Morgunblaðið - 10.04.1958, Blaðsíða 19
Fimmfudagur 10. apríl 1958
MORCVNBI. AÐIÐ
19
Um 800 í Starfsmanna-
félagi Reykjavíkurbœjar
AÐALFUNDUR Starfsmannafél-
lags Reykjavíkurbæjar var hald
inn í Tjarnarcafé mánudaginn
24. marz sl.
Fráfarandi formaður félagsins,
Þórður Ág. Þórðarson, flutti
skýrslu urh störf stjórnar og full-
trúaráðs á liðnu starfsári.
Launa- og kjaramál félags-
manna voru, sem fyrr, aðalvið-
fangsefnið. Á sl. ári samþykkti
bæjarstjórn Reykjavíkur reglu-
gerð um laun og kjör fastra
slarfsmanna bæjarins.
Félagið fær nú, með leyfi bæj
arráðs, afnot af sal og fundaher-
bergi í Skúlatúni 2, til starfsemi
sinnar.
Félagsmenn gróðursettu á s.l.
vori þrjú þúsund trjáplöntur í
reit sinn í Heiðmörk.
Á liðnu ári var í fyrsta sinn
veittur utanfararstyrkur úr
Menningar- og kynningarsjóði, er
stofnaður var á 30 ára afmæli
félagsins 17. jan. 1956. Umsækj-
endur voru fjórir og hlutu þeir
tvö þúsund krónur hver.
Úr styrktarsjóði voru veittar
ellefu þúsund krónur, er skipt
var milli fjögurra félagsmanna,
sem orðið höfðu fyrir veikindum
og brunatjóni.
Reikningar St. Rv. höfðu verið
prentaðir og sendir félagsmönn-
um fyrir aðalfund, voru þeir
samþykktir athugasemdalaust.
Fjárhagur féiagsins er góður. Fé-
lagatalan er nú um 800.
Á aðalfundinum fór fram kosn
Háskólafyrirlesfur
SÆNSKI sendikennarinn, Bo
Almquist, fil. mag., flytur fyrir-
lestur, er hann nefnir Ormur
rauði og íslendingasögurnar, í
háskólanum föstud. 11. apríl.
Bókmenntir Svía hafa frá
fornu fari orðið fyrir miklum
áhrifum frá íslenzkum fornbók-
menntum, sem Friðþjófs saga
Tegnérs og Fólkungatréð eftir
Heidenstam bera ljósan vott um.
Sú bók um víkingaaldarefni, sem
að vinsældum jafnast við fyrri
vinsældir Friðþjófs sögu, er Orm
ur rauði eftir Frans G. Bengts-
son. Hún heíur verið þýdd á
mörg mál, þar á meðal íslenzku.
Frans G. Bengtsson var manna
fróðastur um norræn efni. Um
meðferð hans á forníslenzkum
fyrirmyndum verður fjallað í
fyrirlestri sendikennarans.
Fyrirlesturinn, sem verður
fluttur á sænsku, hefst kl. 8,30
e.h. í I. kennslustofu háskólans.
Öllum er heimill aðgangur.
ing 17 fulltrúa á þing B. S. R. B.
Allsherjaratkvæðagreiðsla um
stjórnarkjör fór fram í félaginu
dagana 9. og 10. marz s.l.
Úr stjórn áttu að ganga Þórð-
ur Ág. Þórðarson, form., Júlíus
Björnsson, varaform,, Kristín
Þorláksdóttir, ritari og Haukur
Eyjólfsson, bréfritari. Voru þau
öll endurkjörin.
Fyrir voru í stjórn: Georg
Þorsteinsson, Gunnar Gíslason
og Ragnar Þorgrímsson.
Þórður Ág. Þórðarson, er gegnt
hefur formennsku í félaginu s.l.
7 ár, baðst undan formannskjöri.
Júlíus Björnsson, umsjónar-
maður hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, var kjörinn for-
maður.
í varastjórn voru kosnir:
Bjarni Bjarnason, Hákon Þor-
kelsson og Sig. Gunnar Sigurðs-
son.
Stjórnin hefur skipt með sér
verkum þannig:
Varaformaður er Ragnar Þor-
grímsson, ritari Kristín Þorláks-
dóttir, gjaldkeri Georg Þorsteins-
son, bréfritari Haukur Eyjólfs-
son, fjármálaritari, Þórður Ág.
Þórðarson og spjaldskrárritari
Gunnar Gíslason.
Sainaði 123 nýjum
íélögum
HAFNARFIRÐI. — Fyrir nokkru
var haldinn aðalfundur slysa-
varnadeildarinnar Fiskaklettis.
