Morgunblaðið - 12.11.1958, Qupperneq 20
V EDRIO
Gengur í vestan-storm upp úr
miðnætti.
origimíílaíiilíJ
259. tbl. — Miðvikudagur 12. nóvember 1958
Kvennasíða
Sjá bláðsðu 8.
Sjálfstæðisflokkurinn vildi
færa út grunnlínur
Vísvitandi ósannindi Lúðvíks Jósepssonar
í UMRÆÐUM á Alþingi í fyrra-
dag um frumvarp ríkisstjórnar-
innar um afnám þess ákvæðis í
þingsköpum, að kosin skuli sér-
stök undirnefnd utanríkismála-
nefndar, ríkisstjórninni til ráðu-
neytis, benti Óiafur Thors á það,
að ekki hefði það verið giftu-
samlegt af ríkisstjórninni að láta
kommúnista fara með vandasam-
asta utanrikismál þjóðarinnar,
landhelgismálið.
Lúðvík Jósefsson, sjávarútvegs
málaráðherra, spurði þá með
miklum þjósti, hvaða ákvörðun
í landhelgismálinu formaður
Sjálfstæðisflokksins væri andvíg
ur.
Ólafur kvað ýmis atriði máls-
ins vera þannig, að hann teldi
varhugavert vegna þjóðarhags-
muna að skýra frá þeim á þessu
stigi málsins, en efnislega væri
það mikilvægast, að Lúðvík Jós-
efsson hefði vanrækt að færa út
grunnlínurnar, en einmitt sá
réttur strandríkja hefði á Gen-
farráðstefnunni hlotið tilskilinn
meirihluta atkvæða. Væri hér
um mjög mikilsvert atriði að
ræða fyrir fslendinga og furðu-
3egt, að sjávarútvegsmálaráð-
herra skyldi láta undir höfuð
ieggjast að hagnýta þenna rétt.
Sem svar að við þessari ásök-
un, valdi Lúðvík Jósefsson þann
kost að verja gerðir sínar með
hreinum ósannindum. Hélt hann
því fram, að hann hefði sjálfur
viljað færa út grunnlínurnar, en
strandað hefði á andstöðu Sjálf-
stæðisflokksins.
Ólafur Thors benti á það, að
svo vel vildi til, að hægt væri
skjallega að sanna, að Lúðvík
Jósefsson færi hér með vísvit-
andi ósannindi, því að 21. maí sl.
hefði hann og Gunnar Thorodd-
sen birt forsætisráðherra og utan
ríkisráðherra formlega samþykkt
Piltur í MA setur
Islandsmet
AKUREYRI, 11. nóv. — Á sunnu
daginn fór fram í sundlauginni
hér sundkeppni milli íþróttafé-
lags Menntaskólans og íþrótta-
félaganna hér í bænum, en þau
gengu með sigur af hólmi, og
sýndu sundmenn þeirra mikla
yfirburði yfir skólanemendur. —
Úrslit urðu sem hér segir: 400
m skriðsund kvenna: 1, Erla
Hólmsteinsdóttir, Þór, 0,35 mín.
50 m bringusund kvenna: 1.
Helga Haraldsdóttir, KA, 0,44
mín. 500 m bringusund karla
vann Valgarður Egilsson, MA, á
7,46,4 mín., sem er nýtt íslands-
met. 50 m skriðsund karla vann
Eiríkur Ingvarsson, KA, 29,9 sek.,
Björn Þórisson varð annar á
sama tíma. 100. bringusund karla
vann Valgarður Egilsson, MA, og
synti á 1,21,0 mín. — Veður var
hið ákjósanlegasta og voru áhorf-
endur mjög margir. — Mag.
Fræðslu-
ANNAÐ kvöld klukkan o.«* mun
Sigurður Líndal, stud. jur. flytja
þriðja erindi sitt um „Hina nýju
stétt“. Nýir þátttakendur geta
enn bætzt í hópinn og tilkynni
þeir skrifstofu félagsins í Val-
höll þátttöku sína.
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
í málinu, þar sem beinlínis er
lýst andstöðu gegn þeirri hug-
mynd Framsóknarflokksins að
færa ekki út grunnlínurnar og
Vb. Stígandi
dreginn til Siglu-
fjarðar
SAMKVÆMT hjálparbeiðni frá
Slysavarnafélaginu, fór v.b. Völu
steinn, sem er 25 tonna bátur,
vélbátnum Stíganda frá Skaga-
strönd til aðstoðar, en hann var
með bilaða vél út af Skaga í fyrra
kvöld og rak til hafs. Dró Völu-
steinn bátinn inn til Siglufjarð-
ar. M.s. Hekla var einnig á þess-
um slóðum og hafði gert sig lík-
lega til að fara bátnum til hjálp-
ar, en þess gerðist ekki þörf.
