, þegar á
þurfti að halda.
Hin síðari ár voru annirnar
sem sagt minni en áður og starfs-
hugurinn þó sá sami. Hugð-
arefnin voru ætíð ærin og gaman
við hann að ræða. í viðræður við
Magnús Jónsson var ekki einung
is að sækja ánægju heldur fróð-
leik um margháttuð efni. Eitt gat
hann þó aldrei skýrt. til hlítar:
Það með hverjum hætti hann
fengi komið í verk öllu, sem hann
afrekaði um dagana. En þeirra
afreka mun lengi minnzt í sögu
íslenzku þjóðarinnar.
Bjarni Benediktsson.
Félagslíf
K.R. —— Knatlspyrnumenn
Meistaraflokkur: Útiæfing verð
ur í kvöld kl. 8 í félagsheimilinu.
Rabbfundur verður á eftir.
Þjáifarinn.
Handknallleiksnióti IFRN
lýkur fimmtudaginn 10. apríl _
kl. 2 í íþróttaheimili K.R., við
Kaplaskjólsveg. Þá leika saman (
1. fl. karla. — Háskólinn—Iðnskól
inn, úrslit. — Mótslit.
— Nefndin.
Knattspyrnufélagið VALUR
3. fl. æfing í kvöld kl. 6,30. —
Fjölmennið og mætið réttstundis.
— Þjálfari.
HÖRÐUR Ö» AFSSON
niáiflutningsskrifstofa.
Löggiltur dómtúlkur og skjal-
þýðandi í ensku. — Austurstræti
Iðnaðarhúsnæði
jarðhæð til leigu, rúmir 100 ferm. mikil lofthæð,
innkeyrsla góð. Tilboð leggist inn á afgreiðslu
blaðsins fyrir 20. apríl merkt:
Iðnaðarhúsnæði — 8428.
Atvinna
Þrifinn og reglusamur eldri maður óskast til þess
að taka til og þrífa á vinnustofum; vélaáhugi æski-
legur. Umsóknir sendist Morgunblaðinu fyrir 20.
þ.m. merkt: „Reglusamur — 8440“
Fiskihátar til sö'lu
Skógrækt ríkisins
Verð á trjáplöntum vorið 1958
Skógarplontur
Birki 3/0 pr. 1000 stk. kr. 500.00
Birki 2/2 — — — — 1.000.00
Skógarfura 3/0 — — — — 500.00
Skógarfura 2/2 — — — — 800.00
Rauðgreni 2/2 — — — — 1.500.00
Blágreni 2/2 — — — — 1.500.00
Hvítgreni 2/2 — — — — 2.000.00
Sitkagreni 2/2 — — — — 2.000.00
Garðplóntur
Birki, 50—75 cm pr. stk. kr. 15.00
Birki, undir 50 cm. — — — 10.00
Birki, í limgerði — — — 3.00
Reynir, yfir 75 cm. — — — 25:00
Reynir, 50—75 cm — — — 15.00
Reynir, undir 50 cm. — — — 10.00
Álmur, 50—75 cm. — — — 15.00
Alaskaösp yfir 75 cm. — — — 15.00
Alaskaösp, 50—75 cm. — — —- 10.00
Sitkagreni 2/3 — — — 15.00
Sitkagreni 2/2 — — — 10.00
Sitkabastarður 2/2 — — — 10.00
Hvítgreni 2/2 — — — 10.00
Blágreni 3/3 — — — 20.00
Itunnar
Þingvíðir pr. stk. kr. 5.00
Gulvíðir — — — 4.00
Ribs — — — 10.00
Sólber — — — 10.00
Ýmsir runnar kr. 10.00—15.00
Skriflegar pantanir sendist fyrir 1. maí 1958, Skógrækt
ríkisins, Grettisgötu 8 eða skógarvörðunum, Daníel Krist-
jánssyni, Hreðavatni, Borgarfirði; Sigurði Jónassyni,
Laugabrekku, Skagafirði; Ármanni Dalmannssyni, Ak-
ureyri; ísleifi Sumarliðasyni, Vöglum, Fnjóskadal; Sig-
urði Blöndal, Hallormsstað og Garðari Jónssyni, Tuma-
stöðum, Fljótshlíð. — Skógræktarfélögin taka einnig á
móti pöntunum og sjá flest um dreifingu þeirra til ein-
staklinga á félagssvæðum sínum.
RAGNAR JÓNSSON
liæstaréttarlognmður.
Laugaveg, 8. — Sími 17762.
l.ögfræóistörf. — Eignaumsýsla.
Gísli Einarsson
héraðsdoinslögnta Jur.
Málflutniugsskrifstofa.
Laugavegi 20B. — Sími 19631.
Stærð 115x23x12 fet, 200 brutto, 320/400 ha. dieselvél. Allt
nýtt i desember 1957. Nýtízku stýris- og frystiútbúnaður til
úthafsveiða. Útbúnaður til herpinóta- og veiða á Grænlands-
miðum. — Ennfremur hef ég nokkra fiskibáta til úthafs-
veiða af mörgum stærðum, hentugir til togveiða. Smíðaðir
á síðustu árum. — Skútur og seglbáta 60—80 fet.
OLAF HOLAND
skipamiðlari, Aalesund, Noregi.
Símnefni: Kystfart. Sími 1036.
Sérgr.: Kaup og sala. Samningar. j
Kaupum hreinar
léreftstuskur
Prentsmiðja
§MTU
16710
16710
K. J. kvintettinn.
Dansleikur
í kvöld kl. 9
Aðgöngumiðasala frá kl. 8.
Margrét
uunnar
Songvarar
Margrét Ólafsdóttir og Gunnar Ingólfsson.
Vetrargarðurinn. ♦
AliSTRIÐ. VESTRIÐ - BARÁTTAIM
Avarp:
Gunnar
Gunnarsson
Ræbur:
FRODE JAKOBSEN
ÁKI JAKOBSSON
IJtVI MAIMNSSÁLIIMA
Almennur fundur í Gamla bíói
í kvöld klukkan 9.
Aðgangur ókeypis.