Stjórnina skipa nú séra Garðar
Þorsteinsson prófastur, formað-
ur, Jón Halldórsson ritari og
Sieingrímur Atlason gjaldkeri.
Þeir Haraldur Kristjánsson og
Þorbjörn Eyjólfsson voru kosnir
til að veita björgunarsveit deild-
arinnar forstöðu. Einnig voru
kosnir 8 fulltrúar á ársþing SVFÍ
er hefst 24. apríl.
Nú eru félagsmenn í Fiska-
kletti 614, og þar af hefir frú
Guðrún Eiríksdóttir safnað 123,
sem verður að teljast mjög vel
af sér vikið. Hefir hún af dugn-
aði miklum og þrautseigju unnið
af hendi þýðingarmikið starf, er
seint verður fullþakkað. — Tekj-
ur deildarinnar námu rúmum 12
þúsund krónum á sl. ári.
Samþykkt var á fundinum að
skora á viðkomandi aðila, að
komið yrði fyrir neyðarsíma á
syðri háfnargarðinum, sem hefði
beint samband við slökkvistöð-
ina. Einnig var rætt um nauðsyn
þá að lagfæra stigana á bryggj-
unum, svo og ýmislegt annað, er
varðar slysavarnir við höfnina.
— G.E.
Þökkum hlýjar kveðjur og góðar gjafir í tilefni sextugs-
afmælis og fjörutíu ára hjúskaparafmælis okkar.
Guðrún Þorvarðardóttir, Pétur Þórðarson,
Framnesvegi 6.
Aðalftindur Alliance Francaise
í ALLIANCE FRANCAISE í Rvík
hélt aðalfund sinn 1. aprl. s.l. í
Café Höll.
Forseti félagsins, Magnús
Jochumsson póstmeistari, skýrði
frá störfum félagsins á síðast-
liðnu starfsári. Haldnir voru
fimm skemmtifundir á árinu með
erindum, upplestrum, kvikmynda
sýningum og ýmsum vönduðum
skemmtikröftum. Þá var og hald-
ið uppi hinum árlegu námskeið-
um félagsins í frönsku og bóka-
safn þess að Ásvallagötu 69
starfrækt.
Þá gekkst félagið í samvinnu
við franska sendiráðið hér í
Reykjavík fyrir merkilegri sýn-
ingu í sl. maímánuði á eftirmynd-
um málverka eftir hina fræg-
ustu frönsku listmálara frá dög-
um Impressionismans til vorra
daga. Sýning þessi vakti mikla
athygli og var fjölsótt, enda mik-
ill fengur fyrir alla þá er mynd-
list unna. Myhdirnar voru eign
franska menntamálaráðuneytis-
ins, sem lánaði þær góðfúslega
til sýningar hér, en að sýning-
unni lokinni gaf það íslenzka
menntamálaráðuneytinu mynd-
irnar og hefir verið ákveðið að
þær skuli ganga á milli íslenzkra
skóla til sýningar.
Gjaldkeri félagsins, Franz
Siemsen, las síðan upp reikn-
bílinn lánaban velti
honum og ók á Ijósastaur
SNEMMA á páskadagsmorgun
var bíl ekið á ljósastaur vestur
við Starhaga. Féll staurinn til
jarðar án þess að nokkurn sak-
aði, eða bíllinn yrði fyrir
skemmdum. Var þar með lokið
litlu næturævintýri ökumanns-
ins, sem fengið hafði bílinn að
láni.
Þegar lögreglumenn komu á
staðinn var maðurinn horfinn. _
Kom í Ijós við rannsókn málsins,
að bíl þessum hafði skömmu
áður verið hvolft vestur á Ægis-
síðu án þess að, bílstjórann eða
tvo farþega, konu og karl, sakaði.
Hafði bílstjórinn boðið þessu
fólki upp í bílinn. Hann hafði
einnig boðið tveim mönnum öðr-
um. Þessu fólki hafði hann ekið
upp í Skíðaskála og farið með
ofsahraða og beint í bæinn aftur.
Var hann búinn að aka tveim
mannanná heim, en sá þriðji og
konan voru eftir. Eftir að bíln-
um hvolfdi kvöddu þau öku-
manninn, sem þau ekki vissu
nein deili á, né heldur mönnun-
um tveim, sem verið höfðu með
i Skíðaskála-hraðferðinni.
Lögreglan hóf þegar leit að
bílstjóranum eftir áreksturinn á
Starhaga og fannst hann nokkru
síðar. Leikur grunur á að hann
hafi verið undir áhrifum áfeng
is.
inga félagsins, sem fundurinn
samþykkti einróma. Síðan var
gengið til stjórnarkjörs. Aðal-
stjórnin var öll endurkjörin en
hana skipa: Magnús Jochumsson
er kjörinn var forseti og með
honum þau Björn L. Jónsson,
Magnús G. Jónsson, Franz Siem-
sen og Sigurlaug Bjarnadóttir.
