Morgunblaðið - 19.09.1958, Blaðsíða 1
20 síður
45 árgangur
213. tbl. — Föstudagur 19. september 1958
Prentsmiðja Morgunblaðslns
Bandaríkin vísa Formósumál-
inu til Sameinuðu jbjóðanna
ef enginn árangur næst i viðræðunum
i Varsjá
NEW YORK, 18. september — Framtíð Sameinuðu þjóðanna
byggist á því hvernig við, sem þetta þing sitjum, bregðumst
skyldum okkar — að viðhalda friði og vinna að betra lífi
mannkynsins. — Þannig fórust Dulles, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, orð, er hann flutti fyrstu ræðu sína á Alls-
berjarþinginu, sem nú er nýhafið.
ember gætu hafizt viðræður í
Genf með tæknilegum sérfræð -
ingum á þessum sviðum.
Kvafíst hann vona, að þjóðir
hcims eygðu nú upphafið að
skipulagðri afvopnun. Þessu yrði
hins vegar aldrei komið í kring
nema full einlægni ailra aðila til
Dulles ræddi um vandamálin,
sem nú eru efst á baugi. Drap
hann fyrst á Formósumálið og
tók fram, að í þau níu ár, sem
kommúnistastjórnin kínverska,
hefði setið að völdum hefði hún
aldrei haft í höndum yfirstjórn
hinna umdeildu eyja undan
strönd meginlandsins. Nú ætluöu
kommúnistar að taka sér völd á
þessum eyjum — með ofbeldi.
Benti hann á, að Sameinuðu
þjóðirnar hefðu árið 1950 talið
tilraunir kommúnista til að „sam-
eina“ Kóreu vopnaða ofbeldis-
árás. Á sama hátt væri ekki hægt
að viðurkenna rétt kínverskra
kommúnista til þess að brjóta
undir sig eyjarnar umdeilau með
vopnavaldi — einungis vegna
þess, að þær væru „við hend-
ina“, eins og hann orðaði það.
★
Dulles sagði, að kínverskir
kommúnistar ógnuðu nú
heimsfriðnum með framferði
sínu. Þeir hefðu nú enn einu
sinni sýnt „friðarvilja" sinn.
Ef viðræðurnar í Varsjá bæru
engan árangur, mundu Banda-
ríkin leggja málið fyrir Sam-
einuðu þjóðirnar.
★
Þá minntist Dulles á atburðina
í Ungverjalandi, hvernig Ráð-
stjórnin hefði virt að vettugi sam
þykktir Sameinuðu þjóðanna —
og hvernig gegndarlausu ofbeldi
og kúgun væri haldið áfram í
landinu. Ráðstjórnin hefur einn-
ig staðið í veginum fyrir sam-
einingu Þýzkalands, sagði hann.
★
Því næst ræddi Dulles um at-
burðina fyrir botni Miðjarðar-
hafsins og kvað það von sína, að
þar færi að hægjast um. Viðræð-
ur hæfust bráðlega við hinn nýja
forseta Líbanons um brottflutn-
ing Bandaríkjahers frá Líbanon.
Útlitið væri betra, sagði hann —
og Arabaþjóðirnar hefðu nú stað-
ið saman að tillögu til úrbóta.
Þær hefðu á þann hátt gerzt
ábyrgari og miklar vonir væru
bundnar við þá þróun.
★
1 þessu sambandi gat hann
hins gegndarlausa útvarpsáróð-
urs, sem rekinn er af kommún-
istum í Arabaríkjunum. Hann
sagði æskilegt, að Sameinuðu
þjóðirnar kæmu á eins konar
könnun á þessum áróðri, áróðurs-
útsendingar útvarpsstöðvanna
yrðu hljóðritaðar — þá mundu
viðkomandi aðilar e. t. v. draga
úr.
Síðan lagði Dulles til, að Sam-
einuðu þjóðirnar stofnuðu eins
konar „friðarsveitir", þ. e. her-
sveitir, sem jafnan yrðu til taks
til þess að gegna eftirlitshlut-
verki í umboði SÞ í þeim hlut-
um heims, sem þörf krefði.
Dulles vék því næst að afvopn-
unarmálunum. Sagði hann
Bandaríkjastjórn mundu gera
allt, sem í hennar valdi stæði til
þess að draga úr hættunum á
skyndiárás. Viðræður sérfræð-
inganna í Genf hefði lofað góðu
og vonir stæðu til þess, að í nóv-
samkomulags væri fyrir hendi.
