Morgunblaðið - 05.06.1958, Qupperneq 4
4
MORCVNB1 AÐ1Ð
Flmmíudagur 5. júní 195S
PEDagbók
í dag er 156. aagur ársins.
Fimmtudagur 5. júní.
Árdegisflæði kl. 8.43.
Síðdegisflæði kl. 21.05.
Slysavarðstofa Keyltjavíkur í
Heilsuveyndarstöðinni er 'pin *11-
an sólarhringmn, Læknavörður L.
R (fyrir vitjanír) er á sama stað,
frá kl. 18—8. — Simi 15030.
Næturvarzia vikuna 1. til 7. júní
r í Reykjavíkur-apóteki, s. 11760.
Hoits-apótek og Garðsapótek
eru opir á sunnudögum kl. 1—4.
Hafnarfjarðar-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—21. Laugardaga kl.
9—16 og 19—21. Helgidaga kL 13—16
Næturlæknir: Ólafur Ólafsson.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, laugardaga kl.
9—16. Helgidaga kl. 13—16.
Kópavogs-apótek, Alfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kL 13—16. — Simi 23100.
RMR — Föstud. 6. 6. 20. — VS
— Fr. — Hvb.
Munið að gera skil í happdrætti
Sjálfstæðisflo'kksins.
v AF M Æ Ll <■
50 ára er í dag frú Ástveig Ein
arsdóttir, Hraunteig 6, Hafnar-
firði. —
IEH Brúðkaup
Laugardaginn fyrir hvítasunnu
voru gefin saman í hjónaband af
séra Birni Jónssyni, Keflavík,
ungfrú Valdís K. M. Valgeirsdótt
ir og Vilhelm Sigmarsson, bif-
reiðarstjóri. Heimili arigu hjón-
anna verður að Kirkjuteig 7.
Keflavík.
Sama dag voru gefin saman af
sama presti ungfrú Bjarney Sig-
urðardótir og Lúðvík Guðmunds
son. Heimili þeirra er að Kirkju-
veg 17, Keflavík.
í dag verða gefin saman í
hjónaband ungfrú Gerður Unn-
dórsdóttir (Jónssonar bókara)
Hagamel 25 og Vilhjálmur Ein-
arsson, kennari að Laugarvatni.
Brúðhjónin verða stödd að Haga-
mel 25 í dag.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Gunnari Árna-
syni Þorgerður Una Bogadóttir
og Þórarinn Guðlaugsson. Heim-
ili þeirra er að Sogavegi 50.
Hjönaefni
Fyrir nokkru opinberuðu trúlof
un sína ungfrú Helga Jónsdóttir,
Akranesi og Pálmi Ingólfsson,
loftskeytamaður á v.s. Albert.
Skipin
Eimskipafélag íslands hf.: —
Dettifoss kom til Lysekil 3. þ.
m. fer þaðan til Gautaborgar og
Leningrad. Fjallfoss koni til
Reyðarfjarðar í gærmorgun fer
þaðan til Akureyrar, Sauðár-
króks, Skagastrandar, Bolungar-
víkur, Flateyrar, Grafarness,
Akraness og Rvíkur. Goðafoss fór
frá Keflavík í gærkvöld til Rvík
ur. Gullfoss fór frá Leith 3. þ.m.
til Kaupmannahafnar. Lagarfoss
fór frá Kaupmannahöfn 2. þ.m.
til Fredericia og Rvíkur. Reykja
foss fór frá Vesmannaeyjum 1
júní til Rotterdam, Antwerpen,
Hamborgar og Hull. Tröllafos;
fór frá New York 27. f.m. til Cubs
skipið fer frá New York um 20
þ.m. til Rvíkur. Tungufoss fer
væntanlega frá Hamborg í gær
til Rvíkur. Drangajökull fór frá
Hull 31. f.m. til Rvíkur.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla
er væntanleg til Reykjavíkur í
kvöld að vestan frá Akureyri. —
Esja er væntanleg til Reykjavík
•ur árdegis ' dag frá Austfjörðun'
Herðubreið kom til Reykjavíkur
gær frá Austfjörðum. Skjaldbrei.
kom til Reykjavíkur í gær að vest
an frá Akureyri. Þyrill er á
Austfjörðum. Skaftfellingur er í
Reykjavík.
Skipadeild S.f.S. — Hvassafell
kemur í dag til Mántyluoto. Arn-
arfell væntanlegt til Fáskrúðs-
fjarðar í dag. Jökulfell fór 3
þ.m. frá Reykjavík áleiðis til
Riga, Hamborgar og Hull. Dís-
arfell væntanlega til Mántyluoti
á morgun. Litlafell er í olíuflutn
ingum í Faxaflóa. Helgafell fói
frá Keflavík í gær áleiðis til Rigr
Hamrafell fór 27. f. m. frá Reykjf
vík áleiðis til Batum.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.
Katla er í Sölvesborg. Askja
er í Sölvesborg.
Flugvélar
Flugfélag íslands hf.: Hrímfaxi
fer til Oslóar, Kaupmannahafnar
og Hamborgar kl. 08:00 í dag.
