Morgunblaðið - 19.09.1958, Side 6
I
MORGUNBLAÐ1Ð
Föstudagur 19. sept. 1958
Séð yfír fundarsal Allsherjarþingsins.
ssjr
Þrettánda þing S. Þ.
ÞRETTÁNDA allsherjarþing Sam
einuðu þjóðanna er hafið í bæki-
stöðvum samtakanna við Austur-
á í New York. Mikil óvissa er í
ýmsum alþjóðamálum, sem það
mun taka til meðferðar. Menn
tala því um að þetta þing kunni
að verða örlagaríkt. Víst c að
stormasamt verður á því og harð-
vítugar deilur háðar.
Með hverju ári sem líður fer
að bera meira á samtökum Afríku
og Asíu-þjóða í alþjóðamálum.
Þessum samtökum er fyrst og
fremst beint gegn hvítu þjóðun-
um, gegn Evrópu og Ameríku.
Þrátt fyrir það að þessar þjóðir
þurfa á samvinnu og hjálp hvítu
þjóðanna að halda, liggja að því
mörg rök að þær verða frá-
hverfar og fjandsamlegar
þeim. Meginrót þeirrar óheppi-
legu þróunar eru hin gömlu ný-
lendusamskipti. Það er vart nema
hálf öld síðan þessar heimsálfur,
Asía og Afríka, voru nýlendu
svæði Evrópu. Frá þeim tímum
stafar mesta beiskjan, þegar þær
urðu að lúta hinum evrópsku
herrum. En enn í dag verða þær
þess varar, að menn af þeirra
eigin litarhætti sæta ofsóknum
og verða að þola fyrirlitningu í
löndum hvítu mannanna. Eru
menn óþyrmilega minntir á þetta
í fréttum sem berast frá báðum
hliðum Atlantshafsins, hvort sem
er frá Little Rock í Arkansas eða
Notting Hill í Lundúnum.
Andstaðan milli hvítu þjóðanna
annars vegar og hinna hörunds-
dökku þjóða Afríku og Asíu hins
vegar mun væntanlega koma enn
skýrar fram á þessu allsherjar-
þingi en nokkru sinni fyrr. Rúss-
ar kunna líka mætavel að færa
sér sundrungina í nyt til þess að
ala á kommúnískri byltingu.
Það sást þegar af fyrsta þing-
degi, að ekki muni verða mjög
kyrrlátt í bækistöðvum Samein-
uðu þjóðanna. Fyrstu harðvít-
ugu deilurnar hófust þegar við
kjör forseta þingsins. Þar voru
þrír menn í framboði, Charles
Malik, utanríkisráðherra Liban-
on, Mohammed Maghoub, utan-
ríkisráðherra Súdan og Jiri No-
sek, fulltrúi Tékkóslóvakíu.
Nokkrum leiðindum olli það
þegar, að fleiri frambjóðendur en
Malik skyldu koma fram. Það var
margra álit að hann ætti fullan
rétt til sætisins. Síðastliðið haust
1957 var hann fyrst í framboði
til forseta allsherjarþingsins móti
Sir Leslie Munro fulltrúa Nýja
Sjálands. Var þá gert það sam-
komulag meirihluta þátttöku-
ríkja S.Þ., að ef Malik drægi fram
boð sitt til baka, skyldi honum
tryggt forsetasætið næsta ár.
Það hefði líka þótt sjálfsagt
að efna þetta loforð, ef ekki hefðu
gerzt þeir atburðir á árinu, sem
ýmsir töldu að gerbreyttu að-
stöðu Maliks. Borgarastyr j öld
hefur geisað í heimalandi hans,
með miklu vægðarleysi og hörku.
Engin launung er á því að stjórn
Nassers studdi uppreisnarmenn
af ráðum og dáð og hún hefur
margsinnis úthrópað Chamoun
forseta Libanons og Malik utan-
ríkisráðherra sem landráðamenn
eg útsendara Ameríku. Araba-
blökkin, sem styður Nasser vildi
því alls ekki una því að Malik
yrði kjörinn forseti. Hún kom
fram með súdanska utanríkisráð-
herrann og var reynt að safna
saman um hann öllu liðinu frá
Afríku og Asíu. Feikilegt bak-
tjaldamakk og hrossakaup stóðu
því yfir í sölum Sameinuðu þjóð-
anna sðustu dagana áður en þing-
ið kom saman. Afríku-Asíu-blökk
in lét í veðri vaka, að hún héfðl
öruggan meirihluta fyrir súd-
anska utanríkisráðherrann. Hvíta
blökkin varð um sinn uggandi
um að Malik væri ekki öruggur
að ná kosningu og voru haldnir
margir skyndifundir um þetta
vandamál.
