Morgunblaðið - 27.05.1959, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 27.05.1959, Qupperneq 20
VEÐMÐ Hægviðri, úrkomulaust að mestu íþróttir Sjá bls. 18. 115. tbl. — Miðvikudagur 27. maí 1959 Sá guli er gráðugur 1-2 lestir á færið Opnir bátar frá Akranesi fá mokafla AKRANESI, 26. maí. — Aldrei í minni núlifandi Akurnesinga hef- ir boðizt hér ríkulegri og auð- teknari afli á opna báta en nú síð ustu dagana. — Þorskurinn veð- ur iðulega í torfum hér skammt undan, vestur á firði. í»á byltir hann sér í yfirborði sjávarins með miklum sporðaköstum og buslugangi. — Þetta er miðlungs- þorskur, sem er að elta sílistorfur — og spyr þá ekki að, hvar þær halda sig í sjónum. Um leið og hann er innbyrtur veltur upp úr honum sandsíli og trönusíli. Um 30 fleytur, trillur og ára- bátar voru á sjó í gær og fengu samtals 62 lestir — og er þar miðað við slægðan fisk. — Afla- hæstur trillubátanna var Ægir, með 4,1 lest. Algengt er, að menn fái eina lest á færi — hefir meira að segja komizt upp í tvær — og oft koma sjö til átta fiskar á nælonfærið í einum drætti. V'ormót ungra Sjálf- stæðismanna nyrðra AKUREYRI, 26. maí: Félög ungra Sjálfstæðiamanna hér á Akureyri, í Eyjafjarðarsýslu og í Ólafsfirði, halda um næstu helgi vormót. Fyrst þessara vormóta verður f Ólafsfirði á föstudagskvöldið, þá verður næsta mót að Freyju- Heillaóskir þakkaðar FORMANNI og miðstjórn Sjálf- ptæðisflokksins bárust í fyrradag fjöldi skeyta og blóma frá ein- itaklingum og félögum, þar á meðal frá frú Ingibjörgu Cl. Þnrláksson, ekkju fyrsta for- manns flokksins og Haldóri Steinsen lækni og fyrrverandi dlþm., en hann var einn af stofn- endum flokksins. Blaðið hefur verið beðið að flytja sendendunum beztu þakk- ir fyrir heillaóskirnar. lundi við Reistará á laugardags- kvöldið og hið þriðja að Laugar- borg við Hrafnagil á sunnudags- kvöldið. Mótin hefjast öll klukkan 8,30 síðd. Ávörp munu þar flytja Ragn heiður Helgadóttir alþingismaður og Magnús Jónsson alþingismað- ur og Jónas G. Rafnar, lögfræð- ingur. Þeir Haraldur Á. Sigurðs- son, Ómar Ragnarsson og Einar Logi Einarsson, munu flytja skemmtiþætti og hljómsveit Ieik ur á milli skemmtiatriða. „Þorsteinn Ingólfs sonw tíu ára SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ Þor- steinn Ingólfsson í Kópavogi í Kjósarsýslu verður tíu ára föstu- daginn 29. þ.m. í tilefni afmæl- isins verður haldið fagnaður og héraðsmót í Hlégarði n.k. laug- ardagskvöld kl. 9. Ræðumenn verða Axel Jónsson og þingmað- ur kjördæmisins Ólafur Thors. Vél trillunnar bilaði og engin segl um borð Trilla sem lýst var eftir komin fram HÚSAVÍK, 26. maí. — 1 dag lýsti Slysavarnafélagið í útvarp- inu, eftir trillubáti héðan frá Húsavík, sem á var einn maður. 