Morgunblaðið - 27.05.1959, Síða 10

Morgunblaðið - 27.05.1959, Síða 10
10 MORGVNBL'AÐIÐ Miðvik'udagur 27. maí 1959 Utg.: H.l. Arvakur ReykjavQc. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá V'~<r Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr. 35,00 á mánuði innanrands. í lausasölu kr. 2.00 eintakið. HVAÐ VELDUR? ÞEGAR komið er í sömu byggðarlögin með nokk- urra ára millibili, hlýtur maður að taka eftir breytingun- um, sem á hafa orðið, og spyrja sjálfan sig, hvað þeim valdi. ísafjörður er t. d. með elztu kaupstöðum hér á landi. Hann var lengi einn helzti uppgangs- staður. Síðar kom stöðnun um hríð, en engum dylst, að hin síðari ár hefur lifnað yfir á ný. Fólksfjöldi er e. t. v. svipaður, en nýtt líf hefur færzt í athafnir, fólkið er bjartsýnna, það hefur sniklu meiri verkefni og getur lika veitt sér meira af þessa faeims gæðum en áður. fé Auðvitað kemur hér margt til greina. Vafalaust er þó, að eitt félag, togaraútgerðarfélagið h.f. ísfirðingur, á meiri hlut í breyt- ingunni en nokkur annar aðili. -jÚtgerð togaranna tveggja frá lísafirði og bygging og rekstur hins mikla hraðfrystihúss félags- Sns hefur gert gæfumuninn fyrir ísfirðinga. ; Þetta fyrirtæki var á sínum tíma stofnað með framlögum al- mennings og þátttöku bæjarfé- lags. Það hefur ætíð lotið stjórn ötulla, ávakra manna, sem ekki létu sér vaxa örðugleika í aug- um. Þeir hafa oft þurft á að halda bjartsýni, bæði vegna getu- leysis og skilningsskorts þeirra, sem þeir þurfa mál undir að sækja, heima fyrir og annars itaðar. Efalaust er margur vandi, sem enn vofir yfir. En vonandi tekst að leysa þá örðugleika, sern fram undan eru, ekki síður en hina, sem þegar er búið að yfir- stíga. Þvi að enginn efi er á, að hér hefur stórvirki verið unn- ið af mönnum, sem settu sér ákveðið mark, sóttu ótrauðir að því, og hafa ekki aðeins á þann veg aukið sína eigin sæmd, held- ur velfarnað og hagsæld almenn- ings í bæjarfélaginu. ★ Þá hefur ekki síður orðið mik- ii breyting í Bolungarvík. Þar hefir eins og á ísafirði ætíð búið harðduglegt fólk og sjómennirn- ir verið ótrauðir að sækja út á hafið, hvenær sem færi gafst. En því verður ekki neitað, að Bol- ungarvík er nú ólíkt glæsilegri og byggilegri staður en áður. Fjöldi nýtízku húsa hefur risið upp á fáum árum og hvarvetna mæta auga gestsins merki at- hafna og velmegunar. Sjósóknin er þarna undirstað- an. Góð veiðitæki og skynsam- ieg hagnýting aflans eru forsend- ur þess, sem gert hefur verið. En þarna kemur fleira til. Maður nákunnugur öllu at- vinnulifi og verzlunarháttum á Vestfjörðum lét nýlega svo um mælt, að einmitt verzlunin væri betri í Bolungarvík en á nokkr- um oðrum stað í þeim landshluta. Áður fyrri hefði það þótt með ólíkindum, að í Bolungarvík væri t. d. langbezta byggingar- vöruverzlunin á Vestfjörðum, að þar fengist ýmislegt, sem ekki fæst á hinum stærri stöðum og með betra verði en þar. Svona er þetta engu að síður í reynd. Þetta er því athyglisverðara, sem kaupfélagsskapur er veikari f Bolungarvík en víðast annars staðar. Það er framtak einstakl- ingsins, sem rutt hefur veginn og gert hefur að verkum, að Bol- ungarvík ber nú af öðrum sam- bærilegum sjávarþorpum. ¥ Með því að skýra frá þessum staðreyndum er engan veginn gert lítið úr nytsemd kaupfélaga. Þau hafa vissulega haft sínu mikil- væga hlutverki að gegna í ís- lenzkri verzlun og framförum síðustu áratuga. En um kaupfé- lög gildir sama reglan og annan félagsskap manna, að mest er undir því komið, hver velst til forystu á hverjum stað. Og ekki nóg með það. Kaupfélögin haga nú víðast störfum sínum svo sem þau séu deildir í einu risabákni, mesta auðhring, sem nokkru sinni hefur starfað á íslandi. Þetta „samband“ veitir þeim um margt styrk og gerir t. d. mögulegt að halda uppi óheil- brigðri samkeppni umnsinn, hvar sem yfirráðendur