Þá drap Dulles á efnahagsmál-
in og hinni brýnu þörf á að bæta
hag þeirra þjóða, sem skammt
væru á veg komnar. Sagði hann
Bandaríkin reiðubúin til þess að
koma til hjálpar að svo miklu
leyti sem þau gætu.
Ógnunum fátæktar og sjúk-
dóma verður einungis mætt með
raunsæjum aðgerðum — og
hvatti hann allar þjóðir til þess
að sýna skilning á málefninu,
þörfin væri brýn.
Það mál, sem einna helzt þarfn
aðist nú skjótrar lausnar væri
„deilan“ um himingeiminn, sagði
Dulles. Þjóðir heims yrðu að
Framh. á bls. 19
Fyrsti loftbardaginn
TAIPEI, 18. sept. — Kínverskum
þjóðernissinnum tókst í dag að
afferma tvö birgðaskip við Que-
moy, en í gær vom þrjú skip
affermd án þess að kommúnistar
fengju rönd við reist.
Strandvirki kommúnista hafa
ekki verið ýkja hávaðasöm í dag
og tókst þeim ekki að vinna neitt
tjón á þessum fimm flutninga-
skipum.
Hins vegar hæfðu kommúnist-
ar strandgæzlubát þjóðernissinna,
sem var á siglingu 10 mílur und-
an Quemoy. Dráttarbátar komú
þegar á vettvang og drógu gæzlu-
bátinn, sem var nokkuð laskaður,
úr skotfæri strandvirkjanna.
★
Samkvæmt síðari fregnum
tókst þjóðernissinnum að granda
þrem rússneskum MIG-17 orr-
urstuþotum, í dag. Voru MIG-þot-
urnar 20 saman og sló í bardaga
með þeim og 4 þotum þjóðernis-
sinna, sem voru af bandarísku
gerðinni F-86. Þetta átti sér stað
í mikilli hæð um 20 mílur frá
Qruemoy. Segjast þjóðernissinnar
ekki hafa misst neina þotu í átök-
unum.
★
Talsmaður kommúsistastjórn-
arinnar sagði í dag, að Banda-
ríkjamenn hefðu nú 6 sinnum
farið inn í kínverska landhelgi
— og Bandaríkjamenn væru nú
aðvaraðir í sjöunda *inn.
Samkv. heimildum á Formósu
hafa 120 lestir matvæla og vopna
verið fluttar sjóleiðis til Quemoy
sðustu tvo dagana — *g 20 lestir
flugleiðis. Óttazt er, að haust-
stormarnir séu skammt undan og
þá verður enn erfiðara að ann-
ast flutningana. Á Quemoy eru
nú 100 þús. hermenn og 50 þús.
óbreyttir borgarar.
Talsmaður bandarísku her-
stjórnarinnar var spurður að því
í dag hvort bandarískar orrustu-
flugvélar mundu elta flugvélar
kommúnista yfir meginlandið, ef
hinar síðarnefndu gerðu árás á
þær bandarísku. Ekki vildi tals-
maðurinn gefa ákveðið svar, en
sagði, að sennilega yrði ákvörð-
unin um það tekin i loftinu —
af yiðkomandi flugforingja, ef til
slíkra átaka kæmi.
Frú Georgia Björnsson
fyrrum forsefafrú láfin
RÉTT í þann mund er Morgun- Frú Georgía Björnsson hafði
blaðið var fullbúið til prentunar fyrir nokkrum vikum verið flutt
i gærkvöldi, barst því andláts-
fregn frú Georgíu Björnsson, fyrr
um forsetafrúar, ekkju Sveins
Björnssonar, fyrsta forseta ís-
lenzka lýðveldisins.
Lögþingið kvattsaman
Um Jbrennf að velja, segir Berlingur
Ný láðstefna?
FREGNIR frá New Yoirk
herma, að á fundi dag-
skrárnefndar Allsherjar-
þingsins á miðvikudag-
inn hafi verið ákveðið,
að tillaga frá Dag Hamm
arskjöld um, að efnt
skyldi til nýirrar ráð-
stefnu um réttarreglur á
hafinu skuli tekin til um-
ræðu á Allsherjarþing-
inu.
Kaupmannahöfn, 18. sept.
Einkaskeyti til Mbl.
LÖGÞINGIÐ hefur nú verið
kvatt saman til þess að ræða
brezku miðlunartillöguna um fisk
veiðitakmörkin við Færeyjar.
