Morgunblaðið - 19.09.1958, Qupperneq 19
Föstudagur 19. sept. 1955
UORCVNBLAÐID
19
Mjög hefur dregizt úthlutun og út-
borgun á A- og B-lánum
til Gnoðarvogshúsanna
Borgarsfjóri leiðréttir málflufning
Inga R. á bœjarstjórnarfundi í gœr
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í
gær bar Ingi R. Helgason fram
tillögu um lánveitingar út á bæj-
arbyggingar við Gnoðarvog. í til-
lögunni var lagt til að bæjar-
stjórnin leitaði eftir þvi hjá hús-
næðismálastjórn að lán út á íbúð-
ir í Gnoðarvogshúsunum eftir 4.
kafla húsnæðismálalaganna yrði
hækkuð úr 50 þús. kr. í 60 þús.
kr. fyrir 2ja herbergja íbúðir og
úr 50 þús. kr. í 70 þús. kr. fyrir
3ja herbergja íbúðir, gegn jafn-
háu láni frá Reykjavíkurbæ.
Flutningsmaður fylgdi tillögu
sinni úr hlaði með nokkrum orð-
um, gat þess að hann hefði flutt
hana fyrir nokkrum mánuðum og
þá hefði henni verið vísað til
bæjarráðs, en það hefði ekki tek-
ið tillöguna á dagskrá. Þá ræddi
flutningsmaður um hve lánin
samkvæmt 4. kafla húsnæðismála
laganna væru miklu hagstæðari
en A- og B-lán og taldi nauðsyn-
legt að samhengi væri milli
framlags hins opinbera og kostn-
aðarverðs húsanna á hverjum
tíma en framlagið ekki ákveðið
í eitt skipti fyrir öll. Sagðist
hann ekki sjá rökin fyrir því að
bæjarstjórn samþykkti ekki þessa
hækkun ef ekki stæði á húsnæðis
málastjórn að gera það. Lauk
hann máli sínu með áskorun til
bæjarstjórnarinnar um að hún
samþykkti að kaupendur Gnoð-
arvogshúsanna fengju 140 þús. kr.
til 50 ára í stað 100 þúsunda.
— Formósa
Framh. af bls. 1
komast að safnkomulagi um að
friðsamlegar aðgerðir einar yrðu
viðhafðar í geimnum. Mannkyn-
inu í heild væri það mjög mikil-
vægt. Sagði hann, að ekki mætti
dragast á langinn að gera þetta
samkomulag eins og dregizt hefði
á langinn að gera samkomulag
um kjarnorkuná. „Sigurinn" yf-
ir himingeimnum væri e.t.v. enn
merkari en beizlun kjarnorkunn-
ar. Lagði hann áherzlu á það, að
mennirnir yrðu að vera einhuga,
sundurlyndi okkar hér á jörðinni
mætti ekki einnig verða ráðandi
með okkur, þegar út í geiminn
væri komið.
Lagði Dulles til, að Allsherjar-
þingið kæmi á fót nefnd, sem
hæfi rannsókn á því hverhig mál-
in standa í dag — og hvaða sam-
vinnuform væri heppilegast* og
aðgengilegast fyrir allar þjóðir á
þessu sviði.
Að lokum vék Dulles sérstak-
lega að kommúnistaríkjunum og
framferði þeirra á alþjóðavett-
vangi. Sagði hann kommúnista
aldrei hafa barizt fyrir neinu
innan sameinuðu þjóðanna öðru
en eigin hagsmunum. Ráðstjórn-
in hefði nú notað neitunarvaldið
í Öryggisráðinu 85 sinnum og
væri það eitt talandi tákn um
vilja kommúnista til þess að
vmna í anda stofnskrár samtak-
anna mannkyninu til friðar og
blessunar. Takmark þeirra væri
einungis að bæta stjórnmálaleg-
an hag sinn, öllu öðru skelltu þeir
skollaeyrum við Hér væri um að
ræða ógnun v'-ð tilveru samtak-
anna. Þjóðir heims ættu að hafa
lært mikið af sögunni, en ef sá
lærdómur væri að gleymast,
eins og oft virtist, ef leiðtogar
þjóða heims gleymdu lærdómi
sögunnar — gleymdu hlutverki
sínu og skyldum, þá markaði það
upphafið að falli samtaka Sam-
einuðu þjóðanna.
En það er ósk mín, sagði Dull-
es, að leiðtogarnir vinni í fram-
tíðinni að bættum heimi, bættum
kjörum þjóða sinna, járntjaldið
verfi smám saman — og „kalda
stríðið“ verði einn góðan veður-
dag fortíðarinnar. Stöndum sara
an um frið og framfarir.
Þá tók til máls Gunnar Thor-
oddsen, borgarstjóri. Sagði hann
að misskilnings gætti hjá Inga
R. Helgasyni um málsmeðferð til
lögu þeirrar, er hann hefði flutt
í bæjarstjórninni 19. júní. Hefði
tillagan verið tekin fyrir á
fyrsta fundi, sem bæjarráð hélt
eftir þann tíma, en það var 24.
júní, og vísaði borgarstjóri til
fundargerðar þess fundar. Borg-
arritara hafði verið falið að ræða
málið við húsnæðismálastjórn,
og hefði hann 30. júni átt við-
ræður við formann húsnæðis-
málastjórnar, sem ekki hafði tal-
ið tímabært að taka málið til um-
ræðu. Síðan hafði bæjarráð rætt
málið á ný 3. júlí.
