Morgunblaðið - 12.11.1958, Blaðsíða 18
18
MORCUmtl AÐ1Ð
Miðvikudagur 12. nóv. 1958
Cuðrún Tómasdóftir
syngur á Akureyri
Akureyri, 11. nóv. —
Næstkomandi laugardagskvöld
ffiun ung íslenzk söngfcona halda
fyrstu söngskemmtun sína hér í
bæ. Heitir hún Guðrún Tómas-
dóttir og er dóttir Tómasar Jó-
hannssonar, sem var kennari við
bændaskólann á Hólum. Guðrún
er af söngelsku fólki komin, en
föðursystir hennar er Jóhanna
Jóhaimsdóttir, söngkona, sem
margir hér í bæ munu minnast
frá því hún átti hér heima, móð-
urbróðir Guðrúnar er Ólafur
Magnússon frá Mosfelli, einnig
þekktur söngvari.
Guðrún varð stúdent frá M.A.
vorið 1948, og dvaldist hér í bæ 3
síðustu skólaár sín. Starfaði hún
þá á sumrin við símaafgreiðslu
á Hótel K.E.A. Guðrún sóng hér
með Karlakór Akureyrar m. a. á
Luciuhátíðum. Þá söng hún nokk
íir ár með Útvarpskórnum í Rvík.
Undanfarin 5 ár hefur Guðrún
verið við söngnám í New York
hjá einkakennara, Júgóslavanum
Mirko Pugelj, er var á sínum tíma
kunnur söngvari víða í Evrópu.
Einnig söng Guðrún með Robert
Shaw kórnum í New York og
átti þess kost að ferðast um með
kórnum og kom víða fram m. a.
í Carnegie Hall. Þá söng hún á
samkomum íslendingafélagsins í
New York, á nemendahljómleik-
um og víðar.
Á hljómleikunum á laugardag
inn mun Guðrún syngja lagaflokk
Ný stjórn í Nord-
mannslaget
Á AÐALFUNDI, sem haldinn
var í félaginu Nordmannslaget í
Reykjavík 29. október sl. var
Tómas Haarde verkfræðingur
kosinn formaður félagsins í stað
Othars Ellingsens, ræðismanns,
sem baðst undan endurkosningu.
Varaformaður var kjörinn Einar
Farestveit, forstjóri. Aðrir í
stjórn eru: frú Ingríd Björnsson,
gjaldkeri, Ivar Orgland, sendi-
kennari, sem er ritari, og Arvid
Hoel sendiráðsritari, sem er vara
ritari félagsins;
inn „Frauenliebe und Leben“,
eftir Schumann og spænsk þjóð-
lög eftir de Falla, einnig mun
hún syngja nokkur ítölsk lög og
loks lög eftir fjögur íslenzk tón-
skáld. Fritz Weisshappel verður
við hljóðfærið.
Guðrún Tcmasdóttir hélt söng-
skemmtun í Reykjavík í haust og
sögðu tónlistargagnrýnendur blað
anna þar m. a. um söng hennar:
„. . . Söngurinn kemur frá hjart-
anu og túlkunin er vönduð og
fáguð, enda er söngkonan músik
ölsk, eins og hún á kyn til, og er
auk þess ágætlega menntuð og
framkonan öll hin geðfelldasta.
Alls þessa gætir í lisí Guðrúnar.
Með Guðrúnu Tómasdóttur bæt-
ist góður listamaður í hóp ís-
lenzkra einsöngvara og hygg ég,
að hennar bíði bráðlega hlutverk
á sviði Þjóðleikhússins . . (P. í.
Morgunblaðinu).
„. . . . Framburðurinn er fá-
gætlega skýr og greinilegur á
hvaða tungumáli, sem hún syng-
ur .. . . Þá söng Guðrún sjö þjóð-
lög eftir . spænska tónskáldið
Manuel de Falla, og hefur íslenzk
ur söngvari vart heyrzt syngja
hin blóðheitu sönglög Spánar af
jafnmikilli nærfærni og innlifun
og Guðrún gerði að þessu sinni“.
(audit, Vísir).
„ . . . Guðrún Tómasdóttir virð
ist hafa fyllstu skilyrði til að kom
ast í allra fremstu röð söng-
kvenna vorra . . .“ (B.F. Þjóð-
viljanum).
Fréttabréf úr Holtum:
Veðurblíða — kvikfé
fœkkar — vegir slœmir
Withelm Stollenwerk
MYKJUNESI, 10 nóv. — Ennþá
er sama veðurblíðan, en þó hefur
heldur kólnað síðustu dagana og
féll nokkur snjór fyrir nokkrum
dögum, en nú er að hlýna aftur og
jörðin er þíð ennþá. Víða voru
kýrnar látnar út fram í byrjun
þessa mánaðar, enda oftast veð-
urblíða og túnin græn fram til
þessa. Er langt síðan jafnmilt
haust hefir komið hér, bæði hlý-
indi og hægviðri, svo hingað tíl
Þýzkur orgelleikari og
tónskáld heldur hljóml.