Á bátnum var einn maður, eig-
andinn, og var hann á leið til
Sauðárkróks, til að hefja þaðan
sjóróðra og ætlaði að fá menn á
bátinn þar.
í lok samþykktar flokksins er
svo að orði komizt, að Sjálf-
stæðisflokkurinn telji „að verja
beri enn örfáum vikum til þessað
skýra fyrir bandalagsþjóðum Is-
lendinga þessa hagsmuni, sem til-
vera þjóðarinnar byggist á, í
fullu trausti þess, að eftir þær
útskýringar og rökræður muni
ekki aðeins útfærslan í 12 mílur
heldur og nauðsynleg rétting á
grunnlínum fagna meiri skilningi
og samúð en nú og geta komið
fyrr til framkvæmda. Lúðvík
Jósefsson hefði hins vegar valið
ófriðinn og fórnað grunnlínun-
um.
Afstaða Sjálfstæðisflokksins lá
þannig óvefengjanlega fyrir
þann 21. maí, en ríkisstjórnin tók
ekki endanlega ákvörðun sína í
málinu, fyrr en 23. maí.
Menn eiga ýmsu að venjast af
Lúðvík Jósefssyni, en í þessu
mikla máli sæmir sízt að sjálfur
sjávarútvegsmálaráðherrann beri
á borð slík ósannindi, sem hljóta
að vera borin fram gegn betri
vitund.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
landhelgisnefndinni, Sigurður
Bjarnason, alþm., er nú erlendis
á þingi Norðurlandaráðs, og
verða því ekki að sinni gerð að
umtalsefni ummæli sjávarútvegs
málaráðherra um hvað gerzt
hafi á fundum þeirrar nefndar.
. . .jú, myndin var af verkamanni, sem stóð uppi á bíl og mok-
aði salti á götuna til þess að draga úr liálkunni eftir að hann
bvrjaði að snjóa. Ljósm.: Ól. K. M.
Seldi fyrir 182
þúsund mörk
HAFNARFIRÐI — Fyrsti hafn-
firzki togarinn, sem seldi afla
sinn í Þýzkalandi að þessu sinni
var Röðull, en hann landaði þar
í gær 213 tonnum af fiski.Fengust
182,500 mörk fyrir aflann, og er
það næsthæsta sala íslenzks tog-
ara síðan þeir byrjuðu að sigla
til Þýzkal. í haust, en Þorkell
máni fékk þar 192 þús. mörk fyrir
afla sinn. Surprise veiðir nú fyrir
Þýzkal.-markað, en hinir togar-
arn eru á karfaveiðum við Ný-
fundnaland. — G. E.
Pétur Benediktsson.
Pétur Benediktsson ræðir um
efnahagssamvLnriLi og
fríverzlun Evrópu
á aðalfundi Varðar i kvöld
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður
heldur aðalfund í Sjálfstæðishús-
inu kl. 8,30 í kvöld. Eftir að lokið
verður venjulegum aðalfundar-
störfum mun Pétur Benediktsson
bankastjóri flytja ræðu um efna
hagssamvinnu og fríverzlun Ev-
rópu.
Svo sem kunnugt er hafa mál
þessi verið mjög á dagskrá á und
anförnum mánuðum og árum. —
Margt hefur skeð í þessum efn-
um allt frá Marshall-hjálp Banda
ríkjanna og stofnun Efnahagssam
vinnustofnunar Evrópu til þessa
dags. Miklar fyrirætlanir og um-
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélags
Kópavogs
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé-
lags Kópavogs var haldinn síð-
astliðið mánudagskvöld.
Hörður Þórhallsson viðskipta-
fræðingur var endurkjörinn for-
maður félagsins. Aðrir í stjórn
voru kjörnir þeir Gísli Þorkells-
son, Ármann Sigurðsson, Guð-
mundur Þorsteinsson og Axel
Ágústsson.
ræður eru um „sameiginlegan
Evrópumarkað“ og „fríverzlunar
svæði“. Allt varðar þetta okkur
íslendinga mjög miklu. Við tök-
um þátt í efnahagssamvinnu Ev-
rópu og erum aðilar að umræðum
um framtíðarfyrirætlanir. Hvað
skeður næst í þessum málum?