Borgarstjóri benti á, að það
væri einkum tvö atriði, sem
þyrftu athugunar við í sambandi
við þessa tillögu. í fyrstalagi væri
hér um að ræða viðbótarlán til
50 ára, sem næmi 1,8 millj. kr.
frá bæjarsjóði. í öðru lagi væru
reglugerðafyrirmæli um það, að
þeir lántakendur sem fengju
meira en 100 þús. kr. til 50 ára,
ættu ekki jafn greiðan aðgang að
A- og B-lánum. Ef tillagan yrði
samþykkt, mundu A- og B-lána-
möguleikar lántakendanna skerð
ast um 20 þúsund. Kvað hann
málið hafa verið rætt ýtarlega í
bæjarráði og væri síður en svo
að því hefði ekki verið sinnt. Þá
vék hann að því, að mál þetta
væri yfirgripsmikið og þyrfti
rækilegri athuganir í sambandi
við aðrar byggingarframkvæmd-
ir bæjarins áður en það fengi
fullnaðarafgreiðslu.
Þá minntist borgarstjóri á bréf,
sem bæjarráði hafði borizt frá
húsnæðismálastjórn þar sem þess
er farið á leit, að þeir sem þegar
hafa fengið loforð fyrir íbúðun-
um í Gnoðarvogshúsunum, verði
ekkí af þeim, þó þeir geti ekki
greitt þær út. Kvað hann óvissu
ríkja hjá húsnæðismálastjórn um
það, hvenær kaupendur gætu
fengið lán þar. Mjög hefði dreg-
izt úthlutun og útborgun á A- og
B-lánum. Taldi borgarstjóri því
ekki fært að afgreiða tillögu
Inga R. Helgasonar á þessu stigi
málsins og lagði til að henni yrði
frestað.
Þá tók Ingi R. Helgason aftur
til máls. Tók hann vel leiðrétting-
um borgarstjóra, en saknaði þess
að engin ákvörðun hefði verið
tekin í málinu. Þá féllst hann á
að tillögu sinni yrði frestað og
var það samþykkt samhljóða.
Lið K.A., Norðurlandsmeistarar í knattspyrnu 1958. Er það í ^
fimmta skipti í röð að K.A. verður Norðurlandsmeistari.
(Ljósm.: Matth. Gests.)
Fátt nýtt hjá Gromyko
Erl. togari leitar hafnar
Fór frjáls ferða sinna
NORÐFIRÐI, 18. sept. — f morg-^
un kl. 8,30 kom hingað inn belg-
íski togarinn Raphael Gabrielle
frá Ostende. Togarinn leitaði
hjálpar vegna þess að einn skip-
verjinn hafði fótbrotnað illa.
Þetta er fyrsti erlendi togarinn,
sem leitar hafnar hér síðan land
helgin var víkkuð. Ekki er kunn-
ugt um að hann hafi veitt innan
nýju fiskveiðitakmarkanna og
fór hann því frjáls ferða sinna
frá Norðfirði, en skildi hinn slas-
aða skipverja eftir á fjórðungs-
sjúkrahúsinu.
Belgíski togarinn var mjög lít-
ill, líklega um 150 smálestir. Á
honum var aðeins 7 manna áhöfn.
Litlir belgískir togarar af þessari
gerð hafa stundað humarveiðar
við Austurland.
Viðureign í dyra-
gæii sendiráðsins
PARÍS, 18. sept. — f dag var
maður nokkur fluttur í sjúkra-
hús í París vegna skotsára, sem
hann hafði hlotið í viðskiptum
við starfsmenn ungverska sendi-
ráðsins í borginni. Samkv. síðustu
fregnum munu nánari atvik þau,
að maður þessi, sem er ungversk-
ur og áður var búsettur í Ung-
verjalandi, en hefur hlotið ríkis-
borgararétt í öðru landi, reyndi
að komast inn í sendiráðið. Átti
hann í höggi við sendiráðsmenn
við dyr hússins, reyndi að
þrengja sér inn um dymar — en
þá skutu sendiráðsmenn á hann
úr skammbyssum. Ekki er kunn-
ugt hvað aðkomumaðurinn gerði
sér til erindis, en sárin eru ekki
alvarleg talin.
— Lögþingið
Framh. af bls. 1
samvinnuþýðari og óhræddari
við að ganga að einhverri mála-
miðlun.
Blaðið bætir því við, að stjórn-
arandstaðan í Danmörku hafi
lýst því yfir, að stjórnin verði
sjálf að ráða fram úr vandanum.
Nú sé of seint að spyrja ráða úr
því að það hafi ekki verið gert
áður en H. C. Hansen lýsti því
yfir í sumar, að Danir mundu
styðja kröfu Færeyinga um 12
mílna fiskveiðilandhelgi.
