Morgunblaðið - 27.05.1959, Side 2

Morgunblaðið - 27.05.1959, Side 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Mifívikudagur 27. maí 1959 Fjölsótt vormót á ísafirði ÍSAFIRÐI, 26. maí. — Sl. sunnu- dagskvöld efndu Samband ungra Sjálfstæðismanna og Fylkir, FUS á ísafirði, til vormóts að Uppsöl- um á ísafirði. Hófst mótið kl. 8,30 og var mjög fjölsótt. Guðfinnur Magnússon, formað- ur Fylkis, setti mótið og stjórn- aði því. Bjarni Benediktsson, varaformaður Sjálfstæðisflokks- ins, flutti ítarlega ræðu um stjórn málaviðhorfið. Minntist hann 30 ára afmælis Sjálfstæðisflokksins og ræddi um þýðingu sjálfstæðis- stefnunnar fyrir fsafjörð, sérstak lega og íslenzku þjóðina í heild. Auk þess ræddi hann þau mál, sem kosningarnar í sumar snú- ast fyrst og fremst um. Kjartan J. Jóhannsson, alþm., flutti skörulega ræðu. Talaði hann m.a. um kjördæmamálið og efnhagsmálin, sem hann kvað einkum kosið um í næsta mánuði. Þá ræddi hann ýmis hagsmuna- mál ísfirðinga, fyrst landhelgis- málið og flugvallargerð á ísafirði, en einnig samgöngumál Vestfirð- inga almennt. Var máli beggja ræðumanna mjög vel tekið. Skemmtiatriði á þessum vor- móti önnuðust þeir Skúli Hall- dórsson, tónskáld, og Flosi Ólafs- sn, leikari. Að lokum var dansað. Fyrr um daginn var haldinn að Uppsölum fundur trúnaðar- manna ungra Sjálfstæðismanna á ísafirði og í ísafjarðarsýslum báð um. Þar talaði Matthías Bjarna- son um viðskilnað V-stjórnarinn- ar, en Þorvaldur Garðar Krist- jánsson ræddi um kjördæmamál- ið. Guðfinnur Magnússon skýrði frá kosningaundirbúningi og á eftir urðu miklar almennar um- ræður. Kom fram mikill áhugi meðal fundarmanna að vinna sem ötullegast að sigri Sjálfstæðis- flokksins hvarvetna á Vestfjörð- um í kosningum þeim, sem fram undan eru. Fulltrúar SUS, sem höfðu ætl- að að mæta á þessum fundi, gátu ekki komizt til Vestfjarða vegna erfiðra flugsamgangna. Sýnir það litla dæmi glögglega hve við Vest firðingar erum háðir flugsamgöng um og hve brýna nauðsyn ber til að þessi landshluti komist sem fyrst í samband við akvegakerfi landsins. — Fréttaritari. Krúsjeff hrósar Dulles Þessi bátur lá í gærdag' vestur við Ægisgarð. Það var verið að lesta hann, en jafnframt verið að ganga frá kompásnum. Þennan bát hefur vitamálastjórnin tekið á leigu til flutnings á efni og vistum til vitanna í sumar. Báturinn fer í kvöld og er leiðinni heitið að Galtarvita, en þar vfcrður byggingarefni og ýmiss konar vistir settar á land. Tirana, 26. maí. NTB/Reuter. Á FUNDI verksmiðjufólks 1 Tir- ana, höfuðborg Albaníu, sagði Nikita Krúsjeff, forsætisráðherra Sovétríkjanna, að Dulles hefði verið mikilhæfur stjórnmálamað- ur. Hann vottaði jafnframt Banda ríkjastjórn samúð sína vegna frá- falls utanrikisráðherrans. Hins vegar lagði hann áherzlu á, að Bezta vor sem kom- ið hefur í áratugi FRÉTTARITARI Mbl. á Akur- eyri skýrði frá því í símtali í gær, að það myndu vera áratugir síðan vorið hafi verið svo gott. Menn eru farnir að slá kafgras á túnblettunum við hús sín, og hér er dag eftir dag sólskin og sunn- anþeyr. Hér var hitinn um 20 stig um hádegisbilið i úag. Minningarathöfn BOLUNGARVÍK, 25. maí: —f síð ustu viku var haldin hér minn- ingarathöfn í Hólskirkju um Guð mund Jónsson fiskimatsmann, er andaðist hér nýverið. Var mikið fjölmenni við athöfnina en sókn- arpresturinn flutti minningar- ræðuna. Um kvöldið var kistan flutt um borð í vélskipið Særúnu, því jarðarförin fer fram í Reykja vík. Einnig við skípshlið pnætti margt fólk til að kveðja hinn mæta Bolvíking. Kirkjukórinn söng. Guðmundur heitinn Jónsson var virtur af