1 kvöld um klukkan 5,30 var komið með manninn og bátinn hingað inn. Var þar með lokið nær fjögurra sólarhringa útivist mannsins, sem heitir Jóhannes Sraumland, og er eldri maður. Hann hafði farið héðan á föstudaginn var og ætlaði á hand færi við Grímsey. Blíðviðri var þennan dag. Á sunnudaginn barst fólki hans hér orðsending frá honum þess efnis að hann myndi ekki koma fyrr en á mánu dag, eða þá aðfaranótt þriðju- dags. Er Sraumland var ókominn að landi í morgun, var sendur héðan bátur til að leita að hinum týnda manni. Jafnframt var lýst eftir bátnum í útvarpið, sem fyrr greinir. Það upplýstist að Straumland hafði ekki tekið með sér segl, til þess að hafa til taks ef vélin bil- aði. En það var einmitt það sem skeði. Aðfaranótt mánudagsins nokkru eftir að hann hafði sam- band við bát frá Ólafsfirði og Straumland hafði tekið stefnuna til lands bilaði vélin. Seglalaus barst báturinn nú undan hæg- viðri og straumi. Mennirnir á bátnum, sem fóru til leitar, en það var vélbáturinn Helga sem fór, töldu sennilegt að trillu Straumlands væri að finna norð- vestur af Mánareyjum. Það stóð líka heima, 8 mílur til NV af eyjunum, fannst trillan. Var Jó- hannes hress, en kvartaði um þorsta, enda hafði hann verið mjög vatnslítill í rúmlega þrjú dægur, svo og matarlítill. Þessi grænlenzka kona kom hingað til Reykjavíkur í gærdag. Að vísu er það nú orðið svo, að samgöngur milli íslands og Grænlands eru orðnar svo tíðar, að nú eru það ekki lengur nein sérstök tiðindi þó Grænlendingar sjáist á götunum hér í Reykja- vík. En þessi kona var klædd hinum óvenjulega og litskrúðuga þjóðbúningi grænlenzkra kvenna. Hvílíkur saumaskapur hlýtur það að vera, að sauma þennan búning. Konan var meðal far- þega með Sólfaxa í gær og er á leið til Kaupmannahafnar. — Fimm bátar með 500 tiinnur síldar AKRANESI, 26. maí. — Fimm reknetjabátar lönduðu hér tæp- lega 500 tunnum síldar í dag. — Voru það eftirtaldir bátar: Svan ur, sem var með 175 tunnur, Ver með 145, Ásbjörn með 125, Far- sæll með 40 og Sveinn Guð- mundsson með 30 tunnur. Bátarnir fengu síldina á Norð- urslóðinni, en þangað sækja stóru bátarnir einkum á vertíðinni. — Oddur. Hvotar - lundur kvöld HVÖT, Sjálfstæðiskvennafél- agið, heldur fund í Sjálfstæðis húsinu í kvöld og hefst hann kl. 8,30. Ragnhildur Helgadóttir, al- þingismaður, flytur ræðu, en síðan verða almennar umræð- ur um væntanlegar kosningar til Alþingis. Loks verða skemmtiatriði. — Sjáifstæðis- konur eru hvattar til þess að fjölmenna á fundinn og þær, sem enn eru ekki í félaginu að ganga í það. Þá er félags- konum leyfilegt að taka með sér gesti á meðan húsrúm leyf- ir. Vatnajökulsleiðangur kominn T ungnárbotna i Alc/rei fyrr hefur þessi leið verið farin á bílum svona snemma árs FRÁ fréttaritara Mbl. á Vatna- jökli, 24. maí: — Jöklarann- sóknarfélagið lagði upp í sína fyrstu ferð á þessu ári á Vatna- jökul um kl. 10,30 á föstudags- kvöld og eftir 18 tíma ferð var komið að skála félagsins í Tungn árbotnum. Hefur aldrei fyrr ver- ið farið inn í Tungnárbotna á bíl- um svona snemma árs. I leiðangrinum eru 20 manns, þar á meðal maður frá póststjórn inni með um 5 til 6000 bréf, sem verða stimpluð í pósthúsinu á Grímsfjalli á Vatnajökli. Hefur póststjórnin gefið út 5000 tölu- sett umslög af því tilefni. Fjórir bílar lögðu upp í ferð- ina, tveir stórir trukkar frá Guð- mundi Jónassyni með beltisbíl- um aftan á, ferðabíll Sigurjóns Rist, vatnsmælingamanns, og BP tankbíll. Hefur BP veitt þá beztu þjónustu, sem völ var á með því að senda benzínið á snjóbílana Kœrufrestur til 6. júní KÆRUFRESTUR vegna kjörskrár er til 6. júní næstkom- andi. Kjörskráin er miðuð við búsetu 1. desember síðastlið- inn. