Morgunblaðið - 12.11.1958, Síða 19
Miðvik'udagur 12. nóv. 1958
MORGUNBf.AÐ IÐ
19
Skólakeppni á Akureyri
Laugaskóli scekir Gagnfroeðaskólann heim
Sólfaxi flaug norður fyrir
óveðrið í Grcenlandi
SL. laugardag þann 8. þ. m. fór
fram skólakeppni milli Gagn-
fræðaskólans á Akureyri og hér-
aðsskólans að Laugum í Reykja-
dal. Keppnin var háð hér á Ak-
uryri.
í fyrsta lagi var keppt í knatt-
spyrnu og fóru leikar þannig að
G. A. vann með 2 mörkum gegn
1. Því næst fór fram sundkeppni
og var keppt í 100 m bringu-
sundi karla: 1. Stefán Óskarsson,
Laugum, 1 mín. 25,7; 2. Ólafur
Atlason, Laugum, 1 mín. 25,8;
3. Júlíus Björgvinsson, G. Á.,
1 mín. 28, 3. 100 m bringusund
kvenna: 1. Helga Haraldsdóttir
G. A., 1 mín. 38,3; 2. Sigríður
Arnþórsdóttir, G. A., 1 mín. 46,0;
3. Alma Möller, G. A. 1 mín. 46,2.
50 m skriðsund karla: 1. Björn
Þórisson, G. A., 29,7 sek.; 2. Björn
Arason, G. A., 31,4 sek.; 3. Helgi
Þórisson, G. A., 32,1 sek. 50 m
skriðsund kvenna: 1. Erla Hólm-
steinsdóttir, G. A., 35,0 sek.;
2. Guðný Bergsdóttir, G. A. 37,5
sek.; 3. Rósa Pálsdóttir, G. A.,
38,4 sek.. 10x50 m boðsund karla:
G. A., 6:04,4 mín; Laugaskóli,
6:51,3 mín. 10x50 m boðsund
kvenna: G. A., 7:06,8 mín; Laug-
ar, 8:50,2 mín,
Alls tóku þátt í þessum keppn-
um milli 60 og 70 nemendur úr
Pétur Thomsen
konunglegur
hirðljósmyndari
I GÆR var þjóðhátíðardagur
Svía, og var að venju móttaka
í sænska sendiráðinu í Reykjavík
í tilefni þess. Þar var staddur ný-
útnefndur „konunglegur hirðljós
myndari“ Svíakonungs, Pétur
Thomsen, og tók hann myndir.
Fyrir skömmu afhenti sendi-
ráðið Pétri Thomsen ljósmyndara
í Reykjavík skjal þess efnis, að
Gustav VI. Adolf Svíakonungur
hefði gert hann að konunglegum
hirðljósmyndara sínum hér á
landi, en eins og kunnugt er, tók
Pétur fjölda mynda af konungs-
hjónunum, þegar þau voru hér á
ferð í fyrrasumar. Var konungi
afhent við brottfönna fagurt
albúm með myndum af hátíða-
höldunum í sambandi við kon-
ungskomuna.
Svíakonungur hefur áður
sæmt íslenzkan ljósmyndara þess
ari nafnbót. Loftur heitinn Guð-
mundsson var á sínum tíma kon-
unglegur sænskur hirðljósmynd-
ari. Á þeim tíma voru hér kon-
unglegir ljósmyndarar fleiri
hirða, en nú mun Pétur Thomsen
vera eini ljósmyndarinn hér á
landi, sem hefur leyfi til að nota
titilinn „Konunglegur hirðljós-
myndari".
„Spretthlaupar-
iiin44 í síðasta sinn
SUMARLEIKHÚSIÐ SÝNIR
„Spretthlauparann", gamanleik
eftir Agnar Þórðarson, í Austur-
bæjarbíói annað kvöld kl. 11.30,
til ágóða fyrir Fél. ísl. leikara.
