Morgunblaðið - 05.06.1958, Page 4

Morgunblaðið - 05.06.1958, Page 4
4 MORCVNB1 AÐ1Ð Flmmíudagur 5. júní 195S PEDagbók í dag er 156. aagur ársins. Fimmtudagur 5. júní. Árdegisflæði kl. 8.43. Síðdegisflæði kl. 21.05. Slysavarðstofa Keyltjavíkur í Heilsuveyndarstöðinni er 'pin *11- an sólarhringmn, Læknavörður L. R (fyrir vitjanír) er á sama stað, frá kl. 18—8. — Simi 15030. Næturvarzia vikuna 1. til 7. júní r í Reykjavíkur-apóteki, s. 11760. Hoits-apótek og Garðsapótek eru opir á sunnudögum kl. 1—4. Hafnarfjarðar-apótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laugardaga kl. 9—16 og 19—21. Helgidaga kL 13—16 Næturlæknir: Ólafur Ólafsson. Keflavíkur-apótek er opið alla virka daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16. Kópavogs-apótek, Alfhólsvegi 9 er opið daglega kl. 9—20, nema laugardaga kl. 9—16 og helgidaga kL 13—16. — Simi 23100. RMR — Föstud. 6. 6. 20. — VS — Fr. — Hvb. Munið að gera skil í happdrætti Sjálfstæðisflo'kksins. v AF M Æ Ll <■ 50 ára er í dag frú Ástveig Ein arsdóttir, Hraunteig 6, Hafnar- firði. — IEH Brúðkaup Laugardaginn fyrir hvítasunnu voru gefin saman í hjónaband af séra Birni Jónssyni, Keflavík, ungfrú Valdís K. M. Valgeirsdótt ir og Vilhelm Sigmarsson, bif- reiðarstjóri. Heimili arigu hjón- anna verður að Kirkjuteig 7. Keflavík. Sama dag voru gefin saman af sama presti ungfrú Bjarney Sig- urðardótir og Lúðvík Guðmunds son. Heimili þeirra er að Kirkju- veg 17, Keflavík. í dag verða gefin saman í hjónaband ungfrú Gerður Unn- dórsdóttir (Jónssonar bókara) Hagamel 25 og Vilhjálmur Ein- arsson, kennari að Laugarvatni. Brúðhjónin verða stödd að Haga- mel 25 í dag. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af séra Gunnari Árna- syni Þorgerður Una Bogadóttir og Þórarinn Guðlaugsson. Heim- ili þeirra er að Sogavegi 50. Hjönaefni Fyrir nokkru opinberuðu trúlof un sína ungfrú Helga Jónsdóttir, Akranesi og Pálmi Ingólfsson, loftskeytamaður á v.s. Albert. Skipin Eimskipafélag íslands hf.: — Dettifoss kom til Lysekil 3. þ. m. fer þaðan til Gautaborgar og Leningrad. Fjallfoss koni til Reyðarfjarðar í gærmorgun fer þaðan til Akureyrar, Sauðár- króks, Skagastrandar, Bolungar- víkur, Flateyrar, Grafarness, Akraness og Rvíkur. Goðafoss fór frá Keflavík í gærkvöld til Rvík ur. Gullfoss fór frá Leith 3. þ.m. til Kaupmannahafnar. Lagarfoss fór frá Kaupmannahöfn 2. þ.m. til Fredericia og Rvíkur. Reykja foss fór frá Vesmannaeyjum 1 júní til Rotterdam, Antwerpen, Hamborgar og Hull. Tröllafos; fór frá New York 27. f.m. til Cubs skipið fer frá New York um 20 þ.m. til Rvíkur. Tungufoss fer væntanlega frá Hamborg í gær til Rvíkur. Drangajökull fór frá Hull 31. f.m. til Rvíkur. Skipaútgerð ríkisins: — Hekla er væntanleg til Reykjavíkur í kvöld að vestan frá Akureyri. — Esja er væntanleg til Reykjavík •ur árdegis ' dag frá Austfjörðun' Herðubreið kom til Reykjavíkur gær frá Austfjörðum. Skjaldbrei. kom til Reykjavíkur í gær að vest an frá Akureyri. Þyrill er á Austfjörðum. Skaftfellingur er í Reykjavík. Skipadeild S.f.S. — Hvassafell kemur í dag til Mántyluoto. Arn- arfell væntanlegt til Fáskrúðs- fjarðar í dag. Jökulfell fór 3 þ.m. frá Reykjavík áleiðis til Riga, Hamborgar og Hull. Dís- arfell væntanlega til Mántyluoti á morgun. Litlafell er í olíuflutn ingum í Faxaflóa. Helgafell fói frá Keflavík í gær áleiðis til Rigr Hamrafell fór 27. f. m. frá Reykjf vík áleiðis til Batum. