Morgunblaðið - 10.04.1958, Qupperneq 20
VEÐRIÐ
SA-kaldi og dálítil rigning.
81. tbl. — Fimmtudagur 10. apríl 1958
Krúsjeff í Ungverjalandi
Sjá bls. 6.
Voru tveir íslenzkir
togarar að veiðum
í landhelgi?
„Neptúnus" tekinn við suðurströndina, en
hinn sást úr flugvél á Jökuldjúpi
Gunnar Gunnarsson
í KVÖLD kl. 9 hefst opinber
fundur í Gamla Bíói í Reykjavík
á vegum félagsins Frjálsrar menn
ingar. Fundarefnið er: Austur og
vestur — baráttan um manns-
sálina.
í upphafi fundarins mun Gunn
ar Gunnarsson skáid, kynna
Bílastæði bönnuð
við nokkrar gaml-
ar götur
Á FUNDI bæjarráðs, á þriðju-
daginn var lagt fram bréf lög-
reglustjóra, þar sem skýrt var
frá, að umferðarnefnd leggi til,
að bifreiðastöður verði bannaðar
á eftirtöldum götum sem hér seg-
ir:
Hallveigarstíg, sunnan megin
götunnar. Spítalastíg, frá Þing-
holtsstræti að Bergstaðastræti
beggja vegna götunnar og frá
Bergstaðastræti að Óðinsgötu,
norðan megin götunnar. Skál-
holtsstíg, frá Fríkirkjuvegi að
Grundarstíg, beggja vegna göt-
unnar. Bókhlöðustig, beggja
vegna götunnar. Þingholtsstræti,
frá Amtmannsstíg vestan megin
götunnar og frá Bókhlöðustíg,
austan megin götunar. Laufás
vegi, frá Skothúsvegi að Bók-
hlöðustíg, vestan megin götunn-
ar. Grundarstíg, frá Hellusundi
að Spítalastíg, vestan megin göt-
unnar. Bergstaðastræti, frá
Spítalastíg að Baldursgötu, vest-
an megin götunnar. Bjargarstíg,
norðan megin götunnar. Amt-
mannsstíg, frá Lækjargötu að
Skólastræti, norðan megin göt-
unnar.
Bæjarráð samþ. að vísa tillög-
um til bæjarstjórnar og mæla
með þeim til samþykktar þar.
Bókauppboð
á morgun
SIGURÐUR Benediktsson held-
ur bókauppboð í Sjálfstæðishús-
inu á morgun kl. 5. Bækurnar
eru til sýnis á uppboðsstað kl.
2—6 í dag og kl. 10—4 á morgun.
Meðal bókanna, sem seldar
verða, eru: Sýslumannaævir,
Fornbréfasafnið, Safn til sögu
íslands, Lesbók Morgunblaðsins
frá upphafi, ferðabók Þorvaldar
Thoroddsen, 12 frumútgáfur af
Laxnessbókum og ýmsar gaml-
ar rímur, þ.á.m. Rímur af Sig-
urði snarfara eftir Snorra á Húsa
felli (útg. í Hrappsey 1779).
Frode Jakobsen
danska stjórnmálamanninn Frode
Jakobsen, sem dvelst nú hér á
landi í boði Frjálsrar menningar.
Jakobsen flytur síðan erindi, og
að lokum talar Áki Jakobsson
alþingismaður.
í gær voru liðin 18 ár, síðan
herskarar Hitlers réðust á Dan-
mörku. Skömmu síðar er Frode
Jakobsen fyrst getið varðandi
hina stóru atburði í sögu þjóðar
hans, er hann tekur að skipu-
leggja frelsissveitir gegn herriáms
liðinu. Þær áttu fyrir sér að efl-
ast, og nokkrum árum síðar var
Frode Jakobsen orðinn foringi
50.000 vopnaðra manna, sem börð
ust við þýzku nazistana. Eftir
stríðið hefur hann tekið mikinn
þátt í stjórnmálum Danmerkur
og Evrópu og stefna hans mótazt
af þeiri reynslu, er hann fékk
í baráttu stríðsáranna. Skoðanir
sínar kynnir hann með glæsilegri
Metafli hjá útilegu
bát í Reykjavík
VÉLSKIPIÐ Akraborg, EA kom
hingað til Reykjavíkur í gær og
landaði í Sænska frystihúsið.
Hefur skipið lagt hér upp í vetur
og er meðal útilegubáta, sem
héðan róa. Aflinn, sem báturinn
landaði, var eftir fimm lagnir, og
reyndist hann 103 lestir, aðal-
lega slægður fiskur. Er þetta
mesti afli, sem útilegubátur hef-
ur landað hér í Reykjavík, eftir
eina veiðiför.
í fyrradag voru þessir bátar
með hæstan afla hér: Barði 39
lestir, Ásgeir 36, og Vörður 31
lest. Er hér um að ræða óslægðan
fisk.
Miimingarsjóður
um dr. Victor
Urbancic
ÞJÓÐLEIKHÚSKÓRINN hefur
stofnað minningarsjóð um söng-
stjóra sinn, Dr. Victor Urbancic,
sem lézt 4. þ.m. Sjóður þessi heit-
ir: Minningarsjóður Dr. Victors
Urbancic, og er ætlað að vera i
framtíðinni til styrktar íslenzk-
um læknanemum samkvæmt
síðari ákvörðun í stofnskrá.