Þegar kosning hófst tilkynnti
tékkneski frambjóðandinn Jiri
Nosek, að hann drægi framboð
sitt til baka. Sú tilkynning kom
mönnum ekki á óvart, það var
búizt við því að kommúnista-
blökkin myndi sem endranær
standa með Afríku og Asíu-mönn
um gegn Evrópu. En keppnin
varð enn meira spennandi vegna
þess, að nú höfðu andstæðingar
ef svo má segja safnað öllu liði
sínu saman.
Þrátt fyrir það náði Malik kosn
ingu. Hann hlaut 45 atkvæði en
Mahgoub utanríkisráðherra Súd-
an hlaut 31 atkv. 4 sátu hjá, en
fulltrúi ísraels var fjarverandi.
Þessi úrslit virðast sýna, að hinn
vestræni heimur sé ekki enn bú-
inn að missa meirihluta sinn hjá
Sameinuðu þjóðunum. En ekki er
víst að takist að safna atkvæð-
unum svo vel saman í öllum
deilumálunum. Er það þess vert
að íhuga nokkuð hver verða
helztu viðfangsefni Allsherjar-
þings S. Þ. og hvernig liðið muni
skiptast í þeim.
Stærsta mál þingsins verður
e. t. v. tillaga Indlands um það
að Peking-stjórnin taki sæti Kína
hjá S. Þ. í þessu máli hafa skoð-
anir verið mjög skiptar meðai
tveggja aðalforustuþjóða hins
vestræna heims. Bretar eru
hlynntir því að Peking-stjórnin
fái sæti Kína hjá S. Þ. Banda-
ríkjamenn hafa verið því alger-
lega andvígir, því að þeir óttast
að það yrði aðeins upphafið að
enn meiri yfirgangi kínverskra
kommúnista og að þeir muni taka
OFT hefur verið um það rætt,
hvílíkur aumingjaskapur það
væri af okkur íslendingum að
verða alltaf kartöflulausir, þeg-
ar líða tekur á sumarið og vera
upp á innflutning á kartöflum
komnir.
Kartöflur vaxa flestu betur hér
hjá okkur og eru ekki vandmeð-
farnar. En vinnukraftur er dýr
hér á landi. Ef mikill vinnukostn-
aður leggst á kartöflurnar, borg-
ar sig alls ekki að rækta þær.
Fólki finnst ekki einu sinni borga
sig að rækta kartöflur til heim-
ilisins, þar sem þeim er með
niðurgreiðslum haldið í svo lágu
verði í búðum.
Þetta er allt gömul og marg-
umtöluð saga. En nú hefur gerzt
nokkuð nýtt í kartöflumálunum.
í fyrradag voru birtar hér í biað-
inu myndir af nýrri karötfluupp-
tökuvél, sem Þykkvbæingar nota
í fyrsta skipti á þessu hausti. Er
vél þessi svo stórvirk, að hún
tekur upp úr allt að hálfum öðr-
í sínar hendur forustu Asíuþjóða.
Bandaríkjamenn eru þessu enn
mótfallnir og ekki sízt núna
vegna fallbyssuskothríðar komm-
únista á Quemoy. Þeir munu
leggja fram þá grundvallarspurn-
ingu á Allsherjarþinginu: Eigum
við að hleypa kínversku komm-
únistunum inn, aðeins vegna þess
að þeir hafa skotið tugþúsundum
fallyssukúlna á friðsama eyju?
Það er talið líklegt að meirihluti
sé enn á móti inngöngu Peking-
stjórnarinnar í S. Þ.
Saman við þetta mál mun bland
ast ákæra Rússa á hendur Banda-
ríkjunum vegna liðssamdráttar
þeirra við Formósa. Saka þeir
Bandaríkin um stríðshótanir við
Kína. Þannig ógni þeir heims-
f.iðnum.
Það hefur vakið nokkra furðu,
að Gromyko utanríkisráðherra
Sovétríkjanna ber fram tillögu
um stöðvun kjarnorkutilrauna.
Mörgum finnst þessi tillaga ótíma
bær,- þar sem stórveldin hafa nú
samið um eins árs stöðvun kjarn-
orkutilrauna frá og með 1. nóv.
