Morgunblaðið - 27.05.1959, Síða 6

Morgunblaðið - 27.05.1959, Síða 6
f MORQVivnr AÐIÐ Miðvilíudagur 27. maí 1959 Tíu tonn á sviði Þióðleikhússins FRÉTTAMENN Mbl. fengu að skreppa inn á æfingu á .,Betli- stúdentinum“ s.l. sunnudag. „Betlistúdentinn“.er óperetta eft- ir Karl Millöcker, sem mun vera einn kunnasti óperettuhöfundu" Austurríkis. Er verk þetta bráð- skemmtilegt, og hefur nú verið sýnt í hundrað ár leikhúsgestum víða um heim til gleði og ánægju Það verður næsta verkefni Þjóð- leikhússins, frumsýnt á föstudag. Þegar Mbl leit inn á æfinguna, Var sýnt „fyrir fullu húsi“. Við nánari eftirgrennslan voru það aukaleikararnir, söngvarar, dans- meyjar og einhverjir fleiri, sem sátu í salnum og horfðu hug- fangnir á. Leikstjórinn, Adolf Rott prófessor sat í hásæti fremst á sviðinu og stjórnaði af myndug leik og mjúku geði. Svo hróp- aði hann „also“. Hann er Austur- ríkismaður og talar þýzku, en gct ur brugðið fyrir sig ítölsku, ef það er ekki nógu fínt. Ekki vill hann viðurkenna, að hann kunni ensku, enda er hann diplómat fram í fingurgóma. Prófessorinn hefur átt erfiða daga hér. Hann hefur orðið að leggja nótt við dag til þess að óperettan verði með þeim glæsibrag, sem hann óskar, en tíminn hefur verið held ur naumur. Við fengum að rabba við hann í fimm mínútur, því hann gat ekki veitt okkur lengri áheyrn, og óhætt er að fullyrða, að aldrei hefur neinn maður ver ið fegnari að losna við blaða- menn en Adolf Rott. Þegar við komum inn, sagði hann: Mamma inia! en þegar við kvöddum, stökk hann upp af stólnum og hrópaði: Auf wieder- sehen, sem útleggst á góðri ís- lenzku: Bless! Áður hafði hann þó sagt okkur, að hann mundi fara til Vínar, því þar er hann aðalleikstjóri við Burgteater og ríkisóperuna. Og í næstu viku hefst þar listahátíð ein mikil og þar fær hann víst nýjan trón að sitja á og ný viðfangsefni að glíma við. Hann trúði okkur fyrir því, að hann mundi sakna Guðna Bjarnasonar leiksviðsstjóra: — Það er ágætur maður, sagði hann, og kann starf sitt út í æsar. Hann hefur verið mér stoð og stytta á æfingum hér, því ég er ekki nógu vel að mér í öllu því, sem að tækninni lýtur. Ég vona að Guðni Bjarnason: Klipptu ekki svona í tána á mér. hann komi með mér til Málm- eyjar í haust. Þar set ég „Betli- stúdentinn“ á svið. Guðni hefur höggvið á alla þá Gordíónshnúta, sem hafa gert þeim lífið brogað í Þjóðleikhúsinu undanfarnar vik ur. Hann er líka stór og sterkur, og þar sem hann stóð á sviðinu og raðaði hverjum hlut á sinn stað. datt okkur í hug að þar færi maður, sem trúlega gæti borið meðalorgel á bakinu, hvert á land sem væri. Þarna var líka Bachmann ljósameistari: Herr Bachmann! hrópaði leikstj.. þegar hann varð óánægður með ljósa- dýrðina — og þá kom herr Bach- mann hlaupandi og sagði: •— Bittesjen, here I am, plese. Það líkaði prófessor Rott vel, blakaði höndunum, svo það minnti einna helzt á máv á flugi, hló og brosti, kallaði síðan á túlkinn, Erling Gíslason leikara, sagði nokkur orð, og stakk sér svo aftur í sætið sitt. Æfingunni var haldið áfram Rott prófessor: Stjórnar af myndugleik. og nú átti Þjóðleikhúskórinn að syngja lagstúf, dansa og snúa sér svo í hring. Ekki vissum við um meðalþyngd þeirra kórfélag- anna, en þegar þeir snéru sér í hring, lokuðu ballettmeyjarnar í salnum sínum dreymandi, brúnu augum og grúfðu