Sumarleikhúsið hefur undan-
farin sumur sýnt gamanleiki,
sem hlotið hafa mikla aðsókn, en
þegar Leikfélagið hóf vetrar-
starfsemi sína, varð Sumarleik-
húsið að hætta sýningum í Iðnó
og hafði þá „Spretthlauparinn“
verið sýndur 45 sinnum. Leik-
stjóri er Gísli Halldórsson, en
hann leikur einnig aðalhlutverk-
ið, sjálfan „Spretthlauparann*.
Aðrir leikendur eru: Bryndís
Pétursdóttir, Guðmundur Páls-
son, Knútur Magnússon, Helga
Valtýsdóttir og Steindór Hjör-
leifsson.
Sýningin á „Spretthlauparan-
um“ er síðasta sýningin á vegum
Fél. ísl. leikara að þessu sinni.
báðum skólunum. Gagnfræða-
skólinn annaðist mótið og greiddi
fyrir Laugamönnum, sem boðið
var til hádegisverðar að Hótel
KEA og bauð Jóhann Frímann
Kjartan 0.
Bjarnason sýnir
myndasafn sitt
KJARTAN Ó. Bjarnason hefur
undanfarið ferðazt um landið og
sýnt m.a. kvikmynd sína frá
Finnlandi á alls 45 stöðum víðs
vegar um land. í kvöld sýnir
hann nokkrar kvikmyndir í Hafn
arfjarðarbíói kl. 5, 7 og 9. Sökum
þess að Kjartan er á förum til
Noregs verða myndir hans ekki
sýndar hér í Reykjavík.
Kjartan fer til Noregs og sýnir
þar myndina „Sólskinsdagar á
íslandi", en þá mynd hefur hann
sýnt um 1800 sinnum í Dan-
mörku, Noregi, Svíþjóð og Finn-
landi við ágæta aðsókn. —
Litmyndin frá Finnlandi sýnir j
líf og starf þjóðarinnar og er sér-
stök áherzla lögð á að sýna skóg
arhögg og flutning á viðnum eft-
ir straumhörðum ám. Auk þess
sýnir Kjartan mynd frá heim-
sókn finnsku forsetahjónanna til
íslands, Austfjarðaþætti, íslenzk
börn, Vetrarleikina í Cortina,
Olympíuleika hestamanna í
Stokkhólmi o.fl.
Ryskingar
á Akureyri
AKUREYRI, 11. nóv. — Fregnir
hafa verið birtar um, að hér á
Akureyri hafi verið venju frem-
ur sögulegur dansleikur um síð-
astliðna helgi, eða öllu fremtrr
gerzt ógurlegir atburðir að honum
loknum, því vitað er að dansleik-
urinn sjálfur fór hið bezta fram.
í fregnum mun þó gert meira
úr atburði þessum en efni stóðu
til. Enda upplýsa yfirvöld, að
ekki hafi orðið meiðsl á nein-
um þeirra, er þarna áttu hlut að
máli, hvorki lögreglu né dans-
gestum.
Það hefur hent hér í bæ fyrir
skömmu, að miklar fregnir hafa
verið fluttar í sambandi við ó-
venjuleg afskipti af löggæzlu á
samkomu bæjarins, og reyndust
þær ekki á rökum reistar.
Það mun hins vegar ekki telj-
ast landsfréttir, þótt ryskingar
verði að lokinni dansskemmtun,
jafnvel þótt fram komi kæra af
því tilefni. — vig.
Laugamenn þar velkomna. Kvað
hann ekki aðalatriðið hver sigr-
aði í keppni sem þessari heldur
hitt að til slíks góðs samstarfs og
kynningar væri stofnað.