á vegum Tónlistarfélagsins
í KVÖLD og annað kvöld verða
níundu tónleikar Tónlistarfélags-
ins á þessu ári fyrir styrktar-
félaga. Hingað er kominn kunn-
ur orgelleikari frá Þýzkalandi,
Wilhelm Stollenwerk, og leikur
hann í Dómkirkjunni kl. 9 bæði
kvöldin.
Wilhelm Stollenwerk er bú-
settur í Frankfurt am Main og
hefur ferðazt mikið um löndin
á meginlandi Evrópu og haldið
orgeltónleika. Þetta er þó fyrsta
tónleikaferð hans til hinna norð-
Athyglisverð nýbreytni kirkju-
kórnsambnnds Bangórþings
FYRIR tveimur árum hóf kirkju
kórasamband Rangárþings ásamt
prestum prófastsdæmisins þá ný-
breytni, að kórarnir heimsæktu
aðra söfnuði ásamt presti sínum
og önnuðust alla þjónustu við
messu þann dag, en heimaprestur
og kór kirkjunnar áttu frí.
Þessi nýbreytni varð þegar
mjög vinsæl og hafa komið frám
eindregnar óskir frá söfnuðun-
Arsenal hefur forystuna
AÐEINS fjögur stig skilja efstu
tólf liðin í fyrstu deild eftir leik-
ina á laugardag í ensku deilda-
keppninni í knattspyrnu. Arsenal
heldur enn forustunni og hefur 21
stig af 34 mögulegum, en það
sýnir að keppnin er skemmtiiega
jöfn í ár. Arsenal heimsótti ná-
granna sína West Ham og varð
jafntefli 0—0 í skemmtilegum
leik. Wolverhampton bar sigur
úr býtum gegn Preston á heima-
velli 2—0. Bobby Mason, sem var
bezti framherji „Úlfanna“ skoraði
á 61. mín. og aftur er 78 mín.
voru af leik. Tom Finney (Prest-
on) lék í stöðu miðherja, en mátti
sín lítils vegna Billy Wright, sem
ætíð hafði yfirhöndina í einvígj-
um þeirra. Newcastle sigraði Lut
on og skoraði Len White eina
mark leiksins. Blackpool og West
Bromwich Albion gerðu jafntefli
1—1 í Blackpool. Jackie Mudie
skoraði fyrir Blackpool á 28. mín.
en Burnside jafnaði fyrir West
Brom. eftir 53 mín. Nottingham
Forest sýnir afbragðs knatt-
spyrnu þessa dagana og með sigri
sínum yfir Manchester C-ity hef-
ur Forest unnið fimm af síðustu
6 leikum sínum, skoraði 12 mörk
gegn 2. Stuart Imlach skoraði eft
ir 7 mín. fyrir Forest og var stað-
an 1—0 í hálfleik, en í seinni
hálfleik gerði hinn ungi skozk-
ættaði h. innh. John Quigley 3
mörk. Það á ekki af Aston Villa
að ganga. Eftir 17 mín. stóðu
leikar 3—0 fyrir Everton, mörk-
in skoruðu Tommy Jones (tvær
vítaspyrnur) á 10. mín. og 17. m.)
og Eddie Thomas á 16 mín.
Skömmu síðar varð markvörður
Villa, Nigel Sims að yfirgefa völl-
inn eftir meiðsli, en í markið fór
Peter McParland v. úth. og hélt
markinu hreinu það sem eftir var
hálfleiksins. í síðari hálfleik kom
’Sims aftur í mark og vonir Aston
Villa glæddust aftur eftir að Jack
ie Sewell og Gerry Hitchens
höfðu skorað á 70. og 74. mín., en
þær vonir brugðust er Eddie O’
Hara skoraði fyrir Everton, er
4 mín. voru til leiksloka. Lei. est-
er City, sem er í neðsta sæti,
sagði upp framkvEfemdastjóra fé-
lagsins á föstudag, en það bætti
lítið úr skák, því liðið tapaði fyr-
ir Portsmouth 4—1. Þetta er 17.
framkvæmdastjórinn sem er „rek
inn“ í deildakeppninni það, sem
af er þessu hausti!!
Sheffield Wednesday og Ful-
ham auka enn forskot sitt í ann-
arri deild, en þau hafa nú sex
stig umfram þriðja lið í röðinni.
