Morgunblaðið - 11.12.1958, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 11. des. 1958
MORCTJNfíT. AÐ1Ð
11
Í.R.-ingar Í.R.-ingar
Mætið allir á SKEMMTUNINNI í Silfurtunglinu
í kvöld.
— Bingó og dans —
Körfuknaítleiksdeildin.
OVERLOCK-VÉL
með fasa motor til sölu.
Upplýsingar í síma 36054 í dag milli kl. 5 og 7.
Hannyrðaverzlunin Refill
Kínverskir handfíleraðir dúkar í mörgum munstrum.
180x275 m. Kr. 1030,00
150x275 — — 940,00
180x235 — — 880,00
150x235 — — 795,00
135x180 — — 600,00
150x150 — — 540,00
Einnig smádúkar frá kr. 22,00 til 45,00.
Tilvalin jólagjöf fyrir eiginkonuna.
Hannyrðaverzlunin REFILL
Aðalstræti 12 — Sími 13063.
AU G LÝ 51 N C
um umferð í Reykjavík.
Samkvæmt heimild í 65. gr. umferðarlaga hefir verið
ákveðið að setja eftirfarandi takmarkanir á umferð hér
í bænum a tímabilinu 12.—24. desember 1958:
1. Einstefnuakstu'r:
| Á Skólavörðustíg milli Bergstaðastrætis og Banka-
strætis til norðvesturs.
A Bankastræti milli Skólavörðustígs og Ingólfsstrætis
til vesturs.
Á Klapparstíg milli Grettisgötu og Njálsgötu til suð-
urs.
2. Bifreiðastöður bannaðar á eftirtöldum stöðum:
A Laugavegi milli Skólavörðustígs og Traðarkots-
sunds.
Á Klapparstíg milli Hverfisgötu og Laugavegs.
ÍÁ Týsgötu vestanmegin götunnar.
A Skólavörðustíg sunnan megin götunnar fyrir ofan
Bergstaðastræti.
í Ingólfsstræti austanmegin götunnar milli Amtmanns-
stígs og Hallveigarstígs.
I Pósthússtræti.
1 Naustunum milli Tryggvagötu og Geirsgötu.
1 Grófinni.
A Vesturgötu frá Ægisgötu að Norðurstíg.
3. Akstur í tveimur akreinum, sem hér segir:
A Laugavegi frá Traðarkotssundi.
í Bankastræti.
Á Skólavörðustíg frá Bergstaðastræti.
A Klapparstíg milli Hverfisgötu og Laugavegs.
4. Umferð vörubifreiða, sem eru yfir ein smálest að
burðarmagni og fólksbifreiða, 10 farþega og þar yfir,
annarra en strætisvagna, er bönnuð á eftirtöldum göt-
um:
Laugavegi frá Höfðatúni í vestur, Bankastræti, Aust-
urstræti, Aðalstræti og Skólavörðustig fyrir neðan
Týsgötu. Ennfremur er ökukennsla bönnuð á sömu
götum. Bannið gildir frá 12.—24. desember, kl. 13—18
alla daga, nema 20. desember til kl. 22, 23. desember
til kl. 24 og 24. desember til kl. 14.
Þeim tilmælum er beint til ökumanna að forðast
óþarfa akstur um framangreindar götur. enda má bú-
ast við, að umferð verði beint af þeim, eftir því sem
þurfa þykir.
o. Bifreiöaumferð er bönnuð um Austurstræti og Aðal-
stræti 20. desember, kl. 20—22 og 23. desember, kL
20—24.
Þeim tilmælum er beint til forráðamanna verzlana,
að þeir hlutist til um, að vöruafgreiðsla í verzlanir
og geymslur við Laugaveg, Bankastræti, Skólavörðu-
stig, Austurstræti, Aðalstræti og aðrar miklar um-
ferðargötur fari fram fyrir hádegi eða eftir lokunar-
tíma á áðurgreindu tímabili frá 12.—24. desember n.k.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 10. desember 1958.
Sigurjón Sigurðsson.
, . &
SKIPAUTGCRB RIKISINS
ESJA
austur um land til Akureyrar
hinn 15. þ.m. — Tekið á móti
fl'Utningi til Fáskrúðsf jarðar Reyð
arfjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarð
ar, Mjóafjarðar, Seyðisfjarðar, —
Þórshafnar, Raufarhafnar, Kópa-
skers og Húsavíkur, síðdegis í dag
og á morgun, föstudag. — Far-
seðlar geldir á laugardag, árdegis.
SKJALDBREÍÐ
vestur um land til Akureyrar,
hinn 15. þ.m. — Tekið á móti flutn
ingi til Tálknafjarðar, áætlunar-
hafna við Húnaflóa og Skaga-
fjörð svo og ti'l ólafsfjarðar í dag.
