Morgunblaðið - 19.09.1958, Blaðsíða 18
18
MORCVNBL 4Ð1Ð
Fðstudagur 19. sept. 1958
Kristleifur og Þórir náöu góðum
árangri í Búkarest
Þing Landssambands fram-
haldsskólakennara hefst í dag
AÐ venju fékk Frjálsíþróttasam-
band íslands boð frá rúmenska
sambandinu, að senda tvo kepp-
endur á meistaramót Rúmeníu í
frjálsíþróttum. Fyrir valinu urðu
Kristleifur Guðbjörnsson, KR, og
I>órir Þorsteinsson, Á. Héldu þeir
suður eftir strax eftir landskeppn
ina við Dani. Náðu þeir allgóðum
árangri þar syðra.
Þórir Þorsteinsson keppti í 400
og 800 m hlaupi. í 400 m hlaupi
vann hann fyrst einn þriggja
riðla í undanrásum á 49,5 sek. í
úrslitum varð hann 5. af sex
keppendum, en náði þó mjög góð
um tíma, eða 48,5 sek.
í 800 m hlaupi varð Þórir í
undanrásum nr. 3 í sínum riðli
(riðlarnir voru 3 og komust 3
menn upp úr hverjum þeirra í
úrslti). Tími Þóris þá varð 1:52,0
mín. í úrslitunum varð hann 6.
(af 9) á 1:55,7 mín.
Kristleifur keppti í 5000 m og
3000 m hindrunarhlaupi.
í 5 km hlaupinu varð hann 5.
í röðinni á 14:57,2 mín., eða að-
eins um rúma sekúndu frá ís-
lenzka metinu. Er þetta langbezti
tími sem Kristleifur hefur náð
— Verzlunarráðið
Frh af bls 3
skýrslu sinni um skattlagningu
á Islandi:
„í kafla B er getið þess sér-
kennilega skatts, veltuútsvarsins,
sem lagt er á veltu fyrirtækj-
anna. Ókostir skattakerfis sveita-
félaganna, sem drepið var á hér
rétt áður, eiga sérstaklega við
um þennan skatt. Mér virðist
hann algjörlega ósamræmanleg-
ur skattakerfi, sem byggir á
þeirri meginreglu, að skattleggja
hreinar tekjur. í kafla D er sýnt,
að þetta veltuútsvar nemur í
vissum atvinnugreinum verulega
hærri upphæð en skattskyldar
tekjur, en við ákvörðun þeirra
má ekki draga frá veltuútsvarið.
Það vekur undrun, að þetta
skuli ekki hafa verið talið brjóta
í bága við regluna um skatt „eft-
ir efnum og ástæðum". Með því
að. leggja á þennan veltuskatt
geta útsvarstjórnirnar hamlað
verulega þróun fyrirtækja og
gert vissa-r atvinnugreinar alger-
lega óarðbærar. Skattlagning á
veltu virðist hafa slíkar efna-
hagslegar afleiðingar, að sveita-
félögum ætti ekki að vera heim-
ilt að beita henni“.
Það hlýtur því að vera ákveðin
krafa atvinnuveganna að hætt
verði þeirri fáránlegu og skamm-
sýnu rányrkju, sem nú er beitt,
og þeim verði án tafar, í fyrsta
lagi tryggð skynsamleg með-
höndlun, með lagasetningu eða í
framkvæmd, í þá átt, að saman-
lagðir skattar til ríkis og bæjar-
félags fari aldrei fram úr hrein-
um tekjum, enda mun annað
óþekkt í nokkru vestrænu þjóð-
félagi, sem er upp úr því vaxið
að láta hverjum degi nægja sína
þjáningu. — Þetta mál verður
ríki og bæjafélögin að leysa í
sameiningu, og eru til þess ýms-
ar leiðir, þó ekki skuli farið inn
á þær að svo stöddu.
í öðru lagi, af skynsemis- og
sanngirnisástæðum, skuli engu
félagsformi vera mismunað um
skattlagningu, þ. e. a. s. sam-
vinnufélögum, hlutafélögum,
bæjar- og ríkisrekstri, beri að
greiða sömu skatta og útsvör,
þannig að greinilega megi koma
í ljós, hvaða rekstrarfyrirkomu-
lag sé hagkvæmast. Væri óskiljan
legt, ef nokkur sá, er heldur vill
hafa það er sannara reynist, gjör-
ist til að andmæla því, að úr
þessu yrði skorið í eitt skipti fyr-
ir öll á þennan hátt, enda vafa-
laust, að það mundi verða mjög
lærdómsríkt.
og athyglisverður fyrir það
hversu ungur hann er, aðeins
20 ára. Sigurvegari varð Greces-
cu, Rúmeníu, 14:24,8, 2. Salor-
anda, Finnl., 14:25,0, og 3. Thöger
sen, Danmörku, 14:25,3. Fjórði
var Rúmeni á 14:47,0 mín.