sig niður í kjöltu sína. Aldrei hefði okkur dottið í hug, að það gæti verið svona erfitt að snúa sér í hring. Annars verður það að viðurkenn ast, að við sáum heldur lítið af æfingunni. Nokkrar ballettmeyj arnar þrýstu sér niður í sætin, svc ekkert stóð upp úr nema tif- andi fótleggir þeirra. Það var fög ur sjón. Þær sem sátu við hliðina á okkur, hvísluðust á: — Er þetta ekki hún Una, sagði ein þeirra og benti á þessa yfirgefnu en ögrandi líkamsprýði sem stóð á ská upp úr öðrum bekk eins og flaggstöng á skipi; — Ég veit það ekki, svaraði vinkona hennar, hún hefur breytzt svo mikið upp á síðkastið, að ég þekki hana ekki lengur á fótunum. Þetta var orðin mikil taugspenna. En þá kom Klemenz Jónsson leikari eins og engill af himnum sendur og sett- ist hjá okkur og fór að segja okk- ur frá æfingunum og prófessor Rott: — Hann er mikill galdra- maður, sagði Klemenz. Ég elska þig, segir hann svo fallega, að það kemur rómantísk birta í ljósin hjá honum Bachmann. Og hann hefur gaman af að sýna ieikurun um, hvernig á að fara með hlut- verkin. Honum tekst sérlega vel upp, þegar hann sýnir Sigurveigu Hjaltested látbragð gömlu greyfa frúarinnar. Það sér enginn, að hann hefur ekki unnt séx hvíldar „Hann er mikill galdramaður . . .“ hafi alizt upp í leikhúsi. Hann er sonur Bjarna Guðnasonar tjalda- meistara í Iðnó. Bjarni var 20 ár Tíu tonn — eða hvað? marga sölarhringa, þegar sá gáll- inn er á honum. Að æfingu lokinni hittum við svo Guðna Bjarnason. — Ég er orðinn svo léttur á mér, að ég gæti farið að dansa ballett ,sagði hann. Ég held ég hafi létzt um mörg kíló á dag undanfarnar vikur, — Ætlarðu til Málmeyjar? spurðum við. — Það veit ég ekki enn. Próf- essor Rott minntist eitthvað á það um daginn og þjóðleikhússtjóri hefur gefið mér frí, ef til kæmi. Ég ætla að sjá, hvað setur. Klemenz segir okkur, að Guðni hjá Leikfélagi Reykjavíkur ásamt Sigurði Guðnasyni, fyrrum alþingismanni, bróður sínum. Aldrei léku þeir bræður í Iðnó, en Sigurður hefur unnið marga sigra í lífsins kómendíu. Guðni hefur ekki heldur komið á leik- svið. — —jú annars, einu sinni. Þegar þeir fóru með „Horft af brúnni“ út á land, bað þjóðleikhússtjóri mig um að leika smáhlutverk til að spara útgjöld leikhússins. Ég er mikið fyrir sparnað á út- gjöldum rikisins og eftir hálfan mánuð lét ég til leiðast. Svo lék ég slátrarann, en þurfti aldrei að segja aukatekið orð. Þegar ég var leiksvíðsmaður í Iðnó gömlu, fékk ég 5 krónur fyrir kvöldið. Mér voru boðnar aðrar 5 krónur, ef ég vildi taka að mér aukahlut- verk. Þá sagði ég nei. Ég hef ekki tekið neina bakteríu. Og ég er enginn hugsjónamaður. Leik- ari vil ég ekki vera. Ég er alltof hlédrægur til þess. Kann bezt við mig að tjaldabaki. En í hverju er leiksviðsstjórn- in fólgin? spyrja kannski ein- hverjir. Guðni gerir vinnuteikn- ingar af sviðinu og sér um, að hver hlutur sé á sínum stað. Hann þekkir alla möguleika sviðsins og segir, að það hafi aldrei fyrr ver- ið notað til hins ítrasta. Meira að segja taka leiksviðsmennirnir þátt í leiknum, því sumar skipt- ingarnar fara fram fyrir opnum tjöldum. Þjóðleikhúsið er að verða of lítið! Leikendurnir eru 110 að tölu, og þegar þeir dansa allir í einu marsúrka á sviðinu, eru þar saman komin 10 tonn af mannfólki: — Við héldum að svið ið mundi brotna, sagði Guðni. Við skruppum