Morgunblaðið - 07.09.1958, Síða 2
MORCVNBLAÐtÐ
Sunnudagur 7. sept. 1958r
Fordæma athæfi
Breta
Á FUNDI bæjarráðs Hafnarfjarð
ar, hinn 5. sept. s.l., var gerð eft-
irfarandi áfyktun:
„1. Samþykkt að leggja eftir-
farandi tillógu fyrir bæjarstjórn-
arfund:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
fagnar útfæislu íslenzkrar fisk-
veiðilandhelgi í 12 sjómílur og
telur, að sú ráðstöfun sé óhjá-
kvæmilegt skref til verndar lífs-
hagsmunum íslenzku þjóðarinn-
ar og í fyllsta samræmi við rétt
hennar.
Jafnframt þakkar bæjarstjórn-
in þeim þjóðum, sem með beinum
yfirlýsingum eða í verki hafa
viðurkennt hina nýju 12 sjómílna
fiskveiðilandhelgi. 1
Þá fordæmir bæjarstjójrnin
harðlega þá framkomu brezku
stjómarinnar, að beita herskip-
um til verndar skipulögðum land
helgisbrotum brezkra togara og
fremja ofbeldisaðgerðir gegn
vopnlausum starfsmönnum hinn-
ar íslenzku landhelgisgæzlu, sem
sýnt hafa aðdáunarverða still-
ingu og festu í átökunum við
landhelgisbrj ótana.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
skorar á ríkisstjórnina að beita
öllum tiltækilegum ráðum til
þess að vinna fullnaðarsigur í
landhelgismálinu og hvetur alla
landsmenn til þess að mynda ó-
rofafylkingu um framkvæmd
málsins og sýna í hvívetna ó-
sveigjanlega samheldni og sigur-
vilja þar til yfir lýkur“.
★ Genf, 2. sept. — NTB-Reuter
— Hammarskjöld fór frá Genf til
Kaíró í dag, þar sem hann hyggst
hefja að nýju viðræður við leið-
toga Arabaríkjanna um lausn ú
vandamálum landanna við aust-
anvert Miðjarðarhaf.
Þegar uppgröftur hófst á Arnarhóli.
eftir gömlu tröð-
unum á Arnarhóli
Komib niður á beinamylsnulag og
siðar múrsteina
SL þriðjudag hófst uppgröftuí
á gömlu tröðunum, sem vitað er
að legið hafa skáhallt niður eftir
Arnarhólstúninu og niður að
sjó. Mun þetta vera elzti vegur á
fslandi. Eins og áður hefur verið
frá skýrt, hefur Þorkell Gríms-
i I i
SKAK
Hvítt: M. Tal (Sovétríkjunum)
Svart: Dr. M. Filip (Tékkósl.)
Spánski leikurinn
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Bel 6. Hel
b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3
Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Dc7 12.
Rbd2 Rc6 13. dxc5 dxc5 14. Rfl
Bd6 (Þennan leik hefur Botvinn-
ik innleitt á skákmótum. Svartur
áætlar að flytja Rce7 og valda
þannig d5 og f5) 15. Rh4 Re7
16. Df3 Hd8 17. Re3 (Ef 17. Bg5
þá Re8 18. Rf5 Bxf5 19. exf5 f6
og svartur stendur traust) 17. ..
Db7 18. g4 c4 19. Re3f5 Rxf5
20. Rxf5 Bxf5 21. gxf5 Kh8 22.
Kh2 (örlítil ónákvæmni. Eins og
síðar kemur í Ijós þarf Tal að
eða leik í að flytja kónginn af
skálínunni h2—b8). 22. .. h6
23. Hgl De7 24. Bd2! (Ekki 24.
Be3 vegna Bc5) 24. .. Bc5 25.
Hadl Hd7 26. Dg3 Df8 27. Khl
(Nú kemur það hvítum í koll
að hafa ekki leikið 22. Khl).
27. .. Had8 28. Bxh6!? (Þessi
leikflétta á ekki að færa hvítum
nema jafntefli). 28. . . gxh6 29.
Dxe5 Be7 (Sterkara var 29. ..
De7 30. Df4 Rh7 31. Hxd7 Hxd7
32. e5!) 30. Hd4!Hxd4 31. cxd4
Kh7 32. Hdl Re8? (Leiðir til
skjóts taps).
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Staðan eftir 32 — Re 8?
33. f6! RxfG 34. Df5t Kh8 35.
e5 Dg7 36. exf6 Bæf6 37. Hgl
Bg5 38. f4 gefið.
— IRJóh.