Farseðlar seldir árdegis á laugar
dag. — Ath.: að þetta eru síðustu
ferðir til framangr. hafna fyrir
jól. —
SKAFTFELLINGUR
fer til Vestmannaeyj a á morg-
un. — Vörumóttaka daglega.__
VIMI BLADIÐ YKKAR
Félagslíf
Ármenningar —
Handknattleiksdeild
Æfingar að Hálogalandi í kvöld
kl-. 6, III. flokkiur karla; ld. 6,50
meistara-, 1. og 2. flokkur karla;
kl. 7,40 kvennaflokkar. — Mjög
áríðandi að allir þeir er spiluðu
£ Reykjavíkurmótinu mæti.
— Þjálfarinn.
Körfuknattleiksdeild K.R.
Piltar — Stúlkur
Munið fræðslufundinn í kvöM
kl. 9 í K.R.-heimilinu. — Mætið
stundvíslega. — Stjórnin.
Körfuknatllci'ksdeild K.R.
Stúlkur! — Munið æfinguna i
kvöld kl. 7 í íþróttahúsi Háskól-
ans. — Áríðandi að aillar mæti.
— Stjórnin.
Skotfélag Reykjavíkur
Aðalfundur félagsins verður
haldinn föstud. 12. þ.m. ldL 8,30
e. h. í Breiðfirðingabúð._______
ASálfundur
Ferðafélags íslands
verður haldinn að Café Höll,
uppi, fimmtudaginn 11. des.
1958, kl. 8,30 siðdegis. Dagskrá
saankvæmt félagslögum.
Sljórnin.
VIKAI BLADID YKKAR
I. O. G. T.
Stúkan Frón nr. 227
Fundur í kvöld kl. 8,30 á Frí-
kirkjuvegi 11. —
Venjuleg fundarstörf.
Afmælisfagnaður.
Skemmtiatriði annast hagnefnd.
— Æ.t.
St Andvari nr. 265
Fundur í kvöld kL 8,30.
1. Inntaka.
2. Verðlaunagetraun.
3. Kaffidryklkja.
Umræður um daginn og veginn.
— Æ.t.
Þingstúka Reykjavíkur
Fundur an, að kvöld kl. 8,30, í
Templarahölilinni. Fundarefni:
1. Sfigveiting.
2. Erindi Gunnar Dal. Reglu-
boðun og reglustörf á s.1.
hausti. —
3. önnur mál.
Kaffi eftir fund. FuMtrúar og
aðrir Þingstúkufélagar, f jölmenn
ið — Þingteniplar.
VIMI BLADID YKKAR
Auglýsendur!
Athugið
Auglýsingar, sem birtast eiga í ]óla-
blaðinu, þurfa að hafa borizt aug-
lýsingaskrifstofunni sem allra fyrst,
og í síðasta lagi n.k. laupíwdag
13. þessa mánaðar.
Sími 22480. —
Gott kaup
Hjálparstúlka við saumaskap óskast til jóla, gott kaup.
Fatagerð Ara & Co- h-f-
Laugaveg 37.
Skrifstofustúlka
Vér viljum ráða skrifstofustúlku. Vélritunarkunnátta
og nokkur kunnátta í ensku nauðsynleg.
SÖLUMIÐSTÖÐ HRAÐFRYSTIHÚSANNA
sími 2-22-80.
Ný sending af kexi og kökum
Höfum fengið nýja sendingu af:
T e k e x i
Ostakexi
í s k e x i og
3 tegundir Kremkexi
YCja^núó JCjaran,
umboðs- og heildverzlun.
í Sjúkrasamlaginu
Frá og með 1. jan. n.k. hættir Alma Þórarinsson, læknir,
að gegna heimilislæknisstörfum fyrir Sjúkrasamlagið,
vegna læknisstarfa við sjúkrahús.
Þess vegna þurfa allir þeir, sem hafa hana fyrir heim-
ilislækni, að koma í afgreiðslu samlagsins, Tryggvagötu
28, með samlagsbækur sínar, fyrir lok þessa mánaðar,
til þess að velja sér lækni í hennar stað.
Skrá yfir samlagslækna þá, sem velja má um, liggur
frammi í samlaginu.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
M.s. „GULLFOSS"
fer frá Reykjavík mánudaginn 15. þ.m., til Akureyrar.
Vörumóttaka á föstudag og laugardag til hádegis.
Skipið hefur viðkomu á Isafirði og Siglufirði vegna far-
þega.
H.F. EIMSKIPAFÉT.AG ÍSLANDS.