Allir þátttakendur í þessu
móti sátu sameiginlega kaffi-
drykkju í Húsmæðraskóla Akur-
eyrar, og stóðu námsmeyjar
fjórða bekkjar verknáms G. A.
fyrir veitingum undir stjórn
kennara síns Þorbjargar Finn-
bogadóttur. Þar fór fram verð-
launaafhending. Gefendur verð-
launa voru Prentverk Odds
Björnssonar á Akureyri, sem gaf
12 bindi ýmissa bóka til einstakl-
ingsverðlauna. Þá gáfu Olíusölu-
deild Kea og Vátryggingadeild
Kea bikara til sveitakeppni, ann-
að fyrir knattspyrnu en hitt fyrir
stigakeppni í sundi, hvort
tveggja farandbikarar.
Öll var hátíð þessi hin ánægju-
legasta og dvöldu Laugamenn á
dansleik Iðnskólanema fram eftir
laugardagskvöldi. Kvaddi skóla-
stjóri Iðnskólans Jón Sigurgeirs-
son Laugamenn með ávarpi og
óskaði þeim góðrar heimferðar,
en Óskar Ágústsson íþrótta-
kennari á Laugum þakkaði.
vig.
Vel heppnuð
leiksýtiing
í Neskaupstað
Síðastliðið laugardagskvöld frum
sýndi Leikfélag Neskaupstaðar
gamanleikinn „Góðir eiginmenn
sofa heima“, eftir walter Elles.
Á frumsýningunni var hvert
sæti skipað og var leiknum tekið
með miklum fögnuði áhorfenda.
Frú Inga Laxness hefur æft leik-
endurna og stjórnar hún leikn-
um. Virðist henni hafa tekizt
mjög vel að fá fram samstilltan
leik allra leikenda, þótt margir
þeirra séu lítt vanir leiksviði
enda allt áhugafólk. Leikendurn-
ir eru þessir: Stefán Þorleifsson,
Guðný Þórðardóttir, Viðar Rós-
mundsson, Ásgeir Lárusson,
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Ein-
ar Ármannsson, Óskar Björns-
son, Guðrún Baldursdóttir, Al-
bert Kemp og Soffía Björgólfs-
dóttir. Leiktjöldin gerði Jóhann
Jónsson kennari. Hvíslari var
Jóhanna Jóhannsdóttir og tjalda-
meistari var Jón Kr. Magnússon.
í kvöld er fjórða sýning á
leiknum og eru margir Eskfirð-
ingar væntanlegir, en vegurinn
um Oddsskarð er eins og hann er
beztur að sumarlagi.
Leikfélagi Neskaupstaðar og
leikstjóranum hefur tekizt prýði-
lega með sýningu þessa leiks.
— Fréttaritari.
SÍÐA’STLIÐINN sunnudag fór
Sólfaxi Flugfélags íslands leigu-
flugferð til Thule á Grænlandi
fyrir danska heimskautaverk-
taka. Á leiðinni norður átti að
flúga yfir Danmarkshavn og
Danebrog á austurströndinni og
kasta þar niður vörum, er flug-
vélin hafði meðferðis. Er Sólfaxi
átti skammt ófarið til fyrrnefndra
staða, barst skeyti um að hætta
við að kasta vörunum útbyrðis.
Hélt flugvélin því áfram ferð
sinni til Thule og lenti þar á
sunnudagsskvöld.
Aðfaranótt mánudags skall á
fárviðri í Suður- og Mið-Græn-
landi. Venjuleg flugleið frá
Thule til Reykjavíkur um Syðri-
Straumfjörð varð ófær vegna
veðursins, en 60 farþegar biðu í'
Thule, sem þurftu að komast sem
fyrst til Kaupmannahafnar.
Fiugstjórinn ákvað að fljúga
fyrir norðan óveðrið og á hádegi
á mánudag var lagt af stað frá
Thule. Flogið var í norð-austur
og komið til Station Nord á aust-
urströndinni eftir fjögurra stunda
flug. Eftir að hafa tekið elds-
neyti var enn lagt upp og flogið
suður með ströndinni í átt til ís-
lands. Til Reykjavíkur kom flug
vélin kl. 2,30 aðfaranótt þriðju-
dags og hélt áfram til Kaup-
mannahafnar næsta morgun. —
Flugstjóri í þessu frækilega Græn
bjarnarson, aðstoðarflugmaður
Karl Schiöth og flugleiðsögu-
menn Eiríkur Loftsson og Frosti
Bjarnason, en vélamenn Gunnar
Valdemarsson og Ásmundui Dan-
íelsson.