öllum hér og óhætt er að fullyrða að skarð hans er vandfyllt, því slíkur sómamaður var hann í hvívetna, traustur og hjálpsamur, og er ánægjulegt að hafa kynnzt honum og átt hann að vini. Hann var virkur þátt- takandi í sjálfstæðisfélaginu hér og átti sæti í fulltrúaráði Sjálf- stæðisflokksins hér. Var hann mjög áhugasamur um allan vöxt og viðgang Sjálfstæðis- flokksins í héraðinu og við félagar hans í þairti bar- áttu flytjum honum beztu þakkir fyrir allt samstarfið. Allir Bol- ■ víkingar kveðja Guðmund, því í þeirra augum var hann traustur ®g drenglundaður heiðursmaður. — Fréttaritari. Leiðrétr 7 f GREIN Péturs B- rtssonar um James Hamilton Oeiargy í Morgunblaðinu í gær íéil niður lína undir lok g- e.narinnar. Þriðja síðasta málsgreinin átti að hefjast svo: „Frásagnargáfa hans er afbragð og ógle- manieg hverj um manni o.s.Lv. hann hefði verið ósammála Dull- es um mörg mikilvæg málefni. Krúsjeff sagði ennfremur í dag, að Vesturveldin kærðu sig sýni- lega ekki um að komast að sam- komulagi við Sovétríkin á utan- ríkisráðherrafundinum. Hins veg ar gerðu Rússar allt sem í þeirra valdi stæði til að ná samkomu- lagi. Hann sagði að ef ekki næð- ist samkomulag í Genf, mundu Rússar gera sérstaka friðarsamn- inga við Austur-Þýzkaland, og sömuleiðis reyna að gera svipaða samninga við Vestur-Þýzkaland. Bandariska kaupfarið Morma- celm er hér í Reykjavík. Á því, sem og öðrum bandarískum skipum, blaktir þjóðfáninn í hálfa stöng vegna fráfalls Dull- esar, fyrrum utanríkisráðherra. Skákmótið í Zurich Lítt kunnur Svisslend ingur sigraði Tal ÚRSLIT þriggja skáka á skák- mótinu í Zúrich í blaðinu í gær voru rangar og hér koma leið- réttingar og skák úr fyrstu um- ferð til „uppbótar“. 1. umferð: Bhend vann Tahl. 2. umferð: Tahl vann Kupper. 3. umferð: Bhend og Kupper jafntefli. SKÁKMÓTIÐ f ZtÍRICH. 1. umferð. Hvítt: M. TAHL. Svart: E. BHEND. 1. d2—d4 2. d4—d5 3. e2—e4 4. Rgl—f3 5. Bfl—e2 6. 0—0 7. Rbl—c3 8. Be2—d3! 9. Rc3xe4 10. Bcl—f4 11. Ddl—d2 12. c2—c4 13. Hal—el 14. b2—b3 15. Rf3—g5 16. Bf4xg5 17. Re4—c3! 18. d5xe6 19. Rc3—d5 20. Bd3—e4 21. Dd2xRg5 22. Be4xg6? 23. Hel—e7 24. Hfl—el 25. Bg6—c2 26. h2—h4 27. Helxe7 c7—c5 d7—d6 g7—g6 Bf8—g7 Rb8—a6 Ra6—c7 n—ís f5xe4 Rg8—h6 Rh6—Í7 b7—b5 IIa8—b8 e7—e6 Rf7xg5 Dd8—d7 b5—b4 Rc7xe6 Bc8—b7 Re6xBg5 Kg8—h8 Bc6xRd5 Ðd7—d8 Bd5—f7 Hb8—b7 Hb7xe7 h7—h6! 28. Dg5—tS 29. Df5—e4 30. c4xd5 31. De4—g6 32. Dg6—g3 33. He7—e4 34. Bc2—d3 35. He4—e2 36. Kgl—h2 37. He2—e8 38. f2xg3 39. Bd3—c4 40. He8—e7t 41. He7xa7 42. b3xc4 43. Ha7—e7 44. He7—e2 45. Kh2—h3 Bf7—g8 d6—d5! Dd8xd5 Dd5—d4 Hf8—f7 Dd4—b2 Bg7—d4 Db2—clf Dcl—f4 Df4xg3t Kh8—g7! Hf7—f8 Kg7—Í6 Bg8xc4 Kf6—f5 Hf8—a8! Ha8—a3! h6—h5! Tahl gaf skákina á þessu stigi. ísf. orðsendingln hefur ekki verið birt í London LONDON, 26. maí NTB-Reuter. Það hefur verið tilkynnt í Lond- on að isienzka ríkisstjórnin hafi sent brezku stjórninni mótmæli vegna tilrauna brezks herskips til að sigla islenzka varðskipið Óðin í kaf í fyrri viku í orð- sendingunni heldur íslenzka rikis stjórnin því fram, að herskipið .,ChapIet“ hafi vísvitandi gert til raun til að sigla Óðin i kaf. Brezka flotamálaráðuneytið hef- ur hins vegar lýst því yfir, að óhappið hafi stafað af lélegri skipstjóm. í tilkynningu segir að efni orðsendingarinnar hafi ekki verið birt orðrétt. HAFNARFJÖRDTJR KOSNINGASKRIFSTOFA Sjáltetæðisflokksins í Sjálf- stæðishúsinu er opin frá kl. 1—10. Þar getur fólk fengið upplýsingar um hvort það er á kjörskrá. — Hafið samband við skrifstofluna, sími 50228. KEFLAVÍK Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis- flokksins