í varastjórn voru kjörnir: Ár-
sæll Jónasson og Bogi Ingimars-
son. Endurskoðendur: Magnús
Víglundsson og Finnbogi Kjart-
ansson.
Viðhorf Norðmanna til
víkkaðarar landhelgi
íslendinga
BERGEN, 9. apríl. — Norska
fréttastofan NTB hefur snúið sér I
til Finns Devolds fiskifræðings ’
og spurt hann hvaða þýðingu það j
myndi hafa fyrir norskar fisk- |
veiðar, ef íslendingar tækju upp
12 sjómílna landhelgi. Devold
svaraði á þessa leið:
Síldin á fslandsmiðum er á mót
um kaldra og heitra strauma.
Þessi straumamót hafa að undan-
förnu verið langt fyrir utan land.
Núverandi landhelgi íslendinga
hefur engin áhrif haft á síldveið-
ar okkar.
Ég tel, að það muni heldur
engin áhrif hafa á síldveiðar okk-
ar, þótt íslendingar víkkuðu land j
helgi sína í 12 sjómílur, að,
minnsta kosti ekki eins og .nú
stendur. Síðan 1951 hafa síldveið-
ar Norðmanna við ísland verið j
aðallega 30—40 sjómílur undan
landi.
Hins vegar gæti það haft nokk-
ur áhrif á síldveiði okkar, ef síld-
in hagaði sér eins og hún gerði á
fjórða tug aldarinnar, þegar
veiðin var mest inni á ís-
lenzku fjörðunum.
Skrifsfofur okkar
verða lokaðar
EFTIR HÁDEGI VEGNA JARÐARFARAR
Guitiiar Guðjénsson
*
S. Arnason og Co.
Innilegar þakkir til allra, er gerðu mér 70 ára afmælis-
daginn 5. apríl s.l., ógleymanlegan með heimsóknum, gjöf-
um, skeytum og kvæðum.
Guð blessi ykkur öll.
Bjarni ívarsson.
Hugheilar þakkir flyt ég öllum vinum mínum, er minnt-
ust mín á áttatíu ára afmælisdegi mínum 6. þ. m. Sérstaklega
þakka ég frú Láru Bjarnadóttur og fjölskyldu hennar fyrir
alla rausn og fyrirhöfn í sambandi við daginn og kærleika
mér sýndan þá og fyrr.
Lifið heil.
Elinius Jónsson, Ólafsvík.
Vegna jarðarfarar
prófessors Magnúsar Jónssonar verða
skrifstoíuT vorar lokaðar frá hádegi
ídag.
Reykjavík 10. apríl 1958.
Innflutningsskrifstofan.
Litla dóttir okkar
ERLA VALGERÐUR LINDBERG
andaðist aðfaranótt 8. þ.m. í St. Jósefsspítalanum í Hafn-
arfirði. Jarðarför hennar fer fram frá Hafnárfjarðar-
kirkju n.k. föstudag 11. þ.m. kl. 2 síðdegis.
Hans og Ala Lindberg.
Maðurinn minn og sonur
KRISTJAN KRISTJANSSON
húsasmíðameistari, Blómvallagötu 10A, andaðist á sjúkra-
húsi Hvítabandsins 9. þ.m.
Sigríður Sigurðardóttir Ólafía Hansdóttir.
Jarðarför
mAlfríðar jónsdóttur
sem andaðist á Elliheimilinu hinn 27. f.m., fer fram frá
Fossvogskirkju föstud. 11. þ.m. kl. 1,30 e.h.
Vinir hinnar látnu.
Jarðarför mannsins míns,
sveinbjarnar lArussonar,
er andaðist 5. þ. m., fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
11. apríl kl. 3 síðdegis. Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Sigríður Sveinbjörnsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og hluttekningu
við andlát og jarðarför
GEIRÞRÚÐAR KRISTJAnSDÓTTUR
Bjargi, Hellissandi.
Benedikt S. Benediktsson,
börn og tengdabörn.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
VALDEM ARS BRYNJÓLFSSONAR
frá Sóleyjarbakka
Börn og tengdabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og jarðarför
GfSLA ÞORVARÐARSONAR
málara.
Sigurborg Hansdóttir og börnin.
Öllum þeim mörgu, nær og fjær, sem sýndu okkur
samúð og vinarþel við fráfall
GlSLA STEFANSSONAR og STEFANS LITLA,
sendum við hjartans þakkir.
Guðrún Matthíasdóttir og börn
Siglufirði.