Morgunblaðið - 05.06.1958, Qupperneq 19
Fimmtudagur 5. júní 1958
MORCUNBLAÐtÐ
19
Liö'smenn Bury við Loftleiðavélina er flutti þá til íslands.
Afvinnumennirnir áttu leikinn
en KR skoraði
sem voru þó án þunga og voru
ekki alvarleg hætta fyrir Bury.
FYRSTI leikur atvinnumannanna
frá Bury fór fram í gærkvöldi
og mættu KR-ingar þeim. Úrslit
urðu þau, að KR vann með 1
marki gegn engu. íírslit þessi
komu mjög á óvænt og gefa enga
hugmynd um gang leiksins. Bury
hafði frumkvæði um allan leik,
og var í sókn á vailarhelmingi
KR, sennilega 80—85 mín. af
lciktímanum. En leiðin fyrir
knöttinn inn í markið var lokuð,
ýmist fyrir frábæran leik Heimis
í marki KR, fyrir harðfylgi KR-
vamarinnar eða hrcina heppni.
Mörg og falleg markskot Bury-
manna flugu „hárfínt" framhjá,
og má sennilega kenna það mal-
arvellinum, þar sem knötturinn
lyftist meira en á grasvelli, en
slíkum eru Rury-menn vanir.
Yfirburðir.
Bury náði þegar í upphafi tök-
um á leiknum og sóknin var þung
að marki KB. í tækni, í hröðum
leik, um nákvæmni í sendingum
og yfirleitt öllu sýndi Bury yfir-
burði. Og þó leikurinn hefði end-
að með 4—5 mörkum gegn einu
hefði ekki þurft að tala um
óheppni KR-inga.
Bury sækir á — KR skorar
Átta sinmun í fyrri hálfleik
voru Bury-menn í „dauðafæri".
Þrívegis bjargaði Heimir meist-
aralega vei, en hín skotin sleiktu
stangir og þverslá.
í þessum hálfleik átti KR í
raun og veru aðeins eitt upp-
hlaup alla leið að marki Bury, —
en þetta eina var líka lengra en
að markinu, knötturinn hafnaði í
því. Ellert Schram útherji og Þór
ólur Beck miðherji léku saman
upp vinstri væng, Þórólfur gaf í
eyðu og Ellert brunaði inn fyrir
varnarvegg Bury og skoraði lag-
legt mark. Þetta reyndist sigur-
markið í leiknum.
Bjargað á línu
Lengst af í síðari hálfleik var
sókn Bury jafn látlaus og áður
— og oft lá mjög nærri. — Heiiri-
ir varði með stakri prýði. Sér-
staka athygli vakti er hann tví-
vegis varði glæsilega föst jarðar-
skot út í bláhorni marksins. Og
eitt sinn var knötturinn kominn
framhjá honum, var á marklínu
er Garðar krækti í hann og sendi
út fyrir endamörk. Gæfan sveik
ekki KR þetta kvöld. Hún var
12 hlekkurinn í liði þeirra.
Er undir lokin dró var komin
uppgjöf í Bury-menn vegna mót-
lætisins. KR náði nokkrum lag-
legum snöggum upphlaupum,
íslenzk blómafrímerki
ÞANN 8. júlí nk. verða gefin
út tvö íslenzk frímerki með
myndum af íslenzkum blómum.
Merki þessi verða prentuð í lit-
um og eru verðgildi þeirra eins
og sjá má á meðfylgjandi mynd-
um, 1 króna (eyrarrós) og kr. 2,50
(fjóla).
Það var vel til fallið að veija
íslenzk blóm sem „mótív“ á frí-
merki og er vonandi að vel tak.'st
með prentun og annan frágasig
merkjanna, en þau eru prentuð
hjá Thomas de la Rue i Londun.
Smekklegra liefði verið að hata
merkin aðeins stærri eða af sömu
stærð og blómamerki annarra
landa, t. d. Luxemborgar þvi
blómin njóta sín betur í slikri
stærð. Upplag þessara nýju frí-
merkja má telja með minna móti,
því að af 1 krónu-merkinu eru
1.250.000 og af kr. 2,50, eru aðeins
750.000 stykki.