í Keflavík er i Sjálf- stæðishúsinu, uppi. Simi 21. Skrifstofan verður opin fyrst um sinn frá kl. 10—6. Sjálfstæðisfólk, hafið samband við skrifstofuna og athugið hvort þið erað á kjörskrá. Kærufrest- ur er útrunninn 6. júní. Veitið skrifstofunnl upplýsing ar um fólk, sem verður fjarver- andi á kjördag. KÓFAVOGURI Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi er að Mei- gerði 1, sími 19708. ÁRNESSÝSLA KOSNING ASKRIFST OF A Sjálf stæðisflokksins í Árnessýshu er við Tryggvatorg á Selfossi sími 119. Skrifstofan er opin daglega kl. 1—10 e.h. V er tíðarundirbún ingur hafinn SIGLUFIRÐI, 26. maí — Þegar er hafinn margháttaður undir búningur væntanlegrar síldver- tíðar. Á söltunarstöðvunum standa yfir margháttaðar viðgerð ir á löndunarbryggjunum. í Síld- arverksmiðjunum er verið að yf- irfara vélar og standsetja bygg- ingar og allt kapp lagt á að síld- veiðiflotinn geti fengið sem bezta þjónustu. — Stefán SIGLUFIRÐI, 26. maí. — Fyrir- tæki Birgis Runólfssonar, sem undanfarin sumur hefur annazt vöruflutninga með bílum milli Siglufjarðar og Reykjavíkur, hef ur nú opnað skrifstofu og vöru- afgreiðslu að Eyrargötu 5 hér í bænum, en það húsnæði er ný- standsett. Eru skilyrði til bættrar þjónustu stórlega bætt, enda eru nú ráðgerðar þrjár ferðir í viku hverri nú í sumar til Reykjavík- ur. Þar hefur S/endibílastöðin að Borgartúni 21 vörumóttöku fyrir Birgi. — Stefán. Lionsklúbbamenn heimsækja Siglu- SIGLUFIRÐI, 26. maí — Um- dæmisstjóri Lionsklúbbana hér á landi, Þór Guðjónsson og um- dæmisstjóri þessara klúbba á Norðurlöndum, Svíinn H. Waren- by, sækja hér Siglufjörð og Líons klúbbinn hé heim þessa dagana. Verður þeim til heiðurs haldið veglegt samsæti í Sjálfstæðishús- inu í kvöld. — Stefán — Framboð Sjálfstæðismanna Framhald af bls. 1. bænda í Skagafirði Hann býr stórbúi á jörð sinni, en hefur auk þess á hendi barnakennslu í sveit sinni og hefur um langt skeið ver ið vegavinnuverkstjóri hjá Vega- gerð ríkisins. Nú fyrir skemmstu var honum falin yfirumsjón vega mála í héraðinu. Gísli hefur átt sæti í sýslunefnd um langt skeið og verið falin margháttuð trúnað arstörf í þágu Skagfirðinga. Hann er því gjörkunnugur málefnum þeirra. Kári Jónsson verzlunarstjóri á Sauðárkróki er ungur maður, 25 ára að aldri, fæddur á Sauð- árkróki og hefur átt þar heima síðan. Hann hefur unnið við verzlunarstörf síðan hann var 16 ára, að undanteknu rúmu ári er hann dvaldi í Kanada. Kári hef- ur tekið mikii/n þátt í félags- málum ungs fólks. Hann hefur verið lengi í stjórn Umf. Tinda- stóls og var form. þess um skeið. Formaður Leikfélags Sauðár- króks var hann kosinn á sl. ári og hefur tekið virkan þátt í starf- semi þess merka félags. f sam- tökum ungra Sjálfstæðismanna í Skagafirði hefur hann starfað af miklum dugnaði og á nú sæti í stjórn Fjórðungssambands ungra Sjálfstæðismanna á Norðurlandi. Hann er nú formaður héraðsmið- stjórnar Sjálfstæðismanna í Skagafiroi. Á sl. vetri var hann ráðinn framkvæmdastjóri hins nýstofnaða Verzlunarfélags Skag firðinga á Sauðárkróki. Kári skipar 3. sæti listans sem fulltrúi ungu kynslóðarinnar i Skaga- firði. Jón Sigurðsson á Reynistað er þjóðkunnur maður, sem ekki þarf að kynna. Hann hefur átt sæti á Alþingi nær óslitið síðan 1919 og jafnan verið talinn í röð hinna merkustu þingmanna. Hagsmunamál bænda hefur hann öðru fremur borið fyrir brjósti, en þó ætíð barist ótrauður fyrir framgangi allra mála er til fram- fara og umbóta hafa horft. Jón skipar nú heiðurssætið á lista Sjálfstæðismanna í Skagafirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.