því niður að athuga legurnar og sáum, að við áttum kollgátuna: Þær voru farnar að gefa sig. Ánægjulegur íund ur á Patreksfirði PATREKSFIRÐI, 23. maí. — Gísli Jónsson, frambjóðandi Sjálfstæðismanna í Barðastrand- arsýslu, hélt hér fund með félög- um úr sjálfstæðisfélögunum Skjöldur og Neisti, í gærkvöldi. Ræddi Gísli þar almennt um landsmálin. Auk hans tóku til máls Ari Kristinsson og Gísli Bjarnason. Var fundurinn vel sóttur og máli ræðumanna vel tekið. — T. Á. skrifar úr dqqleqa hfínu Ekkert heimspekirit á íslenzku SKÁLD hér í borginni leit inn til Velvakanda í fyrradag og ræddi m. a. um það hneyksli, að ekki skyldi hafa komið út á íslenzku eitt einasta rit hinna frægustu heimspekinga. Benti skáldið á það, máli sínu til stuðn ings, að. unglingar á skólaaldri væru mjög móttækilegir fyrir slíka speki, en á þeim árum, sem þeir væru áhugasamastir um hin- ar ýmsu gátur tilverunnar og næmastir, væru þeir ekki komn- ir það vel niður í útlendum mál- um, að þeir gætu lesið sígild heim spekirit sér til gagns á útlend- um tungum. Velvakandi vill taka undir þau orð skáldsins, að það sé ekki vansalaust fyrir þjóð, sem telur sig jafnmikla bóka- og mennta? þjóð og íslendingar eru, að eiga ekkert af ritum frægra heim- spekinga á sinni eigin tungu. Er það tilvinnandi? í bréfi frá neytanda, segir á þessa leið: VERULEGUR hluti viðskipta landsmanna við vöruskipta- löndin má teljast frægur að end- emum. Almenningur hefur verið furðu þolinmóður, þótt neyddur hafi verið til kaupa á margs konar lélegum varningi háu verði, að því að annað var ekki að hafa. Skömmu eftir að vinstri stjórn- in kom til valda voru vöruskipt- in aukin gífurlega, og er það mjög eðlilegt, því þegar gengd- arlausum innflutningstollum var dembt ofan á mjög óhagstætt innkaupsverk lélegs varnings, var mælirinn fullur. Hvaða vit er því, að gera vöruskiptasamn- inga um kaup á alls konar óþarfa lélegum að auki og jafnvel hættu legum lífi og eigum manna, þó hægt sé að borga með karfa, sem sækja þarf vestur undir Amer- íkustrendur í svartasta skamm- deginu svo fiskiskipin týna töl- unni með allri áhöfn. Er ekki of mikið lagt í sölurnar fyrir þessi viðskipti. Hvað á þjóðin að gera við allan kristallinn, sem ausið er inn í landið, leirhundana og glerkýrnar, þriggja daga hjól- barðana, ljósaperurnar frægu, ónothæfu rafleiðslurnar bíla og ryksugur með pappaskrokkum (kallað plast), litsvikin, lek, fið- ur og dúnléreft, lakaléreft sem rétt hæfa í líkklæði, litsvikin sirs, milliskyrtur, sem grotna og hverfa í fyrsta þvotti, nrip lekar járnpípur og fittings o. fl. o .fl, sem of langt yrði upp að telja. Vöruskiptaverzlunin hefur reynzt á margan hátt herfileg blóðtaka fyrir þjóðina, og það verður að krefjast þess af stjcrn arvöldunum, að þau gæti í þcssu efni betur en verið hefur hags- muna almennings og láti ekki fulltrúa sína, sem vöruskipta- samningana gera við erlend ríki, klafbinda landsmenn til neyð- arkaupa. Er hér ekki vetkefni fyrir Neytendasamtökin? Vöruskiptin hafa valdið háska legri viðskiptaspillingu í land- inu. Góðar vörur eru að verða sjaldséðar, verðlag fer út um þúfur, þjónusta hættir vegna af- skipta hins opinbera o. s. frv. Er þetta tilvinnandi? Hvað fá- um við raunverulega fyrir vöru- skiptaafurðirnar? Neytandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.