Á leið til Þýzka-
lands með f ull-
fermi
NOKKUÐ hefur þeim togurum
fækkað, er stundað hafa karfa-
veiðar vestur á Fylkismiðum
við Nýfundnaland. Munu nú alls
vera þar 10 skip. Hér á heima-
miðum eru togarar á veiðum fyr-
ir Þýzkalandsmarkað og hefur
gengið erfiðlega. Sami gangurinn
er á veiðunum við Nýfundna-
land.
Nú er togarinn Fylkir á leið af
Fylkismiðum með fullfermi, og
siglir togarinn beint til Þýzka-
lands með aflann. Verður það
fyrsti ísfiskfarmurinn, sem is-
lenzkur togari selur af þessum
miðum, og er að vonum beðið
tíðinda af aflasölunni. Munu a.
m. k. tveir togarar hafa hug á
því að reyna þetta, en það mim
að sjálfsögðu hafa mikil áhrif á
ákvörðunina, hvort Fylki gengur
Hjartans þakkir færi ég öllum þeim, er sýndu mér hlý-
hug og vináttu á áttræðisafmæli mínu þann 25. okt. s.L
Jóhanna Ólafsdóttir frá Breiðholti.
Ég þakka hjartanlega öllum þeim, sem sýndu mér vinar-
hug á 75 ára afmæli mínu.
Ásdís Þorgrímsdóttir.
Lokað
frá kl. 1—4 vegna jarðarfarar.
Verzlun Halla Þórarins
Hverfisgötu 39.
Lokað
í dag vegna jarðarfarar
Alexanders D. Jónssonar frá kl. 12—4.
Sápugerðin Frygg
landsflugi var Aðalbjörn Krist- vel eða ekki.
Móðir mín
HELGA BALDVINSDÓTTIR
sem lézt 3. þ.m. verður jarðsungin miðvikudaginn 12.
nóv. frá Fossvogskirkju, kl. 2 síðdegis.
Friðrik Jónasson.
Ekkjan
MAGNA GlSLADÓTTIR
andaðist að Sólvangi 9. nóv. Jarðarförin fer fram föstu-
daginn 14. þ.m. frá Fossvogskirkju klukkan 10,30 fyrir
hádegi.
Fyrir hönd aðstandenda.
Jón H. Gíslason, Bergstaðastræti 17.
Móðir mín
RANNVEIG EIRlKSDÓTTIR
frá Mörtungu,
andaðist hinn 10. nóvember.
Fyrir hönd vandamanna.
Sigríður Skúladóttir.
Jarðarför
GUÐFINNU GlSLADÓTTUR
Eiríksgötu 17 fer fram frá Dómkirkjunni fimmtud. 13.
þ.m. kl. 1,30.
Ósk Kristjánsdóttir, Marino Erlendsson,
Sigþrúður Jónasdóttir, Þórður Erlendsson.
Eiginkona mín og móðir okkar
SYLVlA JÓNSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
13. þ.m.
Helgi Stefánsson og dætur Háteigsvegi 11.
Útför móður minnar
ÞURIÐAR þorsteinsdóttur
Frá Ytra-Lóni,
fer fram í dag miðvikudaginn 12. nóv. kl. 3 frá Fossvogs-
kirkju.
Fyrir hönd vandamanna.
Þorsteinn Jóhannesson.
Við þökkum ykkur öllum af heilum hug, sem sýndu
samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför
SIGURBJARGAR ÁMUNDADÓTTUR
Eins viljum við þakka læknum og hjúkrunarkonum
sjúkrahúss Hvítabandsins þá líkn, sem þau veittu hinni
látnu í þrautum hennar.
Faðir, eiginmaður, börn, tengdabörn og barnabörn.