Vsentanleg aftur til Rvíkur kl.
23:45 í kvöld. Flugvélin fer til
Glasgow og Kaupmannahafnar
kl. 08:00 í fyrramálið. Gullfaxi
fef til Lundúna kl. 10:00 í dag.
Væntanleg aftur til Rvíkur kl
21:00 á morgun.
Innanlandsflug í dag: er áætl-
að að fljúga til Akureyrar (3 ferc
ir), Egilsstaða, ísafjarðar, Kópa-
skers, Patreksfjarðar, Sauðár-
króks og Vestmannaeyja (2 ferð
ir). Á morgun: er áætlað að
fijúga til Akureyrar (3 ferðir).
Egilsstaða, Fagurhólsmýrar, Flai
eyrar, Hólmavíkur, Hornafjarð
ar, ísafjarðar, Kirkjubæjarklaus
urs, Vestmannaeyja (2 ferðir) oí
Þingeyrar.
Loftleiðir hf.: Saga er væntan-
leg frá New York kl. 8.15. Fer
kl. 9.45 til Oslóar, Kaupmanna
hafnar og Hamborgar. Hekla er
væntanleg frá Stafangri og Osló
kl. 19. Fer til New York kl. 20.30
|Ymislegt
Orð l'fsins: Og sjá, kona nokk-
ur, sem hafði haft blóðlát í tóif
ár, kom að baki honum og snart
fald yfirhafnar hans, því að hún
sagði með sjálfri sér: Ef ég að-
eins fæ snortið yfirhöfn hans, þá
mun ég heil verða“. Matt. 9, 21.
Hinn minnsti skammtur á-
fengis truflar skipun heilans til
handarinnar Athugið það, þér
sem akið bifreiðum.
Umdæmisstúkan.
fHAheit&sainskot
Sólheimadrengurinn afh. Mbl.:
SS kr. 100; KS kr. 100.
Fólkið sem hrann hjá afh. Mbl.
[Halldór og Margrét 100.00.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ.
|Afh. af sr. Sigurjóni Guðjónssyni
Iprófasti þar. Áheit 100 kr. frá
|konu á Hvalfjarðarströnd. Áheit
100 kr. frá E. F. Akranesi. —
Matthías Þórðarson.
151 Félagsstörf
Stúdentar frá MR 1953! Áríð-
andi fundur n.k. föstudag kl. 9
síðd. í „Fjósinu".
Kvenfélag Bústaðasóknar heldur
aðalfund í Háagerðisskóla kl.
8,30 annað kvöld (föstudag).
ISSPennavinir
Evert Larsson, Kullegatan 8A,
Göteborg S, Sverige, óskar eftir
bréfasambandi við íslenzkan frí-
merkjasafnara.
Dolf van Graas Jr., Frans
Zwaanstraat 80, Zandvoort Hol-
land, 18 ára óskar eftir
að komast í bréfasamband
við íslending á svipuðu reki.
Skrifar á ensku og frönsku.
Aðaláhugamál: bókasöfnun, saga,
landafræði o. fl.
• Gengið •
Gullverð ísl. krónu:
.00 gullkr. = 738,95 pappírskr.
Sölugengi
1 Sterlingspund .... kr. 45,70
1 Bandaríkjadollar..— 16,32
1 Kanadadollar .... — 16,96
iOO danskar kr.......— 236,30
100 norskar kr.......—228,50
100 sænskar kr.......—315,50
100 finnsk mörk ....— 5,10
i000 franskir frankar .. — 38,86
Þessi mynd er af málverki á sýningu Sveins Björnssonar í
Lisvamannaskálanum og heitir „Þrjú börn og karlinn.“. Um
800 manns hafa séð sýningu Sveins og 26 myndir hafa selzt.
100 belgiskir frankar.. — 32,90
100 svissn. frankar .. — 376,00
100 tékkneskar kr. .. — 226,67
100 vestur-þýzk mörk — 391,30
1000 Lírur ............— 26,02
100 Gyllini ..........— 431,10
Læknar fjarverandi:
Áni Björnsson 4.—16. júní., stg.
Tómas Jónasson,'Hverfisgötu 50,
viðtalst. kl. 1—2, heimasími 10201
Eiríkur Björnsson, Hafnarfirði
um óákveðinn tíma. Staðgengill:
Kristján Jóhannesson.
Jónas Sveinsson til 31. júlí. —
Staðgengill: Gunnar Benjamins-
son. Viðtalstími kl. 4—5.
Ólafur Helgason óákveðinn
tíma. Staðgengill Karl. S. Jónas-
son.
Þeim fjölgar sföBugt,
sem lcera aB fljúga
VART líður sá dagur hér í Rvík,
að ekki sjáist ein eða fleiri smá-
flugvélar á sveimi yfir bænum
frá morgni til kvölds. Þessar gulu
„rollur“, eins og almenningur
kallar þær, eru kennsluflugvél-
ar flugskólans Þyts, sem að sum-
arlagi eru nær allan sólarhring-
inn á lofti, ef svo mætti segja,
því óðum fer þeim fjölgandi, sem
fýsir að læra að fljúga. Flugið er
vissulega heillandi og það er ekki
að ástæðulausu að mikill hluti
stráklinga á þann draum stærst-
an að læra að fljúga.
