Morgunblaðið - 27.06.1958, Síða 16
VEÐRIÐ
Hægviðri, skúrir.
nrguittMft:
142. tbl. — Föstudagur 27. júní 1958
í síld
á Siglufirði. — Sjá bis. 9.
Saltaðar hafa ver/ð 47,935
tunnur á öllu landinu
Bræla á miðunum i gærkvöldi
SÍÐDEGIS í gser var komin
braela á miðunum og ekkert skip
hafðí kastað. Einnig var bræla
á austursvæðinu og var ekki bú-
izt við að lægja myndi í nótt.
SIGLUFIRÐI, 26. júní. —- Ekki
hafa borizt miklar fréttir af mið-
unum, en nokkur skip munu hafa
íengið síld. Vitað er um 28 skip
sem fengið hafa síld frá eftirmið-
■degi i gær til sama tíma í dag:
Egill Skallagrímsson með 400
mál, Bjarni VE með 300 tunnur,
Helga RE 350, Jökull 250, Grur d-
firðingur II 250 i salt og 200 mál
í bræðslu, Haförn með 1000 mál
í bræðslu, og 100 tunnur í salt,
Björg SU með 300, Helga TH 250,
Viiborg 250, Geir 400, Guöm.
Þórðarson 270, Björgvhi 250, Ótal
in skip eru með undir 250 tunnur.
Mikil vinna er við aðgerðir á
nótum, bæði rifið og tildráttur
á blýi og korki á nælonnótunum.
Síðasta sólarhring voru .altað-
ar 5426 tunnur, Alls er þá búið
að salta á Siglufirði 36771 og öllu
iandinu 47935. Hæstu stöðvar hér
með söltun: Óli Hinriksen 3106
Blöðin fá engar fréftir af
fiskifrœðingafundinum
í GÆR höfðu ekki boriz neinar
fregnir frá fiskifræðingafundin-
um á Seyðisfirði, sem hófst mánu
daginn 23 .þ.m. Á fundinum voru
mættir leiðangursstjórar, fiski-
fræðingar, íslenzkir, norskir, fær-
eyskir og rússneskir.
Mörg undanfarin ár hafa nið-
urstöður þessara rannsókna ver-
ið kunngerðar hinn 25. júní, en
nú bregður svo við að ekkert
heyrist frá fiskifræðingunum
um árangur af síldarleit og rann
sóknum hér við land undanfarn
ar vikur. Hins vegar hefur frétzt
að Ægir hafi verið með bilað
asdic-tæki er hann kom til Seyð
isfjarðar á mánudaginn, en síldar
leit skipsins kemur að litlum
notum ef það tæki er bilað. Ó-
upplýst er hve lengi tækið hafði
verið bilað er skipið kom til
Seyðisfjarðar, en sjálfsagt var
að fá tafarlausa viðgerð á því, en
til þess þurfti skipið að fara til
Reykjavíkur. Af ókunnum orsök
um lá skipið á Seyðisfirði áður
en því væri siglt til Reykjavík-
ur til að fá viðgerð á tækjunum.
Er Ægir nú hér í höfninni og
mun fara aftur norður til síldar-
leitar um helgina.
Á síldveiðiflotanum er nú ríkj
anc.. megn óánægja yfir því, að
Ægir skuli tefjast frá leitar-
etöðvum í marga daga. Ekki er
Stóreignaskatts-
skráin í næstu
viku ?
A SKATTSTOFUNNI er nú ver-
ið að vinna að því að undirbúa
birtingu stóreignaskattsskrárinn-
ar, samkvæmt dómsuppkvaðn ■
ingu Hæstaréttar þar um.
Þetta er allumfangsmikið verk,
en því mun miða allvel áfram,
þannig að vonir standa til að skrá
in verði lögð íram fyrir lok
næstu viku. Hún verður lögð
fram með skattálagningum eins
og þær voru ákveðnar er skatt-
urinn var lagður á, en engar
breylingar færðar inn, sem orðið
hafa við kærur. Þá mun enn
verða ákveðinn viðbótarkæru-
íiestur þá er skráin verður lögð
íram fyrir almenning.
EDINBORG, 25. júní, Reuter. —
Peter nokkur Manuel var nýiega
dæmeiur til dauða fyrir að hafa
myrt sjö manns. Áfrýjaði hann
dómnum, en í dag var áfrýjun-
inni vísað á oug. Taka á Manuel
af lífi 11. júlí. Ha.nn er 32 ára að
aldri.