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Morgunblaðs- húsinu, II. hæð, veitir yður upplýsingar varðandi kjörskrána og aðstoðar við kjörskrárkærur. — Kjörskrársími: 12757. Kosningaskrifstofa Sjálfstœðisflokksins í Morgunblaðshúsinu, Aðalstræti 6 II. hæð, er opin alla virka daga frá kl. 10—6 e .h. Sjáltstæðisfólk, hafið samband við skrifstofuna og gefið henni upplýsingar um námsfólk, sem er erlendis og annað fólk, sem verður fjarverandi á kjördag innanlands og utan. Símar skrifstof unnar eru 12757 og 1356 0. alla leið upp í jökulröndina og dæla því þar á tunnur á sleðun- um og það fyrir sama verð og ef afgreitt hefði verið heim í hús i Reykjavík. Helmingur leiðangursmanna var í bíl Sigurjóns, sem er að fara að líta eftir vatnsmælum við Tungná og Þórisvatn, en hinir dúuðu í snjóbílnum aftan á trukk unum alla leiðina. Það tók fjóra tíma að komast yfir Tungná á Hólsvaði, þar sem farið er yfir ána á fjórum álum og er sá breiðasti 400 m. Var ná- lægt helmingi meira vatn í ánni en venjulegt sumarvatn, eða hátt í 200 m8 sek. Óðu þeir Sigurjón og Guðmundur Jónasson á und- an með stóra járnkarla og könn- uðu leiðina. Gekk yfirferðin ágætlega. Komið var í Tungnárbotna síð- degis á laugardag og gist í skál- anum um nóttina. Búið er að flytja beltisbíla, sleða og farang- ur upp í jökulröndina og snúa trukkunum við í bæinn. Hiti hef- ur komizt mest upp í 16° síðan síðast var litið eftir mælunum í október sl. haust, en frost orðið mest 25° í vetur. Siglufjarðarskarð brátt opnað SIGLUFIRÐI, 26. maí. — Snjó- ruðningi í Siglufjarðarskarði er nú að mestu lokið. Verður veg- urinn væntanlega opnaður til um ferðar á fimmtudag eða föstudag. Hér hefur verið sérstök veður- blíða undanfarið, sólskin og stafa logn dag hvern og menn hafa slegið túnbletti heima við hús sín. — Stefán. Veður var gott á leiðinni og ágætt skyggni. Er mikið farið að grænka í byggð, t. d. kominn lit- ur á túnið á Galtalæk. Sem dæmi um hve vel vorar í ár, má geta þess, að hér upp við Vatnajökul eru útsprungin vetrarblóm. — í dag er suddarigning, en líkast til að birta upp. Lagt verður á jök- ulinn í kvöld, sunnudagskvöld, eða á morgun. Leiðangursmenn eru allir hressir og kátir og biðja fyrir beztu kveðjur. — E. Pá. / gSampandi sólskini Vatnajökli v/R-345, 26. maí. — Vatnajökulsleiðangur Jöklarann- sóknarfélagsins kom í skálann á Grímsfjalli klukkan 7,45 í morg- un, eftir 18 klukkustunda ferð á jöklinum á beltisbílum og með farangur á sleðum. í dag hafa verið miklar annir í pósthúsinu hér á jöklinum og hefur póstaf- greiðslumaðurinn stimplað með hinum þar til gerða póststimpli um 6000 bréf, mest ábyrgðarbréf. Búið er að ljúka nokkrum hluta fyrirhugaðra mælinga hér við Grímsvötn og mun þeim ljúka á miðivkudag. Mun leiðangurinn þá halda lengra inn á jökulinn. Hér er dómaslegt veður, 9 stiga hiti í forsælunni, og glampandi sólskin. —■ E. Pá. Valur vann Keflavík 2:1 ISLANDSMÓT 1. deildar var sett í gærkvöldi. Fyrsta leik móts ins léku Valur og Keflvíkingar. Valsmenn fóru með sigur af hólmi, 2 mörk gegn L

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.