Með því að uppfylla þessa ósk
Dr. Vietors Urbancic vill Þjóð-
leikhússkórinn heiðra minningu
hans og þakka honum hans ómet-
anlegu störf. Framlögum til
sjóðsins er fyrst um sinn veitt
móttaka hjá dyraverði Þjóð-
leikhússins.
Áki Jakobsson
mælsku, og mun því marga fýsa
að hlusta á hann í kvöld.
Áki Jakobsson alþingismaður
talar nú í fyrsta sinn á opinber-
um fundi í Reykjavík, eftir að
hann sneri baki við sínum fyrra
flokki. Hann þekkir starfsemi ís-
lenzkra kommúnista flestum bet-
ur og eiga upplýsingar hans um
hana því brýnt erindi til þjóð-
arinnar.
Aðgangur að fundinum er ó-
keypis og öllum heimill.
Um 1800 lestir af
fiski bárust síðari
hluta marz
AKRANESI, 9. apríl. — Akranes
bátar lönduðu alls 2457 lestum af
fiski eftir 320 róðra í marzmán-
uði. Mestur hluti aflans kom á
land síðari helming mánaðarins,
eða tæplega 1800 lestir.
í marzlok voru þessir bátar
með mestan afla eftir mánuðinn:
Sigrún 241 lest, Sveinn Guð-
mundsson 184 og Sigurvon 159.
Næst koma 6 bátar með 140—150
lestir hver.
í gær lönduðu 17 bátar hér
alls rúmlega 300 lestum og hafði
Böðvar mestan afla, 31 lest. Höfr-
ungur var með 27 og Sigrún 26.
Aflahæstur Akranesbáta frá
vertíðarbyrjun er Sigrún með
610 lestir.
VARÐSKIPIÐ Ægir kom hingað
til Reykjavíkur laust eftir há-
degi í gær með togarann Neptún-
us. Talið var, að skipstjórinn
hefði brotið landhelgislöggjöf-
ina.
„Neptúnus" var staddur út af
Herdísarvík, er varðskipið kom
þar að um kl. 4 í fyrrinótt.
Ægir var í nokkurri fjarlægð
frá togaranum, en varðskipsmenn
töldu sig sjá í ratsjánni, að „Nep
túnus“ færi rétt inn fyrir „lín-
una“. Hafði hánn mælzt 0,4 sjóm.
fyrir innan. Þegar Ægir kom á
vettvang var „Neptúnus“ um 0,5
sjóm. fyrir utan línu.
Þegar þetta gerðist og varð-
skipið stöðvaði togarann, var
stýrimaðurinn í brúnni, en Bjarni
Ingimarsson, skipstjóri í klefa
sínum.
Þar eð skipherrann á Ægi, Þór
arinn Björnsson, taldi hér um
landhelgisbrot að ræða af hálfu
togarans, ákvað skipherrann að
sigla til Reykjavíkur. Rannsókn
í málinu hófst síðdegis í gær.
Stýrimaðurinn, sem var í brúnni
telur sig hafa verið að veiðum
fast við „línuna". Á þessum sömu
slóðum voru margir netjabátar
og missti einn þeirra net sín í
vörpu togarans.
í gærkvöldi var rannsókn ekki
lokið í málinu hjá sakadómara-
embættinu og verður henni hald
ið áfram í dag. Mun jafnvel óvíst
hvort dómur gengur í dag.
Annar togari í landhelgi.
í gærmorgun, er fregnin um
töku Neptúnusar barst um bæinn,
bárust jafnhliða fregnir af því,
að annar togari hefði verið tek-
inn. Hafði strandgæzluflugbátur-
inn Rán verið á könnunarflugi
yfir „línunni" í Jökuldjúpinu, í
fyrrakvöld. Flaug hann þá yfir
íslenzkan togara, sem var að veið
um langt fyrir innan „línuna“.
Það fylgdi fregninni að hér væri
um að ræða Hafnarfjarðartogar-
ann Júlí.
Ekki vildi forstjóri Landhelg-
isgæzlunnar, Pétur Sigurðsson,
staðfesta að nafnið væri rétt á
togaranum, sem Rán tók í fyrri-
nótt, en hann mótmælti því ekki
heldur. Á því stigi, sem mál þetta
er nú, verst ég allra frétta, sagði
forstjórinn.
Júlí er væntanlegur til hafnar
í dag og mun þá þegar hefjast
rannsókn í máli togarans.
Ingi R. Jóhannsson
hefir forystuna
AÐ UNDANFÖRNU hefir Skák-
þing íslands staðið yfir.
Eftir 6 umferðir er Ingi R. Jó-
hannsson efstur í landsliðsflokki
með 5 vinninga og biðskák (við
Hauk Sveinsson). Annar er Ingi-
mar Jónsson með 5 vinninga, 3.
—4. Kári Sólmundarson og Hall-
dór Jónsson með 3% v. hvor og
Páll G. Jónsson með 3 vinninga
og biðskák.
Sjöunda umferð var tefld í
gærkveldi.
í meistaraflokki er Jón M.
Guðmundsson efstur með 5 vinn-
inga og Hermann Jónsson annar
með 4 vinninga.
Þormóður goði leggst að hafnarbakkanum í gær. Sjá frásögn af komu skipsins á bls. 3.
Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
Austur og vestur
baráttan um mannssálina
Cpinber fundur í Camla Bíói kl. 9 r kvöld