óánægjan minni yfir því að fá
ekki ennþá yfirlit það sem lofað
hafði verið sl. miðvikudag um
niðurstöður fiskifræðingafundar
ins á Seyðisfirði.
1 síðari kvöldfréttum útvarps-
ins í gærkvöldi var lesin skýrsla
frá fiskifræðingunum, en hún
mun hafa farið fram hjá mörg-
um, þar eð engar ráðstafanir
voru gerðar til þess að vekja at-
hygli sjómanna og útgerðar-
manna á því að skýrslan myndi
þá verða lesin. Ritstjórn Morgun-
blaðsins hafði aftur á móti ekki
borizt þessi skýrsla.
Ekið á maimlausa
bíla
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
hefur beðið Mbl. að lýsa eftir
vitnum, en um er að ræða
skemmdir á tveim bílum sem
ekið hefur verið á, þar sem þeir
hafa staðið mannlausir. Báðir
urðu fyrir nokkrum skemmdum.
Bíllinn R-7668 stóð á móts við
húsið Bergstaðastræti 50, er ek-
ið var á hann aðfaranótt 25. júní,
sennilega milli kl. 2—3. Hinn
bíllinn stóð á bílastæðinu við
Garðastræti, R-8581, og skemmd
ist hurð á honum. Rannsóknar-
lögregla vill biðja bílstjórana á
þeim bílum sem valdir urðu að
árekstrinum að koma til viðtals
svo og aðra er uppl. geta gefið.
tunnur, Islenzkur fiskur 3091,
Sunna 2758, Reykjanes 2388,
Kaufélagið 2394. — Guðjón.
A
ÓLAFSFIRÐI, 26. júní. — í gær-
kvöldi komu hingað tveir síldar-
bátar, Kristján með 200 tunnur
og Gunnólfur með 500. í morgun
kom hingað Víðir með 400 tunn-
ur, einnig til söltunar. — J. Á.
Engir sáttafundir
ENGIR sáttafundir voru í gær
með deiluaðilum í farmannadeil-
unni, rafvirkjadeilunni né öðr-
um er-í verkfalli eru.
VEGFARENDUR í Aðalstræti^
urðu varir við það í gær, að
lítill þrastarungi hafði fallið nið-
ur á götuna úr hreiðri, sem var
uppi á bita í húsi Brynjólfs
Bjarnasonar. Litli unginn var
ekki orðinn fleygur, svo að ráð-
stafanir varð að gera til þess að
hjálpa honum „heim til sín“. Var
leitað á náðir slökkviliðsins, sem
hefir yfir stórum stigum að ráða.
Brá það skjótt við, og á efri
myndinni sést hvar slökkviliðs-
maður er kominn upp að hreiðr-
inu. Það hafði þá sýnilega verið
yfirgefið svo að ekki þótti ráð-
leg't að skilja ungann þar eftir.
Slökkviliðið tók því að sér að
ala hann upp þar til hann gæti
séð um sig sjálfur. — Á neðri
myndinni sést ung stúika varð-
veita ungann áður en slökkviliðið
kom tU. —Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Ungur Keflvíkingur hlýtur bunn
ú Kefluvíkurflugvelli
KEFLAVIK, 26. júní. — Ungur
maður héðan úr Keflavík lét líf-
ið á Keflavíkurflugvelli í dag
með sviplegum hætti. Hét hann
Þórður Þorsteinsson, til heimilis
á Suðurgötu 30 hér í bænum.
Þórður, sem var að vinna við
raflagnir á flugvellinum, var að
Ekki rignir enn í Hornufirði
ALLIR bátar frá Höfn í Horna-
firði eru nú farnir á síld, að því
er fréttamaðurinn á staðnum
tjáði Mbl. í gær. Bátarnir eru sex:
Akurey, Gissur hvíti, Helgi,
Fanney, Ingólfur og Sigurfari, og
eru þrír þeirra búnir að fá síld.
Austfjarðabátar fiska allvel á
færi úti fyrir suðausturströnd-
inni og leggja aflann stundum
upp i Höfn, í salt.
Brœður
hlutu bílinn
EIGENDUR vinningsmiðans í
happdrætti Sjálfstæðisflokksins,
hafa nú gefið sig fram. Það eru
bræðurnir Sigurður Bjarnasur.
raívirkjameistari, og Eiríkur
Bjarnason, skrifstofustjóri. —
Vinningurinn, sem er eins og
kunnugt er, ný og glæsileg Ply-
mouth-bifreið, var afhentur hin
um nýju eigendum í fyrradag.
