Morgunblaðið - 19.09.1958, Síða 15
Föstudagur 19. sept. 1958
MORCVNBLAÐ1Ð
15
Húnvetningu-
iélngið knupir
húsnæði fyrir
félngsheintili
★ HÚNVETNINGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík hélt nýlega aðalfund
sinn. Fráfarandi formaður, Finn-
bogi Júlíusson skýrði frá störfum
félagsins á árinu. Gat hann þess
m.a. í skýrslu sinni, að félagið
hefði á árinu fest kaup á húseign
hér í bænum til starfsemi sinnar,
en það hefur lengi verið ætlun
félagsins, að koma sér upp visi að
félagsheimili fyrir starfsemi sína.
Fjárhagur félagsins er allgóður,
en þó verður að stofna til all-
mikilla skulda vegna húsakaup-
anna. í því sambandi hefur fé-
lagsstjórnin boðið út skuldabréfa
lán að upphæð kr. 50.000.00, sem
endurgreiðist á næstu 10 árum
með 7 % vöxtum, tryggt með
veði í fasteign félagsins. Treyst-
ir félagsstjórnin því, að félags-
menn, sem eru um 300, bregðist
fljótt og vel við, og kaupi þessi
skuldabréf hið allra fyrsta. Verða
þau til sölu hjá formanni og gjald
kera félagsins.
Eins og undanfarin ár, var far-
in skógræktarferð norður í Þór-
dísarlund, en þar á félagið land,
sem Kristján bóndi Vigfússon í
Vatnsdalshólum gaf því til skóg-
ræktar.
Skemmtisamkomur voru haldn
ar nokkrar á síðastliðnum vetri,
og árshátíð, sem jafnframt var
sú tuttugasta, en félagið varð 20
ára á sl. vetri. Við það tækifæri,
barst félaginu að gjöf, forkunnar-
fögur fánastöng frá Borgfirðinga
félaginu í Reykjavík. í tilefni af-
mælisins, gaf félagið hinni nýju
Hvammstangakirkju, Guðbrands-
biblíu, og var gjöfin afhent á
árshátíðinni. Á komandi vetri, er
fyrirhugað að halda nokkur
skemmtikvöld eða kvöldvökur
fyrir félagsmenn, bg einnig verð-
ur árshátíð. Núverandi stjórn fé-
lagsins skipa: Friðrik Karlsson,
formaður, Jón Sigurðsson, gjald-
keri, Gyða Sigvaldadóttir, ritari,
Kristmundur Sigurðsson, meðstj.
og Jón Snæbjörnsson, meðstj.
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
SKJALDBREIÐ
tll Snæfellsnesshafna og Flateyj-
ar hinn 23. þ.m. — Tekið á móti
flutningi til Ólafsvíkur, Grundar-
fjarðar, Stykkishólms og Flateyj-
ar í dag (19. sept). — Farseðlar
seldir árdegis á mánudag.
Gulvanhúðaðnr saumur
nýkominn
H. Benediktsson hf.
Lóugötu 2 — Sími 11233.
TILBOÐ ÓSKAST í
Verkstæðisskúr
50 ferm., sambyggður þykktarhefill og afréttari 16”
Hulsubor, sög, blokkþvingur og handpússvél. Rétt-
ur áskilinn að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum. Uppl. í síma 19044 eftir kl. 7 á kvöldin.
Nýjustu tízkusnið frá París og New York,
m.a. Empirekjólar, Chemisekjólar, Balloon-
kjólar.
MARKAÐURINN
Laugaveg 89.
SINFÓNlHLJÓMSVEIT ISL VNDS
Í0? ÓPERAN CARMEN
verður flutt á tónleikum í Austurbæjarbíói annað kvöld
20. þ.m. kl. 7.
Stjórnandi: W. Briickner— Ruggeberg.
EINSÖNGVARAR: Gioria Lane, Stefán Islandi, Ludmilla
Schirmer, Árni Jónsson, Guðm. Jónsson, Ingibjörg Stein-
grímsd., Jón Sigurbjörnsson, Kristinn Hailsson og Þuríð-
ur Pálsdóttir, Þjóðleikhúskórinn.
Aðgöngumiðasala í Austurbæjarbíói.
Hvernig sem hár yðar er, þá gerir
V/‘ shampooið það mjúkl
og fallegt ...og svo meðfœrilegt
Reynið White Rain í
k.völd — á morgun
munið þér sjá
árangurinn.
White Rain er eina
shampooið, sem býður
yður þetta úrval:
Blátt fyrir
þurrt hár
Hvítt fyrir
venjulegt hár
Bleikt fyrir
feitt hár
Notið '0///tí/7£í/Í/1 ’
shampooið sem freyðir svo undursamlega
HEILVERZLUNIN HEKLA HF., Hverfisgötu 103 — sími 11275
Smurstöðvarlyftur
Tilboð óskast í tvær lítið notaðar Smurstöðvar-
lyftur, sem lyfta 5 og 8 tonnum. Þeir, sem sinna
vilja þessu, sendi nöfn sín á afgreiðslu blaðsins fyrir
25. þ.m. merkt: „Sumrstöð — 7691“.
INGÓLFSCAFÉ
INGÓLFSCAFÉ
Eldri dansarnir
í Ingólfseafé í kvöld kl. 9.
Dansstjóri Þórir Sigurbjörnsson.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8. Sími 12826.
Silfurtunglið
Cömlu dansarnir
í kvöld kl. 9.
Stjórnandi Helgi Eysteinsson
Frítt fyrir 10 fyrstu pörin
Blöðrudans — Verðlaun.
SILFURTUN GLIÐ
Sími 19611.
Dansleikur
að Þórscafé í kvnld klukkan 9
Hljómsveit Andrésar Ingólfssonar leikur.
Söngvari Þórir Roff.
Sími 2-33-33
16710 JE"™* 16710
K. J. kvintettinn.
V Dansleikur W
Margrét Q hverjU kvÖldí kL 9 Gunnar
Aðgöngumiðasala frá kl. 8.
Söngvarar
IVfargrét ólafsdóttir, Gunnar Ingólfsson
og Haukur Gislason
V etrargarðurinn.