Morgunblaðið - 27.06.1958, Side 14
14
MÖRCT’*inr 4fí1D
Föstudagur 27. júní 195S
— / s'ild
Framh. af bls. 9
þad að vera. Myndarlegir sjó-
menn og snareygar síldarstúlkur
skilja hvort annað án mikilla
málalenginga.
En það er fleira að sjá en plan-
ið hans Gunnars Halldórssonar
þótt þar sé ýmislegt til fróðleiks.
Um leið og ég fer tekst mér að
fá þá til þess að „sitja fyrir“
verkstjórann Hinrik Haraldsson
og forstjórann Sævar Halldórs-
son, óg er ekki lapst við að ég
verði feiminn við myndatökuna
því Sævar er lærður ljósmynd-
ari. Það eru sem sé allra stétta
menn sem vinna að síldarsöltun.
Soðkjarnaframleiðsla
En nú er kominn tími til þess
að heilsa upp á þá í Síldarverk-
amiðju ríkisins og skoða soð-
Hnokkinn pæklar á tunnuna.
kjarnaframleiðsluna. í allstórri
steinbyggingu er komið fyrir
nokkrum hallandi strokkum og
þar inni er þrumandi hávaði, svo
mikill að vart heyrist mannsins
mál. I strokkunum hvín gufan
undir þrýstingi og er notuð til
þess að eima vatnið úr soðvatn-
inu, sem fellur til frá skilvind-
um verksmiðjunnar, en það hefur
að undanförnu verið látið
renna í sjóinn. I soðvatninu eru
7% þuxrefni, sem mikið verð-
mæti er í. í þessum tækjum er
soðvatnið eimað í þremur stigum
og er nokkru af þurrefninu bland
að saman við mjölið og gerir ekki
aðeins að auka mjölefnið heldur
verður það mun næringarrikara.
Sumt af soðkjarnanum er svo
tekið sérstaklega og. notað til
annara hluta. Þeir Vilhjálmur
Guðmundsson og Guðmundur
Bjöi'nsson leitast við að leiða mig
i allan sannleíka í sambandi
við þessi miklu tæki, sem þarna
hafa verið sett upp. Hér er um
merka nýjung að ræða, sem
mun gefa mikil aukin verðmæti
í aðra hönd.
Nú tekur að líða, á nóttina og
því ekki úr vegi að tygja sig til
heimferðar. Við komum við niðri
á bi-yggju þar sem verið er að
yfirhala nælonnót, sem kostar
tug-þúsundir króna. Skammt frá
sjáum við bát með brotið fram-
mastur og hann hefur misst nót-
ina sína. Það er elxki eintóm sæla
í sambandi við síldina, þótt hún
veiðist.
Um leið og við höldum gegnum
bæinn á heimleið er staldrað við
hjá skár sem á stendur að
hér fáist pylsur, öl og sælgæti.
Tvær broshýrar stúlkur rétta
okkur sjóðheitar pylsur í nestið
heim. Hér er ekki verið að ein-
skorða sig við að loka greiðasölu
íyrir ferðamenn fyrir miðnætti.
vip.
Ungír Akureyringar
sýna hœfni í golfi
AKUREYRI, 24. júní. — Keppn-
in um Gunnarsbikaiinn er ein
stærsta keppni Golfblúbbs Akur-
eyrar á árinu. Er hún háð til
minningar um Gunnar Hallgrims-
son tannlækni, er var meðal
snjöllustu golfleikara landsins og
einn áhugasamasti félaginn í G.A.
meðan hann lifði hér og starfaði.
Keppnin er 72 holu höggkeppni
með fullri forgjöf.
Sigurvegari nú varð Ragnar
Sigurðsson. Lék hann í 293 högg-
um nettó. Hann er aðeins 15 ára
gamall en mjög efnilegur golf-
leikari. Lék hann þessa keppni
með miklu öryggi, tók foi'ustuna
strax í upphafi og hélt henni til
loka. Vaið 17 höggum á undan
næsta manni.Bai'áttan um 2. og 3.
sætið var hörð og tvísýn. Eftir
hálfnaða keppni var Magnús Guð-
mundsson í 2. sæti, Jón Guðmunds
son í 3., en á síðasta hringnum
tryggði Jón sér 2. sætið.