í hindrunarhlaupi varð Krist-
leifur 9. af sextán keppendum.
Tími hans þar var 9:26,0 eða
nokkrum sekúndubrotum lakari
en met hans sett í Randers. —
Kristleifur sigraði m. a. Danann
Haslund, sem sigraði í hindrun-
arhlaupinu í Randers. Tími Has-
lunds var 9:37,0 mín.
Árangur þeirra tvímenning-
anna er því góður og þeir hafá
í þessari för fyllilega uppfyllt
þær vonir sem við þá voru
bundnar.
Bikarkeppni í stað
„Haustmóts“
SVO er að heyra á flestum, sem
við koma knattspyrnumálum bæj
arins, að mót það, sem nú stend-
ur yfir í meistaraflokki, hið svo-
kallaða Haustmót, sé engum til
þægðar en öllum til leiðinda. Það
er staðreynd, að undanfarin ár
hefur mót þetta verið með af-
brigðum rislítið og dauft. Virð-
ist því sannarlega ástæða til að
endurskoða skipulag knattspyrn-
unnar í lok keppnistímabilsins.
En svo getur farið, að erfitt
verði að gera nokkuð í þessu
máli um skeið, vegna þess að
bikar sá, sem nú er keppt um,
getur enn hangið í umferð næstu
3—5 árin. Fram hefur unnið hann
tvö undanfarin ár, og mundi í
ár vinna hann til eignar, ef félag-
ið sigraði á mótinu, en eftir
tap Fram gegn KR á sunnudag-
inn, eru heldur litlir möguleikar
á því.
Mikið hefur verið rætt um að
koma á svokallaðri „bikar-
keppni“, eins og tíðkast í ná-
grannalöndunum, þar sem lið
fellur úr er það tapar leik. —
Myndi þátttaka utanbæjarlið-
anna gefa slíku móti aukið gildi,
jáfnframt því, að hver leikur
yrði leikinn sem úrslitaleikur af
viðkomandi liðum. En því miður
virðist þessi hugmynd eiga nokk-
uð langt í land og kemur senni-
lega ekki til framkvæmda næstu
árin.
LUNDÚNUM, 18. sept. — frá
NTB — Enska knattspyrnufélagið
Manchester United greiddi í dag
37.500 sterlingspund til annars
félags, Sheffield Wednesday, fyr-
ir hinn marglofaða 24 ára gamla
miðframherja Albert Quixhall.
Þessi fjárupphæð er sú næst
hæsta sem nokkru sinni hefur
MELBOURNE, 18. sept. (Reuter)
Ástralski hlaupakóngurinn Her-
bert Elliot, sem sýnt hefur öllum
heiminum hver yfirburðamaður
hann er á millivegalengdum, er
hann æ ofan í æ hefur hlaupið
Kristleifur Guðbjörnsson
Frétfir úr Hornalirði
Siáfrun að hefjasf —
skemmdir á vegum
HORN AFIRÐI, 18. sept. — Á
Hornafirði hefst sauðfjárslátrun
á morgun. Áætluð slátrun hjá
Kaupfélaginu er 12—13 þúsund
fjár. Er það um 2 þús. fleira en
í fyrra.
Miklir óþurrkar hafa verið í
Hornafirði, allt frá 20. ágúst og
eiga bændur yfirleitt mikið
óheyjað ennþá. Há spratt lítið
meðan þurrkarnir voru í sumar,
en hefur nú verið í örum vexti.
Upptaka á garðávöxtum er
mjög lítið byrjuð ennþá. Hafa
garðar verið í örum vexti allt til
þessa og er útlit fyrir að ávöxtur
verði víðast all-góður, bæði á
rófum og kartöflum.
í gær gerði hér mjög mikla
rigningu og urðu flestar óbrúað-
ar ár í Lóni ófærar bifreiðum,
Miklar skemmdir urðu á vegum
við brýrnar á Kolgrímu og
Smyrlabjargará í Suðursveit.