Það getur verið að tilgangur
Rússa með því að taka málið á
dagskrá sé aðeins að skapa sér
betri aðstöðu í hinu al-
menna afvopnunarmáli. Á síð-
asta Allsherjarþingi varð enn
ekkert samkomulag í afvopnun-
armálunum. Þar strandar enn
sem fyrr á því að Rússar vilja
ekki fallast á nákvæmt vígbún-
aðareftirlit.
Málefni nálægra Austurlanda
verða tekin til meðferðar. Rúss-
ar kærðu Bandaríkin og Bretland
fyrir vopnaða íhlutun á því svæði.
Málið var afgreitt til bráðabirgða
á aukafundi allsherjarþingsins
með þeim hætti að kyrrð hefur
komizt á, en þó lifir enn niðri
í glæðunum.
Þá ber að nefna Kýpurmálið og
Alsírmálið. Bretar kveðast nú
ekkert hafa á móti því að Kýpur-
málið sé rætt. Þeir segjast ætla
að snúa vörn upp í sókn. Mur.u
þeir leggja fram áætlanir sinar
um framtíð Kýpur, sem þeir segja
um hektara á dag og skilar kart-
öflunum í pokana. Fréttaritari
blaðsins á staðnum skýrði svo
frá, að bændur hefðu í hyggju
að stækka garðlönd sín. ef leyfi
fengist fyrir fleiri slíkum vélum.
Þarna virðist fundin lausn á
allri kartöfluvitleysunni. Þegar
við höfum fengið svo stórvirk-
ar upptökuvélar, hljótum við að
geta framleitt nægilegar kartöfl-
ur handa okkur til neyzlu allt
árið og það mun ódýrari en áður.
Skyldi annars vera nokkur hætta
á að innflutningsyfirvöldin neiti
um leyfi fyrir Slíkum vélum, en
haldi í þess stað áfram að leggja
blessun sína yfir innflutning á
kartöflum?
Búinn að tapa þríðja
hjólinu.
ÍTILL drengur kom til Vel-
vakanda með tárin í aug-
unum. Hafði hann skilið hjólið
sitt eftir við Útvegsbankann, og
það horfið. Velvakandi færðist
í fyrstu undan að sinna erindi
hans, þar sem svo margt tapast
að sé eina lausnin á vandamál-
inu. Jafnframt ætla þeir að
ákæra grísku stjórnina fyrir að
stuðla áfram að morðöld á eynni.
Frakkar taka með allt öðrum
hætti í Alsír-málið. Þeir mótmæla
að það verði rætt á vettvangi
S. Þ. Það sé innanríkismál Frakk-
lands. Þeir benda á það að einnig
sé mjög óheppilegt að ræða það
um þessar mundir, þegar í deigl-
unni séu nýjar reglur er bæti
úr misrétti hinna innfæddu í
Alsír. Þegar Alsír-málið verður
tekið til meðferðar munu frónsku
fulltrúarnir ganga úr fundarsal
í mótmælaskyni. Það þykir víst
að meirihluti þingsins samþykki
harðorða ályktun sem fordæmi
framferði Frakka í Alsír. ólík-
legt er þó að gripið verði til
nokkurra sérstakra aðgerða Sam-
einuðu þjóðanna.
Annað mál líkist mjög Alsír-
málinu. Það er Suður-Afríkumál-
ið. Stjórn Suður-Afríku sætir enn
harðri gagnrýni fyrir ómannúð-
legar aðgerðir gegn svertingjum,
sem hún virðist vera að svipta
öllum borgararéttí.
Ungverjalandsmálið verður enn
á dagskrá. Heimurinn mun seint
gleyma hinum hræðilegu örlög-
um ungversku þjóðarinnar, hinni
JÓHANNESBURG, 13. sept. —
Foringi stjórnarandstöðunnar í
Suður-Afríku, Etienne Malan, lét
þau orð falla í gærkvöidi, að
kosning Hendriks Verwoerds í
embætti forsætisráðherra væri
afskaplegt slys, því hann væri
óþjóðhollasti maður, sem nokk-
urn tíma hefði komizt til valda
í Suður-Afríku.
daglega, en ólán drengsins virt-
ist alveg hafa bugað hann. Þetta
er nefnilega þriðja hjólið, sem
tekið er frá honum. Tapið á hin-
um hjólunum tveimur hafði hann
auglýst og neytt allra ráða til
að hafa upp á þeim, en án ár-
angurs, og nú er hann alveg bú-
inn að gefast upp á að reyna að
leita. Og þetta hjól, „sem hafði
verið grænt með bláu skftbretti
og með svo miklu dóti á“I
Það er annars furðulegt að
svona skuli koma fyrir í ekki
stærri bæ en Reykjavík er. Jafn
vel þó glæsileg hjól „með dóti
á“ kunni að reynast unglingi eða
barni of mikil freisting, þá kemur
tæplega til að það geti notað
gripinn án þess að foreldrarnir
verði þess varir. Ótrúlegt er að
minnsta kosti að barn þurfi ekki
að gera grein fyrir svo dýrum
grip, ef það kemur með hann
heim til sín.