Samkvæmt fregnum frá Þórs-
höfn í kvöld ræddi Iandsstjúrnin
í Færeyjum brezku tillöguna síð-
degis í dag, en eklti komst stjóm-
in aff neinni endanlegri niður-
stöffu í málinu.
Monlgomery lælur
af sförfum
LONDON, 18. sept. — Montgom-
ery marskálkur lét í dag af störf-
um annars æðsta yfirmanns her-
afla Atlantshafsbandalagsins og
jafnframt af hermennsku. Hann
hefur verið í brezka hernum í
50 ár. Hann hélt frá aðalstöðvum
bandalagsins í París heim til
Lundúna og sagði m. a. við kom-
una þangað, að hann ætlaði ekki
að fá sér neitt ákveðið starf.
Hann ætlaði að nota elliárin til
þess að lesa og hugsa. Um ástand-
ið á alþjóðavettvangi sagði hann,
að styrj aldarhættan væri nú lítil
í Evrópu, en aftur á móti kvaðst
hann uggandi um ástandið í
Afríku og Asíu.
NEW YORK, 18. sept. — Að ræðu
Dulless lokinni tók Gromyko, ut-
anríkisráðherra Ráðstjórnarinn-
ar til máls. Réðist hánn harka-
lega á Bandaríkin og krafðist
þess, að þau flyttu allan herafla,
sem þau ættu utan heimalands-
ins, heim. Sagði hann framkomu
Bandaríkjahers við Formósu vera
ógnun við Kína og friðinn í heim-
inum. Kallaði hann þetta sýndar-
mennsku, og tilgangurinn væri
að hræða þjóðir heims til fylgis
við Bandaríkin. Árásir rússneska
utanríkisráðherrans voru af
sama toga spunnar og árásir hans
á síðustu þingum Sameinuðu
þjóðanna. Lítið kom þar nýtt
fram og engar raunhæfar úrbcta-
tillögur flutti hann. Sagði hann
Rússa mundu koma Kínverjum
til aðstoðar ef Bandaríkjamenn
réðust á Kína. Kínverjar og .Rúss-
ar væru færir um að hrinda
hverri árás — hvaðan sem hún
kæmi.
Krefjast skaðabóla
ÁLASUNDI, 18. sept. — Skip-
stjórar norsku fiskiskipanna,
sem urffu fyrir tjóni af völdum
brezkra togara viff Island, hafa
nú krafizt skaffabóta. — Mun
norska sjávarútvegsmálaráffu-
neytiff í samvinnu viff utanríkis-
ráðuneytið reka erindi skipstjór-
anna viff brezk stjórnarvöld.
Innilega þcikka ég öllunv vinum og vandamönnum
heimsóknir, gjafir og skeyti á áttræðis afmæli mínu.
Guð farsæli ykkur og blessi.
Þorleifur Eggertsson.
Þakka hjartanlega vinum og vandamönnum mér auð-
sýnda vináttu á fimmtugsafmæli mínu 5. þ.m.
Gísli Gíslason.
Okunnugt er um árangur
Varsjáfundanna
VARSJÁ, 18. sept. — Bandaríski
og kínverski sendiherrann rædd-
ust við í dag í tvær stundir fyrir
luktum dyrum. Þetta var annar
fundur þeirra Beam og Ping-Nan
um Formósumálið. Jafnframt var
þetta 75. fundurinn, sem sendi-
fulltrúi Bandarikjastjómar og
kínversku kommúnistastjórnar-
innar eiga með sér síðan í ágúst
1955.
Hvorugur sendiherranna vildi
láta neitt uppi um árangur að
fundi loknum í dag, en tilkynnt
var, að annar fundur væri ákveð-
inn kl. 10 f. h. á sunnudaginn.
Að hverjum fundi loknum senda
sendiherrarnir skýrslur til stjórna
sinna og verða síðan að bíða nán-
ari fyrirmæla.
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem minntust mín
á 85 ára afmælinu, með heimsóknum, gjöfum og hlýjum
kveðjum.
Guð blessi ykkur öll.
Guðný Ölafsdóttir, Ásgarði.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir
ÁRNI J. í. ÁRNASON
lézt í Landsspítalanum 18. þ.m. .
Helga Guðmundsdóttir,
Guðmundur Árnason, Árni Árnason,
Halla Aðalsteinsdóttir, Guðrún Pálsdóttir.
Maðurinn minn
KRISTJÁN LINNET
fyrrv, bæjarfógeti,
sem andaðist 11. september verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju í dag föstudaginn 19. sept. kl. l>/2 e.h.
Blóm og kransar afbeiðin, en þeim sem vilja minnast
hans, er vinsamlegast bent á Barnaspítalasjóð Hringsins.
Jóhanna Linnet.
Innilegar þakkir færi ég öllum nær og f jær, sem sýndu
»
samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns
BJARNA EIRlKSSONAR
kaupmanns í Bolungarvík.
Fyrir mina hönd, sona minna og annarra vandamanna.
Halldóra Benediktsdóttir.
-alS