—Gunnar.
verið greidd fyrir einstakan ensk
an leikmann.
Hæsta upphæð sem greidd hef-
ur verið fyrir knattspyrnumann
et greiðsla ítalska félagsins Ju-
ventus til Leeds fyrir miðherjann
heimsfræga John Charles. Fyrir
hann voru greidd 65 þúsund
sterlingspund.
ast atvinnumaður. í dag hafnaði
hann formlega hinu stærsta með-
al tilboðanna. Það tilboð var frá
Bandaríkjamanni Leo Leavitte
og hljóðaði upp á 250 þús. doll-
ara greiðslu til Elliots ef hann
gerðist atvinnumaður hjá Leav-
itte. Hann hefur viljað „kaupa“
beztu íþróttastjörnur
SJÖUNDA fulltrúaþing Lands-
sambands framhaldsskólakenn-
ara verður sett í Gagnfræðaskól-
anum við Vonarstræti kl, 4 í dag.
Að þingsetningu lokinni flytur
Magnús Gíslason, námsstjóri, er-
indi, er hann nefnir „Nýjar leið-
ir í skólamálum". Að loknu er-
indinu og umræðum, sem af því
leiða, mun Jón Emil Guðjónsson,
íramkvæmdarstjóri, gera nokkra
grein fyrir starfi Ríkisútgáfu
námsbóka og svara fyrirspurnum,
ef fram koma.
Á kvöldfundi sama dag flytur
Sigurður Ingimundarson, Verzl-
unarskólakennari, erindi um
skólamálanámskeið Evrópuráðs-
ins, sem háð var í sumar í Sig-
tuna í Svíþjóð, en hann var þar
sem fulltrúi íslenzka mennta-
málaráðuneytisins. Aðallega var
fjallað þar um fyrstu ár fram-
haldsnámsins með sérstöku til-
liti til hins nýja skólakerfis Svía.
Á laugardag og sunnudag
verða þingfundir og nefndarstörf
en höfuðverkefni þingsins verð-
ur skólalöggjöf gagnfræðastigs-
ins og ýmissa framhaldsskóla og
framkvæmd hennar.
Er þetta viðfangsefni valið með
HINN 10. þ.m. héldu þeir Henry
Hálfdánsson, skrifstofustjóri,
Slysavarnafélags íslands og Árni
Vilhjálmsson, erindreki á Seyðis-
firði fund með stjórnum slysa-
varnadeilda á Austurlandi til þess
að koma á fót björgunarskútu-
ráði og skipuleggja fjáröflun í
björgunarskútusjóð fyrir Aust-
firði. Skýrði Henry frá því, að
þegar lægju hjá Slysavarnafélag-
inu um 40 þús. kr. sem ýmist hefði
verið safnað eða gefið í þessu
skyni, ágóði af Sjómannadags-
hátíðahöldum á Seyðisfirði hefði
verið látinn renna í þennan sjóð
og Árni Vilhjálmsson hefði gefið
í hann myndarlega upphæð til
minningar um konu sína Guð-
rúnu Þorvarðardóttur, sem lézt
á síðasta ári. Fundinum barst
bréf frá slysavarnadeildinni
Framtíðinni í Höfn í Hornafirði
og fylgdi því 1000 króna áheit
frá Jónínu Brunnan. Þá .var upp-
lýst, að slysavarnadeild kvenna
í Norðfirði hefði starfað að fjár-
söfnun í björgunarskútusjóð í
þrjú ár, og hefðu þegar safnazt
25.000.00 kr.
Fundurinn kaus 5 manna fram-
kvæmdarráð til bráðabirgða til
að skipuleggja fjáröflun og hafa
á hendi framkvæmdir. í ráðið
voru kosnir þessir menn: Árni
Stefánsson, Breiðdal, Árni Vil-
hjálmsson, Seyðisfirði, Guðmund
ur Auðbjörnsson, Eskifirði, Hjalti
Gunnarsson, Reyðarfirði og Reyn
ir Zoega, Neskaupstað. Formað-
ur framkvæmdarráðs er Reynir
Zoega.
Á fundinum var borin upp og
samþykkt í einu hljóði svohljóð-
andi ályktun í landhelgismálinu:
„Sameiginlegur fundur stjórna
slysavarnadeilda á Austurlandi
heims og hyggst ferðast um með
þær og sýna fyrir offjár.