Danska stjórnin hefur nú rætt
tillöguna, en ekki er búizt við
því að afstaða Lögþingsins verði
kunngerð fyrr en eftir noltkra
daga — og þá fyrst verður séð
hvort grundvöllur er fyrir áfram-
haldandi viðræður Dana og Breta
um málið.
Dönsku blöðin eru sammála um
það, að tillagan um „ytri 6 mil
una“ sé mjög óljós — en í brezku
tillögunni er gert ráð fyrir að
Færeyingar fái 6 mílna fiskveiði-
landhelgi, en eigi að hafa eftirlit
með veiðum á 6 mílna belti þar
fyrir utan.
Auðvitað er spurt hver megi
fiska þar — og hve mikið og
virðast allir ekki á einu máli um
hvernig túlka á þau ákvæði í til-
lögunni.
Berlingur segir, að Danir hafi
um þrennt að velja, ef Færeying-
ar haldi fast við 12 mílna fisk-
veiðitakmörk — ekkert af þessu
þrennu sé árennilegt.
1. Ganga að brezku tillögunni
og efla andstöðuflokka Dana í
Færeyjum — rétt fyrir kosning-
ar.
2. Lýsa yfir 12 mílna fiskveiði-
landhelgi til að friða Færeyinga,
en jafnframt að brjóta gerða
samninga við Breta — og fá í
höfuðið stefnu frá þeim fyrir
Haag-dómstólinn. Danir mundu
tapa málinu fyrir Haag-dómstóln
um, nema þá að það dagaði uppi
vegna þess að S. þ. hefðu þá gert
einhverja allsherjarsamþykkt í
þessu efni. Þar að auki gætu
Bretar sett fótinn fyrir danska
útflutninginn til Bretlands til
þess að mótmæla samningsbrot-
inu.
3. Danska stjórnin getur dregið
viðræðurnar við Breta á langinn
fram yfir kosningar í Færeyjum
— og beðið þess þannig, að fær-
eysku stjórnmálamennirnir verði
Framh. á bls. 19
í Landsspítalann, frá hinu vist-
lega heimili sínu í Þingholts-
stræti 30, en þangað flutti hún
á sl. vori. Forsetafrúin átti eigi
afturkvæmt af sjúkrahúsinu.
Heilsu hennar fór ört hnignandi
eftir að hún kom þangað. Síðasta
sólarhringinn hafði hún verið
mjög þungt haldin. 1 gærmorgun
var hún orðin meðvitundarlaus.
Eftir því sem á daginn leið þvarr
lífsþróttur hennar smám saman
og lézt frú Georgía seint 1 gær-
kvöldi.
Frú Georgía Björnsson var
fædd 18. janúar 1884. Hinn 2.
september síðastliðinn voru liðin
50 ár frá því að hún, ung að ár-
• um, gekk að eiga Svein Björns-
son forseta, sem þá var mála-
færslumaður hér í Reykjavík.
GÆZLULIÐ S. Þ. í Líbanon verð-
ur nú aukið. 285 menn hafa hing-
að til starfað í því.
SOUSTELLE, upplýsingamálaráð
herra Frakka fer til Alsír á
morgun.
Lýst hefur verið stofnun
ríkisstjórnar í Alsír
ísland sagt meðal þeirra ríkja, sem
munu viðurkenna hana
KAIRÓ, 18. sept. — Ferhat Abbas,
leiðtogi þjóðfrelsishreyfingarinn-
ar í Alsír lýsti því yfir í dag, að
á morgun mundi stofnsett óháð
ríkisstjórn í Alsír, stjórn þjóð-
frelsishreyfingarinnar — og
nvundi þessi stjórn leita stuð'nings
annarra ríkja. Talsmaður þjóð-
frelsishreyfingarinnar í Túnis
skýrði jafnframt svo frá, að meira
en 30 ríki hefðu þegar heitið því
að viðurkenna stjórn Alsírbúa.
Sagði hann, að á meðal þessara
ríkja væru Arabaríkin, Rússland
og Austur-Evrópuríkin, komm-
úniska Kína, Júgóslavía, Ísland,
Indland, Noregur og þrjú Suður-
Amerikuríki.
Meðal ráðherra í nýju stjórn-
inni eru nokkrir uppreisnar-
mannaleiðtogar, sem sitja í
fengelsum Frakka. Þá er stað-
hæft í Kairó, að Ferhat Abbas
verði forsætisráðherra nýju
stjórnarinnar.
y