Hvítt: Fiister (Kanada)
Svart: Friðrik Ólafsson
1. d4 f5 2. g3 Rf6 3. Bg2 e6
4. Rf3 Be7 5. 0-0 0-0 6. c4 d6
7. Rc3 De8 8. Hel Dg6 9. b3
(Betra var 9. e4) 9. . . Rc6 10.
d5 exd5 11. Rxd5 Rxd5 12.
Dxd5f Be6 13. Dd2 f4! 14. Bb2
Hf7 15. Rd4 Rxd4 16. Bxd4
Haf8 17. Hfl h5! (Fuster hef-
ur horft á andstæðing sinn skipa
liði sínu til sóknar án þess að
hafast að. Hann hlýtur að gjalda
afhroð). 18. Khl fxg3 19.
hxg3 h4 20. Dd3 Bf5 21. De3
c6 22. Bxa7 Bg5 23. Dc3 Dh6
24. Kgl hxg3 25. Dxg3 Bf4 26.
Be3 Bxg3 27. Bxh6 Be5 28.
Bg5 Bxal 29. Hxal He8 30.
e3 Be4 31. Bh3 Bf3 32. a4 d5
33. c5 g6 34. Kfl Hh7 35. Bg2
Be4 36 f3 Bc2 37. b4 Hh5 38.
Bf4 g5 39. Bg3 IIxe3 40. Bf2
Hb3 41. gefið.
Svona á ekki
að tefla
ÞÆTTINUM hefur borizt skák-
bók eftir skákmeistarann E. A.
Znosko-Börovsky, og nefnist hún
„Svona á ekki að tefla“. Inngangs
orð ritar Friðrik Ólafsson, en
Magnús G. Jónsson hefur ís-
lenzkað og er það í annað skipti
sem Magnús ræðst í að íslenzka
skákbók, og á hann skiiið rniklar
þakkir fyrir verk sitt.
Bókin fjallar um byrjenda-
örðugleika og nær höf. oft og tíð
um aðdáaniegum tökum á verk-
efninu. Það er álit mitt að bókin
eigi erindi til íslenzkra meistara-
flokksmanna jafnt sem byrjenda.
Bókin er prentuð á allgóðan
pappír, og hefur Iðunn séð um
útgáf u Iiennar.
son, fornleifafræðingur, yfir-
umsjón verksins, og er ætlunin
að grafa tveggja metra breiðan
skurð þvert yfir hrygginn, sem
enn markar slóðina.
Fyrir rúml. viku var girt af svæð
ið, þar sem grafa á og rist ofan
af. Uppgröfturinn hófst svo á
þriðjudag.
Fyrir skömmu leit fréttam. blaðs
ins við hjá uppgraftrarmönnun-
um, þar sem þeir voru við vinnu
sína. Ekki langt undir yfirborð-
inu, þar sem neðri traðarveggur-
inn hefur staðið, höfðu þeir kom-
ið niður á beinamylsnu, viðarkol
og móösku. Var þar mest af fisk-
beinum, en einnig bein úr sauð-
fé og stórgripum. Höfðu og fund
izt múrsteinar í grjótinu í megin
tröðunum. Bendir það til þess að
einhvern tíma hafi verið uppfyll
ing í tröðunum. Annars er enn
sem komið er ekki hægt að segja
um það með vissu hvernig múr-
steinarnir eru til komnir, hugs-
anlegt að þeir séu úr veggja-
hleðslu.
þessarar gömlu alfaraleiðar.
í gær voru uppgraftarmenn-
írnir komnir niður úr lausa-
grjóti og niður á fast leirlag.
Verður nú grafið niður úr þvL,
til að komast að raun um hvort
þetta er neðsti botninn í tröðun-
Hagl á stœrð við hœnuegg
Eitt mesta óveður aldarinnar í Englandi
LONDON, 6. sept. — í gær og í
nótt var eitt versta veður sem
komið hefur á S-Englandi á þess
ari öld. Árdegis I gær gekk hita-
bylgja yfir London og nágrenni,
en skyndilega skall á mesta hagl-
él og stormur sem fjörgamlir
menn minnast. Haglið var á
stærð við lítil hænuegg og vind-
hraðinn fór víða upp í 80 mílur
á klst.
Geysimiklar skemmdir urðu á
samgönguleiðum og tækjum svo
og á öðrum mannvirkjum. í
morgun voru engar jáárnbrautar-
ferðir úr miðri London upp í
Kensington — og var ástandið
hjá járnbrautunum eins og það
var einna verst eftir loftárásir
Þjóðverja á styrjaldartímunum.
Hermenn voru kvaddir á vett-
vang til aðstoðar við lagfæringar
og viðgerðir.