Hvað gera íslendingar í þessu
sambandi? Hver verða áhrif
sameiginlegs Evrópumarkaðs og
fríverzlunar á efnahagslíf og þjóð
arbúskap íslendinga?
Allt eru þetta spurningar, sem
hljóta að leita á hvern hugsandi
mann. Það er því vissulega ekki
að ófyrirsyrtju, að þessi mál eru
tekin til meðferðar á Varðar-
fundi. Það er því ekki ólíklegt, að
margan muni fýsa að hlusta á
Pétur Benediktsson, sem er flest-
um fróðari cg kunnugri þessum
málum. Eft.ir ræðu sína, mun
bankastjórinn svara íyrirspurn-
um um þetta efni.
r
Deild Islands
vekur athygli
PARÍS, 7. nóv. — Norræn list-
iðnaðarsýning var opnuð hér í
morgun, að viðstöddum mennta-
málaráðherra Frakka, sem mætti
Að loknum aðalfundarstörfum í forföllum Coty Frakklandsfor-
flutti Jón Pálmason alþingis-
maður fróðlegt erindi um fjár-
málastjórn vinstri stjórnarinnai.
Að framsöguerindinu loknu
voru bornar fram nokkrar fyrir-
spurnir til Jóns, sem hann gaf
góð og greið svör við. Hlaut Jón
Pálmason einróma þakkir fundar
manna fyrir greinargott erindi og
hvatningarorð til Sjálfstæðis-
manna í Kópavogi.
Karfaaflinn af Nýfundnalandsmiðnm
rúmlega 46 þús. lestir
I SÍÐUSTU viku eða nánar til-
tekið 3. nóv. voru liðnir 3 mán-
uðir frá því að togarinn Fylkir
héðan frá Reykjavík, fann hin
miklu karfamið vestur við Ný-
fundnaland. Á þessi mið hefur
nær allur togarafloti landsmanna
síðan sótt, og sem kunnugt er,
hefur tæplega orðið þar nokkurt
lát á enn þann dag í dag. Mikill
rneirihJuti hins mikla karfaafla,
sem togararnir hafa landað, hef-
ur komið á land hér í Reykja-
vík.
Tagaraafgreiðslan, undir yfir-
stjórn Hallgríms Guðmundssonar
skipstjóra, hefur annast alla lönd
un karfans. Hefur ekkert hlé orð-
ið á við löndunina, sem verður
að fara fram sunnudaga jafnt
sem aðra daga vikunnar.
Búið var að landa hér í Reykja
vík, um 20. okt. sl., 24,378 tonn-
um af karfa frá því 3. ágúst sl.
Þann dag var fyrsta Nýfundna-
landskarfanum af Fylkismiðum
landað hér í Reykjavík. Upp á síð
kastið hefur togurunum nokkuð
fækkað sem karfaveiðar stunda
vegna ísfiskveiða fyrir Þýzka-
landsmarkað. En síðan 21. okt.
hafa 22 karfafarmar borizt hing-
að til Reykjavikur og er meðal-
tal aflamagnsins um 310 tonn.
Þannig bætast um 6800 tonn
við aflamagnið miðað við 21.
okt. sl. Er því karfaaflinn, sem
borizt hefur sl. 3 mánuði orðinn
alls um 31000 tonn.
Þess má geta að um 20. okt. sl.
var talið að utan Reykjavíkur
væru komin á land alls kringum
15000 tonn af karfa, eða rúmlega
46 þús. tonn á öllu landinu.
seta, sendiherrum allra Norður-
landanna og sendiráðsriturum.
Fulltrúar fslands voru Lúðvíg
Guðmundsson, skólastjóri, og
Sveinn Kjarval, húsgagnaarki-
tekt. Auk þeirra var þar frú Nína
Tryggvadóttir, sem á að leiðbeina
sýningargestum fyrsta hálfa
mánuðinn, sem sýningin er opin.
Þó deild íslands væri ekki
stór, vakti hún athygli og aðdáun
sýningargesta, enda var mjög
vandað til alls af okkar hálfu.
—Ferro.
AÐ UNDANFÖKNU hefir staðið
yfir á Akureyri stjórnmálanám-
skeið á vegum ungra Sjálfstæðis-
manna þar, og í kvöld kl. 8 flyt-
ur Jón E. Ragnarsson stud. jur.
erindi um stjórnmálaflokkana.
Verður fundurinn haldinn í skrif
stofu Sjálfstæðismanna, Hafnar-
stræti 101, annarri hæð. Öllum
Sjálfstæðismönnum er heimill
aðgangur að fiundinum.