risabáknsins vilja beita fjármagni til þess. En þegar til lengdar lætur, þa draga þvílíkar aðfarir úr frumkvæði og sjálfsbjargarhvöt hinna lægra settu. Þeir, sem áttu að vera for- ystumenn, verða oft ekki annað en undirtyllur fjarlægra vald- hafa, sem lítið þekkja til á hverj- um stað. Skrifstofubákn kemur í stað heilbrigðrar athafnasemi. Gott dæmi þess er, hvernig hvar- vetna er undan því kvartað af viðskiptamönnum S. I. S., sem selja vörur fyrir þess milligöngu, að greiðsla dragist óhæfilega. Ein skýringanna á því er sú, að S. í. S. tekur til sín og notar sem rekstrarfé þær greiðslur, sem seljendum vörunnar er nauðsyn að fá tafarlaust. Allir hafa gott af samkeppni, hvort heldur einstaklingar, sem reka sín eigin fyrirtæki, eða þeir, sem settir hafa verið tii stjórnar í fyrirtækjum ann- arra, bæði svokölluðum almenn- ingsfyrirtækjum og fárra manna. Þetta er lífsins lögmál, sem með engu móti verður umflúið. ★ Forystumenn SÍS hafa nú gef- ið út ritling til að reyna að sýna fram á, að félagsskapur þeirra sé ekki auðhringur. og láta nú málgögn þau, sem þeir halda uppi, óspart vitna í þessa máls- vörn sína. Hún kemur þeim að engu gagni. Verkin tala og hafa sýnt mönn- um um allt land fram á, hvernig fer, ef nokkur einn aðili verður of öflugur. Fjármálaeinveldi er sízt hættuminna í höndum þeirra, sem engu hætta til af eigin fé en ráðskast með eignir almennings eins og þeir ættu þær sjálfir, en þótt það sé í höndum auðjöfra. Skattalöggjöfin og allar að- stæður sjá fyrir því, að sú mann- tegund skapast ekki hér á landi. Aldrei má ganga svo langt í ótt- anum við hana, að dregið verði úr athafnaþreki og dugi þeirra sem upp spretta í flestum byggð- arlögum, aðeins ef þeir fá að njóta sín. Bezta trygging fyrir velfarnaði hvers einstaks byggðarlags og þjóðarheildarinnar er því sú, að heilbrigð samkeppni fái að hald- ast. Samhjálp á hiklaust að veita þar sem hennar er þörf, en at- hafnaþrekið má aldrei brjóta á bak aftur. UTAN UR HEIMI '....... —’*—•-----------------------------w-------"■ H 11111» Jim |||| II — ................................... Mt® i ví\$ Ein nýjasta farþegaþota Rússa, TU-104, á Kefla/íkurflugvelII. — Flugvélin kom hér við 5. sept. 1957, en með henni var rússnesk sendinefnd. sem var að fara til New York á allsherjarþing S. Þ. Rússar hugsa til „landvinninga" á sviði farþegaflugs „vestantjalds" — En þeir eiga margt ólært, þrdtt fyrir alla tækni — einkum í aðbúnaði farþega DULLKOMNASTA farþega- þota Rússa setti nýlega, að sögn rússnesku fréttastof- unnar Tass, nýtt heimsmet í langflugi, flaug 6,760 km. án viðkomu. Hvort sem þessi frétt á við rök að styðjast eða ekki, er vitað, að Rússar eru um þessar mundir að hefja samkeppni við vestrænar þjóðir, á sviði farþegaflugsins. Gervihnettirnir rússnesku og hinar risastóru eldflaugar vöktu um tíma athygli alls heimsins, en nú virðist full ástæða til að gefa gaum að viðhorfum og fyrirætlunum Rússa á sviði flugsins. — Ríki Krúsjeffs vill keppa við Vest- urlönd, einnig á þessu sviði, og það hefur góð spil á hendi, þar sem eru hinar nýju og fullkomnu þotur TU-104 og TU-114. Fréttin um hið nýja rússneska met kemur í kjölfar þess, að brezkir flugsérfræðingar, sem tóku þátt í vígslu flugleiðarinnar London — Kaupmannahöfn — Moskva, sem brezka flugfélagið BEA hefur hafið ferðir á, hafa lýst því í Lundúnablöðunum sem fyrir augun bar í heimsókn- inni til Moskvu, en þar kynntust þeir nokkuð flugstarfsemi Rússa. — Sérfræðingarnir virðast sann færðir um, að Rússar séu þess al- búnir að keppa við vestræn flug- félög um yfirráðin á aðalflugleið um heimsins. — Þetta er ekki svo undarlegt þegar þess er gætt, að við heimsókn brezku sérfræðing- anna höfðu Rússar safnað saman á Vnukovo-flugvellinum við Moskvu 60 farþegaþotum og jafn- mörgum skrúfuþotum, og það má sjálfsagt til sanns vegar færa, sem