Middlesbro vann sinn fyrsta sig-
ur, 6—1 gegn Scunthorpe, eftir'
10 leiki í röð án vinnings. Cardifí
City hefur unnið sex af sjö sein-
ustu leikunum og Sundarlend
slapp frá ’botninum’ með jafntefli
í Huddersfield.
f 3. deild er Plymouth langefst
með 31 stig, Reading og Hull City
hafa 24 hvort. Southampton,
Tranmere, Southend og Q. P. R.
hafa 22 stig hvert.
Port Vale hefur tekið foryst-
una í 4. deild og hefur 26 stig,
Exeter City og York City hafa
25 og Coventry 24.
(Sjá töflui á bls. 13).
um, um það að áframhald yrði
á þessu starfi.
Á aðalfundi kórasambandsins,
sem haldinn var nýlega var á-
kveðið að þessum heimsóknum
yrði þannig hagað á þessu
hausti:
Sunnud. 9. nóv. messar séra
Sveinbjörn Högnason prófastur
að Skarði með Fljótshlíðarkirkju
kór og séra Sveinn Ögmundsson
að Stórolfshvoli með Hábæjar-
kirkjukór.
Sunnud. 16. nóv. messar séra féiagsjns
Hannes Guðmundsson að Árbæ
með Marteinstungu-kirkjukór og
séra Sigurður Einarsson að
Breiðabólsstað með Stóradals-
kirkjukór.
Sunnud. 23. nóv. messar séra
Sigurður Haukdal að Odda með
Landeyjakirkjukórum.
Kirkjukórasamband Rangár-
vallaprófastsdæmis hefur með
þessu framtaki sínu gefið fag-
urt dæmi þess, hvernig örfa má
kirkjusókn og efla kynni og
bróðurhug milli safnaðanna. For-
maður sambandsins er frú Hanna
Karlsdóttir í Holti, sem af mikl-
um áhuga hefur starfað að söng-
málum bæði í prestakalli manns
síns og í héraðinu. Að hennar
tilhlutun var svofelld tillaga
samþykkt á síðasta aðalfundi
sambandsins:
„Aðalfundur kirkjukórasam-
bands Rangárvallaprófastsdæmis
haldinn að Breiðabólstað 19. okt.
1958 beinir þeim tilmælum til
skólanefndá barna- og héraðs-
skóla sýslunnar, að upp verði
tekin söngkennsla í skólunum,
þar sem hún er ekki fyrir hendi,
svo fljótt sem auðið er, eins og
lög mæla fyrir.“
lægari landa álfunnar. Stollen-
werk er einnig þekkt tónskáld
í heimalandi sínu, hefur samið
hljómsveitarverk, stór orgelverk
og píanóverk.
Á efnisskrá tónleikanna í
Dómkirkjunni eru þrjú verk
eftir frönsk 18. aldar tónskáld,
þá L. N. Clerambault, Jean
Francois Dandrieu og Jean Bap-
tiste Loeillet, þá eru verk eftir
Bach og César Franck, Chaconne
eftir Pál ísólfsson, sem listamað-
urinn leikur nú opinberlega í
fyrsta sinn, og loks orgelimpro-
visation um gamalt sálmalag,
„Kær Jesú Kristi“, eftir lista-
manninn sjálfan.
1 vikulokin eða í næstu viku
mun Stollenwerk svo halda opin-
bera hljómleika í Hafnarfirði og
sennilega í Akureyrarkirkju.
Komið hefur til orða að á ein-
hverjum tónleikunum leiki lista-
maðurinn af fingrum fram til-
brigði við stef, sem honum er
fengið um leið og sem hann hef-
ur ekki séð áður. Það er list, sem
var mikið dýrkuð á dögum Bachs
og er ákaflega erfið, að því er
dr. Páll ísólfsson tjáði frétta-
mönnum í gær, en hann ætlar að
velja stefið.
Tónleikar Wilhelms Stollen-
werks eru 9. tónleikar Tónlistar-
fyrir styrktarfélaga,
eins og áður er sagt. Gert er ráð
fyrir 10 tónleikum á ári fyrir
styrktarfélaga, og verða þeir tí-
undu í næstu viku, en þá kemur
gítarleikarinn frægi, Segovia,
hingað.
Nýtt dýralæknis'
umdæmi
r
Alyktun
NEW YORK, 11. nóv. (NTB). —
Stjórnmálanefnd S. Þ. samþykkti
í dag með 52 atkv. gegn 9 álykt-
unartillögu þess efnis að efnt
skuli til frjálsra kosninga í gerv-
allri Kóru undir eftirliti S. Þ.
Átján ríki sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
í GÆR var fundur í neðri deild
Alþings á venjulegum tíma. Tvö
mál voru á dagskrá. Frumvarp
til laga um breytingar á lögum
um dýralækna var til fyrstu um-
ræðu. Flm. Páll Þorsteinsson,
gerði grein fyrir frumvarpinu.