Vorið hefur verið ákaflega
þurrviðrasamt í Hornafirði og
hefur ekki enn rignt. Stundum
sést þó rigning í fjöllum, en hún
nær aldrei niður á láglendið. —
Grasspretta er því með seinna
móti, og byrjar sláttur ekki fyrr
en einhverntíma upp úr næstu
mánaðamótum. I vor voru kart-
öflur settar niður seint, vegna
þess hve lengi var klaki í jörðu,
og í ár er sáð minna af gulrófna-
fræi en venjulega.
Hestamaimamót
á Akranesi
A SUNNUDAGINN kemur á að
verða hestamannamót í Barða-
nesi, á skeiðvelli Akurnesinga
við Berjadalsá. Þar keppa 20 gæð
íngar af Akranesi og 5 ofan úr
sveitum. Síðustu dagana hafa
hestamennirnir verið að æfa og
þjálfa hestana íyrir mótið.
mála spennubreyti uppi í staur
utan við flugskýli. Var hann
einn uppi á vinnupalli, þegar
hann féli skyndilega niður af
pallinum og var fallið 6—7 metr
ar. Hann var örendnur er nær-
staddir komu að. Ekki var vitað
með vissu hvort Þórður hafði
snert rafhlaðinn vír, en það at-
riði er í rannsókn í dag. Slysið
varð síðdegis í dag, milli 4—5.
Þórður var aðeins 19 ára að
aldri. Hann var sonur Þorsteins
Þorsteinssonar skipstjóra, sem
var aflakóngur í Keflavík í mörg
ár, og látinn er fyrir þremur
mánuðum. Hann bjó hjá móður
sinni, önnu Bjarnadóttur og var
elztur 4 barna þeirra hjóna.
— HSJ.
r
a
Síld
Skjálfanda
í GÆRKVÖLDI bárust fréttir til
síldarleitarinnar á Siglufirði að
mótorbáturinn Svanur frá Hrís-
ey hafi lóðað á tvær síldartorfur
á Skjálfandaflóa, suðaustur af
Flatey, við svokallaðar Nafir. —.
Voru torfurnar tíu faðma undir
yfirborði og virtust 16—18 m
þykkar. Sjávardýpi þarna er 30
faðmar.
Ný síld hafði komið upp í fiski,
sem báturinn hafði aflað á þess-
um slóðum. Einnig fréttist að
fengist hefði á trillubát, sem var
við veiðar eigi langt frá, nokkrar
lifandi síldar, sem kræktust á
önglana, þegar færi voru dregm.
Þá fréttist einnig um annan trillu
bát, sem verið hafði á veiðum
í þverál út af Fjörðum, sem feng-
ið hafði nokkrar síldar.
Engin síldveiðiskip voru á þess
um slóðum, en búizt var við að
nokkur skip myndu leita síldar
þar og vera komin á staðinn kl.
2—3 í nótt sem leið. Bræla var
á útmiðum, suðaustan 4—5 vind-
stig, en talið hugsanlegt að hægt
væri að vera við veiðar nálægt
landi.
Skattgreiðslur
RÉTT er að vekja athygli á því,
að á morgun (laugardag) eru síð-
ustu forvöð að tilkynna til firma-
skrár, ef óskað er eftir því, að
sameignarfélög séu skattlögð sér
staklega sem félög. Ný ákvæði
um þetta atriði voru sett á Al-
þingj í vetur, og fjálla þau um
þreytingu á 3 .gr. skattalaganna.
Mœling geislavirkra efna
að hefjast hér á landi
UM þessar mundir er verkfiæð-
ingadeild Háskóla íslands að
hefja mælingar geislavirkra efna
og er verið að koma upp nauð-
synlegum tækjum.
Mbl. leitaði í gær frétta af
þessu hjá Þorbirni Sigurgeirssyni
prófessor, sem mun hafa yfirum-
sjón með þessum mælingum.
Sagði hann, að mæla ætti geisla-
virk efni í andrúmsloftinu, geisla
virka isotopa sem notaðir eru við
ýmsar tilraunir og geislavirk
efni í sambandi við notkun þeirra
til lækninga.
Tæki þau sem notuð verða eru
smíðuð af Páli Theodórssyni eðlis
fræðingi, en hann er nýkominn
heim frá Danmörku, þar sem
hann hefur starfað hjá dönsku
kjarnorkunefndiani og einmitt
unnið við tilraunir með nýjar
gerðir mælitækja. Mun Páll í
framtíðinni vinna að mælingu
geislavirkra efna hér á landi með
þessum tækjum sínum.