einn hinna brezku sérfræð- inga segir: — Rússar hefðu varla hætt öllu flugi til annarra hluta landsins og safnað vélunum sam- an á þennan eina stað. aðeing til þess að sýnast. ★ Flugsérfræðingur brezka blaðs ins Daily Express segir: — Ég trúi þeim upplýsingum, sem Rúss arnir gáfu okkur, m.a. þeim, að Aeroflot hafi á s.l. ári flutt 15 milljónir farþega, eða tvisvar sinnum fleiri en hið bandaríska flugfélag, American Airlines, sem einungis flýgur innan Bandaríkj anna. Rússar gera ráð fyrir, að farþegafjöldi þeirra árið 1965 muni nema um 55 milljónum. Síð asta sjö ára áætlunin gerir m.a. ráð fyrir byggingu og endurnýj- un 70 flugvalla. Það hefir oft verið sagt, að járn brautirnar hafi verið „lykillinn" að Bandaríkjunum — og með jafnmiklum sanni má segja, að flugið „opni“ Sovétríkin. — Auk þotanna eiga Rússar tvær aðrar tegundir, sem búnar eru hverfil- hreyflum, „Moskvu" og „Ukra- inu“. Þær geta flutt 100 far- þega og fljúga 600 kílómetra i klukkustund. ★ Búizt er við, að nýjasta þotan, Tu — 114, sem á hið nýja heims- met (að sögn Rússa) geti flogið frá Moskvu til New York, án nokkurra viðkomu á 10 tímum. En Rússar ætla sér að nota hana í samkeppninni við vestrænu flugfélögin á leið, sem sennilega verður: Moskva — París — New York, eða Moskva — London — New York. Rússneskar þotur eru þegar teknar að fljúga vestur fyrir járn tjald. Þær fljúga til Kaupmanna- hafnar og Lundúna, og það er að- eins tímaspursmál, hvenær Tupe lov-þoturnar taka að sjást í flest- um stórborgum Vesturlanda. — Skandinaviska flugfélagið SAS og Aeroflot hið rússneska, hafa þegar hafið samkeppni á þotu- flugleiðum. TU — 104 hefur um nokkurn tíma flogið leiðina Prag — Kairó — Beirut — Damaskus. Hinar nýju Caravelle-þotur SAS fljúga til þriggja þessara borga. ★ Það er gaman að virða fyrir sér þann árangur, sem Aeorflot, rússneska ríkisflugfélagið, hefur náð á flugleiðum sínum í austri. Félagið heldur uppi áætlunar- ferðum milli Moskvu og Petro- pawlovsk á Kamchatka-skaga við Kyrrahafsströnd Síberíu. Til þessa flugs notar fél. þotuna Tu — 104, sem fljúga leiðina á 10 tímum. En „stóri bróðir", það er að segja TU — 104, flýgur þessa leið á enn skemmri tíma. Þetta er óneitanlega mikill árangur. Jafnframt eru hinar fallegu og hraðfleygu Tupelovþotur góðir „sendiherrar" meðal hinna mörgu og sundurleitu þjóðflokka Mið-Asíu. ★ Aeroflot er eitt hinna fáu fyrir tækja innan Sovétríkjanna, sem geta stært sig af því að gefa dá- lítinn hagnað. Því er vel' stjórnað, og félaginu hefur heppnazt að laga sig eftir hinum sérstöku kröfum Rússa. En þá er spurn- ingin, hvort það getur einnig lag- a sig eftir alþjóðlegum kröfum. — Á síðustu árum hefur átt sér stað mikil þróun innan félagsins, einkum hvað sjálfan flugflotann snertir. — Hinar gömlu flugvélar, IL-2 — en þær voru áþekkar DC-3-vélunum, sem notaðar eru hér í innanlandsflugi — hafa fyr- ir löngu verið lagðar fyrir róðra. ★ Eitt af vandamálum Rússa á sviði flugsins hin síðari ár er það, að þá hefir víða skort nógu lang- ar flugbrautir. Þeim hefir ekki gefizt tóm til að fylgjast með hinni öru þróun að þessu leyti, og því hafa þeir farið þá leiðina að gera nokkuð af flugvélum sín- um þannig úr garði, að þær geti lent á stuttum flugbrautum — svo sem áðurnefndar tegundir, „Moskva“ og ,.Ukranina“, og IL — 14. Ein af nýjustu loftferðaáætlun- um Rússa fjallar um það, að fljúga til Suður-Ameríku, annað hvort um Aþenu, Kairó og Dakar, eða þá um París. Rússar eiga nú æ meiri verzlunarhagsmuna að gæta í Suður-Ameríku. ★ Þó að Rússar virðist nú hafa fullan hug á að sösla undir sig mikilvæga „markaði" á sviði flugsins vestan járntjalds, verður að hafa þá staðreynd í huga í því sambandi, að þeir eiga enn margt ólært, þrátt fyrir alla sína tækni. — Þeir hafa t.d. ekki náð því Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.