Gat hann þess að það hefði verið
flutt á síðasta þingi og þá sam-
þykkt óbreytt í neðri deild, en
vísað frá með rökstuddri dag-
skrá í efri deild.
Þá rakti flm. efni frumvarps-
ins, sem er á þá leið, að Austur-
landsumdæmj dýralæknis nái
ekki nema að Berufirði, en stofn-
að verði nýtt dýralæknisumdæmi,
Hornafjarðarumdæmi, sem taki
yfir A-Skaftafellssýslu og Bú-
lands- og Geithellnahrepp í S-
Múlasýslu. Kvað flm. Austur-
land verst sett allra landshluta
hvað snerti dýralækna og lagði
til, að málinu yrði vísað til 2.
umr. og landbúnaðarnefndar. Var
það samþykkt með samhljóða
atkvæðum.
Frumvarp til laga um útflutn-
ing hrossa var tekið af dagskrá
neðri deildar í gær samkvæmt
beiðir'
hefur verið hægt að sinns öllum
útiverkum.
Slátrun sauðfjár lauk hér í
sýslu upp úr miðjum október og
var slátrað miklu fleira fé en
undanfarin ár, en, bæði vigt og
flokkun reyndist lakari en síð-
ustu árin. Eftir að sauðfjárslátr-
un lauk, hófst slátrun stórgripa
og mun ekki að fi.llu lokið enn.
Mun stórgripum heldur fækka
hér, einkanlega hrossum og hefur
þeim farið fækkandi á uridan-
förnuum árum. Víst er að kúnum
mun ekki fjölga á næstunni, með
því verði sem nú er á fóðurbæti,
enda yfirleitt lítið keypt af hon-
um og mun mjólkurfarmleiðslan
óhjákvæmilega dragast saman,
svo að sjálfsagt þarf ekki að
kvíða offramleiðslu á því sviði
á næstunni.
Fremur er dauft yfir félags-
lífi hér í utanverðri sýslunni.
En heilsufar mun vera gott að
öðru leyti en þvi, að í haust var
að stinga sér niður einhver um-
gangspest, en er nú um garð
gengin.
Ennþá er unnið við að brjóta
land hér með jarðýtu og og hefur
engin töf verið þar á ennþá, þó
þetta sé orðið áliðið tímans. Mun
því verki nú brátt ljúka eftir
þeim vinnupöntunum er fyrir
lágu.
Eitt er það, sem menn hér bera
kvíðboga fyrir öðru fremur, en
það er að vegir hér um slóðir
verði fljótt ófærir er ke.nur fram
á veturinn, ef þsnnig viðrar að
frost og þíður skiptar.t á, því við-
hald þeirra er vfirieitt höimulega
lítið. Á sumum stöðum hefur ver-
ið látið nægja að hella ofan í
hvörfin frá í vor. Er hætt við
að það segi til sín síðar.
Alltaf er unnið við bamaskóla
bygginguna að Laugalandi hér í
Holtum. Er ráðgert að taka nokk
urn hluta skólans í notkun nú í
vetur og hefst ekki kennsla hér
fyrr en það verður gert. —M.G.
— Grein Ragnars
Jónssonar
Framhald af bls 6
is nýrri hættu, sem óhugsandi
er annað en að vernda þá gegn,
ef þeir sjá ekki leið til þess að
gera það sjálfir. Og nú hafa þeir
hafizt handa, sem alkunnugt er
orðið. Ef einhverjir sætta sig
ekki við gjaldið eða innheimtu-
aðferðina, verður dómstólunum
væntanlega gert að skera úr því
máli. En sú einhliða leiðrétting
sem hér er fyrirhuguð, er ekki
heppileg lausn og mun áreiðan-
lega ekki tryggja sættir.
Hæggeng grammófónplata, er
að jafnaði rúmar eitt meiri hátt-
ar tónverk, kostar nú hátt á
þriðja hundrað krónur. STEF
býður upp á leyfi til að taka á
tónband alla verndaða tónlist
fyrir 200.00 kr. á ári. Engan
mann hefi ég hitt, sem þykir
þessi upphæð út af fyrir sig ó-
sanngjörn, en hins vegar marga,
sem ekki fella sig við innheimtu-
aðferðina. Hér ætti að vera hægt
að koma sáttarorði á milli. Þeir,
sem ætla að ærast út af stóryrð-
um Jóns Leifs, mundu dæma þau
mildar, ef þeir vissu eins mikið
og hann um það hve heimurinn
níðist miskunnarlaust á lista-
mönnum sínum, og hve mjög
verk þeirra eru misnotuð til þess
að afla mörgum mönnum óverð-
skuldaðs fjár og frama og hví-
líkt risaátak liggur að baki
þeirra hugverka, sem gefið hafa
heiminum mest af hamingju
hans, en höfundum sínum oftast
þjáningu eina og vanþökk.
R. J.