Úi-slit uiðu þessi:
1. Ragnar Sigurðsson 293 högg
2. Jón Guðmundsson 310 —
3. Hex-mann Ingimai-ss. 314 —
4. Ingólfur Þormóðsson 315 —
(nettó)
5. Hafliði Guðmundsson 316 —
Þröstur Leifsson vann
æfingabikarinn
1 þeirri keppni voru leiknar 27
holur og 18 beztu reiknaðar.
Þx-östur Leifsson, 16 óra kylfing-
ur, sigraði í 79 höggum nettó.
Annar vaxð Helgi Skúlason og
þriðji Ingólfur Þoi'móðsson. Þröst
ur er efnilegur leikari og má
vænta mikils af honum í fram-
tíðinni, ef hann æfir vel.
Áhugi er mikill meðal kylfinga,
og hafa margar keppnir þegar
verið háðar við betri þátttöku en
undanfarin ár. Einkum er vax-
andi áhugi meðal unglinga, og er
yngsti keppandinn um „Olíubik-
ai-inn" aðeins J3 ára, en sú keppni
stendur nú yfir.
1 næsta mánuði fer hér fram
Islandsmót í golfi, og er mikið
unnið að viðgerðum á vellinum til
að fá hann sem beztan á lands-
mótinu.
Ragnar Sigurðsson, sigurveg-
ari í Gunnars-keppninni.
'Landsmót unglinga
oq kvenna i frjáls-
um iþróttum
á Akureyri
AKUREYRI, 23. júní — Unglinga
meistaramót íslands og Kvenna-
mót íslands í frjálsum íþróttum
munu fara fram hér á Akureyri
um næstu helgi, 28.—29. júní.
Undirbúningur undir mótin er
þegar hafinn.
Keppni hefst á laugardag kl. 2
e. h. á íþróttasvæðinu, en verður
síðan haldið áfram á sunnudag
kl. 11 og kl. 5. Keppt verður í
hinuxji föstu greinum unglinga og
kvenna.
Þátttökutilkynningar eru þeg-
ar byrjaðar að berast, en til-
kynningafrestur er til fimmtu-
dagskvölds og má tilkynna í póst-
hólf 112 á Akureyri.
Síðasta unglingamót fór fram
í Reykjavík síðastliðið ár og var
þátttaka góð. Skipting þátttak-
enda í sveina-, drengja- og ung-
lingaflokka hefur aukið mjög
áhuga á frjálsum íþróttum og
orðið þess valdandi að unglingar
sækja þessar keppnir mun meir
en áður.
Víkingar hafa vígt nýjan
völl á félagssvœði sínu
FÉLAGAR knattspyrnufélagsins
Víkings hafa undanfarið ár
unnið sleitulaust að því að skapa
félaginu frambúðaraðstöðu til
íþróttaiðkana. Fengu Víkingar
úthlutað svæði í Bústaða- og
smáíbúðahverfinu og hafa reist
þar félagsheimili í fyrsta áfanga
og síðan knattspyrnuvöll og var
völlur þessi vígður fyrir nokkr-
um dögum. Við hin erfiðustu fjár
hagsskilyrði hafa Vikingar unnið
þarna þrekvirki. Leiðarljós
þeirra hefur verið bjartsýni og
trú á glæsta framtið íélagsins
sem á svo glæsilega fortíð, þótt
öldudalur hafi um skeið verið hjá
því, ef litið er til afreka í knatt-
spyrnunni.
Þröstur Leifsson með verð-
launagripina að lokinni
keppni um Æfingabikarinn.
IKF - IBV 3:1
KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 25
júní — 9. leikur íslandsmótsins
í II. deild fór fram á grasvellin-
um í Ytri-Njarðvík sl. þriðjudag.
— Attust þar við íþróttafélag
Keflavíkurflugvallar og iþrótta-
bandalag Vestmannaeyja. ÍKF
sigraði með 3:1.