Vonandi áttar einhver, sem
þessar línur les, sig á pví hvaðan
græna hjólið með bláa aurbrett-
inu er komið.
rússnesku kúgun, sem enn er
rifjuð upp við fregnirnar um að
Rússar hafi látið skjóta Imre
Nagy og nokkra félaga hans.
Að lokum ber svo að nefna
landhelgismálin, sem hafa mesta
þýðingu fyrir okkur fslendinga.
Ekki er vitað til þess að land-
helgismál fslands verði sérstak-
lega á dagskrá Allsherjarþings-
ins, en fram er komin tillaga frá
Hammarskjöld framkvæmda-
stjóra S. Þ. um að efnt verði til
nýrrar alþjóðaráðstefnu um stærð
landhelgi og fiskihelgi almennt
um víða veröld. fslenzka sendi-
nefndin mun mótmæla þeim
fresti og krefjast þess að málið
verði afgreitt endanlega á þessu
þingi. Ólíklegt er talið að sú til-
laga íslendinga nái samþykki.
Það er og mjög vafasamt talið aí
stjórnmálafréttariturum hverja
afgreiðslu þau mál myndu fá á
sjálfu Allsherjarþinginu. En
mjög er talað um það að Kín-
verjar hafi gert íslendingum
bjarnargreiða með hinni skyndi-
legu útvíkkun sinnar landhelgi.
Þær aðgerðir hafa það í för með
sér, að stjórn Bandaríkjanna berst
gegn 12 mílunum með hnúum og
hnefum, en var nálægt því að
vera hlutlaus gagnvart 12 mílna
fiskveiðilandhelgi íslendinga.
Malan var að tala á pólitískum
fundi og sagði ennfremur, að Ver
woerd hefði átt frumkvæðið að
ýmsum grimmdarlegustu og fyr-
irlitlegustu kynþáttalögum lands
ins. Hann sagði að Verwoerd
mundi herða baráttuna fyrir lýð-
veldi í Suður-Afríku og skapa
þar kreppu miklu fyrr en flestir
gerðu sér ljóst nú. Hann benti á
að meirihluti Verwoerds í kjör-
dæmi hans í síðustu kosningum
hefði verið 700 atkvæðum minni
en fyrirrennara hans. „Þetta var
stærsti siðferðilegi ósigurinn, sem
nokkur frambjóðandi Þjóðerr.is-
flokksins hlaut“, sagði Malan.
Nýr prestur að
Hvammi
BÚÐARDAL, 16. sept. — Sunnu-
daginn 14. þ. m. heilsaði nýr prest
ur söfnuði sínum að Hvammi í
Dölum. Það er séra Ásgeir Ingi-
bergsson, ættaður úr Reykjavík.
Hann brautskráðist vorið 1957 frá
Háskóla íslands, en dvaldist í
írlandi sl. vetur við framhalds-
nám. Sr. Eggert Ólafsson, prófast
ur að Kvennabrekku, setti hinn
nýja prest inn í starfið.
í Hvammi hefur verið prest-
laust í nær tvö ár, eða síðan sr.
Pétur Oddsson, prófastur, féll frá
haustið 1956. Þann tíma hafa þeir
sr. Eggert Ólafsson, prestur í Suð
ur-Dalaþingum og sr. Þórir
Stephensen, prestur í Staðarhóls-
þingum, þjónað prestakallinu.
Því er almennt fagnað, að aft-
ur skuli vera kominn prestur að
Hvammi, því að Hvammur er,
auk fornrar helgi, eitt hlýlegasta
og íegursta prestsetur á íslandL
v o *
skrifar ur
daglegq lifimi
]
Nú getum við ræktað nóg
af kartöflum
Verið var að flytja járnbita á vörubílum upp brekku við Efra-
Sogs virkjunina. Bitarnir runnu til með þeim afleiðingum, að
bíllinn „prjónaði“, eins og myndin sýnir.
Ljósm.: Gunnar Pálsson.
Verwoerd fœr það óþvegið