Morgunblaðið - 30.11.1958, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 30.11.1958, Qupperneq 12
12 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 30. nðv. 1958 Utg.: H.f. Arvakur, Reybjavfk. Framkvaemdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045 Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480 Askriftargjald kr 35.00 á mánuð: innaniands 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. VANTRAUST Á RÍKISSTJÓRNINA NGUM DYLST nú sú stað- j reynd, að þing Alþýðu- ■J sambands Islands kefur lýst yfir hreinu vantrausti á nú- verandi ríkisstjórn með yfirgnæf- ~ndi medrihluta atkvæða. Hermann Jónasson, forsætis- ráðherra, fór þess á leit í fyrra- dag við þing samtakanna, að það veitti samþykki sitt til þess að stjórnarfloikkarnir samþykktu á Aliþingi frumvarp til laga um að frestað yrði til áramóta að greiða Þá 17 stiga hækkun vísitöluupp-1 hótar, er launþegar eiga rétt á frá 1. desember. Forsætisráðhernn mætti sjálfur á Alþýðusambands- þingi til þess að flytja þinginu þennan boðskap og leggja áherzlu 'á það, hvílík lífsnauðsyn bæri til þess, að orðið yrði við tilmælum haniS. Forsætisráðherrann lét ekki við það eitt sitja að koma sjálfur og flytja ræðu á þinginu, o,g skora á hinn fjölmenna fulltrúahóp að samþykkja frestun á greiðslu hinnar miklu vísitöluhækkunar. Hann kom með aðalráðunaut rík- isstjórnarinnar í efnahagsmálum með sér og fól honum að flytja ýtarlega ræðu um ástandið í efna- hagsmálum þjóðarinnar. Omurleg lýsing á ástandinu Lýsing Jónasar Haralz i ernahagsástandinu dregur vissu- lega ekki upp glæsilega mynd af viðhorfunum í íslenzkum efna- hagsmálum í dag eftir hálfs þriðja árs valdaferil vinstri stjómarinnar. Hann kvað þjóðina hafa lifað um efni fram og á erlendum lánum. Erlendar lántökur hefðu aldrei verið meiri en á yfirstandandi ári. Önnur af- leiðing þess að þjóðin lifði um efni fram, sagði efnahagsmála- ráðunauturinn að væri stöðugt vaxandi verðbólga. Jónas Haralz komst meðal ann- ars þannig að orði, að við mynd- um hrapa fram af brúninni, ef svo fari fram sem stefndi í efnahags- málum okkar. Forsætisráðherrann, sem tailaði á eftir efnahagsanáiaráðunaut ríkisstjórnarinnar sagði það nokk uð ofmælt hjá hagfræðingnum, að við værum að hrapa fram af brún inni. En hann kvað mundu erfitt að stíga til baka, eftir að stór- felld ný kauphækkun hefði skollið yfir nú um mánaðarmótin. Hann játaði það hiklaust, að kaupgjald hefði a. m. k. farið 10% fram úr því, sem ríkisstjórnin og efna- hagsmálasérfræðingar hennar höfðu reáknað með á sl. vori, þeg- ar „bjargráða'lögin" voru sett. Hann varð þannig að viðurkenna að stjórnin befði engan veginn gert sér Ijóst fyrirfram, hver á- hrif tillögur hennar myndu hafa. Bað um frest---------fékk vantraust Þrátt fyrir þetta kom I'ermann Jónasson nú til þings Alþýðusamb. og bað um eins mán. frset á gild- istöku þeirrar miklu hækkunar kaupgjaldsvísitölunnar, sem er af leiðing af verðbólguþróuninni, er færðist í aukana með „bjargráð- um“ stjórnarinnar sl. vor. En AI- þýðusambandsþingið vildd ekki Veita þennan frest. Hafði forsæt- isráðherrann þó lýst því yfir, að bann teldi það „mjög alvarlegt viantraust á ríkisstjórnina", ef málaleitan hans yrði synjað. Full- trúar Framisóknarfl’okksins á A'l- þýðusambandsþingi og Hannibal Valdimarsson höfðu einnig lýst því yfir beint og óbeint, að stjórn- in yrði að segja af sér, ef tilmæl- um forsætisráðherrans yrði hafn- að. En Alþýðusambandsþingið hafnaði beiðni forsætisráðherr ans með nær 300 atkvæðum gegn 39. 