Úrhellisrigning var síðan
hluta dags þar til skömmu áður
en leikurinn hófst, enda hafði
það áhrif á gang leiksins, þai
sem bæði liðin eru óvön að
keppa á grasi. Mikið var um að
menn féllu á hálu grasinu og
misstu knöttinn fram hjá sér. er
þeim skrikaði fótur.
Vestmannaeyingar munu hafa
ætlað að hér væri um auðunn-
inn sigur að ræða, eftir ófanr
ÍKF gegn Víking á dögunum, en
ÍKF mætti nú með sitt sterkasta
lið, enda náði framlína þeirra
mun jákvæðari leik en í leikum
félagsins í Reykjavík.
Mörk ÍKF settu Yngvi Guð-
mundsson, Guðjón Valdemarsson
og Villy Petersen. Guðmundur
Þórarinsson skoraði fyrir ÍBV.
Bezti maður ÍKF og jafnframt
á vellinum var markmaður ÍKF.
Vilhelm Ólafss., sem sýndi mjög
góðan leik. Yngvi var einnig
mjög góður og Villy, er lék sem
miðframherji í fyrsta skipti, var
frískur og fljótur.
Beztur í liði ÍBV var Guð-
mundur Þórarinsson; Reynir Sig-
urðsson, vinstri útherji, vai
einnig mjög fljótur og oft hættu-
legur.
Dómari var Haukur Óskarsson.
Þorlákur Þórðarson.
Víkingar byrjuðu framkvæmd-
ir með 80 þús. kr. í sjóði en
á 4 árum hafa verið reist mann-
virki sem metin eru á aðra mill.
króna. Styrk hafa þessar fram-
kvæmdir sem aðrar á íþrótta*
sviðinu hlotið frá Reykjavíkur-
bæ og ríki. En miklum hluta hef-
ur verið safnað með mikilli elju
með ýmsu móti og athyglisverð-
asti þátturinn í söfnuninm eru
framlög og gjafir íbúa í hinum
nýju hverfum. Greiddu fyrsta
árið 200 fjölskyldur 10 kr. á man
uði í byggingarsjóðinn og munu
nú vera um 300 fjólskyldur sem
leggja fram þá upphæð mánaðar-
lega. Sýnir þetta ljóslega hug
fólksins til íþróttasvæðisins og
hvers það metur það að slíkur
staður rís upp í hverfmu fyrir
hina uppvaxandi kynslóð.
Knattspyrnuvöllurinn var vigð
ur með hátíðlegri athöfn og að
viðstöddum miklum fjölda fóiks.
Form. Víkings, Þorlákur Þórðar-
son flutti vígsluræðuna, þar sem
hann lýsti framkvæmdum, kostn-
aði og þakkaði alla aðstoð Vík-
ingi veitta. Rakti hann og tnarg-
þætt framtíðarverkefni á svæð-
inu sem biðu úrlausnar.
Síðan fóru fram tveir kapp-
leikir. Keppti Víkingur 3. alduvs-
flokkur við jafnaldra i Va!. Liðin
stilltu sér upp en tveir litlir Vík.
ingar strengdu borða yfir mið-
linu sem formaður klipptj síöan
á til merkis um að völlurinn
væri opnaður æsku Reykjavikur,
æskumönnum Víkings, og lét
form. í *ijós að völlurinn mætti
verða þeim til heilla og knatt-
spyrnuíþróttinni. Valur vann
leikinn með 3:0. Síðan léku 4.
aldursflokkur Víkings og KR.
Unnu KR-ingar með 1:0.
Síðan var efnt til samsætis fyr-
ir þátttakendur og ýmsa gesti,
Voru þar ræður fluttar. Þar kom
greinilega í ljós almenn skoðun
um að Víkingur hefði nú komið
sér upp framtíðarheimili.
Knait rekstur.
50 selt. með vinstri oy hagri fa:ti, sitt i hvorn v«g, —
Z stig fyrir hverja sek. undir 50
Þetta er eín þrautanna, sem verða keppnisgreinar á ung-
lingadaginn, 29. júní.