Söfnurum skal á það bent, þeg-
ar þeir kaupa þessi frímerki, að
athuga að merkin séu vel „eent-
eruð“, en því hefir verið töluvert
ábótavant á íslenzkum frímerkja
útgáfum síðari ára
— J. Hallgr.
Liðin
Lið Bury virðist skipað jafn-
sterkum mönnum, sem allir búa
yfir meiri knatttækni en okkar
menn, enda atvinnumenn. Hraða
eiga þeir nógan ef því er að
skipta og skot föst og góð, þó
„kanonur" þeirra væru ekki
stilltar fyrir malarvöllinn hér.
Trú mín er að þeir eigi eftir að
læra aðferðina — og það fljótt.
Hliðarframverðir Bury réðu
vallarmiðjunni svo innherjarnir
gátu óskiptir farið í sókn með
miðherja og útherjum. Spil þeirra
þeirra varð stundum helzt til
þröngt inná eða innan vítateigs
KR. A vörnina reyndi lítið sem
ekki. Þetta var leikur a milli
sóknarlinu Bury og varnar KR
fyrst og fremst.
Vörn KR stóð sig með stakri
prýði i þessum leik. Hæst ber þar
Heimi í markinu. Hreiðar og
Hörð Felix-on. Þessir þrír sýndu
með leik sinum nú að þeir væru
verðugir nýliðar í ísl. landslið-
inu og þurfa annarra félaga menn
vel að spjara sig í leiknum við
Bury, ef þeir eiga að skyggja á
val þessara þriggja. Garðar og
Helgi voru lengst af í vörn og
skiluðu sínu vel. Framlínan
reyndist sizt, en beztan leik þar
sýndi Ellert Schram.
Næst mæta Bury menn Vals-
mönnum og verður sá leikur á
föstudagskvöld. —A.St.
BarSzt í Beirut
BEIRUT, 4. júní. — í Beirut höf-
uðborg Líbanons var enn barizt
í dag og létu nokkrir menn lífið
í þessum bardögum. Ennfremuf
urðu sprengingar víða í borginni.
Uppreisnarmenn hafa eitt hverfi
borgarinnar á sinu valdi. Annars
staðar í landinu ráku hersveitir
stjórnarinnar flótta uppreisnar-
manna og gerðu loftárásir á
byssustæði þeirra.
Sex bátar með
tæpar 50D lunmir
AKRANESI, 4. júní. — í dag
komu reknetjabátarnir sex að
tölu hingað með tæpar 500 tunn-
ur af mjög fallegri síld. Höfðu
þeir verið 12 mílur suður af
Reykjanesi. í gær var síldin treg
hjá öllum nema Bjarna Jóhannes
syni. Hann /ar eini báturinn, sem
var suðurfrá í gær og fékk þá
150 tunnur. —Oddur
EGGERT CLAESSEN og
GÚSTAV A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmeim.
Þórshamri við Tempiarasund
Dönsku leikar-
arair héldu lieira
DANSKI leikflokkurinn frá
Folketeátret í Kaupmannahöfn,
lauk leikför sinni um allar höf-
uðborgir Norðurlandanna með
leiksýningu sinm í Þjóðleikhús-
inu s.l. þriðjudagskvöld. Húsfyll-
ir var á sýningunni. Héldu leik-
ararnir siðan til Kaupmannahafn
ar árla dags á miðvikudag.
Leikflokkurinn kom hingað
sunnudaginn 1. júní og þá um
kvöídið bauð danski sendiherr-
ann Grev Knud leikurunum tii
kvöldverðar. Á mánudag vo-u
Danirnir í hádegisverðarboði Fé-
lags íslenzkra æikara, en þai
voru um 40 íslenzkir leikarar sam
ankomnir til þess að fagna hinun.
góðu gestum. Um kvöldið var
sýning í Þjóðleikhúsinu og að
sýningu lokinni afhenti Þjóðleik-
hússtjóri, Guðlaugur Rósinkranz,
danska leikhússtjóranun. Thor-
vald Larsen, lárviðarsveig, og
lýsti í ræðu sinni gleði yfir því,
að hann hefði komið með flokk
sinn hingað til Reykjavíkur. —
Thorvald Larsen þakkaði fyrir
lárviða_ iveiginn og nllan þann
hlýhug, sem honum og leikfloxkn
um I nfði verið sýndur. Formað-
ur Félags íslenzkra leikara færði
leikflokknum blóm frá félaginu.