5 fulitrúar greiddu ekki atkvæði. Þetta er vissulega mikill ósigur fyrir forsætisráðherra vinstri stjórnarinnar. En ennþá er með öllu óyist, hvaða ályktamr hann dregur af þessum ósigri sínum. Allur almenningur í liandinu geng ur þess ekki dulinn, að með þess- ari atkvæðagreiðslu hafa sjálf heildarsamtök verkalýðsins, sem fcrsætisráðherrann ta'Idi þó vera höfuðbakhjarl sinn, snúizt gegn honum. Þar með er ekki sagt, að verka- lýðssamtökin hafi snúizt gegn hvers konar viðleitni til þess að hindra áframhaldandi taumlausa verðbólgu og vöxt dýrtíðarinnar í 'landinu. Fulltrúar á Alþýðusam- bandsþingi hafa vafalaust gert sér það Ijóst, að í beiðni Her- manms Jónassonar um eins mán- aðar frest á greiðslu hinnar hækk uðu kaupgjaldsvisitölu var ekki fólgið neitt jákvætt úrræði til lausnar þeim vanda, sem við var að etja. Beiðni hans um frest ein- kenndist fyrst og fremst af úr- ræðaleysi og uppgjöf ríkisstjórn- ar hans. Hann lagði ekki fram neina tillögu um lækningu þeirr- ar meinsemdar, sem þjóðin veit að grefur stöðugt meira og meira um sig í efnahagslífi hennar. Hermann Jónasson bað aðeins um frest til> þesis að framlengja líf Stjórnar sinnar um að minnsta kosti einn manuð. „Forsetinn“ greiddi ekki atkvæði Það vakti mikla athygli á þingi Alþýðusamlbandsins í fyrrinótt, að meðal þeirra 5 fulltrúa, ;sem ekki greiddu atkvæði um frestunar- beiðni forsætisráðherrans, var sjálfur forseti Alþýðusambands- ins, Hannibal Valdimarsson, fé- lagsmálaráðherra. Hann hafði mælt með tillögu Framsóiknar- mamna um að verða við ósk Her- manns Jónassonar. En hann brast kjark og manndóm til þess að greiða atkvæði. Aumari gat hlut- ur forsetans naumast orðið. Hann þorði ekki að greiða atkvæði. Hér skal engu spáð um af- leiðingar þess sem gerðist á AI- þýðusambandsþingi í fyrrinótt. En augljóst er að í raun og veru er grundvöllur vinstri stjórnar- innar nú endanlega hruninn. Verkalýðssamtökin hafa iýst yfir fullkomnu vantrausti á Hermanni Jónassyni og stjórnarforystu 'hans. Engu að síður mun hann og stjórn hans vafalaust reyna að lafia áfram. Það er í senn henn- ar æðsta og eina hugsjón. Eftir er svo að víta, hvaða ■ jákvæð úrræði Alþýðusam- bandið sjálft getur bent á til ' lausnar þeim vanda, sem stefna núverandi ríkisstjórnar hefur Ieitt yfir þjóðina. UTAN IIR HEIMI Romany fer með myndirnar sínar í hjólbörum niður að Thems (t. v.) Á hverju ári daglangt sýna óþekktir listamenn þar verk sin í von um viðurkenningu á list sinni og sölu á verkum sínum. Á sýningunni námu margir staðar við málverk Romanys, virtu þau fyrir sér og spurðu lilta list- málarann margs konar spurninga. En Romany var ekkert um slíkt gefið, en sagði einatt: — Spyrjíð ekki svo mikið — kaupið heldur eitthvað! Þegar dagur var að kvöldi kominn, var Rom- any orðinn þreyttur og fékk sér biund (t. h.), meðan faðir hans var að taka málverkin niður. —■ Sjálfur hafði faðirinn árangurslaust reynt að selja olíumálverk sín í 8 ár. Fjögra ára listmálari sýn ir á bökkum Thems klúbbs nokkurs keypti eltt af verkum Romanys, „Nautaat" og greiddj 5 sterlingspund fyrir. Faðir hans lét sér lynda — ef til vill hefur hann hugboð um vaxandi veg afkomanda síns — að sonurinn gangi listamanns- lega til fara og ógreiddur. 4éL w Heima fyrir er Romany rétt eins og hver annar smástrákur. Hann er hávaðasamur og segir strákunum i götunni fyrir verk- urn. En Romany er blíður og góð- ur við litlu systur sína, sem er í senn fyrirsæta hans og ráðgjafi. Gagnrýnandi nokkur skrifaði: Annaðhvort verður Romany Pi- casso fremri---eða hann ger- ist lögregluþjónn. Romany varð mjög s. og ánægður, er hann sendi fyrstu mynd sína fyrir nokkru. Þetta gerðist á hinni árlegu listsýningu á bökkum Thems. Formaður jass — Hver, sem er, getur málað svonaj Sá, sem ekki kaupir, getur sjálfum sér um kennt .... Picasso getur pakkað niður föggum sínum og hætt að mála, því að annar meistari er kominn til sögunnar. Hann er fjögra ára að aldri, heitir Romany de Villi- ers, og á heima i Lundúnum. — Romany hefur hlotið listgáfu sína að erfðum. Faðir hans er listmál- ari, en þar sem honum gekk illa að selja málverk sín, ákvað hann að breyta til og gerðist vörubíl- stjóri. Svo nú er það sonurinn, sem mundar pensilinn — og nær betri árangri en faðirinn. Myndir Romanys litla eru abstrakt og mjög litauðugar. Hann lýsir meistaraverkum sínum mjög fús- lega fyrir áhorfendum: „Þetta er bíll“. Hvers vegna er svo mikið af guium lit á léreftinu? spyr áhorfandinn? „Vegna þess að bíll inn er gulur“, er svarið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.