★
Flugskólinn Þytur hefur starf-
að í allmörg ár og nemendur
hans skipta nú orðið hundruðum.
Fæstir hafa þó lokið atvinnu-
flugnámi, því að hvort tveggja er,
að erfitt mun nú orðið fyrir ný-
liðana að fá atvinnu hér heima
— og atvinnuflugnám er það
dýrt, að ungir menn leggja yfir-
leitt ekki út í það nema þeir
séu staðráðnir í því að gera flug-
ið að framtíðaratvinnu sinni.
★
Flestir þeir, sem lagt hafa
stund á flugnám hjá flugskólan-
um, hafa hins vegar gert það sér
til ánægjuauka — til þess að
verja frístundunum til hollrar
og heilbrigðrar íþróttar.
Einkaflugsréttindi öðlast menn
eftir átta stunda flug með kenn-
ara og þau réttindi eru tiltölu-
lega ódýr. — Og síðar meir er
svo hægt að fá flugvélar leigðar'
—og þá er flugið orðið skemmti-
leg íþrótt. Til þess að geta flog
ið lítilli flugvél með farþega þarf
nins vegar 40 stunda nám, en
þegar komið er út í atvinnuflug-
námið kemur margt annað til
greina. Auk 200 flugtíma er mik-
ið um bóklegt nám — og sér-
stakrar þjálfunar í olindflugi er
krafizt. Atvinnuflugnám kost-
ar hérlendis nú til dags 70—80
þús. kr., en það er þó mun ódýr-
ara en erlendis.
★
í sumar mun mikill fjöldi
ungra manna leggja stund á flug
nám hjá „Þyt“. Forstöðumaður
skólans undanfarin ár hefur ver-
ið Karl Eiríksson.
+ 23 brunaliðsmenn og frétta-
ljósmyndari fórust í Mel-
bourne í gær, er sprengia, sem
komið hafði verið fyrir í salerni
í kjallara ráðhússins, sprakk.
^ BEZT AÐ 4VGLÝSA L
T / MORGVmLAÐlNV T
/ERDIIMAND
Hagsýni húsfreyjunnar
OQ.
Útför í Stykkis-
hólrni
STYKKISHÓLMI, 2. júní. —
Síðastl. laugardag var frú Mar-
grét Magnúsdóttir jarðsungin
frá Stykkishólmskirkju. Próf-
asturinn sr, Sigurður Ó. Lárus-
son jarðsöng. Margrét var fædd
að Innri-Fagradal á Skarðsströnd
9. apríl 1882, en foreldrar hennar
voru Sigurbjörg Guðmundsdóttir
og Magnús Magnússon. Árið 1903
giftist hún eftirlifandi manni sín
um Ebeneser Þorlákssyni og hófu
þau búskap í Rúfeyjum á Breiða-
firði þar sem þau bjuggu í ald-
arfjórðung. Þau fluttust hingað
1928 og hér hafa þau átt heima
síðan. Þeim varð þriggja barna
auðið sem öll eru lifandi og ólu
auk þess upp tvo fóstursyni.
Síðustu árin átti Irú Margrét
við mikla vanheilsu að stríða og
andaðist 23. maí síðastl. Hún var
mikil mannkosta kona. —Árni.
* KVIKMYNDIR *
Fótatak \ þokurmi
STJÖRNUBÍÓ sýnir um þessar
mundir ameríska sakamálamynd
í litum er nefnist „Fótatak í þok-
unni“. Er myndin gerð eftir sögu
sem bírzt hefui í danska viku-
blaðinu „Hjemmet" og munu
margir því kannast við efni mynd
arinnar. Fjallar hún um ungan og
glæsilegan mann, Stephen Low-
ry, sem hefur kvænzt til fjár, en
losnað við konu sína með því að
byrla henni eitur í smáskömmt-
um, er leiddi hana til bana. Þjón-
ustustúlkan á heimih Stephens,
hefur komizt að glæp hans og
neyðir hann til pess að fa henni
ráðskonuvöldin á heimilinu og
jafnvel til að lofa að kvænast
henni. — Hann reynir nú einnig
að koma þjónustustúlkunni fyrir
kattarnef, en myrðir aðra konu
í misgripum, en þá grípui hann
til annarra kaldrifjaðra úrræða,
því hann hefur nú augastað á
ungri og auðugri stúlku, sem
hann hyggst kvænast til fjár.
Þessi ráðagerð Stephens mistekst
þó herfilega, en sú saga verður
ekki rakin hér.
Mynd þessi er með bezt gerð-
um sakamálamyndum sem hér
hafa sézt um langan tíma, spenna
myndarinar geysimikil og leikur-
inn afbragðsgóður, en Stewart
Granger og kona hans Jean
Simmons, leika aðalhlutverkin,
Stephen Lowry og þjónustu-
stúlkuna Lily Watkins. Af öðrum
ágætum leikurum í myndinni má
nefna Belinda Lee og Bill Trav-
ers — Ego.