Frá Sidney berast þær fréttir
að frú Konrads, móðir systkin-
anna frægu sem settu hvert
heimsmetið af öðru í sundi á sl.
keppnistímabili í Ástralíu, hafi
sagt að þau systkinin hafi ekki
fengið tilboð frá Leavitte. En hún
bætti því við, að sá góði maður
gæti sparað sér ómakið. „Börn
mín eru ekki til sölu“, sagði
frúin.
sérstöku tilliti til þss, að nefnd,
skipuð af menntamálaráðherra,
vjnnur nú að athugun á ýmsum
þáttum skólalöggjafar okkar og
framkvæmd hennar. Má því telja
eðiilegt og heppilegt, að kennara-
stéttin fjalli sérstaklega um þessi
mál á þinginu. Engir þekkja bet-
ur kosti og galla skólakerfis og
löggjafar á hverjum tíma en
starfandi kennarar.
Þótt skólamálin skipi þannig
höfuðsess á verkefnaskrá þings-
ins eins og oftast áður, verður að
sjálfsögðu einnig fjallað um ým-
is kjara- og félagsmál framhalds
skólakennara.
Landssamband framhaldsskóla
kennara er 10 ára, stofnað 17.
júní 1948. Hefur það beitt sér
fyrir ýmsum hagsbótum varð-
andi framhaldsskólakennara,
staðið að mörgum námskeiðum
fyrir kennara og leitazt við að
hafa bætandi áhrif á ýmsa þætti
skólalöggjafar og framkvæmd
hennar.
Sambandið nær til héraðs- og
gagnfræðaskólakennara, hús-
mæðrakennara, iðnskólakennara,
verzlunarskólakennara og kenn-
ara ýmissa annarra sérskóla. Fé-
lagar þess éru nú um 300.
haldinn á Reyðarfirði 10. septem-
ber 1958 fagnar útfærslu land-
helginnar og því, að íslenzk björg
unarskip skuli eiga hlutdeild í
einarðlegri og hófstilltri fram-
komu landhelgisgæzlunnar í við-
skiptum hennar við brezka land-
helgisbrjóta. Jafnframt harmar
fundurinn það gengisleysi fornr-
ar vina- og viðskiptaþjóðar, Stóra
Bretlands, að vilja með smánar-
legu ofbeldi meina smáþjóð sem
Islendingum að lifa menningar-
lífi í landi sínu, þar sem jafnvel
er svo langt gengið, að brezk
fiskiskip gera tilraunir til að
sökkva íslenzkum björgunarskip
um, að því er virðist með vitund
og vilja brezkra yfirvalda.
Þótt fundurinn viti mætavel,
að fslendingar muni ekki láta
brezk skip og skipshafnir gjalda
þessa ódrengskapar, ef til þeirra
verður leitað um aðstoð eða
hjálp, vill hann minna á, að
sterkustu vopn hverrar smáþjóð-
ar, sem við ofurefli á að etja,
er, auk rétts málstaðar, einbeitni
og drengskapur í viðskiptum,
seinlæti til óhæfuverka og við-
bragðsflýtir til hjálpar ef á er
kallað, hver sem í hlut á“.
Fundurinn var haldinn í Félags
lundi, hinu nýja félagsheimili
Reyðfirðinga í boði slysavarna-
deildarinnar Ársólar á Reyðar-
firði. Meðan setið var að kaffi-
drykkju, sýndi Henry Hálfdáns-
son kvikmyndir úr sögu og starfi
Slysavarnafélagsins, þar á meðal
kvikmynd af björgun skipverja af
síðustu brezku togurunum er
strandað hafa hér við land á
Meðallandsfjörum, en það voru
togararnir King Sol og St. Crisp-
in.
Kaiser lætur af
embælli
KIEL, 18. sept. — J*kob Kaiser,
lét í dag af varaforsetaembætti
Kristilega demokrataflokksins,
flokks Adenauers. Kaiser er
heilsutæpur orðinn, sjötugur að
aldri. Hann gegndi áður ráðherra
embætti í stjórn Adenauers, fór
þá með málefni sameiginleg öllu
Þýzkalandi. Hann lét af því em-
bætti á síðasta ári.
1500 m og míluvegalengd á betri
tímum en gildandi heimsmet hef-
ur fengið mörg tilboð til að ger- 1 ýmsar
Enskur leikmaöur keyptur
á 37500 sterlingspund
Elliot hafnaði 250 þús. dölum fyrir
að gerast atvinnumaður
Björgunarskútusjóður
Austurlands stofnaður