Sama var að segja um akvegL
Vatn var víða mikið, fólk flýði
heilu hverfin — og í nokkrum
bæjum var vatnið allt að því 8
feta djúpt í lægstu íbúðarhverf-
unum. Enn er ekki vitað hve
manntjón hefur orðið mikið, en
óveðrið er ekki með öllu gengið
yfir. Eldingum hefur lostið nið-
ur á nokkrum stöðum í morgun
og orðið mönnum að bana. Á ein
um stað laust eldingu niður í tvo
benzíngeyma og sprungu þeir i
loft upp. Samgöngur á lofti og á
landi hafa tafizt mikið vegna
veðursins — og ekki er búizt við
að þær verði komnar í eðlilegt
horf fyrr en í næstu viku.
/ slandsl jóð
Lyftum fánanum hátt og hyllum þá menn,
sem hræðast ei stál eða blý,
og réttar vors gæta með geiglausri ró,
þótt gangi þeir fangavist í.
Lyftum fánanum hátt við haf og í dal,
hvert hjarta, sem slær, er nú með.
Þau beygja ei okkur hin brezku vopn,
svo bljúgt er ei Islendings geð.
Hver flutti þeim björg yfir brimsollið haf
um blóðugust styrjaldar ár,
er sjórinn var íslenzka sjómannsins gröf,
ei sáu þeir harm vom og tár?
En, að launa með illu, með ofbeldi það
er ótrúleg staðreynd í dag.
Það virðist nú fátt sem væri of lágt
ef varðar það stórbrezkan hag.
Hver bar þá í land, þegar brotið hér lá
hið brezka skip upp við sand?
Hver hjúkraði þeim sínu heimili á
sem herja nú á okkar land?
Lyftum fánanum hátt, vér erum fámenn þjóð
og fátæk, en stöndum nú þétt
saman gegn erlendum árásarlýð,
sem ætlar að taka vorn rétt.
INGÓLFUR JÓNSSON
frá Prestsbakka.
Kirkjan i Gufudal er 50 ára i dag
Martinus flytur fyrir-
lestra hér á landi
NÝLEGA kom danski dulspek-
ingurinn, Martinus, hingað til
lands í boði vina sinna og aðdá-
enda. Er þetta í þriðja sinn, sem
hann heimsækir ísland, en fyrst
kom hann hingað í boði Guð-
spekifélagsins árið 1953, en aft-
ur í boði vina sinna árið 1955.
Að þessu sinni mun Martinus
flytja fimm fyrirlestra um kenn-
ingar sínar. Kallast fyrirlestra-
flokkurinn Hin eilífa heimsmynd,
sem skiptist svo aftur í smærri
fiokka. Verða þeir ékki taldir
hér, enda erfitt að átta sig á þeim
þar eð Martinus fer engar troðn-
ar, slóðir í öflun vizku sinnar.
Martinus er ekki lærður mað-
ur. Vitneskju sína byggir hann á
innsæi (intuition), sem hann
byrjaði að leggja stund á þegar á
þrítugsaldri. Hann hefur ekki!
kynnt sér skoðanir fyrri tíma
heimspekinga og telur það lán
fyrir sig, en þó leggur hann á-
herzlu á að hver maður læri að
þekkja sjálfan sig, og minnir þar
á gríska heimspekinga og ind-
verska spekinga. Að öðru leyti
hefur hann sótt mikið til Biblí-
unnar, m.a. hugmyndir sínar um
kærleikann og sannleikann. Öll
er framsetning Martinusar þó
með mjög nýstárlegum blæ og
hann fer engar troðnar slóðir,
eins og áður segir.
Fyrsti fyrirlestur Martinusar
verður á morgun kl. 9 í Austur-
bæjarbíói. Hinir fyrirlestrarnir
verða á sama stað síðar í vikunni
og verða þeir nánar auglýstir hér
í blaðinu.
1 DAG, 7. sept., eru 50 ár síðan
kirkjan í Gufudal í Austur-
Barðastrandarsýslu var vígð. Hún
var byggð sumarið 1908 að til-
stuðlan þáverandi prófasts sýsi-
unnar, séra Bjarna Símonarsor,-
ar á Brjánslæk og það sama
sumar var Brjánslækjarkirkja
líka byggð. Byggingarsmiður var
Jón Þ. Ólafsson trésmíðameistari
frá ísafirði, ásamt lærlingum
hans: Ágústi Guðmundssyni, nú
bónda á Ingjaldssandi og Guð-
mundi Breiðfjörð hér í Reykja-
vík. Bóndi í Gufudal var þá
Tryggvi Á. Pálsson og sá hann
um allan aðdrátt og vinnu á
grunni og Öðru utan tréverks,
ásamt Andrési bónda á Brekku
Hafði Tryggvi umsjón kirkjunn-
ar næstu 6 árin og var þar for-
söngvari.
Teikning og allt fyrirkomulag
kirkjunnar var gert af Rögn-
valdi Ólafssyni, bróður Jóns
yfirsmiðs.