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. Katla er í Sölvesborg. Askja er í Sölvesborg. Flugvélar Flugfélag íslands hf.: Hrímfaxi fer til Oslóar, Kaupmannahafnar og Hamborgar kl. 08:00 í dag. Vsentanleg aftur til Rvíkur kl. 23:45 í kvöld. Flugvélin fer til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 08:00 í fyrramálið. Gullfaxi fef til Lundúna kl. 10:00 í dag. Væntanleg aftur til Rvíkur kl 21:00 á morgun. Innanlandsflug í dag: er áætl- að að fljúga til Akureyrar (3 ferc ir), Egilsstaða, ísafjarðar, Kópa- skers, Patreksfjarðar, Sauðár- króks og Vestmannaeyja (2 ferð ir). Á morgun: er áætlað að fijúga til Akureyrar (3 ferðir). Egilsstaða, Fagurhólsmýrar, Flai eyrar, Hólmavíkur, Hornafjarð ar, ísafjarðar, Kirkjubæjarklaus urs, Vestmannaeyja (2 ferðir) oí Þingeyrar. Loftleiðir hf.: Saga er væntan- leg frá New York kl. 8.15. Fer kl. 9.45 til Oslóar, Kaupmanna hafnar og Hamborgar. Hekla er væntanleg frá Stafangri og Osló kl. 19. Fer til New York kl. 20.30 |Ymislegt Orð l'fsins: Og sjá, kona nokk- ur, sem hafði haft blóðlát í tóif ár, kom að baki honum og snart fald yfirhafnar hans, því að hún sagði með sjálfri sér: Ef ég að- eins fæ snortið yfirhöfn hans, þá mun ég heil verða“. Matt. 9, 21. Hinn minnsti skammtur á- fengis truflar skipun heilans til handarinnar Athugið það, þér sem akið bifreiðum. Umdæmisstúkan. fHAheit&sainskot Sólheimadrengurinn afh. Mbl.: SS kr. 100; KS kr. 100. Fólkið sem hrann hjá afh. Mbl. [Halldór og Margrét 100.00. Til Hallgrímskirkju í Saurbæ. |Afh. af sr. Sigurjóni Guðjónssyni Iprófasti þar. Áheit 100 kr. frá |konu á Hvalfjarðarströnd. Áheit 100 kr. frá E. F. Akranesi. — Matthías Þórðarson. 151 Félagsstörf Stúdentar frá MR 1953! Áríð- andi fundur n.k. föstudag kl. 9 síðd. í „Fjósinu". Kvenfélag Bústaðasóknar heldur aðalfund í Háagerðisskóla kl. 8,30 annað kvöld (föstudag). ISSPennavinir Evert Larsson, Kullegatan 8A, Göteborg S, Sverige, óskar eftir bréfasambandi við íslenzkan frí- merkjasafnara. Dolf van Graas Jr., Frans Zwaanstraat 80, Zandvoort Hol- land, 18 ára óskar eftir að komast í bréfasamband við íslending á svipuðu reki. Skrifar á ensku og frönsku. Aðaláhugamál: bókasöfnun, saga, landafræði o. fl. • Gengið • Gullverð ísl. krónu: .00 gullkr. = 738,95 pappírskr. Sölugengi 1 Sterlingspund .... kr. 45,70 1 Bandaríkjadollar..— 16,32 1 Kanadadollar .... — 16,96 iOO danskar kr.......— 236,30 100 norskar kr.......—228,50 100 sænskar kr.......—315,50 100 finnsk mörk ....— 5,10 i000 franskir frankar .. — 38,86 Þessi mynd er af málverki á sýningu Sveins Björnssonar í Lisvamannaskálanum og heitir „Þrjú börn og karlinn.“. Um 800 manns hafa séð sýningu Sveins og 26 myndir hafa selzt. 100 belgiskir frankar.. — 32,90 100 svissn. frankar .. — 376,00 100 tékkneskar kr. .. — 226,67 100 vestur-þýzk mörk — 391,30 1000 Lírur ............— 26,02 100 Gyllini ..........— 431,10 Læknar fjarverandi: Áni Björnsson 4.—16. júní., stg. Tómas Jónasson,'Hverfisgötu 50, viðtalst. kl. 1—2, heimasími 10201 Eiríkur Björnsson, Hafnarfirði um óákveðinn tíma. Staðgengill: Kristján Jóhannesson. Jónas Sveinsson til 31. júlí. — Staðgengill: Gunnar Benjamins- son. Viðtalstími kl. 4—5. Ólafur Helgason óákveðinn tíma. Staðgengill Karl. S. Jónas- son. Þeim fjölgar sföBugt, sem lcera aB fljúga VART líður sá dagur hér í Rvík, að ekki sjáist ein eða fleiri smá- flugvélar á sveimi yfir bænum frá morgni til kvölds. Þessar gulu „rollur“, eins og almenningur kallar þær, eru kennsluflugvél- ar flugskólans Þyts, sem að sum- arlagi eru nær allan sólarhring- inn á lofti, ef svo mætti segja, því óðum fer þeim fjölgandi, sem fýsir að læra að fljúga. Flugið er vissulega heillandi og það er ekki að ástæðulausu að mikill hluti stráklinga á þann draum stærst- an að læra að fljúga. ★ Flugskólinn Þytur hefur starf- að í allmörg ár og nemendur hans skipta nú orðið hundruðum. Fæstir hafa þó lokið atvinnu- flugnámi, því að hvort tveggja er, að erfitt mun nú orðið fyrir ný- liðana að fá atvinnu hér heima — og atvinnuflugnám er það dýrt, að ungir menn leggja yfir- leitt ekki út í það nema þeir séu staðráðnir í því að gera flug- ið að framtíðaratvinnu sinni. ★ Flestir þeir, sem lagt hafa stund á flugnám hjá flugskólan- um, hafa hins vegar gert það sér til ánægjuauka — til þess að verja frístundunum til hollrar og heilbrigðrar íþróttar. Einkaflugsréttindi öðlast menn eftir átta stunda flug með kenn- ara og þau réttindi eru tiltölu- lega ódýr. — Og síðar meir er svo hægt að fá flugvélar leigðar' —og þá er flugið orðið skemmti- leg íþrótt. Til þess að geta flog ið lítilli flugvél með farþega þarf nins vegar 40 stunda nám, en þegar komið er út í atvinnuflug- námið kemur margt annað til greina. Auk 200 flugtíma er mik- ið um bóklegt nám — og sér- stakrar þjálfunar í olindflugi er krafizt. Atvinnuflugnám kost- ar hérlendis nú til dags 70—80 þús. kr., en það er þó mun ódýr- ara en erlendis. ★ í sumar mun mikill fjöldi ungra manna leggja stund á flug nám hjá „Þyt“. Forstöðumaður skólans undanfarin ár hefur ver- ið Karl Eiríksson. + 23 brunaliðsmenn og frétta- ljósmyndari fórust í Mel- bourne í gær, er sprengia, sem komið hafði verið fyrir í salerni í kjallara ráðhússins, sprakk. ^ BEZT AÐ 4VGLÝSA L T / MORGVmLAÐlNV T /ERDIIMAND Hagsýni húsfreyjunnar OQ. Útför í Stykkis- hólrni STYKKISHÓLMI, 2. júní. — Síðastl. laugardag var frú Mar- grét Magnúsdóttir jarðsungin frá Stykkishólmskirkju. Próf- asturinn sr, Sigurður Ó. Lárus- son jarðsöng. Margrét var fædd að Innri-Fagradal á Skarðsströnd 9. apríl 1882, en foreldrar hennar voru Sigurbjörg Guðmundsdóttir og Magnús Magnússon. Árið 1903 giftist hún eftirlifandi manni sín um Ebeneser Þorlákssyni og hófu þau búskap í Rúfeyjum á Breiða- firði þar sem þau bjuggu í ald- arfjórðung. Þau fluttust hingað 1928 og hér hafa þau átt heima síðan. Þeim varð þriggja barna auðið sem öll eru lifandi og ólu auk þess upp tvo fóstursyni. Síðustu árin átti Irú Margrét við mikla vanheilsu að stríða og andaðist 23. maí síðastl. Hún var mikil mannkosta kona. —Árni. * KVIKMYNDIR * Fótatak \ þokurmi STJÖRNUBÍÓ sýnir um þessar mundir ameríska sakamálamynd í litum er nefnist „Fótatak í þok- unni“. Er myndin gerð eftir sögu sem bírzt hefui í danska viku- blaðinu „Hjemmet" og munu margir því kannast við efni mynd arinnar. Fjallar hún um ungan og glæsilegan mann, Stephen Low- ry, sem hefur kvænzt til fjár, en losnað við konu sína með því að byrla henni eitur í smáskömmt- um, er leiddi hana til bana. Þjón- ustustúlkan á heimih Stephens, hefur komizt að glæp hans og neyðir hann til pess að fa henni ráðskonuvöldin á heimilinu og jafnvel til að lofa að kvænast henni. — Hann reynir nú einnig að koma þjónustustúlkunni fyrir kattarnef, en myrðir aðra konu í misgripum, en þá grípui hann til annarra kaldrifjaðra úrræða, því hann hefur nú augastað á ungri og auðugri stúlku, sem hann hyggst kvænast til fjár. Þessi ráðagerð Stephens mistekst þó herfilega, en sú saga verður ekki rakin hér. Mynd þessi er með bezt gerð- um sakamálamyndum sem hér hafa sézt um langan tíma, spenna myndarinar geysimikil og leikur- inn afbragðsgóður, en Stewart Granger og kona hans Jean Simmons, leika aðalhlutverkin, Stephen Lowry og þjónustu- stúlkuna Lily Watkins. Af öðrum ágætum leikurum í myndinni má nefna Belinda Lee og Bill Trav- ers — Ego.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.