A þriðjudag sátu di.'asku leik-
ararnir hádegisverðarboð hja
menntamálaráðherra og óku ausi
ur á Þingvöll síðdegis í blíðskap-
arveðri og sólskini. Um kvöldið
léku þeir fyrir troðfullu húsi og
við mikinn fögnuð áhorfenda og
héldu svo heimleiðis næsta morg-
un.
— Skógrækt
Framh. af bls. 2
menn vinna afrek á leikvangi.
Síðan dró hann upp úr ferða-
tösku sinni þrjá fallega silfurbik-
ara mismunandi stóra, sem hann
sagði að skógræktarfólkið ætti að
keppa um til minningar um ís-
landsferðina og starfið við að
klæða landið aftur skógi. Bað
hann forráðamenn skógræktar-
innar að veita bikurunum mót-
töku og einnig að annast veitingu
verðlaunanna.
Sr. Hope lauk máli sínu með
því að segja við hópinn: Megi
blessun fylgja starfi huga og
handar.
Hákon Bjarnason, skógræktar-
stjóri, þakkaði hinum norsku
ræðumönnum og færði sr. Hope
þakkir Skógræktarinnar fyrir
hina fallegu verðlaunabikara.
Þar með var móttökuhátíðinni
úrauninni lokið, því að þegar var
farið að hugsa fyrir alvarlegri
hlutum, ferðinni austur að Geysi
í Haukadal, þar sem Norðmenn-
irnir munu dveljast meðan þeir
eru hér eða fram í miðjan júní-
mánuð.
□--------------------□
ELDVARNAFRÆÐSLA SAM-
BANDS BRUNATRYGGJENDA
Á ÍSLANDI:
Fimmtudagur 5. júní.
Sýningargluggi í Bankastræti
(Málaranum).
Frásögn um eldvarnamál í
fréttaauka útvarpsins, Gísli Ól-
afsson form. S.B.Á.f.
Grein í dagblöðunum um olíu-
kyndingar og eldhættu.
D--------------------a
Faðir minn
HFXGI GUÐMUNDSSON
Hverfisgötu 66A, andaðist að heimili sínu að kvöldi 3. júní.
Guðrún Helgadóttir.
Móðir okkar
RAGNA JÓNSSON
andaðist að heimili sínu 3. júní.
EUen Eyjólfsdóttir,
Jón Eyjólfsson.
Minningarathöfn um
SNORRA ARINBJARNAR listmálara
bróður okkar, fer fram í Fríkirkjunni föstudaginn 6.
júni kl. 2.30.
Sveinbjörn Arinbjarnar og systkini.
Jarðarför
RAGNHEIÐAR MAGNfSDÓTTUR
frá Litlu-Drageyri,
sem andaðist 30. maí, fer fram frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 6. júní klukkan 3 síðdegis. Afþökkum blóm.
Aðstandendur.
EINAR J. ÓLAFSSON
kaupmaður Freyjugötu 26,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 6.
júní kl. 1,30.
Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Útför móður okkar og tengdamóður
GUÐRÚNAR GUÐJÓNSDÓTTUR
Selvogsgötu 5, Hafnarfirði fer fram frá Þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði föstudaginn 6. júní kl. 2. Jarðsett verður í
gamla kirkjugarðinum í Reykjavík.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Börn og tengdabörn.
Minningarathöfn um konuna mína, dóttur, systur og mág-
konu
GUÐRÚNU ERLU ARNBJARNARDÓTTUR
sem lézt af slysförum 30. jan. sl. hefur farið fram. —
Þökkum hjartanlega alla samúð og vinarhug.
Hjalti Gíslason, Arnbjörn Gunnlaugsson,
Guðrún og Haukur Claessen.